Morgunblaðið - 12.06.1998, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 1 7
LANDIÐ
Klettur í
veginum
Árneshreppi - Bjarg féll á veg-
inn milli svonefndra Stóru- og
Litlu-Kleifa á veginum til Norð-
urfjarðar. Jarðvegurinn hafði
runnið undan bjarginu og það
sigið niður í efri vegarkantinn,
en fært er um veginn.
Bjargið er u.þ.b. 10-15 tonn
en verður sprengt innan
skamms og vegurinn ruddur.
Saga slysavarnastarfs
kynnt á lifandi hátt
Morgunblaðið/Arnaldur
„I ÞESSUM björgunarstól var 38 manns bjargaði þegar togarinn Cap-
fagmet strandaði við Grindavík árið 1931. Björgunarsveitin í Grinda-
vík hefur bjargað á annað hundrað manns í svona björgunarstól," seg-
ir Ásgeir Hjálmarsson.
Á SÖGUSÝNINGU Slysavamafé-
lags íslands í nýopnuðu miiyasafni
félagsins í Garðinum kennir ýmissa
grasa. Fluglínutæki, bárufleygur,
austurskæna og loftskeytakiefi eru
meðal þess sem hægt er að skoða
auk fjölda mynda og ritaðra upplýs-
inga sem rekja sögu slysavarna-
starfs í landinu.
Ásgeir Hjálmarsson er formaður
sögu- og minjasafnsnefndar SVFÍ og
fylgdi blaðamanni og Ijósmyndara
Morgunblaðsins um safnið þegar
þeir heimsóttu Garð í vikunni.
Minjasafn SVFI er í húsnæði
Björgunarsveitarinnar Ægis í Þor-
steinsbúð. Safnið er eingöngu í hluta
húsnæðisins og er hinn hlutinn nýtt-
ur undir starfsemi björgunarsveitar-
innar. Húsnæðið er alls um 3.000 fer-
metrar og var áður fiskhús og
rækjuvinnsla sem lagðist af fyrir
nokkrum árum. Húsnæðið hafði
staðið ónotað í nokkur ár þegar
Kristín Ingimundardóttir á Gauks-
stöðum lét björgunarsveitinni það í
té. Kristín er ekkja Þorsteins Jó-
hannssonar útgerðarmanns sem rak
fiskvinnsluna þar áður og segir
Kristín að maður hennar hafi lengi
haft í huga að láta björgunarsveit-
inni húsið í té, og svo varð úr fyrir
skömmu. Kristín var gerð að heið-
ursfélaga SVFÍ á 70 ára afmæli fé-
lagsins sem haldið var upp á í Sand-
gerði fyrir stuttu.
Bárufleygnr sem lygnir sjó
„Við hér í björgunarsveitinni Ægi
í Garðinum höfðum heyrt af því að
fyrirhugað væri að stofna minjasafn
félagsins. Við höfðum nýfengið þetta
stóra húsnæði og buðum hluta þess
undir safnið. Boðinu var tekið og því
er safnið hér í dag,“ sagði Ásgeir
Hjálmarsson þegar hann var spurð-
ur hvers vegna safnið væri í Garðin-
um. Slysavarnafélagið hélt nýlega
upp á 70 ára afmæli sitt og var Sögu-
sýningin opnuð af því tilefni. Fyrir-
hugað er að sýningin standi áfram og
munu fleiri munir bætast við hana
eftir sem á líður.
Á sýningunni má fræðast um að-
draganda að stofnun Slysavamafé-
lagsins og forsögu hennar. Braut-
ryðjandi skipulagðs slysavama-
starfs var séra Oddur V. Gíslason á
Stað í Grindavík. Oddur stofnaði
m.a. bjargráðanefndir í allmörgum
verstöðvum, gaf út blaðið Sæbjörgu
og fann upp bárufleyginn, sem lægði
öldur í miklum brotsjó. „Fleygurinn
var festur aftan í bátinn og hann lát-
inn dragast aftan úr. Lýsi var sett í
fleyginn, sem göt vom á, og lak lýsið
hægt út um götin og lægði öldumar,
en eins og alkunna er þá lygnir sjó-
inn þegar olía er á honum,“ segir
Ásgeir.
