Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
' A
AUGLÝSINGARNAR sem unnu til verðlauna þykja að mati dómnefndar sýna frábært sambland af áhugaverðum myndum og hrífandi fyrirsögn-
um. Ddmarar létu þess getið að þegar þeir hefðu séð auglýsingarnar hefði kviknað hjá þeim löngun til að lesa umræddar greinar.
Morgunblaðið og Gott fólk hljóta fyrstu verðlaun í alþjóðlegri auglýsingasamkeppni
Anægjuleg
viðurkenning
MARGRÉT Kristín Sigurðarddttir markaðssljóri Morgunblaðsins
tdk við verðlaununum fyrir hönd Morgunblaðsins. Með henni á
myndinni eru Joe Frederickson forseti INMA (t.v.) og D. Colin
Phillips útgefandi tímaritsins Editor & Publisher.
MORGUNBLAÐIÐ hlaut fyrstu
verðlaun í auglýsingasamkeppni á
vegum alþjóðasamtaka markaðs-
fólks á dagblöðum, INMA (Inter-
national Newspaper Marketing As-
sociation) og tímaritsins Editor &
Publisher. Verðlaunin voru veitt
fyrir auglýsingar sem birtar hafa
verið í Morgunblaðinu um efni
blaðsins.
Hlakkaðu til að lesa
Margrét Kristín Sigurðardóttir
markaðsstjóri Morgunblaðsins tók
á móti verðlaununum á heimsþingi
INMA sem haldið var á Grand Hot-
el Krasnapolsky í Amsterdam sl.
fimmtudag. Tasplega 1.800 innsend-
ingar voru í keppninni frá 27 lönd-
um á 13 tungumálum. The New
York Times vann verðlaunin „Best
of Show“ fyrir sjónvarpsherferð
sína „Expect the World“ en auglýs-
ingar Morgunblaðsins unnu í flokki
blaðaauglýsinga fyrir dagblöð með
upplag 50.000-100.000 eintök.
Auglýsingarnar, sem báru yfir-
skriftina Hlakkaðu til að lesa, fengu
eftirfarandi umsögn dómnefndar-
innar: „Frábært sambland af
áhugaverðum myndum og hrífandi
fyrirsögnum. Þegar við sáum aug-
lýsingarnar langaði okkur til að lesa
greinarnar.“
Fyrsta keppnin haldin 1931
Auglýsingamar sem voru verð-
launaðar eru birtar í bókinni „Best
in Print“ sem gefin er út á hverju
ári og dreift víða um heim og sagt
frá þeim í sérstakri útgáfu Editor &
Publisher. DV vann einnig til verð-
launa í sínum upplagsflokki undir
50 þúsund eintök og er það tekið
sérstaklega fram í aukaútgáfu
Editor & Publisherað tvö dagblöð á
íslandi hafi unnið til verðlauna.
Nokkur blöð unnu fleiri en ein verð-
laun og eitt þeirra fékk 9 verðlaun í
mismunandi flokkum.
Verðlaun í keppninni voru veitt í
63. skipti en keppnin var fyrst hald-
in 1931. í fyrstu þegar keppnin var
sett á laggirnar var tilgangurinn að
sýna mikilvægi góðrar kynningar
fyrir árangur dagblaða. Núna er lit-
ið á keppnina sem leið til að deila
góðum hugmyndum og sýna nýjar
árangursríkar markaðsaðgerðir hjá
dagblöðum út um allan heim. Verð-
laun eru veitt í 19 flokkum, þar af 4
flokkum þar sem auglýsingar eru
birtar í dagblöðum, en aðrir flokkar
eru prentað efni, sjónvarp, útvarp,
skilti og þar sem margir miðlar eru
notaðir saman.
