Morgunblaðið - 10.06.1998, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.06.1998, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ „FRÖNSK ILMFJÓLA“ SAGA garðyrkju á íslandi er ekki löng. Hún hefur, öðru frem- ur, einkennst af atorkusemi ein- stakra manna sem þrjóskuðust við að rækta plöntur þrátt fyrir óbh'ð veðurskilyrði. Enn fremur máttu þessir menn glíma við ótrú al- mennings á því að gróður gæti yfirhöf- uð þrifist á Fróni. Hlutur áhugafólks í garðyrkjusögunni er ómetanlegur. Otölu- legur aragrúi plöntutegunda hefur verið prófaður í görðum um land allt og sá fróðleikur sem þar hefur afiast hef- m- svo sannarlega skilað sér áfram til þeirra sem vinna við garðyrkju. Garð- yrkjusaga íslands er samtvinnuð sögu þessara áhugamanna en ekki síður er hún saga einstakra tegunda. Margar plöntutegundir í ræktun í dag eiga sér merkilega sögu. Ein þessara tegunda er nefnd því glæsilega nafni „frönsk ilm- fjóla“. Við Suðurgötuna í Hafnarfirði býi- Gunnar Asmundsson bak- ari. Gunnar fékk ungur mikinn áhuga á garðyrkju. A fjórða ára- tugnum starfaði hann í nokkur sumur í garðinum við Hellis- gerði í Hafnarfirði. Segja má að þá hafi hann endanlega smitast af garðyrkjubakteríunni og, eins og aðrir garðyrkjuáhugamenn vita, er þessi veiki ólæknandi. Hann hefur alla tíð ræktað garð- inn sinn og verið ötull við það að breiða garðyrkjuboðskapinn út til gesta og gangandi. Arið 1953 áskotnaðist honum plantan sem hér verður fjallað um. Ingvar Gunnarsson kenn- ari, sem þá starfaði í Hellisgerð- isgarðinum, færði honum hnaus af því sem hann kallaði „franska ilmfjólu“. Fjóla þessi stendur í blóma allt sumarið og blóm hennar eru mjög stór af fjólu að vera eða 3-4 cm í þvermál. Fjól- an nær um 20 cm hæð og verður feit og pattaraleg með aldrinum. Hún virðist ekki mynda þroskað fræ því hún sáir sér ekki eins og margar frænkur hennar. Fjól- unni má fjölga á öruggan hátt með skiptingu eða sumar- græðlingum. Gunnar hefur fjölgað henni með skiptingu og haldið tegundinni þannig við allt frá því hann eignaðist hana fyrir rúmum 40 árum. A þeim tíma hefur hann einnig verið dugleg- ur við það að gefa vinum og kunningj- um af fjólunni og þannig hefur hún fengið dágóða út- breiðslu um höfuð- borgarsvæðið. Nauðsynlegt er að skýla henni með léttu vetrarskýli á veturna því hún er dáh'tið viðkvæm. Að- alsmerki „frönsku ilmfjólunnar“ er þó ilmurinn en hann er sætur og sterkur og berst langar leið- ir. Hún á því þetta glæsilega nafn svo sannarlega skilið. Hitt er annað mál að í gegn- um tíðina hefur mikið verið deilt um faðerni viðkomandi fjólu. Fjólan á greinilega fátt sameig- inlegt með hinni eiginlegu ilm- fjólu, Viola odorata. Fyrir það fyrsta eru blómin alls ekkert lík að lit og lögun og svo hefur „franska ilmfjólan" það fram yf- ir ilmfjóluna að blómin ilma. Blóm þeirrar frönsku eru einnig mun stærri en blóm hinnar. Lík- legast er að „franska ilmfjólan" sé blendingur af fjallafjólu en í hópi slíkra blendinga má finna plöntur með blóm af svipaðri stærð og lögun og sú franska. Burtséð frá ættfræði fjólunn- ar er þetta einstaklega áhuga- verð garðplanta. Langur blómg- unartími og skrautleg blóm skipa henni í flokk með úrvals- plöntum. Það þykir ekki góð lat- ína að láta syndir feðranna bitna á bömunum og því tel ég réttast að fjólan fái að halda ilmfjólu- nafninu, jafnvel þótt sýnt sé að hún hafi verið rangfeðruð. Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur. BLOM VIKUNMR 382. þáttur l!msjón Ágústa Björnsdóttir VELVAKANÐI Svarað í sima 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags SD krem í VELVAKANDA bii-tist sl. laugardag pistill um SD krem, en það krem hefúr reynst psoriasis sjúklingum vel. Mikið hef- ur verið hiingt og spurt hvar þetta krem fáist og hefur Velvakandi spurnir af því að þetta krem fáist yfirleitt í öllum stórmörk- uðum, t.d. Hagkaupi og Fjarðarkaupum. Krem þetta er yfirleitt geymt í hillu þar sem lýsið er. Tapað/fundið Rautt stelpnahjól týndist við Fj ölsky ldugarðinn RAUTT 22“ stelpnahjól, 6 gíra, týndist fyrir utan Fjölskyldugai'ðinn sl. laugardag. Hjólið á 7 ára gömul stúlka og hefur hún aðeins átt það í nokkrai' vikur og saknar hún þess mikið. Skilvís finnandi hafi samband í síma 568 9152. Árbæingar athugið BLÁTT reiðhjól, Bay- watch, týndist í Arbæn- um. Fólk er beðið um að athuga hvort þetta hjól geti verið einhverstaðar í óskilum, t.d. í hjóla- geymslum. