Morgunblaðið - 10.06.1998, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.06.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 13 FRÉTTIR FORSETAHJÓNIN skoðuðu í gær byggðasafn, þar sem hefðbundið byggingarlag eistneskra sveitahúsa er varðveitt. Skrautlegur þjóð- dansaflokkur bauð þar upp í dans, og það stóð ekki á hjónunum að stíga sporið að hætti innfæddra. FORSETINN ávarpaði eistneska þingið. Morgunblaðið/Ásdís FORSETINN lagði blómsveig við minnismerki um þá sem féllu í svokölluðu frelsisstríði Eista, sem háð var 1918-1920, og lyktaði með stofnun fyrsta eistneska lýðveldisins. GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú skoðaði ásamt fleiri mökum meðlima íslenzku sendinefndarinnar eistneskt listhandverk í gær. Hér virðir hún fyrir sér glerlistmuni f Iítilli listasmiðju í miðbæ Tallinn. „Það eru ekki efnahagslega voldugustu rfldn sem geta gert tilkall til að leggja hinni nýju Evrópu til samvizku. Hjarta nýrr- ar Evrópu liggur í þeim þjóðfé- lögum, sem þrátt fyrir smæð héldu anda frelsis og lýðræðis lif- andi á myrkustu tímabilum aldar- innar,“ sagði Ólafur Ragnar. Þingheimur fagnaði ávarpi forsetans vel, en hann sagði með- al annars: „Island, minnsta aðild- arríki NATO, óbundið af mála- miðlunum innan Evrópusam- bandsins, var fært um að láta úr- tölur ekki hafa áhrif á sig og veita Eystrasaltsríkjunum nauð- synlegan stuðning í baráttu ykk- ar fyrir sjálfstæði," sagði forset- inn. „Eg þekki þá atburðarás vel úr innri hring ríkisstjórnar og þings íslands á þessum áium. Litla eyjan í Norður-Atlantshaf- inu var eins og Davíð á meðal Golíata sem vildu bíða og biðja um meiri tíma.“ Haldið til Tartu Dagskrá gærdagsins lauk með hátíðarkvöldverði í boði forseta Eistlands og eiginkonu hans. f dag verður haldið til háskóla- borgarinnar Tartu í miðju Eist- landi, þar sem forsetinn heldur fyrirlestur um „smærri lýðveldi í Evrópu", þar sem segja má að hann bregði sér í fyrra hlutverk sem háskólakennari í stjórnmála- fræði. Þá mun Halldór Asgríms- son utanríkisráðherra halda er- indi við háskólann í Tallinn um NATO og stækkun þess, en hann var fjarverandi dagskrá forseta- heimsóknarinnar í gær þar sem hann þurfti að bregða sér á ráð- herrafund í Lúxemborg. Heimsókninni lýkur í fyrra- málið, þegar haldið verður til Riga í opinbera heimsókn til Lettlands. Ferð forsetahjónanna um Eystrasaltslöndin þrjú Iýkur næstkomandi mánudag. - I 2 AKRANES - Tðlvuþjónustan - 431 4311 • AKUREYRI - Tðlvutaeki -462 6100 • HORNAFJÖRÐUR - Tðlvuþjónusta Austurlands - 478 1111 HÚSAVÍK - Tölvuþj. Húsavlk - 464 2169 • ISAFJÖRÐUR - Tðlvuþj. Snerpa - 456 5470 • REYKJANESBÆR - Tðlvuvæðing - 421 4040 SAUÐARKRÓKUR - Skagfíröingabúð - 455 4537 • SELFOSS - Tölvu- og rafeindaþj. - 482 3184 • VESTMANNAEYJAR - Tðlvun - 481 1122 Tæknival www.taeknival.is kynslóð Compaq EP tölvukynslóðin byggir frá grunni á nýrri hönnun sem miðar sérstaklega að því að auðvelda fyrirtækjum og einstaklingum að aðlaga tölvukerfið að margvíslegri og flókinni starfsemi. COMPAa -slcer öllum við Pentium II 266MHz með skjá á verðifrá 139.000,- með vsk. Öflugasta lausnin er alltaf sú einfaldasta. Með það að markmiði býður Compaq fyrir- tækjum upp á heildarlausn sem ekki aðeins einfaidar uppsetningu og vinnslu heldur tryggir hámarks áreiðanleika og rekstraröryggi Compaq - fremstir meðal jafningja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.