Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 27

Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 2 7 LISTIR Ávarp á alþjóðlega dansdeginum Eg er villigrösin Morgunblaðið/EAX ALÞJÓÐLEGI dansdagurinn er haldinn hátíðlegur í dag, 29. apríl. Hlutverk dagsins er að færa saman allar tegundir dans og brjóta niður pólitísk, menningarleg og þjóðfélags- leg höft. Dagurinn á að færa saman fólk í vináttu og friði í sameiginlegu tungumáli - DANSI. Dagurinn hefur verið haldinn frá árinu 1982 þegar Alþjóða dansnefnd ITI, Unesco ákvað að haldinn yrði alþjóðlegur dansdagur hinn 29. apríl ár hvert. Dagurinn er afmælisdagur Jean-Georges Noverre sem fæddist fyrir meira en 225 árum og vann danslistinni mikið í hag. I tilefni dagsins er ávarpi frá þekktum danslistamanni dreift um allan heim. Ávarpið í ár er skrifað af japanska Butoh-dansaranum Kazuo Ohno en hann er margverðlaunaður fyrir verk sín og dans, auk þess sem hann hefur dansað víða um heim og leikið í kvikmyndum undanfarna áratugi. Skilaboð til alheimsins Þegar dauðinn er á næsta leiti þá sækir mað- ur í þær gleðistundir sem maður hefur átt í lífinu. Augun opnast upp á gátt þegar horft er í lóf- ana, þau horfa á dauða, líf, gleði og sorg með stóískri ró. Þessi daglega innri sálkönnun, er þetta upp- haf ferðalagsins? Attavilltur sit ég á leikveili látinna. Hér lang- ar mig til að dansa og dansa og dansa og dansa, líf villigrasanna. Eg sé viliigrösin, ég er villigrösin, ég og villi- grösin verðum eitt. Þessi hamskipti eru heimsmyndarfræði (e. cosmology) og könnun sálarinnar. í ríkugleika og gnægð náttúrunnar sé ég grunn dansins. Er þetta vegna þess að sál mín vill ná raunverulegri snertingu við sann- leikann? Þegar móðir mín lá á dánarbeðinum strauk ég hár hennar alla nóttina án þess að geta mælt eitt huggunarorð. Eftirá rann upp fyrir mér að það var ekki ég sem var að sinna henni heldur var það hún sem sinnti mér. Lófar móður minnar eru mér sem dýrmæt villigrös. Ég vil dansa dans villigrasanna þar til hjarta mitt slær sín síðustu slög. Guðmimdur Helgason ritarí Félags íslenskra listdansara þýddi. Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi Ljóðasam- keppni barna og unglinga SELFOSSI. MORGUNBLAÐIÐ. BÆJAR- og héraðsbókasafnið á Selfossi stóð fyrir ljóðasam- keppni í tilefni af Alþjóðadegi bókarinnar sem haldinn var há- tíðlegur sumardaginn fyrsta. AIls sendu 92 þátttakendur inn 207 ljóð. Flest ljóðin komu frá ljóð- skáldum í aldurshópnum 9-12 ára. Allir sem sendu inn ljóð í keppnina fengu viðurkenningar- skjal frá bókasafninu og þakkir fyrir þátttökuna. Ein verðlaun voru veitt í hveijum aldursflokki en þeir voru 6-8 ára, 9-12 ára, 13- 15 ára og 16-20 ára og ein aðal- verðlaun án tillits til aldurs. Dómnefnd skipuð Þóru Grét- arsdóttur, Steinunni Sigurðar- dóttur og Ásmundi fékk það erf- Morgunblaðið/Sig. Fannar. VERÐLAUNAHAFAR í ljóðasamkeppni Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Selfossi. Stórsveit á tímamótum TONLIST ItÚðllIÍNÍ ð STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Stórsveit Reykjavíkur: Snorri Sig- urðsson, Andrés Björnsson, Bjarni Freyr Ágústsson og Birkir Freyr Matthiasson trompet; Edward Fred- riksen, Björn R. Einarsson, Oddur Björnsson og David Bobroff básúna; Jöel Pálsson, Ólafur Jónsson, Stefán S. Stefánsson, Kristinn Svavarsson og Davíð Þór Jónsson saxófónn; Ást- valdur Traustason pianó, Ársæll Más- son gítar, Gunnar Hrafnsson bassi og Jóhann Hjörleifsson trommur. Stjórnandi Sæbjörn Jónsson, söng- kona Tena Palmer og kynnir Ólafur Stephensen. Ráðhús Reykjavíkur 25. apríl 1998. ÉG HEYRÐI síðast í Stórsveit Reykjavíkur á RúRek-djasshátíð- inni í haust þegar Frank Foster kom í heimsókn til að stjórna henni. Síðan hafa orðið nokkrar manna- breytingar og enn sem oftar er sveitin á tímamótum. Það er erfitt að berjast fyrir tilveru stórsveitar sem að mestu er skipuð atvinnu- mönnum sem leika kauplaust. Það er eins og baráttan fyrir sinfóníu- hljómsveitinni á árum áður. Því sárari er þessi barátta að áfanga- sigur var unninn með stofnun Léttsveitar Ríkisútvarpsins, síðar Stórsveitar. Hún var lögð niður með einu pennastriki. Það var því fróm ósk sem kynnir tónleikanna, Ólafur Stephensen, bar fram. „Að- eins að ég mætti vera útvarpsstjóri í tíu mínútur. Þá mundi ég ráða Stórsveit Reykjavíkur sem út- varpsstórsveit." En hversu Sæ- björn og drengirnir halda út skal ósagt látið - aðeins bent á að varia er til það menningarríki í Evrópu