„Það er mjög ánægjulegt fyrir
okkur að fá þessa viðurkenningu og
sýnir að við erum að gera eitthvað
sem jafnast á við það sem markaðs-
fólk á dagblöðunum úti í hinum
stóra heimi er að gera,“ segir Mar-
grét Kristín Sigurðardóttir mark-
aðsstjóri Morgunblaðsins. „Við
fengum einnig verðlaun í fyrra, en
það var í fyrsta skipti sem við send-
um auglýsingu í þessa keppni, því
var það skemmtilegt að fá verðlaun
í allt öðrum flokki núna,“ segir hún
og bætir við að auglýsingarnar hafi
verið hugsaðar sem leið til að láta
lesendur blaðsins vita af áhuga-
verðu efni sem á að birta í næstu
blöðum og skapa þar með ákveðnar
væntingar og forvitni svo fólk
hlakki til að fá blaðið í hendur.
Góð samvinna
Auglýsingarnar voru unnar í sam-
vinnu Morgunblaðsins og auglýs-
ingastofunnar Góðs fólks. „Fyrstu
auglýsingarnar sem við birtum voru
unnar í mjög góðri samvinnu við
stofuna en núna vinnum við þær inn-
anhúss hjá okkur. Núna höfum við
birt hátt í 50 slíkar auglýsingar með
mjög ólíku efni sem á að sýna þann
mikla fjölbreytileika sem Morgun-
blaðið býður lesendum sínum hvern
útgáfudag og kynna nöfn alls þess
fólks sem er að skrifa í blaðið. Þótt
svona verðlaun skili engum beinum
fjárhagslegum ávinningi þá er þetta
hvatning og ýtir enn frekar undir
metnað að standa faglega að kynn-
ingarstarfinu.“
Helgi Helgason, framkvæmda-
stjóri Góðs fólks, segist vera mjög
ánægður með verðlaunin, þau hafi
vissulega góð áhrif fyrir auglýsinga-
stofuna. „ÓIl verðlaun hafa áhrif á
það sem við erum að gera. Kannski
ekki á viðskiptin sem slík, heldur
miklu frekar á fólkið sem vinnur hjá
okkur. Þetta er góð viðurkenning
fyrir störf þeirra," segir hann.
L
»
I
I
Tvö ný hlutafélög í út-
reikning Urvalsvísitölu
TVÖ ný félög koma inn í útreikning
á Úrvalsvísitölu Verðbréfaþings Is-
lands frá og með 1. júlí næstkom-
andi. Eru það Hraðfrystihús Eski-
fjarðar hf. og Skeljungur hf. Aftur á
móti falla Hampiðjan hf. og
Pharmaco hf. út úr vísitölunni. Úr-
valsvísitalan hækkaði um 7,2%
fyrstu fimm mánuði ársins.
Samkvæmt reglum um útreikn-
ing á vísitölum Verðbréfaþings Is-
lands skal birta eigi síðar en 10. júní
hvaða 15 félög af Aðallista Verð-
bréfaþings mynda Úrvalsvísitölu
þingsins á síðari helmingi ársins.
Valið fer þannig fram að fundin eru
þau 20 félög sem viðskipti eru tíðust
með á tólf mánaða tímabili og
fimmtán stærstu félögin úr þessum
hópi, miðað við markaðsverðmæti,
mynda Úrvalsvísitöluna næstu sex
mánuði. Hlutabréfasjóðir eru þó
undanskildir við valið.
Úrvalsvísitalan er því samsett af
þeim félögum sem hafa hvað
virkasta verðmyndun á þinginu en í
frétt frá Verðbréfaþingi er tekið
fram að val í Úrvalsvísitöluna beri
ekki að túlka að öðru leyti sem
gæðastimpil á viðkomandi hluta-
bréf.
Félögin fimmtán sem mynda Úr-
valsvísitöluna síðari hluta ársins
koma fram í meðfylgjandi töflu. Tvö
ný félög hafa bæst við frá síðasta
útreikningi, Hraðfrystihús Eski-
fjarðar hf. og Skeljungur hf. A móti
falla út Hampiðjan hf. og Pharmaco
hf.
