Morgunblaðið - 29.04.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 55
Morgunblaðið/Ásdís
„KVIKMYNDIN Christine er tilvalin fyrir fólk með bfladellu,"
segir Helgi Rúnar.
Vídeó allan
daginn
„ÉG FÆ aldrei að
ráða neinu,“ heldur
Helgi Rúnar fram. „Ef
ég fengi einhverju að
ráða þá myndi ég
horfa á vídeó allan
daginn, og þá yrðu eftirfarandi
myndir fyrir valinu;
Spawn
Mark A.Z. Dippé -1996
„í þessari mynd eru bestu tækni-
brellur sem ég hef séð í lengri tíma,
en reyndar enginn söguþráður af
viti. Samt eru góðir leikarar í henni;
John Leguizamo, Michael Jai
White, Martin Sheen og Theresa
Randle. Tónlistin í myndinni er frá-
bær og er búið að gefa út geisladisk
með tónlistinni sem ég mæli líka
með.“
The Shining
Stanley Kubrick -1980
„Þetta er besta mynd sem Jack
Nichols hefur leikið í frá upphafi.
Strákurinn er líka frábær í sínu
hlutverki miðað við að hann er barn.
Myndin heldur manni vel við efnið
út allan sýningai-tímann. Ég mæli
þó ekki með að við-
kvæmir horfi einir á
þessa mynd á dimmu
vetrarkvöldi."
Christine
John Carpenter -1983
„Christine er góð mynd fyrir fólk
með bíladellu eins og ég. Hún fjallar
um strák á mínum aldri sem kaupir
gamlan bíl og gerir hann upp. Þessi
bíll er einstakur því hann hefur sinn
eigin huga og notar hann til að
drepa fólk. Þess vegna hugsa ég
alltaf til myndarinnar ef ég sé
gamla bíla.“
Speed 2
Jan De Bont -1996
„Mér finnst Speed 2 langtum
betri mynd en sú fyrri. I þessari
mynd gerist allt á skemmtisnekkju
sem lendir illa í því út af einum
hönnuðinum sem var rekinn og vill
hefna sín á eigendum hennai-. Það
eru ekki sömu leikarar og í þeirri
fyrri, og þótt Sandra Bullock hafi
staðið sig mjög vel þá eiginlega
vantaði Keanu Reeves í þessa
mynd.“
I HAVEGUM
hjá Helga Rúnari
Friðbjörnssyni
verkamanni
MYNDBÖND
Fótboltabulla
Funi
(Fever Pitch)_________________
(■anianmyiid
★★★
Framleiðendur: Amanda Posey. Leik-
stjóri: David Evans. Handritshöfund-
ar: Nick Hornby byggt á skáldsögu
hans. Kvikmyndataka: Chris Seager.
Tónlist: Boo Hewerdine, Neil
MacColl. Aðalhlutverk: Colin Firth,
Ruth Gemmel, Neil Pearson,
Lorraine Ashbourne. 105 mín. Eng-
land. Háskólabíó 1998. Myndin er öll-
um leyfð.
ÞESSI rómantíska gamanmynd
um mann, konu og knattspyrnulið
er byggð á sjálfsævisögu Nick
Hornby. Enskukennarinn Paul
Ashworth (Colin Firth) er sann-
færður um að lífið snúist um lítið
annað en aðdáun á knattspymulið-
inu Arsenal. En þegar hann byrjar í
ástarsambandi viö Sönih, sem er
nýbyrjuð að kenna í sama skóla og
hann, verður hann að velja hvort sé
mikilvægara hún eða fótboltinn.
Samband þeirra þróast samhliða
gengi Arsenal og nær hápunkti sín-
um í einum mikilvægasta leik
enskrar knattspyi-nu fyrr og síðar.
Þrátt fyrir að fótbolti og sjúkleg-
ur áhugi á íþróttinni spili stórt hlut-
verk í Funa er megináherslan á
niannlega þáttinn og stendur þar
uppúr samband
Söruh og Pauls.
Colin Firth í hlut-
verki Pauls sann-
ar það enn og aft-
ur að hann er einn
af fremstu leikur-
um Breta en hann
er þekktastur fyr-
ir túlkun sína á
Darcy í sjón-
varpsþáttunum
Hroki og hleypidómar. Ruth
Gemmel þarf að berjast við heilt
knattspyrnulið til þess að ná í ástina
sína og er túlkun hennar á Söruh
einstaklega vel heppnuð. Samleikur
Gemmel og Firth er það sem heldur
þessari mynd uppi fyrir þá sem lít-
inn áhuga hafa á knattspyrnu þó
dramatíkin í kringum leik Arsenal
og Liverpool ætti ekki að fara fram
hjá neinum. Margar skemmtilegar
persónur koma fram í myndinni og
tengjast þær flestar Paul og áhuga
hans á fótbolta. Handrit Nick Horn-
by er vel skrifað og er innihaldi
bókarinnar komið vel til skila. Öll
tæknivinnsla er mjög góð og leik-
stjórinn David Evans sér til þess að
hér er á ferðinni frábær afþreying
sem gleymir aldrei mannlega þætt-
inum.
FOLK I FRÉTTUM
Hinum
megin við
Lagar-
fljótsorminn
EFNT var til veislu á Egilsstöð-
um nú nýverið í tilefni af því að
Pizza 67 í Fellabæ hefur flutt
starfsemi sína yfir á Egilsstaði.
Veitingastaðurinn er nú í björtu
og rúmgóðu húsnæði að Lyngási
3. Haldið var upp á daginn með
viðeigandi hætti og mættu fjöl-
margir gestir til að samfagna
eigendum staðarins, þeim Sigríði
Sigmundsdóttur og Þór Ragnars-
syni.
, Morgunblaðið/Anna Ingólfs
GISLI Helgason, Baldur Sigfússon og Hólmfríður Hallsdóttir ásamt
eigendum Pizza 67, Sigríði Sigmundsdóttur og Þór Ragnarssyni.
ÁSTA Björk Matthíasdóttir, Kristján B. Þórarinsson og Helga Sigurð-
ardóttir mættu í ný salarkynni Pizza 67 á Egilsstöðum.
iðnaði
FYRIRSÆTAN á myndinni
er í kjól sem indverski hönn-
uðurinn Bobby Grover sýndi
á tískusýningu í Bombay fyr-
ir skömmu. Fataframleið-
endur á Indlandi tóku ný-
lega saman höndum um að
mynda hagsmunahóp sem
samhæfir viðskiptahætti,
stuðlar að samvinnu við
vefnaðarframleiðendur og
gera hagstæðari samninga
við verslunareigendur.
Samvinna
í tísku-
www.mbl.is
RISA-
LAGERÚTSALA
Framlengt í örfáa daga
Vörur frá
- 17
- DERES
- SMASH
- 4 YOU
O.FL. O.FL.
JT
I
KOLAPORTINU
Algjört veröhrun:
100 - 300 - 500 - 700 - o.fl.
Opið virka daga frá kl. 13-18,
laugardaga frá kl. 11-17
sunnudaga frá kl. 11-17
Ottó Geir Borg