Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 38

Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ Frumvarp um gagnagrunna á heilbrigðissviði STÓRPÓLITÍSKASTA MÁL í TÆPA HÁLFA ÖLD FRUMVARP um gagnagrunna á heil- brigðissviði er stórpóli- Íískasta mál sem komið hefur upp á Islandi í tæpa hálfa öld og varð- ar persónuvernd, heil- brigðispólitík og vís- indapólitík. Nokkur meginatriði, sem nauð- synlegt er að fjalla ítar- lega um og skoða vel og lengi áður en slíkt laga- frumvarp verður af- greitt, eru: 1) A að koma upp miðlægum gagnagrunni eða hafa samhæfða, dreifða gagnagrunna? 2) A að semja um starfsleyfi við einkaaðila? »i) Eiga lögin að vera afturvirk, þannig að leyft verði að safna heil- brigðisupplýsingum sem fólk hefur gefið í góðri trú og tausti þess að ekki verði notaðar nema vegna heilsu þess sjálfs, og 4) Á að veita einkafyrirtæki einkaleyfí til starf- rækslu allsherjar gagnagrunns á heilbrigðissviði? Persónuvernd 1) Gagnagrunnar eru skv. skil- greiningu frumvarpsins safn sjálf- ^stæðra verka eða annars efnis, sem hefur að geyma heilsufarsupplýs- ingar og aðrar upplýsingar þeim tengdar. Upplýsingar tengdar heilsufarsupplýsingum eru hvers kyns persónuupplýsingar, upplýs- ingar sem varða heilsuhagi, lyfja- notkun, bætur almannatrygginga, erfðafræði- og ættfræðiupplýsing- ar. Aðrar upplýsingar, sem varða heilsuhagi, eru upplýsingar um fjárhag fólks svo sem skattskrá og fasteignaskrá, sakaskrá, upplýsing- ar um félagslega aðstoð, sem fólk hefur þegið, o.s.frv. 2) Heilsufarsupplýsingum hefur verið safnað vegna greiningar og meðferð- ar sjúkdóma einstak- linga, en ekki til þess að skapa auðlind, sem einkafyrirtæki gætu ausið af. I sambandi við notkun heilsufarsupp- lýsinga er hagur ein- staklingsins alltaf sett- ur ofar hag heildarinn- ar, nema um sé að ræða bráða hættu. 3) Nauðsynlegt er að gera greinarmun á gagnagrunnum sem fólk veitir sjálft upp- lýsingar í af fúsum vilja til rannsókna, eins og t.d. hjá Hjartavernd, og gagna- grunnum sem búnir eru til að fólk- inu forspurðu löngu eftir að það gaf upplýsingarnar í góðri trú um að þær yrðu eingöngu notaðar vegna þess sjálfs. 4) I greinargerð með frumvarp- inu eru nefndar, sem dæmi um hvernig gagnagrunnur geti nýst, kannanir á því hvernig nota megi upplýsingar um erfðir til að sníða aðgerðir í heilsuvemd og fyrir- byggjandi læknisfræði að þörfum einstaklinga. Nákvæmlega þetta, hvernig nota mætti upplýsingar um erfðir til aðgerða í heilsuvernd og fyrirbyggjandi læknisfræði, er ein af ástæðunum fyrir tilurð siða- reglna um vísindalegar rannsóknir og tilraunir í læknisfræði eftir heimsstyrjöldina síðari eins og t.d. Helsinki-yfirlýsingarinnar, vegna þess hvernig slíkar upplýsingar höfðu verið misnotaðar áður. 5) Þetta lagafrumvarp gengur al- gjörlega gegn lögunum um skrán- ingu og meðferð persónupplýsinga (tölvulögum). 6) Frumvarpið gengur einnig gegn lögunum um réttindi sjúk- Dulkóðun er persónu- númer, segir Tómas Helgason, en það verður í raun ný kennitala viðkomandi einstaklings linga, enda beinlínis tekið fram í greinargerð, að þau lög standi í vegi fyrir því að unnt sé að veita að- gang að upplýsingum úr sjúkra- skrám til skráningar í gagnagrunna nema vegna einstakra vísindarann- sókna. Og ekki er heldur unnt, skv. gildandi lögum, að veita tímabundin sérleyfi til aðgangs að áður skráð- um heilsufarsupplýsingum. 