Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 43

Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 4^ í 1 I I I I I I P ) I I I I P P P + Hallgrímur Ey- fells Guðnason fæddist 16. febrúar 1935. Hann lést í Reykjavík 21. apríl síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Ólafiu Eyleifsdóttur og Guðna Bærings- sonar og var einn af níu systkinum. Hallgrímur átti einn son af fyrri sambúð, Björgvin. Eftirlifandi eigin- kona Hallgríms er Sesselja Haralds- dóttir, sonur þeirra er Hall- grímur Byron. Þau eiga einnig tvö fósturbörn, Gísla Einar og Láru Ólafíu. títför Hallgríms fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Kveðja frá eiginkonu Farienglarfyrirmig - það fyrsta bænin væri - inn í Ijósið leiði þig látni vinur kæri. (BA) í dag er kvaddur hinstu kveðju Hallgrímur Eyfells Guðnason smið- ur. Okkur mæðgurnar langar að minnast hans Hallgríms í örfáum orðum. Það fylgdi svo rnM lífsgleði honum Hallgrími, hann var alltaf brosandi og alltaf í góðu skapi, ef einhver þurfti hjálp þá var Hall- grímur alttaf tftbúinn að hjálpa og rétta hjálpar- hönd. Við hittum Hallgrím í síðasta sinn í fermingar- veislu 19. apríl síðastliðinn. Mann óraði ekki fyrir því að þetta væri í síðasta sinn sem við sæjum hann. Að kvöldi þriðjudagsins 21. apríl var hringt til okkar og okkur færðar þær sorgarfréttir að hann Hallgrímur væri látinn. Við kveðjum hann Hallgrím með mikilli sorg og söknuði. Elsku Sesselja, Bæron, Björgvin, Gísli og Lára, við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. 0, þá náð að eiga Jesúm einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sínu í Drottins skaut. Ó, það slys því hnossi að hafna hvílíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í Drottins skaut. (M. Joch.) Hi'afnhildur, Harpa, Elva Ýr og Ólafur. Okkur langar að minnast í nokkrum orðum tengdasonar okk- ar og mágs, sem lést 21. þ.m. Öll urðum við harmi slegin þegar við fréttum hið skyndilega fráfall Halla, eins og hann var ávallt kall- aður. Það sem einkenndi HaEa var glaðværð og góðmennska og aldrei lá hann á hði sínu ef hann gat rétt einhverjum hjálparhönd. Hann var mjög músíkalskur og hafði gaman af að syngja og spila á gítar og org- el. Það var mikið gæfuspor fyrir Sesselju þegar hún kynntist Halla. Hann gekk börnum hennar, Gísla og Láru, í fóðurstað og mátu þau hann mikils. Fyrir átti hann soninn Björgvin, sem gaf honum 3 elsku- leg bamaböm. Saman eignuðust þau soninn Hallgrím Byron sem var augasteinn pabba síns, og vom þeir feðgar mjög samrýndir. Missir þeirra allra er mikill, og vottum við þeim okkar dýpstu samúð. Þó lýsi sól um loftsins geim og langur kveðji vetur, sumarið með sorgarhreim sárum heilsað getur. Öll við sjáum eftir þér, erfið kveðjustundin, en sælt að minning um þig er ást og hlýju bundin. Þérafhjartaþráumvið að þakka fyrir árin. Nú ber þig á hin björtu svið bænir lækna sárin. (BA) Tengdafjölskylda. Jónssonar. Síðan tóku við flutning- ar á Akranes hjá Höllu og Helga, en með hækkandi sól á nýju ári var meiningin að hittast á Akranesi á heimili Sigríðar Stephensen og Sól- mundar Jónssonar. En þá fengum við þessar fréttir að Halla væri orðin fársjúk. Enda þótt Halla hafi oft átt við veikindi að stríða í gegn um árin þá vora þau af öðrum toga. Hún sigraðist á þeim og þegar ég talaði við hana í síma rétt fyrir síð- ustu jól, var gleðin hjá fjölskyldu hennar ómæld, því að Sigríður dóttir hennar hafði eignast son. Hjónin vora aftur flutt á Akranes og komin í nábýh við tvö bama sinna, Jonna og Siggu og þeirra fjölskyldur. Því var okkur mjög bragðið. Við fylgdumst með þess- um bráðu veikindum hennar og vissum að engin von var um bata. I huga okkar mun minningin um HöUu lifa. Við sjáum hana íyrir okkur, ljóshærða, fallega konu, gestrisna, glaðlynda og skemmti- lega. Kæri Helgi. Við vottum þér og fjölskyldunni innilega samúð og þökkum allar ógleymanlegu og góðu stundimar. F.h. HK-klúbbsins, Magdalena Ingimundardóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Sérfræðingar í blómaskreytinguin við öll tækifæri 1 blómaverkstæði H liSlNNA I Skólavöröustíf; 12, á horni Berj>staðastra*tis, sími 551 9090 HALLBJÖRG TEITSDÓTTIR + Hallbjörg Teitsdóttir fædd- ist í Eyvindartungu í Laug- ardal 18. mars 1933. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 30. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 8. apríl. