Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 6
FRETTIR
6 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ ,
Opinber heimsókn forseta fslands til Lettlands
Aherzla á minn-
inguna um liðnar
þjáningar Letta
Riga. Morgunblaðið.
ÍSLENZKU forsetahjónin, Ólafur
Ragnar Grímsson og Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir, hófu í gær
opinbera heimsókn til Lettlands,
eftir þriggja daga vel heppnaða
heimsókn til Eistlands. Við for-
setahöllina í Riga tóku Guntis
Ulmanis, forseti Lettlands, eigin-
kona hans, Aina Ulmane, og
nokkrir æðstu menn ríkisstjómar
og stjómsýslu landsins ásamt
sendiheirum erlendra ríkja á
móti forsetahjónunum og ís-
ienzku sendinefndinni.
í forsetahöllinni ræddust
hvort tveggja forsetarnir og ut-
anríkisráðherrarnir við, en að
þeim viðræðum loknum var
miliiríkjasamningur íslands og
Lettlands um gagnkvæma vernd
fjárfestinga undirritaður við há-
tíðlega athöfn. Vonir eru bundn-
ar við að þessi samningur verði
fleiri íslenzkum fjárfestum
hvatning til að láta til sín taka í
Lettlandi, en nú þegar eru starf-
andi þar dótturfyrirtæki nokk-
urra íslenzkra fyrirtækja.
Ólafur Ragnar átti einnig við-
ræður við Guntars Krasts, for-
sætisráðherra Lettlands. Þá
lögðu þau hjónin og sendinefnd-
in öll leið sína í ráð-
hús Riga, þar sem
borgarstjórinn,
Andris Berzins,
kynnti meðlimi borg-
arsfjórnarinnar fyrir
gestunum. I Riga búa
yfir 800.000 manns, þar af rúm-
lega helmingur af öðmm upp-
mna en lettneskum. Ur ráðhús-
inu var brunað í þinghúsið, þar
sem forseti lettneska þingsins,
Indulis Berzins, tók á móti gest-
unum.
Eftir stutta viðkomu í nýrri
aðalræðismannsskrifstofu Is-
lands í Riga skoðuðu forseta-
hjónin dómkirkjuna, sem er með
þeim glæsilegustu í norðanverðri
Evrópu, reist á 13. öld.
Frelsisbaráttunni
vottuð virðing
Táknrænn hápunktur þessa
fyrsta dags í Riga var þegar for-
setarnir lögðu blómsveiga að
„frelsisstyttu" Letta, sem var
byggð á fyrra sjálfstæðistímabili
Lettlands á árunum milli stríða.
Hún er minnismerki um frelsi og
sjálfstæði lettnesku þjóðarinnar,
en það þykir jaðra við krafta-
verk að mannvirki með svo póli-
tíska skirskotun skyldi fá að
standa þá hálfu öld sem landið
var heft í helsi Sovétríkjanna.
Þar sem styttan var stjórnvöld-
um í Moskvu óþægilegur þyrnir í
augum var víst oftar en einu
sinni tekin ákvörðun um að
minnismerkið skyldi fjarlægt. En
það stendur enn, sem Lenín ger-
ir aftur á móti ekki. Risastór
stytta af honum stóð áður á stalli
skammt frá frelsisstyttunni og
minnti fólk á hver valdið hefði.
Við lok athafnarinnar við
frelsisstyttuna heilsuðu forset-
arnir áhorfendum, en nokkrir
þeirra reyndust vera Islendingar
búsettir í Lettlandi.
íslenzka sendinefndin fékk
tækifæri til að fræðast um
stormasama sögu Lettlands á
þessari öld í sérstöku safni í mið-
borg Riga, sem er tileinkað
minningunni um þjáningar sov-
éttímabilsins, eða allt frá því
Hitler og Stalín gerðu með sér
samning í Iok ágústmánaðar
1939 um að skipta Austur-Evr-
ópu á milli sín. Eystrasaltslöndin
þijú lentu samkvæmt samningn-
um í höndum Stalíns. Forseti
Lettlands og forstöðumaður
safnsins útskýrðu það sem fyrir
augu bar fyrir gestunum, en þar
á meðal var nákvæm eftirlfldng
af dæmigerðri vistar-
veru sem þeir sem
sendir voru í útlegð í
gúlagið, þrælavinnu-
búðirnar í Síberíu,
þurftu að lifa við.
