Morgunblaðið - 12.06.1998, Side 1
72 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
130. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
NATO skipað að undir-
búa íhlutun í Júgóslavíu
Brussel. Reuters.
AKVEÐIÐ var á fundi varnarmálaráðherra Atl-
antshafsbandalagsins, NATO, í gær að búa það
undir hemaðarlega íhlutun í Kosovo, þar á meðal
loftárásir og beitingu landhers ef nauðsyn krefði.
William Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði, að samþykki öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna íyrir aðgerðunum væri æskilegt en ekki
skilyrði. Aðstoðarforsætisráðherra Serbíu sagði,
að brugðist yrði hart til varnar ef NATO-her réð-
ist inn í Kosovo.
I yfirlýsingu varnarmálaráðherranna segir, að
þeir hafi samþykkt áætlun um að „stöðva eða
draga úr skipulögðum ofbeldisaðgerðum“ gegn
Albönum í Kosovo. Fordæma þeir ofbeldið, hvort
sem í hlut eigi yfirvöld í Belgrad eða öfgamenn
meðal Kosovo-Albana, og skipa NATO-hernum
að hefja svo fljótt sem auðið er „heræfingar í
lofti“ yfir Albaníu og Makedóníu.
Beitt verður loftárásum
og hugsanlega landher
verði ekkert lát á ofbeld-
inu í Kosovo
Ráðherrarnir segja, að fyrirhugaðar aðgerðir
geti falist í flugbannsvæði; banni við þungavopn-
um á ákveðnu svæði; banni við borgaralegri flug-
umferð; aðgerðum gegn júgóslavneska flughern-
um; loftárásum á valin skotmörk í Júgóslavíu, að-
allega Serbíu, og beitingu landhers.
Kosovo er ekki Bosnía
Haft er eftir heimildum, að heræfingarnar yf-
ir Albaníu og Makedóníu geti farið fram í næstu
viku en þær eiga að sýna Serbum fram á, að
NATO geti brugðist fljótt við. Klaus Naumann
hershöfðingi og yfirmaður NATO-hersins sagði
í gær, að með loftárásúm ætti að vera unnt að
stöðva átökin í Kosovo en dygðu þær ekki yrðu
aðildarríkin að vera „reiðubúin að fara alla leið“.
Hann minnti hins vegar á, að Kosovo væri ekki
Bosnía og því yrði NATO-herinn að vera viðbú-
inn átökum við júgóslavneska herinn.
Vojislav Seselj, aðstoðarforsætisráðherra Serb-
íu, sagði í gær, að júgóslavneski herinn myndi
verjast af hörku kæmi til innrásar í Kosovo. Hér-
aðið yrði aldrei látið af hendi. Slobodan Milosevie,
forseti Júgóslavíu, mun eiga viðræður við Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, í Moskvu á mánudag
og þriðjudag og utanríkisráðherrar Tengslahóps-
ins, sem sex ríki eiga aðild að, munu koma saman
til viðræðna um Kosovo i London á fóstudag.
Reuters
Boltaslagur
ÍTALIR og Chilemenn áttust við í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu í gær og skildu liðin jöfn,
2-2. Hér takast þeir á, ítaiinn Fab-
io Cannavaro (t.h.) og Chilemaður-
inn Marcelo Salas en hann skoraði
bæði mörkin fyrir sitt lið.
■ Heimsmeistarakeppnin/Cl-C4
Vöggudauði
Hjartslátt-
artruflun
kennt um
London. The Daily Telegraph.
MEÐ einföldu hjartalínuriti af ný-
fæddum börnum er unnt að koma í
veg fyrir, að þúsundir þeirra deyi
vöggudauða. Er þetta niðurstaða
rannsóknar, sem fram fór á Italíu í
20 ár og náði til tugþúsunda barna.
Kemur þetta fram í grein efth-
ítalska lækna, sem birt er í banda-
riska læknablaðinu The New Eng-
land Journal of Medicine, en þar
segja þeir, að um helmingur barn-
anna, sem dóu vöggudauða, hafi
þjáðst af hjartsláttartruflunum.
Ráðið er því það að taka hjarta-
línurit af öllum börnum þriggja daga
gömlum og gefa þeim, sem á þvi
þurfa að halda, viðeigandi lyf þar til
hættan er liðin hjá. Á það er hins
vegar bent, að þetta yrði mjög
kostnaðarsamt og þá fengi líka lyfin
sá fjöldi barna, sem kemst yfir þetta
af sjálfsdáðum.
----------------
Kynding*ar-
kostnaður úr
sögunni?
Stokkhólmi. Reuters.