7) í frumvarpinu segir, að upp- lýsingar séu ekki persónugreinan- legar ef persónugreining getur ein- ungis átt sér stað með notkun greiningarlykils. Hér er um algera sýndarleynd að ræða þegar nota á sama dulkóðunarnúmerið í jafn um- fangsmiklum gagnagrunni sem varðar heilsufar og ættfræði eins og hér er stefnt að. Dulkóðunin er persónunúmer, sem verður í raun ný kennitala viðkomandi einstak- lings. Dulkóðun er líka meiningar- leysa ef ætlunin er að nota gagna- grunninn til að sníða aðgerðir í heilsuvernd að þörfum einstak- linga. Heilbrigðispólitík 1) Ráðherra getur veitt stofnun eða einkaaðila heimild til gerðar og starfrækslu gagnagrunna. Nú er ætlunin að stofna allsherjar mið- lægan gagriabanka á heilbrigðis- sviði, en það er alger kúvending frá stefnumótun í íslenska heilbrigðis- kerfinu, sem gefin var út í lok síð- Tómas Helgason Innlausnarverð árgreiðslumiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 2. maí 1998 er 2. fasti gjalddagi árgreiðslumiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1995. Gegn framvísun árgreiðslumiða nr. 2 verður frá og með 4. maí nk. greitt sem hér segir: Árgreiðslumiði að nafnverði: 50.000 kr. = 52.584,70 kr. 100.000 kr. = 105.169,40 kr. 1.000.000 kr. = 1.051.694,40 kr. Ofangreind fjárhæð er afborgun af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 1. október 1995 til 2. maí 1998 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á visitölu neysluverðs. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð árgreiðslumiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn árgreiðslumiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 4. maí 1998. Reykjavík, 29. apríl 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS _________________________ asta árs. Þar var beinlínis tekið fram að ekki væri áformað að setja upp miðlægan gagnabanka, upplýs- ingar skyldu varðveitast þar sem þær yrðu til. 2) Starfsleyfishafi á að vera ís- lenskur lögaðili, en það er skýrt í greinargerð svo, að hann skuli vera skráður hér á landi eða telja heimili sitt vera hér á landi skv. samþykkt- um sínum án tillits til þess hvenig rekstrarform eða eignaraðild er háttað, þ.e.a.s. hér getur verið um að ræða einkafyrirtæki, sem er skráð hér á landi, en alfarið í eigu útlendinga, t.d. lyfjafyrirtækja eða tryggingarfélaga. 3) Sagt er að gagnagrunnurinn eigi að vera staðsettur hér á landi en með beinlínutengingu til ann- arra landa, sem gerir staðsetning- una hér á landi að meiningarleysu. 4) Rætt er um að nota megi gagnagrunninn til líkanasmíðar fyrir áætlunargerð í heilbrigðis- þjónustu. Engin þörf er fyi-ir aftur- virka skráningu í þessu skyni og er raunar fræðilegur misskilningur að gera ráð fyrir slíku. 5) Heimilt er að veita starfsleyf- ishafa aðgang að upplýsingum úr sjúkraskrám og öðrum heilsufars- upplýsingum í 20-30 ár, eins og seg- ir í greinargerð og sjálfsagt lengra aftur í tímann ef verkast vill án eft- irlits siðanefnda. Hér er komið aft- an að fólki. 6) Gert er ráð fyrir að jafnframt leyfi ráðherra sé aðgangur að sjúkraskránum háður samþykki viðkomandi heilbrigðisstofnana. En inn í lögin er settur hvati til stofnananna til að veita slík leyfi, sem jaðrar við þvingun vegna þess að tekið er fram, að sé hægt að skilyrða leyfisveitinguna því að leyfishafi veiti aðstoð við endur- bætur á meðferð og vinnslu heilsu- farsupplýsinga hjá viðkomandi stofnun. 7) Ráðherra getur falið vísinda- siðanefnd og tölvunefnd eftirlit með lögunum, en þarf ekki að gera það, þ.e.a.s. eftirlitið getur verið alfarið í höndum ráðherra á hverjum tíma. 8) I greinargerð er sagt, að ýmsir telji að viðamiklir gagnagrunnar kunni að auðvelda lausnir á þeim vanda sem blasir við heilbrigðis- kerfum. Þetta er algerlega óvíst enda mjög losaralega tekið tO orða. Ekki er tekið fram eða skýrt hverj- ir þessir ýmsir séu, hvort það séu frumvarpshöfundar eða einhverjir aðrir, sem gefið er í skyn. 9) Bent er á, að hér séu sérstakar aðstæður til að koma upp vönduð- um gagnagrunni á heilbrigðissviði, en talin óvissa um arðsemi hans. Engin óvissa er um arðsemi slíks gagnagrunns. Arðsemin er mjög mikil, enda sækjast ýmsir, lyfjafyr- irtæki og aðrir mjög eftir að kom- ast í gögn um heilsufar fólks, til þess að geta grætt meira fé. Síðar í greinargerðinni er líka bent á, að erlend fyrirtæki muni hafa áhuga á áskrift að gagnagrunninum og beinlínutengingu til notkunar við þróunarstarfsemi sína. Hér getur verið um að ræða lyfjafyrirtæki og tryggingafélög. 