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 5871829. Fundarlaun. Dýrahald Hvítur og svartur fress týndur í Hafnarfírði HVÍTUR og svartur fress, stór og eyrna- merktur R-0151, týndist frá Hverfisgötu 3, Hafn- arfirði, sl. föstudag. Hann gæti hafa lokast inni í bílskúr og kjallara og eru nágrannar beðnir að svipast um eftir hon- um. Þeir sem hafa orðið varir við hann hafi sam- band í síma 565 5441. Kettlingar fást gefins KASSAVANIR kettling- ar fást gefins. Uppl. í síma 568 7786. Svartur kettlingur óskar eftir heimili 6 VIKNA kettlingur, svartur og gullfallegur fæst gefins. Upplýsingar í síma 562 5103. Kátir kettlingar óska eftir heimili 3 KETTLINGAR, kassa- vanir og kátir, óska eftir góðu heimili. Upplýsing- ar í síma 552 0834. Með morgunkaffinu SVO ertu líka alveg rosalega tapsár. MUNDU svo að slökkva ljósið þegar ég er sofnuð. SKAK llin.vjón Margeir PétnrsNon STAÐAN kom upp á alþjóð- legu móti sem nýlega lauk í Sarajevo í Bosníu. Það var sjálfur Viktor Kortsnoj (2.625) sem hafði hvítt og átti leik gegn Zdenko Kozul (2.585), Króatíu. 27. Rxf7! - Bb4 (Eftir 27. - Kxf7 28. Dd7+ - Re7 29. Í5 er svartur varnarlaus) 28. f5 - Hc3 29. f6+ - Kf8 30. Dd7 og svartur gafst upp. Kortsnoj, sem er orðinn 67 ára, vann verðskuldaðan sigur á mótinu: 1. Kortsnoj 7 v. af 9 mögulegum, 2. Ivan Sokolov, Bosníu 6V2 v., 3.^. Barejev, Rússlandi og Kiril Georgiev, Búlgaríu 5% v„ 5.-7. Lputjan, Ai-meníu, Predrag Nikolic, Bosníu og Kozu, Króatíu 4 v„ 8. Dizd- arevic, Bosníu SV2 v„ 9. Pi- ket, Hollandi 3 v„ 10. Kura- jica, Bosníu 2 v. HVÍTUR leikur og vinnur. SJÁÐU Fríða, þarna kemur fallegi snigillinn. Hvernig er húsið mitt? ÞU þarft ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í þrælk- unarferðum í óbyggðum, ekki lögfræðing. COSPER TAKK fyrir indiánabogann Siggi frændi. Víkverji skrifar... NÚ ER ár hafsins og mikið um dýrðir hér á landi af því til- efni, enda byggja Islendingar lífs- afkomu sína enn að miklu leyti á auðlindum hafsins. Víkverji veltir því fyrir sér hvort ekki sé tilvalið á ári hafsins að hefja undirbúning framkvæmda við alvöru sædýra- safn á íslandi, til dæmis við Reykjavíkurhöfn en þar eru nú einungis nokkur plastker með fá- einum fiskum og krabbadýrum, sem lítil börn hafa gaman af að skoða. Víða erlendis, í löndum sem eiga mun minna undir hafinu og auðlindum þess en Island, eru stórkostleg sædýrasöfn (akvarí- um), þar sem nútímatækni er nýtt til hins ýtrasta til að veita gestun- um innsýn í heim undirdjúpanna. Sums staðar er hægt að ferðast á færibandi í gegnum eða undir risastóra vatnstanka, þar sem alls konar sjávarlífverur, allt frá marglyttum til hákarla, synda um. Margir Islendingar hafa kom- ið í slík söfn - eða kannski ætti frekar að tala um skemmtigarða - í erlendum borgum, til dæmis í Baltimore og Barcelona, og geta flestir verið sammála um að þótt t.d. Fiskasafnið í Vestmannaeyj- um sé rekið af nokkrum metnaði þá bliknar það gersamlega við hlið þessara voldugu bygginga. Framkvæmd af þessu tagi er áreiðanlega dýr á íslenzkan mæli- kvarða, en hún ætti líka að skila miklum tekjum í framtíðinni. Enginn vafi leikur á að bæði Is- lendingar sjálfir og ferðamenn, sem koma til landsins, hefðu áhuga á að skoða í návígi hluta af því lífríki, sem þjóðin byggir af- komu sína á. xxx EIFSSTÖÐ er nú mikið aug- lýst sem verzlanamiðstöð og víst er að þar hefur verzlunum fjölgað, vöruúrval vaxið og frjáls samkeppni er loksins komin á. Hins vegar fylgja þessum breyt- ingum aukin þrengsli í flugstöð- inni og Víkverja og fjölskyldu hans fannst, þegar þau áttu leið til útlanda fyrir stuttu, að þjón- usta hefði versnað í gömlu Frí- höfninni. Þar skorti verulega á að t.d. starfsfólkið í snyrtivörudeild- inni hefði einhverja þekkingu á vörunum, sem það var að selja. Sennilega er ástæðan að hluta til sú að um sumarfólk hefur verið að ræða, en það breytir ekki því að ekki er nóg að bjóða tiltölulega lágt verð á eftirsóttum vörum, þjónustan verður líka að vera í lagi. xxx RENGSLUNUM í Leifsstöð fylgir líka sá annmarki að þegar margt fólk bíður þar eftir flugi er varla til sá afkimi í flug- stöðinni þar sem hægt er að vera í friði fyrir sígarettureyk. Víkverja sýnist mikið skorta á að landslög- um sé framfylgt í Leifsstöð og þeim, sem ekki reykja, tryggð svæði, þar sem þeir geta andað að sér sæmilega hreinu lofti. Sé ekki hægt að skilja að reykingafólk og meirihlutann, sem ekki reykir, finnst Víkverja nærtækasti kost- urinn að banna reykingar í flug- stöðinni um stundarsakir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.