Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 34

Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ 34 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 A-------------------------- AÐSENDAR GREINAR Nýjar leiðir í náms- og starfsráðgj öf Glæpur g’ag’n- vart afkomend- um okkar í LOK maí sl. sátu 30 náms- og starfs- ráðgjafar námskeið í hópráðgjöf. Nám- skeiðið var skipulagt af Félagi náms- og starfsráðgjafa í sam- vinnu við endur- menntunamefnd 'k'f'ramhaldsskóla. Það voru Endurmennt- unarstofnun HI og starfsmenntasjóður félagsmálaráðuneyt- is sem veittu styrki til þessa námskeiðs. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Norman E. Amund- son prófessor í sál- fræðiráðgjöf við Háskólann í Bresku Kólumbíu í Kanada og kon- Mfellowes. Pappírs- og skjalatætarar bæði fyrir ræmu- og bitaskurð Otto B. Arnar ehf. an hans Jeanette Amundson sem starfar sem einkaráðgjafí. Norman E. Amundson kom hér einnig sl. vor og hélt þá námskeið í aðferðum í náms- og starfsráðgjöf sérstak- lega fyrir fólk í atvinnuleit. Þar var áhersla lögð á tilfínningar einstak- linga, hæfíleika, áhuga og mennt- un. Mikil ánægja var meðal þátt- takenda eftir námskeiðið í fyrra og var Norman því fenginn til þess að Með símenntun og tæknivæðingu munu námsráðgjafar, að mati Bjargar Birgisdóttur og Sigríðar Bílddal, nýtast samfélagi, fyrir- tækjum og stofnunum vel í framtíðinni. halda námskeið hér aftur nú í vor og efni þessa námskeiðs var hópráðgjöf. Undanfarin ár hefur hann haldið slík námskeið víða í Evrópu. Á námskeiðinu var farið í mis- munandi aðferðir við hópstjórn sem nýtist mjög víða í starfí náms- og starfsráðgjafa svo sem í grunn- skólum, framhaldsskólum, háskól- um, fyrirtækjum og vinnumiðlun- um. Á námskeiðinu voru náms- og starfsráðgjafar víðs vegar af land- inu og frá ýmsum vinnustöðum, sem varð til þess að þátttakendur gátu miðlað mismunandi reynslu og íhugað hvernig hægt væri að nýta sér hópráðgjöf á hinum ýmsu sviðum fyrir ólíka hópa. Má þar nefna hópráðgjöf fyrir atvinnuleit- endur, hugsanlega brottfallsnem- endur í framhaldsskólum og nem- endur með sértæka námserfíðleika í grunnskólum. Einnig nýtast þess- ar aðferðir fyinr þá sem vilja vinna að einhverju sameiginlegu mark- miði, t.d. stuðningshópar. Námskeiðið var byggt upp á fyr- irlestrum beggja leiðbeinendanna, sýnikennslu og æfingum þátttak- enda. Hver þátttakandi þurfti að æfa sig í að stjóma hópum og var hópastarfið tekið upp á myndband. Að loknum æfíngunum bentu leið- beinendurnir á það sem hafði tekist vel og hvernig mætti nýta aðferð- ina betur. Fyrir vikið varð nám- skeiðið mjög faglega þroskandi og hagnýtt íyrir náms- og starfsráð- gjafana og mun auðvelda þeim að vinna með hópum í framtíðinni. í lok námskeiðsins lýstu þátttak- endur yfir ánægju sinni með nám- skeiðið og leiðbeinendurna, þau Norman og Jeanette Amundson og er greinilegt að þau búa yfir mikilli þekkingu á sínu sviði og miðla henni á mjög faglegan og áhuga- verðan hátt. Félag náms- og starfs- ráðgjafa ákvað á námskeiðinu að stofna stuðningshóp fyrir náms- og starfsráðgjafa þar sem þeir munu koma saman og styrkja sig í starfí. Rætt var um nauðsyn þess að efla samkennd meðal náms- og starfs- ráðgjafa þar sem margir þeirra eru einir í starfi á sínum vinnustað. Námskeið sem þessi auka fag- kennd námsráðgjafa, stefnumótun og