Þjáningarsögunni
lýkur svo þar sem ísland viður-
kenndi sjálfstæði Lettlands í
ágúst 1991.
Bein útsending
frá kvöldverði
Dagskrá dagsins lauk með há-
tíðarkvöldverði í forsetahöllinni
í boði lettnesku forsetahjónanna.
Lettneska sjónvarpið sjónvarp-
aði beint frá upphafi kvöldverð-
arins í aðalfréttatíma kl. 20 og
sýndi ítarlega frétt með svip-
myndum frá íslandi.
I dag heimsækir forsetinn m.a.
dótturfyrirtæki BYKO í Lett-
landi, BYKO Lat, og hittir fleiri
fulltrúa viðskiptalífsins. Frú
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
heimsækir endurhæfingarstöð
fyrir unga fikniefnaneytendur,
en íslenzkar meðferðaraðferðir
hafa þjónað aðstandendum
stöðvarinnar sem fyrirmynd.
Lettlandsheimsókninni lýkur í
fyrramálið, þegar opinber heim-
sókn til Litháens tekur við. Ferð
forsetahjónanna um Eystrasalts-
ríkin þijú lýkur á mánudag.
Milliríkjasamn-
ingur um vernd
fjárfestinga
undirritaður
Morgunblaðið/Ásdís
FORSETAR íslands og Lettlands, Ólafur Ragnar Grímsson og Guntis
Ulmanis, lögðu blómsveiga að „frelsisstyttu" Letta í miðborg Riga.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og lettneskur starfsbróðir
hans, Valdis Birkavs, undirrituðu íyrir hönd Islands og Lettlands
samning um gagnkvæma vernd fjárfestinga. Forsetar beggja rílga
fylgjast með.
LETTLANDSFORSETI beinir athygli hins íslenzka starfsbróður síns
að einhveiju atriði sem gefur að líta á sögusýningu um hálfrar aldar
helsistímabil sovézkra yfirráða í Lettlandi.
Krefja íslensk yfírvöld um þátttöku í námskostnaði
Krefjast 35 millj-
óna króna fyrir
flugvir kj anema
YFIRVÖLD menntamála í Vást-.
erás í Svlþjóð hafa áfiýjað tíl
hæstaréttar landsins þeirri ákvörð-
un lægri dómstiga að ekki sé unnt
að krefja íslenska menntamála-
ráðuneytið um greiðslu vegna náms
íslenskra flugvirkjanema þar. Var
krafíst greiðslu upphæðar sem
svarar til um 35 milljóna króna en
þeirri kröfu var vísað frá í undir-
rétti.
Nokkrir íslenskir flugvirkjanem-
ar hafa stundað nám sitt í Svíþjóð,
8-10 þegar mest var, en þeim hefur
farið mjög fækkandi og fáir íslend-
ingar stunda yfírleitt flugvirkjanám
á Norðurlöndum. Menntamálayfír-
völd landanna sömdu um að nem-
endur frá Iðnskólanum í Reykjavík
gætu tekið fyrsta árið hérlendis en
síðan þrjú ár í Svíþjóð og var vísað
til þess að nemendur gætu sótt
gagnkvæmt menntun til allra Norð-
urlandanna án þess að þurfa að
greiða fyrir það.
Fræðslufirvöldin í Vásterás
standa straum af kostnaði við
kennsluna og hafa síðan innheimt
þann kostnað hjá sænska ríkinu.
Hefur ríkið ekki viljað fallast á þá
upphæð sem sveitarfélagið gerir
kröfur um. í nýlegri frétt í sænska
blaðinu Dagens Nyheter segir að
árið 1992 hafi tekist samkomulag
við íslenska menntamálaráðuneytið
um greiðslur.
