Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnaldur
Lyftarar Eimskips í Sundahöfn taka nú við fyrirmælum í gegnum
þráðlausan tölvubúnað.
Nýtt upplýsingakerfi
Eimskips í Sundahöfn
EIMSKIP hefur tekið í notkun
nýtt upplýsingakerfi fýrir
gámaflæði í Sundahöfn.
Að sögn Hjörleifs Jakobsson-
ar, framkvæmdastjóra innan-
landssviðs, byggir kerfið á því
að allar færslur gáma eru
skráðar í tölvu, hvort sem um er
að ræða flutning gáma tíl eða
frá vörugeymslum, afhendingu
tíl viðskiptavina eða tilflutning.
Þráðlausum tölvum hefur
einnig verið komið fyrir í lyftur-
um og öðrum vinnuvélum fé-
lagsins þar sem fyrirmæli ber-
ast um allar tilfærslur á svæð-
inu: „Þannig eru lyftarar undir
tölvuvæddri verkstjórn og fá öll
sín fyrirmæli á tölvuskjá, sem
miðar að því að tryggja hag-
kvæmari rekstur og aukið upp-
lýsingaflæði en viðskiptavinur-
inn getur nú ávallt fengið vit-
neskju um hvar vara hans er
staðsett í flutningaferlinu“.
Kerfíð er keypt ftá belgíska
hugbúnaðarfyrirtækinu Cosmos
og kostaði um 45 milljónir
króna. Hjörleifúr segir ljóst að
allar hreyfíngar vinnuvéla á at-
hafnasvæðinu muni minnka til
muna því umstöflun og tilfærsla
gáma taki nú mið af því hvert
og hvenær þeir fara með skipu-
Iegri hætti en áður: „Nýting
svæðisins og vinnutækja batnar,
lestun og losun skipa verður
skjótari sem leiðir til styttri við-
verutúna þeirra í höfninni.
Þetta mun spara félaginu um-
talsverða fjármuni í framtíðinni
sem til lengri tíma litið mun
einnig skila sér til viðskiptavina
Eimskips“.
Verkfall lamar
verksmiðjur
General Motors
Detroit. Morgunbladid
VERKFALL sem hófst síðasta
fostudag í einni af verksmiðjum
General Motors, hefúr nú lamað sjö
aðrar verksmiðjur, þar sem margar
af mest seldu bifreiðategundum GM
eru settar saman. Meira en átján
þúsund verkamenn hafa verið send-
ir heim vegna þessa. Verksmiðjan
þar sem samtök verkamanna í bíla-
iðnaðinum (UAW) lögðu niður
vinnu, er i bænum Flint í Michigan
ríki, og framleiðir meðal annars
stuðara og vélarhlífar fyrir margar
tegundir GM bifreiða.
Verkfallið hófst vegna deilna inn
öryggi á vinnustað og fjölda starfa í
verksmiðjunni. Verkalýðsfélagið
sakar GM einnig um að hafa ekki
staðið við áætlanir um frekari fjár-
festingar og segir að ætlun bifreiða-
framleiðandans sé að flytja störf úr
landi.
Annað verkfall
f uppsiglingu?
General Motors stendur einnig
frammi fyrir verkfalli sem boðað
hefur verið í annarri verksmiðju
fyrirtækisins í Flint. Þar eru meðal
annars framleidd kveikikerti,
hraðamælar og eldsneytisdælur fyr-
ir langflestar tegundir GM bifreiða.
Verði vinna lögð niður þar í dag,
gæti það þýtt að innan nokkurra
daga myndi General Motors neyð-
ast til að loka flestum verksmiðjum
sínum í Bandaríkjunum, Kanada og
Mexíkó.
Boeing kynnir nýja
100 sæta þotu
Long Beach, Kaliforníu. Reuters.
BOEING flugvélaverksmiðjumar
hafa kynnt nýjustu þotu sína, 717-
200, sem vonað er að verði helzti
farkostur flugfélaga á styttri leiðum
um víða veröld.
Flugvélina þróaði McDonnell
Douglas Corp. og kallaði hana MD-
95, en henni var gefið naftiið 717-
200 eftir samruna McDonnells og
Boeings í fyrra. Hún er beinn af-
komandi DC-9 þotunnar.
Verðið er á bilinu 30-34 milljónir
dollara og Boeing kallar vélina
„beztu 100 sæta flugvél heims“. 717-
200 er minnsta flugvél Boeings og
flugþol hennar er allt að 1400 mílur,
þótt gert sé ráð fyrir að flugfélög,
sem halda uppi á ferðum á stuttum
leiðum, taki hana í sína þjónustu.
Með því er átt við 300-500 mílna
flugleiðir.
Fyrsta nýja flugvélin
„Þessi flugvél er kölluð 717 af því
að hún er nr. 1, fyrsta nýja flugvélin
eftir samruna Boeing/McDonnell
Douglas í fyrrasumar," sagði for-
stjóri Boeings, Harry Stonecipher.