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós . blikna að hausti. (Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir) Þetta fallega saknaðarljóð hefur verið í huga mínum allt frá því að fregnin um andlát Höllu Teitsdótt- ur barst og segir í raun hvað efst er í huga okkar vinkvenna hennar í HK klúbbnum, þegar við minn- umst hennar. Hann var bjartur og fagur dag- urinn sem við Stella ókum fyrir Hvalfjörð á leið okkar til Akraness til þess að vera við útfór Höllu. Það var svo mikil heiðríkjan og litimir í fjöllunum svo fallegir. Akranes- kirkjan var böðuð í sólskininu, birt- an innan hennar og yndislegar blómaskreytingamar með rósum í uppáhaldslit HöUu, allt minnti þetta okkur á birtuna og gleðina sem ávallt var yfir Höllu á öllum okkar samfundum. Hún var sann- kölluð rós, sem döggvuð var af okkur, sem voram komin til þess að kveðja þessa yndislegu konu. Aður en við ókum aftur til Reykjavíkur áttum við og Kristrún góða samverustund heima hjá Svandísi Pétursdóttur og Magnúsi Oddssyni. Við rifjuðum upp allar skemmtilegu samverastundirnar sem við höfum átt á heimilinu hver hjá annarri. Þeirra var gott að minnast og er minningin um Höllu efst í huga okkar. A fagurri júnínótt fyrir rúmum 20 árum, á Vesturgötunni á Akra- nesi á heimili Stellu og Guðmundar heitins Árnasonar ræddum við um að stofna saumaklúbb, sem í sjálfu sér er ekkert nýnæmi. En klúbbur- inn okkar á Akranesi var frábragð- inn mörgum öðram að því leyti að í þennan klúbb völdust eingöngu að- komukonur. Við voram hvorki æskuvinkonur né skólasystur. Við voram konur sem fluttust til Akra- ness vegna ýmissa starfa eigin- manna okkar. Halla var boðin hjai'tanlega velkomin í klúbbinn okkar, þegar hún og Helgi Jónsson fluttust til Akraness, en Helgi tók við sem útibússtjóri Landsbanka íslands árið 1977. Enda þótt HaEa og Helgi flytt- ust til Akureyrar, Britt var flutt aftur til Osló og við Stella fluttar til Reykjavíkur, höfum við haldið áfram að hittast. Það hefur ávallt verið mikið tilhlökkunarefni hjá okkur öllum. Meðan við bjuggum allar á Akranesi, hittust við hvenær sem var í vikunni, en eftir að hópurinn tvístraðist hafa helg- amar verið nýttar tU samvista. Tvisvar hittumst við á Akureyri tókum „rútuna“ á Umferðarmið- stöðinni í Reykjavík og á Akranes- gatnamótunum komu Kristrún og Sigríður í bflinn, en þá gat Svandís ekki verið með okkur vegna and- láts föður síns. Sigurbjörg og Björgvin H. Bjamason vpra í heimsókn á Sauðárkróki. Ók þá Björgvin konu sinni tfl móts við okkur í Varmahlíð. Ekki stóð á þeim feðgum, Helga og síðar Helga Teit að „stjana" við okkur, sækja okkur og aka okkur hvert sem var. Úr þessum ferðum var gerð sann- kölluð menningarreisa. Við sóttum leikhús á Akureyri, skoðuðum bæ- inn og nutum tflverunnar. Gestrisni þeirra hjóna var einstök og glæsilegar vora móttökurnar eins og ávallt áður. En það var sama hvar þau hjón bjuggu, það var alltaf sami glæsileikinn yfir heimili þeirra, hlýjan og vináttan í fyrirrúmi, móttökumar frábærar. Á þessum 20 áram hefur sorgin barið að dyrum hjá okkur, eins og gengur í öllum fjölskyldum. Þannig era þrír eiginmanna okkar látnir, en Halla er sú fyrsta sem yfirgefur þetta jai'ðsvið af okkur HK konum sem í upphafi voram átta. En það er táknrænt að síðast þegar við hittumst var það hjá Höllu á Kópa- vogsbrautinni. Það hafði verið fyr- irhugað að hittast á haustmánuð- um í sumarbústaðnum hjá SteEu, en af því gat ekki orðið vegna veik- inda og dauðsfalls Hermanns G. HALLGRIMUR EYFELLS GUÐNASON + Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafafi, GUÐMUNDUR JÚLÍUS GUÐMUNDSSON, Grenimel 35, Reykjavfk, lést á Landakotsspítala aðfaranótt mánu- dagsins 27. apríl sl. Guðný Sigfúsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Sigfús Guðmundsson, Guðni Guðmundsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Hafdís Guðmundsdóttir, Sigurður Jakobsson, Rosemarie Þorleifsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Ólafur Kristinn Ólafsson, Guðmundur Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, bróðir, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, tengdasonur og afi, LEIFUR ÞÓRARINSSON, tónskáld, verður jarðsunginn í sálumessu í Kristskirkju, Landakoti, mánudaginn 4. maí kl. 13.30. Inga Bjarnason, Sigríður Ásdís Þórarinsdóttir, Hákon Leifsson, Auður Bjarnadóttir, Alda Lóa Leifsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Þórarinn Böðvar Leifsson, Hrappur Magnússon, Steinunn Bjarnason, Auður Anna, Inga Huld og Salvör Gullbrá. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA ÞÓRUNN ÞORSTEINSDÓTTIR frá Hólum, Helgafellssveit, Heiðarvegi 23, Keflavík, sem lést föstudaginn 24. apríl á Garðvangi, ■___________ Garði, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 2. maí kl. 14.00 Helgi Már Kristjánsson, Guðbrandur Kristjánsson, Haildóra Kristinsdóttir, Jónína Sigurjónsdóttir, Guðbjartur Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARGRÉT EINARSDÓTTIR, Víðimel 19, Reykjavík, sem lést föstudaginn 24. apríl, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtu- daginn 30. apríl ki. 15.00. Unnur Þorkelsdóttir, Inga Þorkelsdóttir, Ingibergur Þorkelsson, Freygerður Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR. Guðrún Ólafía Sigurgeirsdóttir, Guðjón Viðar Sigurgeirsson, Sigrún H. Jóhannesdóttir, Sigmundur Sigurgeirsson, Guðný Guðnadóttir, Helga Sigurgeirsdóttir, Jón Berg Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.