Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, NÓI JÓNSSON, Vindási, Eyrarsveit, lést að morgni 5. júní. Svanborg Kjartansdóttir og börn. Bróðir okkar, mágur og frændi, INGÓLFUR PÉTURSSON frá Ófeigsfirði, elliheimilinu Grund, áður Njálsgötu 26, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. júní kl. 15.00. Ófeigur Pétursson, Einar Pétursson, Sigurgeir Pétursson, og bræðrabörn. Sigrún S. Bárðardóttir, Jenný Haraldsdóttir, Elín Guðmundsdóttir, Klara Guðmundsdóttir, Margrét S. Bjarnadóttir + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GRÍMUR AÐALBJÖRN GRÍMSSON, Laufengi 8, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 11. júníkl. 15.00. Sigrún Guðjónsdóttir, Addbjörg Erna Grímsdóttir, Hermann Þór Erlingsson, Róbert Grímur Grímsson, Elín Sólveig Grímsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TOBÍAS JÓHANNESSON, Þórunnarstræti 130, Akureyri, verður kvaddur frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 12. júní kl. 13.30. Guðrún Björnsdóttir, Birna Tobíasdóttir, Sigþrúður Tobíasdóttir, Sigurlaug Tobíasdóttir, barnabörn og Gísli Sigurðsson, Lúðvík Jóhannsson, Páll Þorkelsson, barnabarnabörn. JÓN FINNBOGASON + Jón Finnbogason fæddist í Byggð- arholti í Fáskrúðs- firði 21. desember 1915. Hann andaðist á sjúkrahúsi Nes- kaupstaðar 2. júní siðastliðinn og fór útför hans fram frá Fáskrúðsijarðar- kirkju 9. júní. Elsku afí. Þá er komið að kveðjustund. Það er skrýtið að sitja hér svo óralangt í burtu og skrifa til þín hinstu kveðju, afí minn. Að þinn tími skuli hafa verið kominn á ég erfítt með að skilja - en það er víst ekki í okkar valdi að dæma um slíka hluti. Ég á eftir að sakna þess mikið að hitta þig ekki þegar ég kem heim. Þú slóst alltaf á létta strengi og aldrei heyrðist frá þér kvörtunartónn. Með brotthvarfí þínu er komið stórt skarð í fjölskylduna en góðar minningar um þig hjálpa okkur að fylla þetta skarð og af þeim eigum við svo sannarlega nóg. Þú varst mikill mannkostamaður, það vita allir sem einhvern tímann hafa orð- ið á vegi þínum. Elsku afi, það tekur mig mjög sárt að geta ekki fylgt þér síðasta spölinn en í huganum er ég hjá þér. Hvíl þú í friði. Helga Finnboga- dóttir, Austurríki. Lífsins klukka tifar, menn koma og menn fara. Og nú er hann all- ur sægarpurinn Jón gamli Finnboga. Sem verða vill, þegar ein- hver nákominn er burt kallaður, þá lítur maður yfir farinn veg og rifjar upp það liðna. Það sem fyrst kemur upp í hugann eru þær stundir sem við peyjarnir hans Finnboga í Víðihlíð og strákarnir hennar Þóru í Félagsgarði áttum með honum afa þegar hann reri út á fjörðinn með net, á skektunni sinni. Þá gat nú stundum hvesst hjá þeim gamla ef honum þótti ekki vel róið og mátti á honum skilja að þessi strák-kvikindi yrðu seint eða aldrei að mönnum. En eins og hann var fljótur að reiðast var hann fljótur að róast og kallaði okkur þá elskurnar sínar og gaf okkur brjóstsykur og sagði að við værum GÍSLISKARPHÉÐINN SIGURÐSSON + Gísli Skarphéð- inn Sigurðsson fæddist á Höfn 10. febrúar 1970. Hann lést af slysfórum 27. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarkirkju 5. júní. Mann setur hljóðan þegar slys og ótíma- bæran dauðdaga ber að höndum því sárs- aukinn slær mann. Þeir sem eftir lifa spyrja sig gjarna hvers vegna þetta elskaða unga fólk skuli hverfa okkur svona skjótt - þeir sem svo margar vonir og gleði voru bundnar við. Nú hef- ir verið skammt stórra högga á milli í frændgarði okkar er nýlát- inn er Sverrir Einarsson rektor úr skæðum sjúkdómi, ung tengda- dóttir úr sama sjúkdómi á Reykj- um á Skeiðum, og nú verður hann Gísli Skarphéðinn, yngsti bústólp- inn á Stapa í Horna- firði, fyrir svona hræðilegu slysi sem verður honum að ald- urtila. Eftir stöndum við hnípin og höldum fast í minninguna um hann. Við sjáum hann alltaf fyrir okkur sem ungan og ástríkan son sem aðstoðaði foreldra sína í hvívetna og gladdi og huggaði. Fegurst er þó síðasta minningin um hann er hann kom og hélt ut- anum unnustu sína og kynnti fyrir okkur