Alls eru nú skráð 50 félög á Aðall-
ista Verðbréfaþings, þar af 10
hlutabréfasjóðir. Þau fimmtán félög
sem mynda Úrvalsvísitöluna vega
samtals um 70% af markaðsverð-
mæti félaga á Aðallista, fyrir utan
hlutabréfasjóði. Vægi sjávarútvegs-
fyrirtækja í Úrvalsvísitölunni er
meira en helmingur, eða tæp 55%
15 félög sem mynda Úrvalsvísitölu
| frá 1. júlí til 31. desember 1998 M®rkað,s.v®í5?' Breyting verðs frá áramót.
Félag Atvinnugrein III.W. U l/U sJU (millj.kr.) 31/5'98
1. Eimskipafélag íslands Samgöngur 20.029,3 19,17% 18,1%
2. Flugleiðir Samgöngur 7.682,3 7,35% 9,4%
3. Grandi Sjávarútvegur 7.720,1 7,39% 49,6%
4. Haraldur Böðvarsson Sjávarútvegur 6.380,0 6,11% 16,5%
5. Hraðfrystihús Eskifjarðar Sjávarútvegur 4.001,6 3,83% 10,0%
6. íslandsbanki Fjármál og trygg. 12.799,9 12,25% -0,6%
7. IVIarel Tækni- og lyfjageiri 3.819,2 3,66% -4,4%
8. Samherji Sjávarútvegur 11.547,4 11,05% -1,5%
9. Síldarvinnslan Sjávarútvegur 5.280,0 5,05% 1,2%
10. Skeljungur Olíudreifing 3.021,6 2,89% -10,8%
11. SR-mjöl Sjávarútvegur 5.540,0 5,30% -11,1%
12. Sölusamband ísl. fiskframl. Sjávarútvegur 3.217,5 3,08% 18,1%
13. Útgerðarfél. Akureyringa Sjávarútvegur 4.911,3 4,70% 32,1%
14. Vinnslustöðin Sjávarútvegur 2.358,4 2,26% -1,1%
15. Þormóður rammi-Sæberg Sjávarútvegur 6.175,0 5,91% 0,4%
Hlutfall atvinnugreina
í Úrvalsvísitölu
Sjávarútvegur 54,7%
Samgöngur 26,5%
Fjármál og tryggingar 12,3%
Tækni- og lyfjageiri 3,7%
Olíudreifing 2,9%
Þjónusta og verslun 0,0%
Iðnaður og framleiðsla 0,0%
Hlutabréfasj. ogfjárfest.fél. 0,0%
'fyrir utan hlutabréfasjóöi 100,0%
eins og fram kemur í meðfylgjandi
töflu. Til samanburðar má geta þess
að vægi sjávarútvegsfyrirtækja er
liðlega 46% á Aðallistanum. Aftur á
móti eru engin félög Úrvalsvísitöl-
unnar flokkuð sem þjónustu- eða
verslunarfyrirtæki, iðnaðar- eða
framleiðslufyrirtæki eða fjárfest-
ingarfélög.
7,2% hækkun á árinu
Verðbréfaþing Islands hóf að
birta nýjar hlutabréfavísitölur 1.
mars síðastliðinn. Frá áramótum til
loka maímánaðar hækkaði Úivals-
vísitalan um 7,2%. Úivalsvísitala-
heildarafkoma hækkaði á sama tíma
um 8,7%, en sú vísitala er frábrugð-
in hinni hefðbundnu Úrvalsvísitölu
á þann hátt að hún leiðréttir verð-
mæti félaga fyrir arðgreiðslum.
Samkvæmt því hefur samanlagt
markaðsverðmæti þeirra 15 hlutafé-
laga sem mynduðu Úrvalsvísitöluna
á fyrri hluta ársins hækkað um
7,2% fyrstu fimm mánuðina, en eig-
endur þeirra hafa notið samtals
8,7% hækkunar virðis og arð-
greiðslna.
YW hyggur á sam-
vinnu við Renault
Frankfurt. Reuters.
