Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 21

Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 21 ERLENT Nýr herstjórnandi í Nígeríu Abubakar sver embættiseið Jerúsalem, Lagos, Abuja, Monróvía. NÍGERÍSKI rithöfurídurinn Wole Soyinka, sem hlaut Nóbelsverðlaun- in í bókmenntum árið 1986, hvatti erlend ríki í gær til að þrýsta á um lýðræðisþróun í kjölfar andláts San- is Abacha, einræðisherra í landinu. Yfirmaður varnarmála í Nígeríu, Abdusalam Abubakar hershöfðingi, sór embættiseið forseta í gærmorg- un og lýsti þegar yfir vikulöngu sorgartímabili en lét ekkert hafa eftir sér um væntanlegar forseta- kosningar í landinu sem fram eiga að fara 1. ágúst næstkomandi. Stjómarandstæðingar höfnuðu í gær tilnefningu Abubakars og sögð- ust halda áfram baráttu sinni gegn herforingj astjórn. Viðbrögð við dauða Abachas voru varfærnisleg í gær en nokkur fagn- aðarlæti brutust út í Lagos, höfuð- borg Nígeríu. „Eg er glaður, ekki endilega vegna andláts Abachas heldur vegna þess að nú gefst okkur nýtt tækifæri til að takast á við póli- tísk vandamál okkar,“ sagði heim- ildai-maður fíeuters-fréttastofunn- ar. Aðrir hafa látið í ljósi ótta um að vandamál sem Abacha hélt í skefj- um með harðri hendi komi nú aftur upp á yfirborðið. Abubakar, arftaki Abachas, hefur ekki áður sinnt pólitískum störfum en þykir rólyndur og yfirvegaður atvinnuhermaður og eru uppi efa- semdir um að hann komi til með að vilja starfa á vettvangi stjórnmál- anna til lengdar. Hann er vinur Ibi-ahims Babangida, fyrrverandi forseta Nígeríu, og hefur komið víða við í herstörfum sínum en var skipaður yfirmaður varnarmála árið 1993 þegar Abacha komst til valda. Kosningar fyrirhugaðar í ágúst Hinn nýi leiðtogi Nígeríu stendur frammi fyrir margs konar vanda- málum og ber þar hæst loforð um væntanlegar forsetakosningar í ágúst en Abubakar verður nú að Reuters ABDUSALAM Abubakar, hinn nýi forseti herforingjastjórnar- innar í Nígeríu. ákveða hvort kosningarnar fara fram eins og stefnt var að og hver fær að vera í framboði. Jafnframt verður hann að ákveða hvort borg- urum verður veitt aukin aðild að stjórn landsins, eins og að hefur verið stefnt, en Abacha var nokkuð gagnrýndur af erlendum ríkjum fyrii- að standa ekki við skuldbind- ingar sínar í þeim efnum. Mike McCurry, talsmaður Bandaríkjastjómar, sagðist eftir andlát Abachas vonast til þess að lýðræðislegir stjórnarhættir yrðu nú teknir upp í landinu og myndu færa íbúum Nígeríu gæfu og rétt- indi sem þeir ekki hefðu notið sem skyldi. Talsmaður Evrópusam- bandsins fór einnig fram á að al- menn mannréttindi yrðu í framtíð- inni höfð í hávegum. Stjórnvöld í Lí- beríu lýstu hins vegar yfir sorgar- degi í landinu vegna dauða Abachas en Abacha hafði í fyrra milligöngu um friðaráætlun sem batt enda á sjö ára borgarastríð í Líberíu. {/KiBMBsaam ÍELFA VORTICE VIFTUR TILALLRA N0TA! % Spaðaviffur hv.-kopar-stál Fjarstýringar fyrir spaðaviftur O Borðviftur margar gerðir Gólfviftur Baðviftur Gluggaviftur með tímarofa Inn- og útblástur Röraviftur Reykháfsviftur margar gerðir fyrir kamínur Iðnaðarviftur Þakviftur Ótrúlegt úrval - hagstætt verð Einar Farestveit&Cahf. Borgarlúni 28 - « 562 2901 og 562 2900 Brandtex fatnaður Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður Nýbýlavegi 12, sími 554 4433 Erlend verðbréf SCUDDER GLOBAL OPPORTpNITIES Funds Greater Europe Fund og Strategic Global Themes Fund skarta hæstu einkunn t\já hinu virta matsfyrirtæki Momingstar eða fimm stjömum. Ávöxtun hjá Greater Europe Fund var 41% árið 1997 og hækkun 26% á fyrsta ársfjórðungi 1998. Hjá Strategic Global Themes Fund var ávöxtun 25% 1997 og hækkun á fyrsta ársíjórðungi 1998 12%. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi ■ Sími 560 89 00 Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is -O aætir Farið í bílaleik í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.