framtíðarsýn. Náms- og starfsráðgjöf hefur næstum eingöngu verið þundin við nemendur í grunnskólum, fram- haldsskólum og háskólum. Með endurmenntun, símenntun og auk- inni tæknivæðingu standa náms- ráðgjafar frammi fyrir mörgum nýjum verkefnum víða í þjóðfélag- inu og munu starfskraftar þeiiTa nýtast í ýmsum stofnunum og fyr- irtækjum í framtíðinni. Björg er námsráðgjaTi og kynning- arfulltrúi Tækniskóla íslands og Sigriður námsráðgjafi í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. ÞAÐ ER glæpur gagnvart afkomendum okkar og raunar öllu mannkyni hvernig við umgöngumst landið okkar. Vegna sofandi aumingjaskapar þeirra sem eiga að gæta hags- muna okkar og sóst hafa eftir að fá að stjórna landinu er þjóðin orðin fræg fyrir óvirðingu í garð nátt- úru landsins. Þessi glæpur átti sér ekki eingöngu stað í fortíð- inni. Hann er framinn enn þann dag í dag. Til að opna augu okkar þurfti erlenda gróður- fræðinga til að varpa ljósi á það að helmingur af gróðurþekju landsins er horfinn frá því að land byggðist. Stór hluti þess litla gróðurs sem nú prýðir landið er í útrýmingarhættu ef ástandið helst óbreytt. Island er stærsta eyðimerkursvæði jarðar fyrir utan þurrkasvæðin. Hvað gera íslendingar við þess- ari nöturlegu staðreynd? Halda mætti að okkur brygði í brún við að heyra slíkar fullyrðingar og tækjum höndum saman til að gera nauðsyn- legar ráðstafanir til að forða áfram- haldandi jarðvegsrofí. En ekkert gerist. Þetta grafalvarlega um- hverfísvandamál er varla rætt. Rányrkjan heldur áfram líkt og hjá illa upplýstri þjóð sem vegna van- þekkingar rígheldur í gömul gildi og hefðir. Sauðfé, hross og jafnvel fólk ráfar stjórnlaust um viðkvæmt landið á sumrin og rífur upp nýgræðlinginn. Sand- og moldfok og hverfandi gróðurþekja hafa vinninginn gagn- vart landgræðsluaðgerðum. Þær þjóðir sem hafa átt við sama umhverfísvandamál að stríða og við hafa fyrir löngu brugðist við vand- anum. Þar er búpeningur girtur af og tínsla plantna í náttúrunni er bönnuð. I nýlegu hefti tímaritsins Times er grein um framleiðendur í lyfja- og snyrtivöruiðnaði sem vinna vöru sína úr náttúrulegum efnum, að mestu leyti jurtum og plöntum. I gi'eininni kemur skýrt fram að þess- um fyrirtækjum eru settar þær skorður að þvert er tekið fyrir að þau safni plöntum úr náttúrunni. Þeim ber skylda að rækta eigin plöntur. Miðað við önnur lönd er íslenska flóran teg- undafá og plöntur við- kvæmar og smávaxnar. Því er sérstök ástæða til að vernda þær. Fjöldi tegunda eru horfnar úr íslenskri náttúru og yfir 230 teg- undir þurfa aðgæslu samkvæmt skýrslu N áttúr ufræðistofnun- ar. Ekkert hefur verið gert hvað það varðar. Við sem búum í þessu landi erum óspör á orð- in þegar rætt er um virðingu gagnvart landinu okkar. En öðrum þjóðum til undrunar lifum við hér nánast eins og ræningjar. Sauðfé, hross og jafn- vel fólk ráfar stjórn- laust um viðkvæmt landið, segir Herdís Þorvaldsdóttir, og ríf- ur upp nýgræðinginn. Viljum við enn halda frægðarsól- inni á lofti vegna sofandaháttar og rænuleysis gagnvart eyðingaröflun- um? Samkvæmt Ríó-sáttmálanum, sem Islendingar eru aðilar að, er það glæpur gagnvart mannkyninu að vernda ekki náttúruperlur sínar. Það skyldi þó ekki þurfa alþjóða gróðurverndarsamtök til að koma í veg fyrir að við í rænuleysi okkar eyðum alveg gróðri okkar eigin lands? Ef einhverjum fínnst of djúpt í árina tekið þegar talað er um glæp- samlega meðferð á landinu vil ég í lokin vitna í einn ástsælasta nátt- úrufræðing landsins sem fyrir tæp- um fjórum áratugum skrifar: „Bú- skapur sem gengi á dýrmætasta kapítal landsins, sjálfa gróðurmold- ina, myndi jaðra við glæp gagnvart komandi kynslóðum, og ekki er þekkingarleysið lengur til afsökun- ar.