FORSTJÓRI Volkswagen AG,
Ferdinand Piech, hyggur á sam-
vinnu við franska bílaframleiðand-
ann Renault SA, að sögn þýzka
tímaritsins Stern.
Talsmaður VW kvað fréttina
„hreinar vangaveltur" og vildi ekk-
ert fleira um málið segja.
VW vill bæta við bílum handa
fyrirtækjum við flota VW, Audi,
Skoda og SEAT bifreiða sinna fyr-
ir fjöldamarkað í tengslum við
Renault, þriðja helzta framleið-
anda fyrirtækjabíla í Evrópu, að
sögn Stern.
VW vill einnig þróa tvo lúxusbíla
til viðbótar Rolls-Royce, sem fyrir-
tækið keypti í síðustu viku.
Fyrirtækið hyggst endurvekja
„Horch“ merkið, sem er í eigu dótt-
urfyrirtækisins Audi AG. „Horch“
lúxusbflar voru eftirlæti auðmanna
og kvikmyndaleikara í Þýzkalandi á
árunum fyrir seinni heimsstyrjöld-
ina.
VW ætlar að smíða Horch bfla
með 18 strokka vél í verksmiðju í
Dresden samkvæmt Stern. Fyrir-
tækið vill líka kaupa ítalska sport- p
bílaframleiðandann Lamborghini og
bæta honum við Audi dótturfyrir-
tæki sitt, að sögn Stern.
Hefur áhuga á Bugatti
Tímaritið segir enn fremur að Pi-
ech hafi áhuga á að komast yfir
réttinn á vörumerki lúxusbflafram-
leiðandans Bugatti.
Þar að auki ætlar VW að skipta t
vélaframleiðanda Vickers Plc,
Cosworth, sem fyrirtækið hefur ný- p
lega eignazt, í tvær deildir, að sögn
blaðsins. Vickers samþykkti að selja
Audi Cosworth fyrir 120 milljónir
punda í síðustu viku auk þess að
selja VW Rolls-Royce Motor Cars
fytár 430 milljónir punda.
Audi mun framleiða átta og 12
strokka vélar í Bentley og Rolls-
Royce bfla, en VW tekur við |»
kappaksturs- og verkræðistarfsemi t
Cosworths í samvinnu við Ford j-
Motor Co, samkvæmt Stern. p
Cosworth framleiðir nú þegar
vélar í Ford kappakstursbíla, meðal
annars í Formúlu 1 bíla.
Alríkið kærir Intel
Washington. Reuters.
ALRIKISRÁÐ viðskiptamála í
Bandaríkjunum (FTC) hefur kært
Intel Corp fyrir að misnota einokun
á tölvuörgjörvum til að hefta sam-
keppni.
FTC heldur því fram að Intel hafi
brotið lög um heiðarleg viðskipti
þegar fyrirtækið hafi neitað þremur
tölvuframleiðendum um mikilvægar
upplýsingar til að reyna að bæla nið-
ur samkeppni og standa í vegi fyrir
nýjungum.
Málið kemur fyrir dómara í haust.
Ljósar staðreyndir
Lítið er deilt um staðreyndir. Intel
sleit sambandi við Digital Equip-' t
ment Corp., Compaq Corp. og **'
Intergraph Corp. þegar fyrirtækin p
fóru í mál við Intel - eða bandamenn
Intels - fyrir brot á einkaleyfi.
í yfirlýsingu eftir að kæran var
lögð fram kvaðst Intel telja kæruna
byggða á misskilningi á lögum og
málsatvikum og sagði að ef fyrirtæk-
ið tapaði málinu yrði því áfrýjað.
Intel hefur sagt að fyrirtækið hafi
rétt til að neita fyrirtækjum um upp- t.
lýsingar, ef þau neita að launa fyrir
sig. FTC hefur sagt að Intel sé ein-
okunarfyrirtæki og sérstakar reglur ^
eigi við.