Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir foreldra
' ungra bama kl. 10-12. Starf fyrir
10-12 ára kl. 17.
Bústaðakirlga. Félagsstarf aldr-
aðra: Opið hús í dag kl. 13.30-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna-
stund og veitingar. Starf fyrir 10-12
ára kl. 17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12. Starf
fyrir 10-12 ára börn kl. 17.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Foreldrar og böm þeirra hjart-
anlega velkomin. Sr. María Ágústs-
dóttir. Kvöldbænir og fyrirbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Starf fyrir eldri
borgara í dag kl. 13-17.
Laugarneskirkja. Lokafundur í
æskulýðsheimilinu í kvöld. Húsið
opnað kl. 19.30.
Neskirkja. Litli kórinn (kór eldri
borgara) æfir kl. 11.30-13. Umsjón
Inga J. Backman. Fótsnyrting kl.
13-16, uppl. í síma 551 6783. Bæna-
messa kl. 18.05. Sr. Halldór Reynis-
son.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
» bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. TTT-starf fyrir
10-12 ára í dag kl. 17.15. Æskulýðs-
fundur kl. 20.
Digraneskirkja. KFUM & K 10-12
ára bama kl. 16.30. Æskulýðsstarf
KFUM & K kl. 20 fyrir 13 ára og
eldri.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK kl. 17.30
fyrir 9-12 ára stúlkur.
Hjallakirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
bömum í dag kl. 16.30-17.30 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) ára
börnum kl. 17.30-18.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Léttur kvöldverður að bænastund
lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins
Sela kl. 20. \
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, fyrirbænir og
altarisganga. Léttur hádegisverður
á eftir. Opið hús kl. 20-22 æskulýðs-
fél. 13-15 ára.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara milli kl. 14.00 og
16.30. Helgistund, spil og kaffi.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
20 KFUM- & K-húsið opið ungling-
um.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
18.30 er fjölskyldusamvera sem
hefst með léttu borðhaldi á vægu
verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
INNLENT
Sjálfstæðisflokkurinn
í Hafnarfírði
Stefnuskrá-
in kynnt
í kvöld
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
í Hafnai-firði heldur fund til kynn-
ingar á stefnuskrá sinni fyrir
komandi bæjarstjórnarkosningar
í kvöld, miðvikudagskvöldið 29.
apríl nk. í húsi Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, Strandgötu 32.
Fundurinn, sem er öllum opinn,
hefst kl. 20.30.
,Á fundinum verður kosninga-
stefnuskrá flokksins kynnt, en hún
er víðtækt yfirlit yfir baráttumál
flokksins í bænum. í stefnuskránni
er tekið á fjölmörgum málaflokk-
um. Þeir varða atvinnumál í bæn-
um, hafnarmál, skólamál, dagvisL
armál, skipulags- og byggingar-
mál, umhverfismál, íþróttamál,
æskulýðs- og tómstundamál, fé-
lags- og húsnæðismál, ferðamál,
menningarmál, heilbrigði- og öld-
unarmál, ásamt áherslum flokksins
varðandi fjármál bæjarins og
stjómun hans,“ segir í frétt frá
Sjálfstæðisflokksins.
Gefinn verður út sérstakur
bæklingur með stefnu flokksins
og honum dreift á fundinum en
einnig verður stefnuskránni dreift
í öll hús í bænum.
Glúntasöngur
á Valborgar-
messuhátíð
Á VALBORGARMESSUHÁTÍÐ
Islensk-sænska félagsins fimmtu-
daginn 30. apríl í Kiwanishúsinu
við Mosfellsbæ verður glúnta-
söngur hafinn til vegs og virðing-
ar á ný. Tveir jarðfræðingar, þeir
Oddur Sigurðsson og Þóroddur F.
Þóroddsson, sem lært hafa í Upp-
sölum, syngja Glúnta við undirleik
Bjarna Jónatanssonar.
„Þriðji Uppsalafræðingurinn,
Halldór Torfason, bætist svo í hóp
þeirra félaga er þeir syngja aka-
pella De tre, tríó Gunnars Wenn-
erbergs fyrir tenór, baritón og
bassa. Jarðfræðingarnir þrír taka
hér upp merki Sigurðar heitins
Þórarinssonar jarðfræðings og
fleiri góðra félaga í íslensk-
sænska félaginu fyrr og síðar sem
glatt hafa félagsmenn og raunar
landsmenn alla með túlkun
sænskrar vísna- og söngvahefðar.