Karl Kristjánsson hjá mennta-
málaráðuneytinu segir yfirvöld hér
ekki hafa fallist á greiðslur en hins
vegar samið við tiltekinn skóla um
vist fyrir íslendinga. Nú hafí þeim
samningi verið riff en það hafi ekki
komið til tals hjá menntamálaráðu-
neytinu hér að greiða fyrir umrætt
nám. Karl sagði síðustu nemend-
urna nú vera langt komna með nám
sitt við skólann í Vásterás og væru
aðeins fáir eftir þar nú. Nokkrir
hafa sótt í flugvirkjanám hjá öðrum
sænskum skólum sem menn geta
eftir sem áður sem einstaklingar og
burtséð frá áðurgreindum samningi
landanna. Liðlega 100 Islendingar
stunda nú flugvirkjanám i Banda-
ríkjunum.
%*m/ STUTT
Nýr bæj-
arstjóri
Snæfells-
bæjar
Ólafsvík. Morguilblaðið.
KRISTINN Jónasson, rekstr-
arfræðingur, hefur verið ráð-
inn bæjarstjóri í Snæfellsbæ
og mun hefja störf fljótlega.
Kristinn er 32 ára og er
fæddur og uppalinn á Þing-
eyri við Dýrafjörð. Segja má
að hann hafí sveitarstjóm í
blóðinu því hann er sonur
Jónasar Ólafssonar, sem er
fráfarandi bæjarstjóri ísa-
fjarðarbæjar og þar á undan
sveitarstjóri á Þingeyri í mörg
ár, og konu hans Nönnu
Magnúsdóttur.
Kristinn hefur stundað ým-
is störf á sjó og landi með
námi en hefur verið fjármála-
stjóri ýmissa fyrirtækja síðan
hann útskrifaðist frá Sam-
vinnuskólanum á Bifröst 1992.
Síðan 1995 hefur hann verið
fjármálastjóri Hraðfi*ystihúss
Hellissands.
Kristinn er kvæntur Helgu
V. Guðjónsdóttur sem einnig
er rekstrarfræðingur og
starfar sem skrifstofustjóri
hjá Sparisjóði Ólafsvíkur. Þau
eiga eina dóttur.
Vörur úr
Víkartindi
boðnar upp
LAUSAFJÁRUPPBOÐ verð-
ur haldið á morgun á vegum
Sýslumannsembættisins í
Reykjavík. Auk hefðbundinna
muna verður að auki boðinn
upp varningur sá sem ekki
var leystur út úr strandi Vík-
artinds.
Að sögn Ulfars Lúðvíksson-
ar, deildarstjóra í nauðungar-
sölu, er þetta með stærstu
lausafjáruppboðum sem emb-
ættið hefur staðið fyrir. Meðal
þeirra muna sem boðnir verða
upp, og vora í auglýsingu upp-
boðshaldara, má nefna gler-
og skrautvörur, stóla, fíttings,
myndbandsspólur, loftverk-
færi, fatnað og stálhillur. Eig-
endur vara úr strandi Víkar-
tinds hafa frest til klukkan
16:00 í dag til að leysa til sín
vörur.
Uppboðið fer fram í Toll-
húsinu við Tryggvagötu og
hefst það klukkan 13:30.
Karlakórs-
tónleikar
í Klettshelli
í Eyjum
KARLAKÖR Selfoss bregður
á það nýmæli í Vestmannaeyj-
um á laugardaginn að halda
tónleika á báti í Klettshelli.
Karlakórinn mun halda tón-
leika í gamla bíósal samkomu-
hússins klukkan 16 en í
Klettshelli klukkan 18. Bátar
munu flytja fólk út í Klettsvík
meðan pláss er og fara þeir
frá Básaskersbryggju. Tón-
leikamir í Klettsvík munu
taka um hálfa klukkustund.
Stjómandi kórsins er Ólafur
Sigurjónsson og undirleikari
Elín Káradóttir. Æskilegt er
að þeir sem koma á bátum séu
komnir tímanlega svo mótor-
skellir trafli ekki söng karla-
kórsins.