þar sem útvarpsstórsveit er ekki starfandi á einn eða annan hátt. Tónleikarnir á laugardag hófust á leikandi léttum ópus eftir japönsku stórsveitardrottninguna og píanóvirtúósinn Toshiko Akiyos- hi: Lasy day. Þar kom bæði styrkur og veikleiki hljómsveitarinnar í ljós. Vantaði herslumun á hið léttleik- andi svíng, en kraftur góður - og sólistar skínandi: Jóel Pálsson hinn þaulreyndi tenóristi, Snorri Sig- urðsson trompetistinn efnilegi og nýliðinn Davíð Þór Jónsson á barítónsaxófón. Það hefur ekki ver- ið aðalhljóðfæri neins íslensks djassleikara utan Finns Eydals og vonandi á Davíð Þór eftir að rækta þann garð - margt gott í sólóum hans þótt tónninn sé enn ekki þroskaður. Efnisskráin var allblönduð. Eft- irtektarverðasta verkið var Hello and goodbye eftir básúnuleikarann og stórsveitargúrúinn Bob Brook- meyer, þar sem Jóel fór á kostum. Þótt innkomur væru ekki allar ná- kvæmar og samleikur ekki fullkom- inn er miklu meiri nautn að hlusta á slík verk en einhverjar innantómar útsetningar af léttara taginu, sem verða að engu ef einhverju skeikar í spilamennskunni. Þannig fór um Jersey bounce, sem Tena Palmer söng. Sveiflan var ekki í lagi hjá sveitinni og þá var ekkert eftir. Aft- ur á móti tókst Tenu mjög vel upp er hún söng útsetningu Lennies Niehaus af Almost like being in love og ekki heiglum hent að leggja í það lag, er Ellý Vilhjálms söng svo meistaralega á hljómdiski sveitar- innar (Jazzís 301). Af öðrum lögum er Tena söng skal minnst á Dam that dream, þar sem titurlaus rödd hennar og næm ballöðutúlkun nutu sín vel. Sambataktur og fönk á oft betur við sveitina en einfalt svíng. Hrynsveitin býr yfir þunga sem naut sín vel í lögum á borð við Lat- in import eftir John Fedchock þar sem trommarinn, Jóhann Hjörieifs- son, var í aðalhlutverki - og svo kom blúsað verk frá Svíþjóð: No future. Nokkuð skemmtilega samið verk hjá Daniel Nolgard, sem hér hefur verið gestakennari hjá Tón- listarskóla FIH. Ársæll Másson var með gítarsóló í upphafi, sem er næstum eins sjaldgæft og Freddie Green-sóló hjá Basie, og svo sax- arnir Stefán S. á altó og frábær Jó- el á tenór. I lokin má nefna að Ást- valdur Traustason átti ágæta pí- anóspretti og Gunnar Hrafnsson fór á kostum á bassann. Svo er bara að vona að Sæbjörn og drengirnir láti ekki deigan síga og menningar- yfirvöld landsins rumski af Þyrnirósarsvefninum. iða starf að velja verðlaunaljóðin. Aðalverðlaun fyrir besta ljóðið án tillits til aldurs höfundar fékk Telma Sveinsdóttir, 15 ára, fyrir ljóðið EF. Hún hlaut launum Heimskringlu Snorra Sturlu- sonar. Aðrir verðlaunahafar: María Dagbjört Sveinsdóttir 8 ára, Helga Gyða Helgadóttir 9 ára, Bergþóra Snæbjörnsdóttir 13 ára, Fanney Ragnarsdóttir 19 ára. Aukaverðlaun í flokknum 9- 12 ára hlutu: Jón Steinar Jóns- son 9 ára, Árný Yrsa Gissurar- dóttir 10 ára. Tryggvi E. Mathiesen 9 ára. • ÚT er komið tímaritið Bjart- ur og frú Emilía nr. 27. Áskrif- endalistinn, sem er langur, var prentaður út og nokkrum rithöf- undum falið að velja sér nöfn úr skránni og skrifa um þau. Árang- urinn er þetta 27. hefti Bjarts og frú Emilíu sem er tileinkað áskrifendum Bjarts og frú Emil- íu. Og er forsíða þess Benedikts- bleik að þessu sinni. Guðbergur Bergsson lét eftir- farandi orð falla í inngangi að skrifum sínum: og er gott að hafa þetta hugfast: Tímarit Leyndardómur nafnanna Mannanöfn hafa ekki lengur sérstaka merkingu í huga mér, heldur mennirnir sem bera þau. I æsku voru það aftur á móti nöfn- in sem höfðu dularfulla merkingu, ekki mennirnir sem báru þau. Fyrir bragðið gæti ég skrifað bók um leyndardóma nafnanna. Höfundar efnis að þessu sinni eru: Linda Vilhjálmsdóttir, Gerð- ur Kristný, Inga Björk Ingadótt- ir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Haraldur Jónsson, Bragi Ólafs- son, Guðbergur Bergsson, Oddný Eir Ævarsdóttir, Þórunn Valdi- marsdóttir, Dagur Kári Péturs- son, Þorsteinn J. Vilhjálmsson, Árni Ibsen, Sjón, Kristján B. Jónasson, Ásta Ólafsdottir, Mika- el Torfason, Þorvaldur Þorsteins- son. Tímaritið kemur út 3-5 sinnum á ári og er árgjald krónur 1998 í ár og hækkar um eina krónu ár hvert. Finnst þér ílagi að... la n gt ím aatvin n u ley s i kvenna hefur fjórfaldast íReykjavík? R-listinn lofaði að standa og falla með atvinnumálum. Nú er langti'maatvinnuleysi a landinu hvergi meira en i Reykjavik. I tíð R-listans hefur langtimaatvinnuleysi kvenna fjórfaldast. i ii^Tnnnjt) ík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.