Frækileg björgunarafrek
Frá brautryðjandanum er sagan
svo rakin áfram, sagt er frá stofnun
fyrsta slysavamafélagsins, sem var
Sigurvon í Sandgerði, stofnuð 1928
og nýjungar í björgunartækjum
kynntar. Línubyssur frá ólíkum
tímabilum era til sýnis og sýna þær
glöggt þá miklu þróun sem orðið hef-
ur til batnaðar á björgunarbúnaði.
Sagt er frá frækilegum björgunara-
frekum og sýndir munir eins og
björgunarstóll björgunarsveitarinn-
ar Þorbjarnar í Grindavík sem
bjargaði 38 manns úr strandi
franska togarans Capfagmet 24.
mars árið 1931.
í einum básnum er sagt frá fjár-
öflun vegna starfseminnar, merkja-
sala kynnt, sagt frá unglingadeildum
og félagaöflun og sýndar myndir af
uppábúnum bömum við merkjasölu:
„Hér áður fyrr tíðkaðist það að böm-
in klæddu sig upp í hvíta búninga
þegar þau seldu merki Slysavamafé-
lagsins. Það hefur verið gaman að
sjá krakkana svona," segir Ásgeir og
finnst augljóslega synd að merkja-
söluböm í dag skuli ekki klæðast
svona búningum.
Auk alls þess sem þegar er upp-
talið er fjölmargt annað að sjá á sýn-
ingunni og augljóslega mikil vinna
lögð í að safna minjunum saman og
sýna þær glöggt þær framfarir sem
orðið hafa á búnaði björgunarsveita
og breyttum aðstæðum til björgun-
ar.
Bjöm G. Bjömsson sá um upp-
setningu sýningarinnar en Einar
Amalds vann við textagerð. í sögu-
og minjasafnsnefnd sitja auk Ásgeirs
þeir Sigurður H. Guðjónsson og Jón
Borgarsson. Safnið er opið daglega
frá 13-17
ÁSGEIR Hjálmarsson formaður sögu- og minjasafnsnefndar SVFÍ og Kristín Ingimundar-
dóttir á Gauksstöðum og heiðursfélagi SVFI. í baksýn má sjá Þorsteinsbúð, sem er hús-
næði Minjasafnsins, björgunarsveitarinnar Ægis og kvennadeildar slysavamafélagsins í
Garðinum, en það var áður mikið fískvinnsluhús sem var í eigu Þorsteins Jóhannessonar á
Gauksstöðum og fjölskyldu hans.
Minjasafn SVFÍ í Garðinum
Á MINJASAFNI SVFÍ í Garðinum má sjá margvíslega hluti úr sögu slysavamastarfs og
sjósóknar á Islandi. Hér má sjá líkan af áttæringi, sjóklæði sjómanna frá fyrri árum og
mynd málaða af Freymóði Jóhannssyni frá 1930 sem lengi var notuð sem leiktjald á leik-
sviði samkomuhússins í Garðinum.
• Rúmgóðar geymsluhirslur • Rúmgóðir skápar
• Tveggja hellna gaseldavél • 50 mm kúlutengi
• Svefnpláss fyrir 6+ • 12 volta rafkerfi
• Varadekk, festing og varadekkshlíf
Ljósabúnaður skv. EES staðli
• Skrúfeðir undirstöðufætur
• Lokaóur lyftubúnaður
• Ryðvarinn undirvagn
• og margt fleira
r. 447.000
staögreitt
Hafðu samband -
ýmsir lánamöguleikar
w
TITAN
Sportbúð - Títan • Seljavegi 2
SÍMI 551 6080 • Fax 562 6488
í pípum og plötum sem má þrýsta
og sveigja, laust við CFC, í sam-
ræmi við ríkjandi evrópska staðia.
Hentar vel tii einangrunar kæii-
kerfa fyrir loftræsti- og hitakerfi,
og fyrir pípulagningar.
^ 1 fWqpHQ Leitið frekarí upplýsinga
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ARMÚLA 29.1BS REYKJAVÍK,
SÍMI5531849/569*190.
’llClÞÞ
l&co