Á dagskrá Valborgarmessuhá-
tíðar eru m.a. hylling Toms
Söderman, sendiherra Finnlands,
til vorsins og hátíðarræða Antons
Helga Jónssonar rithöfundar.
Kveikt verður í bálkesti kl. 24.
Dregið verður í happdrætti þar
sem aðalvinningur er ferð fyrir
tvo til Stokkhólms eða Helsing-
fors með Flugleiðum," yegir í
fréttatilkynningu frá Islensk-
sænska félaginu.
Sumarfagn-
aður hjá
Hrafnistu
SUMARFAGNAÐUR vistfólks-
ins á Hrafnistu í Hafnarfirði verð-
ur haldinn miðvikudaginn 29. apríl
kl. 20.
Barnakór Kársnesskóla syngur.
Stjórnandi er Þórunn Bjömsdótt-
ir. Róbert Arnfinnsson leikari les
úr íslandsklukku Halldórs Lax-
ness, Kvennakór Reykjavíkur
syngur undir stjóm Jóhönnu Þór-
hallsdóttur og ungmenni frá
Dansskóla Auðar Haralds sýna
samkvæmisdansa.
í lokin verður stiginn dans og
annast Félag harmonikuunnenda
tónlistina. Stjómun á hljómgæð-
um annast Hljóðverið Stöðin.
Reyklausir
bekkir fá
viðurkenningu
63 BEKKIR á unglingastigi hafa
sótt um og fengið viðurkenningu
fyrir reykleysi frá Krabbameins-
félaginu á þessu ári. „Félagið hef-
ur veitt þessar viðurkenningar
síðastliðinn áratug og hafa þær
verið mikill hvati til þess að bekk-
ir sýni samstöðu um reykleysi,"
segir í fréttatilkynningu frá
Krabbameinsfélaginu.
I DAG
VELVAKAADI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Er að leita
að Öddu/
Aðalbjörgu
AÐALBJÖRG Jóhann-
esdóttir hafði samband
við Velvakanda og er
hún að leita að nöfnu
sinni. Aðalbjörg hafði
fengið bréf frá tyrk-
neskri konu að nafni
Meli og segist Meli hafa
verið með Aðal-
björgu/Öddu í miðskóla
(high school) í Banda-
ríkjunum fyrir 30 ámm.
Ef rétta Aðalbjörg-
in/Adda kannast við
þetta er hún beðin að
hafa samband við Aðal-
heiði Jóhannesdóttur í
síma 557 7895.
Fjölgum þeim í 13
GUÐRÚN Jónsdóttir
hafði samband við Vel-
vakanda og sagðist hún
hafa verið að lesa grein
eftir Jóhann Ársælsson
þar sem hann skrifar um
innri endurskoðun í
Landsbankanum, að hún
telji 9 manns. Guðrúnu
finnst það auðsætt að
þetta em auðvitað svein-
amir 1 og 8 sem allir
þekkja. En þar sem ver-
ið er að tala um að
styrkja og endurskoða
innri endurskoðun bank-
ans, finnst henni sjálf-
sagt að þeim verði fjölg-
að í 13.
Tapað/fundið
Kvengleraugu týndust
á Rósenberg
KVENGLERAUGU
týndust á Rósenberg sl.
miðvikudagskvöld. Skil-
vís finnandi hafi sam-
band í síma 553 2559.
Fundarlaun.
Hjól týndist
SVART, grænt og fjólu-
blátt 28“ Mountain
Track hjól týndist fyrir
utan hús í Vesturási sl.
helgi. Viti einhver hvar
hjólið er niðurkomið er
hann beðinn að hringja í
síma 567 8084, því eig-
andinn, fjórtán ára ung-
lingur, saknar þess sárt.
Buffalo skór týndust í
Árbæjarlaug
BUFFALO skór nr. 37,
svartir með glimmeri,
týndust frá Árbæjarlaug
föstudaginn 24. apríl
milli kl. 19-22. Þetta em
mjög sérstakir skór og
þeirra er sárt saknað.
