Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 50

Morgunblaðið - 10.06.1998, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Keppni í leikhúsfimi * Ecf luma stundum á óvæntum cjlaðnimji f 2 fyrir 1 á Vorvinda! 2 fyrir 1 á Vorvinda! Morgunblaðið/Arnaldur RIDDARI rauðu reglunnar er kominn að sækja dótturina, sem kyssir móður sína bless. Þau eru mörg ævintýrin sem verða til þegar hugmyndirnar fara á flug. enda í hverri þraut og geta hrópað fyr- irskipanir, t.d. ef þeim finnst ganga illa eða atriðið orð- ið of langt. Leikhús af þess- um toga hefur not- ið mikilla vinsælda erlendis. Sjálfur kynntist Geijer þessari íþrótt þegar hann las bók eftir Keith Johnstone frá Kanada. Hann efndi til keppni í leikhúsfimi árið 1980 og hefur íþróttin síðan teygt anga sína víða um heim. „Eg skrifaði hon- um og sótti nám- skeið í þrjá mánuði. Eftir það stofnaði ég spunaleikhús í Stokkhólmi,“ segir Geijer. Hann hætti svo hjá leikhúsinu fyrir rúmu ári og var með námskeið í Þrándheimi þegar hann hitti Hafdísi Arnardóttur frá Kramhúsinu og hún fékk hann til að koma til íslands. Annars hefur Geijer í nógu að snúast og lauk nýverið við að leikstýra nýju sænsku leikriti sem nefnist „Sib- ling“ í Borgar- leikhúsinu í Stokkhólmi. Hann segir að sér lítist vel á íslensku leik- arana: „Það er mjög gott að vinna með þeim. Þetta á vel við þá þar sem þeir eru opnir fyrir hugmyndum og lausir við tilgerð." ffiST bakar húsþökin MARTIN Geijer veitir leikurum tilsögn í spunavinnu og býr þá undir keppnina 15. júní næstkomandi. pAÐgeturtekiðáaðhlaupa á eftir ímyndunaraflini. Þar sem ímynd- unaraflið leikur lausum hala BÚ,“ RYMUR illyrmislega í einhymingnum og hann ólm- ast í kringum dvergaparið sem varð ástfangið rétt í þessu. „Láttu hana í friði!“ hrópar dvergur- inn og skýlir kærustunni sinni. Hann er nú einu sinni svo skotinn í henni. „Bú,“ rymur aftur í einhyrningn- um ... Við erum stödd á spunaæfingu hjá mörgum af fremstu leikurum þjóðar- innar og enn fleiri upprennandi og það er sænski leikstjórinn Martin Geijer sem heldur um stjómtaumana. Hann er staddur hér á landi til að kynna svokallaða „leikhúsfimi" og stjórnar leiksmiðjum fyrir leikstjóra, atvinnuleikara og áhugaleikara á veg- um Kramhússins. „Leikhúsfimin byggist á spuna- vinnu," segir hann. ,Aðferðin snýst um að þróa söguna á meðan hún er leikin. Ekkert liggur fyrir í upphafi og þátttakeridurnir gerast því sögu- smiðir, leikstjórai- og leikarar í senn.“ Ast við fyrstu sýn Spunavinnan getur farið þannig fram að leikarinn biður áhorfendur um að nefna eitthvað til að byggja söguna á, t.d. stað í náttúrunni. Þá er þegar búið að hita áhorfendur upp og fá þá til að venjast hugmyndinni um að taka þátt í leiknum þannig að andrúmsloftið verði ekki þvingað eða vandræðalegt í dæminu í upphafi hafði lykilsetn- ingin verið ást við fyrstu sýn. Og mikið afskaplega fannst blaðamanni það sætt þar sem dvergurinn lá mak- indalega og baðaði sig í sólskininu þegar dvergamærin kom til hans og sagði: „Afskaplega ert þú sætur.“ Og hann svaraði: „Ég er nú bara skotinn í þér.“ Þannig verða sögur til úr engu í spunavinnu - eða allt að því. Það er jú ekki hægt að festa hendur á hug- myndafluginu. Brosa framan í áhorfendur Geijer leggur áherslu á að með- leikarinn sé ekki stoppaður af þegar hann fær hugmynd. „Við erum vön því að stoppa hugmyndir af í okkar daglega lífi,“ segir Geijer. „Það er til þess að við lendum ekki í vandræð- um. En á leiksviði eru slík ævintýri skemmtun bæði fyrir leikara og áhorfendur. Þess vegna er mikilvægt að láta ekkert koma sér úr jafnvægi og spila með.“ En hvað ef eitthvað fer úrskeiðis? „Þá er mikilvægt að leikararnir séu afslappaðir og taki sig ekki of hátíðlega. Ef eitthvað kemur upp á eðá gengur ekki upp eiga þeir bara að yppa öxlum og brosa. Ahorfend- um finnst það ekki síður áhugavert ef þeim verður á í messunni. Þeir muna oft best eftir stórum mistök- um. Getur þú til dæmis nefnt mér eitthvað frægt skip? „Tit ...“ svarar blaðamaður, hætt- ir í miðju kafi og kinkar kolli. Lausir við tilgerð Fyrsta keppnin í leikhúsfimi á Is- landi fer fram í Iðnó 15. júní næst- komandi. Þá verður skipt í tvö lið sem vinna eftir hugmyndum úr salnum. Þrír dómarar munu gefa einkunnir eftir frammistöðu kepp- Nokkrar almennar spuí O Notaðu ávallt þá hugmynd sem fyrst hvarflar að þér. €3 Taktu undir allt sem meðleikari þinn gerir. O Ekki reyna að vera frumleg(ur). O Ekki vera undirbúin(n). O Ef allt gengur á afturfótunum og ekkert gengur upp, slappaðu þá af og brostu fram í salinn. Gegn framvísun þessa miða býðst lesendum Morgunblaðsins að fá tvo miða á verði eins á mynd að eigin vali á kvikmyndahátíðinni Vorvindar. Góða skemmtun! fttargisiitilfltofr hSkólaHo DCCMOArtlklM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.