hana Sædísi á ættarmótinu okkar síðasta. Megi guð hugga alla ástvini hans og halda sinni verndarhendi yfir litla syninum hans honum Hauki Smára og henni Sædísi hans. Sigga frænda, Völu og öllu Stapa- fólki biðjum við huggunar í sárum missi þeirra. Hjartans samúðar- kveðja. Hanna, Halldór og fjölskylda. + Útför bróöur míns og mágs, DAÐA BJÖRNSSONAR, Drafnarstíg 7, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 11. júní kl. 13.30. Ragnar Björnsson, Ólafía Helgadóttir. + Bestu þakkir til þeirra sem sýndu mér samúð og vinarhug við andlát og útför systur minnar, GUÐNÝJAR SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR, Nóatúni 29. Sérstakar þakkir tii starfsfólks Landakotsspít- ala og deildar 6 Hrafnistu. Guðrún Gisladóttir, Nóatúni 29. DÓRA SÆMUNDSDÓTTIR + Dóra Sæmunds- dóttir fæddist á Siglufirði 19. desem- ber 1935. Hún lést á heimili sínu á Seyðis- firði 28. maí síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Ás- kirkju 5. júní. Elsku „systir“ mín Dóra. Aldrei áður hef- ur mér reynst eins erfítt að sjá á eftir nokkurri manneskju og þér. Hlutverk þitt í lífí mínu var svo stórt frá því fyrsta, þegar ég var send til Reykjavíkur til afa og ömmu og þú varst yngsta dóttirin á heimilinu. Ég var fjögurra ára gömul og þú ellefu. Kannski varst þú ekki alveg sátt við þessa breytingu í lífi þínu, en þú með þitt stóra hjarta tókst mér og gafst mér svo mikið af þér. Heimilið í Bræðra- tungu var stórt. Systk- inin voru níu og for- eldrarnir voru harð- duglegt fólk. Afi var fyrrverandi sjómaður og amma var baráttu- kona í stjórn- og fé- lagsmálum. Dóra mín, þú áttir svo mikinn þátt í að móta bernsku mína og unglingsár og ég bý að því alla tíð síðan að hafa notið návistar þinnar. Þú varst djörf og kát og hreifst alla sem kynntust þér. Söknuður minn er mikill og ég veit að fjölskylda þín og vinir sakna þín. Ég votta ykkur mína innilegustu samúð. Ég bið þess að þú fínnir hvað þú ert okkur kær í minningunni og hvað við elskum þig öll alltaf. Ríkey Ingimundardóttir. duglegir. Þegar vel fiskaðist af kola eða „gröllurum" eins og afi kallaði þá kola sem voru stórir og feitir, sendi hann okkur í húsin í þorpinu að selja aflann. Mér er minnisstæð ein slík söluferð. Ég fór til gamallar konu og bauð henni að kaupa físk. Hún sagði að því væri nú ver, að hún ætti ekki aura til kaupanna. Lét ég það gott heita og hélt áfram að ganga í hús. Þeg- ar því er lokið fer ég til afa og sett- umst við niður og fórum yfir það hve mikið og hverjum ég hafði selt. Sagði ég honum þá frá gömlu kon- unni og það að hún hefði ekki haft efni á því að versla við mig. Þá þyngdi nú í mínum manni og hann byrsti sig við mig og sagði: „Auð- vitað áttirðu að gefa henni fískinn, drengur." Sendi mig svo til hennar með vel útilátinn skammt. Svona var hann, vildi alltaf vera gefandi en helst ekkert þiggja. Og ekki vildi hann að of mikið væri haft fyrir sér og til marks um það þá lenti hann eitt sinn í hafvillu fyrir utan fjörð og ákvað að bíða af sér þokuna. Þegar h'ða fer á nóttina og ekki kemur afi var ákveðið að hefja leit og voni vel búnir bátar sendir af stað til leitar. Það var svo seint um nóttina að hann Siggi á Vattarnesi fínnur þann gamla dorgandi austur af Skrúð. „Elsk- urnar mínar, voruð þið að leita að mér? Þið þurftuð þess nú ekki,“ sagði afi og fannst þetta óþarfa til- stand. Ég hef alltaf undrast þann mikla sálarstyrk sem Jón afí hafði til að bera, því oftar hafði sorgin knúið dyra hjá honum en nokkrum öðr- um sem ég þekki. En æðruleysi og trúin á lífið, það var hans mottó. Það eru viss forréttindi að hafa fengið að alast upp í návist slíks heiðursmanns sem kennt hefur manni það að ekki dugar að koðna niður heldur eiga menn að takast á við lífið og berjast til hinstu stund- ar. Með þessum orðum kveð ég afa minn. Jón Finnbogason. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg íyrir tvíverkn- að. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsam- legast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.