10) Frumvarpið gengur út frá óvissu um eignarétt upplýsinganna og þar af leiðandi geti ráðherra ráðstafað þeim að vild. Þó að upp- lýsingum hafi verið safnað og þær skráðar að einhverju leyti fyrir op- inbert fé, er fráleitt að ætla að þær Mörkinni 3 * simi 588 0640 E-mail: casa@islandia.i$ •www.cassina.it • www.roset.de • www.zanotta.it • www.artemide.com • www.flos.it • www.ritzenhoff.de •www.alessi.it • www.kartell.it • www.fiam.it • www.fontanaarte.it séu almannaeign fremur en óbirtar ævisögur manna. Vísindapólitík 1) Alvarlegasta atriðið sem varð- ar vísindapólitíkina er það, að sam- kvæmt frumvarpinu getur ráðherra veitt einum aðila einkaleyfi á að starfrækja og nýta gagnagrunninn í allt að 12 ár. Að vísu hefur verið sagt í umræðunni að flestir vísinda- menn geti fengið aðgang að honum, en að sjálfsögðu með samþykki einkaleyfishafa, þannig að rann- sóknir viðkomandi bijóti ekki í bága við hagsmuni hans, og vænt- anlega fyrir greiðslu til einkaleyfis- hafans. Samkvæmt þessu er greini- legt að sumir muni ekki fá leyfi til að nota gagnagrunninn. 2) Faraldsfræðilegar rannsóknir, sem byggjast á notkun gagna- grunns meðal þjóðarinnar allrar, verða heftar og háðar samþykki einkaleyfishafa. Enginn mun reyna að fást við slíkar rannsóknir þegar vitað er um tilvist gagnagrunnsins. Þetta má þegar sjá af því, að eng- inn fæst við faraldsfræðilegar rann- sóknir á krabbameinum á íslandi nema með notkun á krabbameins- skrá og samþykki Krabbameinsfé- lagsins og enginn fæst við faralds- fræðilegar rannsóknir á hjartasjúk- dómum nema með aðgangi að gagnagrunni Hjartavemdar. 3) Einkaleyfíð heftir einnig rann- sóknir á heilbrigðisþjónustunni nema þær sem unnar eru á vegum heilbrigðisráðuneytis. Aðrir sem kynnu að vilja fást við slíkar rann- sóknir geta ekki komist að nema með samþykki einkaleyfishafa. Rannsóknir á árangri meðferðar og afdrifúm sjúklinganna verða heftar og háðar samþykki einkaleyfishafa. 4) Einkaleyfið heftir rannsóknar- samvinnu við erlenda aðila aðra en þá sem einkaleyfishafi hefur vel- þóknun á. 5) Þess er að vísu getið, að hægt verði að vinna að vísindarannsókn- um eins og hingað til á einstökum stofnunum eða af einstökum hóp- um, en slíkt er auðvitað mun tak- markaðra en hægt væri að gera ef til væru samhæfðir, dreifðir gagna- grunnar, sem hægt væri að nota við einstök vísindaleg verkefni með samþykki þar til bærra aðila, þ.e.a.s. vísindasiðanefndar og tölvu- nefndar. 6) Erlendir vísindamenn, sem heyrt hafa um þetta lagafrumvarp, hafa látið í ljós undrun á því, að menn skuli láta sér detta í hug að koma upp slíkum allsherjar mið- lægum gagnagrunni með svo við- kvæmum upplýsingum. Þá vekur það undrun, að mönnum skuli detta í hug að veita einkafyrirtæki einka- leyfi á rekstri og notkun gagna- grunnsins, sem ekki sé 15 eða 20 milljarða virði heldur mörg hund- ruð milljarða virði, eins og sjá megi af ásókn lyfjafyrirtækja í gögn eins og þau sem þarna yrðu saman kom- in. Miklu alvarlegast er þó, að ein- okun sem fylgdi einkaleyfinu mundi leiða til stöðnunar vegna þeirra hafta sem yrðu á rannsóknarfrelsi vísindamanna og möguleikum þeirra á að auka þekkinguna svo að hægt verði að bæta heilsufar alls al- mennings og þar með að gera heil- brigðisþjónustuna ódýrari. Niðurstöður: 1) Ekki á að koma upp miðlæg- um gagnagrunni. 2) Ekki á að semja um starfsleyfi við einkaaðila. 3) Lög eiga ekki að vera aftur- virk. 4) Alls ekki má veita einkafyrir- tæki einkaleyfi til starfrækslu og notkunar á miðlægum gagnagrunni með upplýsingum um heilsuhagi og ættartengsl. Einokun leiðir til stöðnunar. 5) Núgildandi lög vernda upplýs- ingar um einkahagi borgaranna og eru fullnægjandi til að unnt sé að skrá þær upplýsingar, sem heil- brigðisyfirvöld þurfa á að halda og til þess að unnt sé að stunda vís- indarannsóknir eðlilega. Höfundur er dr. med., prófessor emeritus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.