“ Höfundur er leikkonn. VINNIS - Meira vinnur vit en strit! Herdís Þorvaldsdóttir Ármúla 29, Reykjavík, sími 588 4699, fax 588 4696 hins vegar hvorki vera of mikið né of lítið. Flestum dettur e.t.v. í hug líkamlegt álag eins og erfíðisvinna en einhæfar, endurteknai' hreyfíng- ar og slæmar vinnustellingar valda líka óheppilegu álagi. Of miklar kröfur miðað við getu eða of fá- breytt verkefni geta valdið streitu og þreytu. Sömuleiðis getur verið erfítt að samræma starf og fjöl- skyldulíf. Þeir þættir sem hafa áhrif á líkamlegt úthald eru bæði tengdir vinnuumhverfinu og einstaklingnum sjálfum. I vinnuumhverfínu eru það t.d. þættir eins og lýsing, hávaði, vélar, tæki og vinnurými. Hvað ein- staklingsþættina varðar þá skiptir líkamsbeiting og líkamsburðir miklu máli ásamt þekkingu á starfinu. Vinnuandi og streita tengjast bæði vinnuumhverfínu og einstaklingnum sjálfum. Hvað em álagseinkenni? Álagseinkenni eru afleiðingar af óheppilegu líkamlegu og/eða and- legu álagi. Með álagseinkennum er átt við sársauka eða óþægindi í vöðvum, sinum og/eða liðum sem ÁLAG er manninum nauðsynlegt til bess að honum líði vel. Álagið má Perstorp Hafdplastplötur á iborð, skápa §; og veggi. Auður Ólafsdóttir Björg Þórðardóttir • staðbundinn þrýstingur á hendur, úlnlið, hné og hnés- bætur • að handleika byrðar s.s. lyfta, bera, ýta, toga • umhverfisáhrif s.s. kuldi, léleg lýs- ing, titringur • lélegt vinnuskipu- lag • litlir möguleikar á að hafa áhrif á starf- ið Hverjar eru lausnirnar? leiða til minnkaðrar hreyfigetu og lakari starfshæfni. Þessi einkenni koma m.a. fram sem höfuðverkur, vöðvabólga, bakverkur, slitgigt, sinaskeiðabólga, augnþreyta, streita, magasár og síþreyta. Þeir þættir sem valda álagsein- kennum geta verið: • endurteknar vinnuhreyfingar • kröftug áreynsla • tíðar eða langvarandi óhentugar vinnustellingar Til þess að draga úr eða koma í veg fyrir álagseinkenni verðum við að þekkja líkamsbygginguna og helstu atriði er varða starfsemi líkamans. Nauðsynlegt er að hagræða vinn- unni á sem fjölbreyttastan hátt og læra góða líkamsbeitingu, athuga hvenær við förum rangt að starfí, hvað veldur álagseinkennunum og forðast að endurtaka vitleysurnar. Brýnt er að einstaklingurinn sætti sig ekki við slæma vinnuaðstöðu og athugi einnig sjálfur hvað hægt er að gera til úrbóta. Ekki má gleyma að með því að stunda reglubundna hreyfingu þá er líkaminn betur í stakk búinn til að takast á við álag. Brýnt er að einstak- lingurinn sætti sig ekki við slæma vinnuað- stöðu, segja Auður Olafsdóttir og Björg Þórðardóttir, og athugi sjálfur hvað hægt sé að gera til úrbóta. Hver er ávinningurinn? Bæði stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja eru almennt að gera sér betur grein fyrir því að gott starfs- umhverfi skiptir miklu máli varð- andi starfsánægju og vellíðan við vinnu. Heilbrigðir og ánægðir starfsmenn skila góðu starfí. Auður er sjúkraþjálfari. Björg er iðjuþjálfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.