Skilvís finnandi hafi
samband í síma 557 1680.
Fundarlaun.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Ungviðið bregður á leik í vorsólinni.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
móti í Dos Hermanas á
Spáni, sem lauk á laugar-
daginn var. Roberto Ci-
feuentes-Parada (2.535),
Hollandi, hafði hvítt og
átti leik gegn M. Pena
Dieguez, Spáni.
34. Bxg6! - hxg6 og svart-
ur gafst upp án þess að
bíða eftir 35. Dh8+ - Ke7
36. Hc7+ en þá verður
hann að gefa
drottninguna til
að forða máti.
Úrslit mótsins
urðu: 1.
Hamdouchi,
Marokkó 7(4 v. af
9 mögulegum, 2.-
5. Campora, Ar-
gentínu, Episín,
Rússlandi,
Ubilava, Georg-
íu, og Franco,
Spáni 7, v.
Fjórtán stór-
meistarar kepptu
á mótinu og er þessi sigur
Hamdouchi líklega besti
árangur Afríkubúa frá
upphafi. Hann er stór-
meistari með 2.535 Elo-
stig.
HVÍTUR leikur og vinnur.
STAÐAN kom upp á opnu
HOGNI HREKKVISI
huegu tlÍL/aum V/fsu%t/rft/rir veiun/ví?
Cs
&ií
Víkveiji skrifar...
ENN ein stöðin var í síðasta sinn
á dagskrá á þessu vori síðastlið-
ið laugardagskvöld. Víkverja finnst
það dapurlegt að það sé í fyrsta lagi
aftur í haust sem þeir Spaugstofu-
menn skemmta landanum á ný.
Grín Spaugstofumanna og skörp
þjóðfélagsádeila er fyrir löngu orð-
inn ómissandi þáttur í íslensku
þjóðlífi. Raunar fylltist Víkverji
skelfingu við tilhugsunina um að
þeir Spaugstofumenn hætti með
öllu á skjánum, því honum fannst
sem þeir gæfu það til kynna á laug-
ardagskvöldið, að þeir ætluðu ekk-
ert endilega að koma aftur í haust.
Víkverji vonar þó einlæglega að
hann hafi misskilið þetta og það hafi
einungis verið sumarið sem fimm-
menningarnir hafi átt við, í sam-
bandi við hvfld frá þættinum. Auð-
vitað þurfa Spaugstofumenn á sínu
fríi að halda og eru ugglaust þreytt-
ir eftir veturinn. Það er náttúrlega
ótrúlegt hvemig þeim tekst vetur
eftir vetur að halda úti þessum
vikulegu þáttum, þar sem þeir setja
samtímann og atburði líðandi
stundar í spéspegil oftast á óborg-
anlegan hátt.
XXX
EGAR Víkverji ók til vinnu
snemma á föstudagsmorgun
hlýddi hann á Ríkisútvarpið Rás 2,
þar sem rætt var við unga konu sem
nemur bókmenntafræði við Háskóla
íslands. Unga konan var ekki sátt
við þann sess sem ástarsögur skipa
í virðingarstiga bókmennta og sagði
máli sínu til rökstuðnings að á mán-
uði hverjum væru seldar tuttugu
þúsund ástarsögur í bókaverslunum
landsins, en bókin sem næði því að
vera metsölubók á Islandi fyrir jólin
næði því með því að skríða yfir tíu
þúsund eintök í sölu. Þetta fannst
Víkverja nokkuð athyglisvert inn-
legg í bókmenntaumræðuna, svona
morguninn eftir alþjóðadag bókar-
innar, sem var haldinn hátíðlegur
sumardaginn fyrsta. Hitt fannst
Víkverja öllu verra, þegar unga
konan sagði að því væri oft haldið
fram að lesendur slíkra bókmennta
væru konur sem „ekki geta feisað
raunveruleikann". Hér heldur Vík-
verji að konan hafi átt við konur
sem ekki geta horfst í augu við
raunveruleikann og hún hafi gripið
til enskrar tungu, þar sem sagt er
„to face reality". Þetta er auðvitað
óboðlegt mál og ætti síst að heyrast
í útvarpi frá konu sem nemur bók-
menntafræði.