SÆNSKIR vísindamenn telja sig
hafa fundið lausnina á vandamálum
húshitunar i eitt skipti fyrir öll - nóg
sé að kynda upp með líkamshitanum
einum.
Unnið hefur verið að rannsóknum
á þessu í nokkurn tíma og nú verður
brátt hafist handa við að smíða hús,
sem verða svo vel einangruð, að lík-
amshitinn á að nægja til að kynda
þau. Var skýrt frá þessu í Svenska
Dagbladet í gær.
Nýju húsin, 40 raðhús, verða
byggð í Gautaborg og Málmey á
næsta ári og í þeim verður engin
miðstöðvarkynding. Einangrunin
verður hins vegar fimm sinnum betri
eða meiri en í venjulegum húsum.
Raunar er það ekki líkamshitinn
einn, sem sér um að ylja upp húsin,
því að Ijósaperur og ýmis heimilis-
tæki gefa frá sér töluverðan yl.
HIRÐINGJAR fylgjast með bílalest með eþíópskum hermönnum á leið
til vígvallarins við bæinn Zalambessa. Einnig er barist við bæinn
Badme og nú síðast skammt frá hafnarborginni Assab í Eritreu.
/
Atök á nýjum
vígstöðvum
Asmara. Reuters.
BARIST var í gær á nýjum víg-
stöðvum í stríðinu milli Eþíóp-
íu og Eritreu og að þessu sinni
í um 70 km íjarlægð frá hafn-
arborginni Assab í Eritreu.
Kenna hvorir öðrum um upp-
tökin og Eþíópíumenn segja,
að Eritrear hafi gert loftárásir
á bæinn Adigrat.
Eþíópíumenn sögðust hafa
„stráfellt“ eritreska hermenn í
átökunum í gær en vestrænir
stjórnarerindrekar í Addis
Abeba, höfuðborg Eþíópíu,
segja, að Eþíópíumenn hafí
safnað saman miklu herliði við
víglínuna skammt frá Assab.
Isayas Afewerki, forseti
Eritreu, sagði fyrr í vikunni,
að gera mætti ráð fyrir, að
Eþíópíumenn réðust á borgina,
sem er önnur mikilvægasta
hafnarborgin í landinu. Hafa
Eritrear verið að styrkja vam-
ir sínar þar.
Talsmaður Eþíópíusljórnar
sagði í gær, að Eritrear hefðu
gert loftárásir á bæinn Adigrat
í norðurhluta landsins. Hefði
einhver fjöldi óbreyttra borg-
ara fallið í árásunum, þar á
meðal konur og böm.
Reuters
Heimskreppa
falli jenið áfram?
Hong Kong, Peking, Singapore. Reuters.
SUPACHAI Panitchpakdi, aðstoðar-
forsætisráðherra Tælands, sagði í
gær, að héldi gengi japanska jensins
áfram að falla, gæti það leitt til nýrr-
ar kreppu í Asíu og síðan til
heimskreppu. Kinveijar skoruðu í
gær á Japani að sýna nú „djörfung
og dug“ og stöðva gengisfallið.
Panitchpakdi sagði á ráðstefnu í
Hong Kong um fjármálaöngþveitið í
Asíu, að félli gengi jensins niður fyr-
ir ákveðin mörk, myndu önnur ríki í
SA-Asíu telja sig tilneydd til að fella
gengi síns gjaldmiðils. Það yrði upp-
hafið að nýrri kreppu í Asíu og síðan
um allan heim. Panitchpakdi vildi þó
ekki nefna þessi mörk, sagði aðeins,
að gengi jensins væri orðið „allt of
lágt“ og farið að valda öðrum Asíu-
ríkjum verulegum vandræðum.
Kínverjar hafa vaxandi áhyggjur
af samkeppnisstöðu sinni vegna
gengisfalls jensins og tölur, sem
birtar voru í fyrradag, sýna, að út-
flutningur þeirra minnkaði í maí í
fyrsta sinn í tæp tvö ár. Robert
Rubin, íjármálaráðherra Bandaríkj-
anna, kom fyrir fjármálanefnd öld-
ungadeildarinnar í gær og var þá á
honum að skilja, að Bandaríkjastjórn
ætlaði ekki að hafast neitt að gagn-
vart jeninu. Hafði það þau áhrif á
samri stundu, að jenið fór í 142,65 á
móti dollara. Þegar Rubin var gert
það ljóst, sagði hann, að auðvitað
væru einhver inngrip alltaf möguleg.
Hann lagði hins vegar áherslu á, að
til að styrkja jenið yrðu Japanir að
örva efnahagslífið og hreinsa til í
bankakerfinu.