„717 þotan tilheyrir einnig
merkri arfleifð ásamt hinum vel-
heppnuðu DC-9, en rúmlega 800 af
þeirri gerð eru enn í notkun. Not-
endur DC-9 eru eðlilegir kaupendur
hinnar nýju 717 og við væntum þess
að eiga viðskipti við þá,“ sagði hann.
Annar markhópur Boeings eru
GESTIR skoða hina nýju Boeing 717 á Long Beach f Kalifomíu.
notendur gamalla 727 gerða. Fyrir-
tækið gerir ráð fyrir að markaður
verði fyrir 2600 nýjar flugvélar fyrir
80-120 farþega fyrir árið 2017.
Lítill hávaði fylgir nýju þotunni og
útblástur frá henni er lítill. Hún býð-
ur upp á fullkominn flugstjómar-
klefa og lendingarkerfi, sem hægt er
að nota til að lenda, þótt flugbrautin
sjáist ekki, að sögn fyrirtækisins.
Meðal þeirra sem vom viðstaddir
kynningu nýju þotunnar var Joseph
Corr, forstjóri AirTran Airlines,
sem fær fyrstu 717 þotuna afhenta
á þriðja ársfjórðungi 1999. AirTran
hyggst nota 717 þotur eingöngu fyr-
ir árið 2002 og hefúr pantað 50 fyrir
um 1,6 milljarða dollara ásamt rétti
til að kaupa 50 í viðbót.
Boeing hyggst smíða þrjár 717
þotur á mánuði fyrir árið 2000 og
fimm á mánuði árið eftir og ef til vill
fleiri ef eftirspum verður næg.
Ron Woodard, forseti Boeing
Commercial Airplane Group, sagði
ftéttamönnum að Boeing vonaðist
til að koma upp heilli fjölskyldu 717
flugvéla, þar á meðal 717-100, sem
tæki 80-85 farþega, og 717-300, sem
tæki 125-130 farþega.
3
Islenska járnblend if élagið hf.
Úr reikningum ársins 1997
Rekstrarreikningur 1997 1996 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 3.537,0 3.716,5 -4,8%
Rekstrargjöld 3.126,4 2.975,3 +5,1%
Rekstrarhagnaður 410,6 741,2 -44,6%
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 28,4 (29,4) ~
Hagnaður af reglulegri starfsemi 439,0 711,8 -38,3%
Onnur gjöld (10,7) (73,9) -85,5%
Eignaskattur (34,4) (26,2) +31,3%
Hagnaður ársins 393.9 611,7 -35,6%
Efnahagsreikningur 31. des. 1997 1996 Breyting
1 Eignir: \ Milljónir króna
Fastafjármunir 2.353,3 2.245,2 +4,8%
Veltufjármunir 1.977,9 1.756,3 +12,6%
Eignir samtals 4.331,2 4.001,5 +8,2%
| Skuldir og eigið fé: |
Eigið fé 3.588,5 2.567,3 +39,8%
Langtímaskuldir 160,9 443,9 -63,8%
Skammtímaskuldir 581,8 990,3 -41,3%
Skuldir og eigið fé samtals 4.331.2 4.001.5 +8,2%
Kennitölur og sjóðstreymi 1997 1996 Brejting
Eigínf járhlutfall 82,8% 64,2%
Veltufjárhlutfall 3,4 1,8
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 662,5 800,6 +17,2%
Kaupþing opnar verðbréfafyrirtæki í Luxemborg
221. bankastofnunin í borginni
Luxemborg. Morgunblaðið.
BANKASTOFNUNUM í Luxemborg fjölgaði um
eina í gær þegar Kaupþing hf. opnaði þar verð-
bréfafyrirtæki sitt Kaupthing Luxembourg SA.,
jafnframt því sem löndunum sem þar eiga banka
fjölgaði um eitt. Fyrir vom í Luxemborg 220
bankar og verðbréfafyrirtæki frá 46 ríkjum,
þannig að Kaupthing Luxembourg er 221. banka-
stofnun landsins og frá 47. ríkinu eins og fram
kom hjá Magnúsi Guðmundssyni, framkvæmda-
stjóra, í gær.
Kaupþing hf. hefur lengi unnið að undirbúningi
þessa fyrsta verðbréfafyrirtækis Islendinga á er-
lendri gmndu. Starfsemi Kaupþings í Luxemborg
hófst með stoftiun verðbréfasjóðsfyrirtækisins
Kaup- thing management company fyrir tveimur
ámm. Það fyrirtæki er starfrækt í samvinnu við
Rothschild banka og kom fram hjá Sigurði Ein-
arssyni forstjóra Kaupþings hf. við opnunarat-
höfhina í gær að starísemin hefði gengið vel.
Nema sjóðir þess nú um fimm milljörðum króna.
Á síðasta ári stofnsetti Kaupþing síðan svokall-
aða Islandssjóði í Luxemborg, en þeir fjárfesta
eingöngu í íslenskum verðbréfúm þ.e.æs. hluta-
bréfum og langtíma skuldabréfum. Þriðja skrefið
og það stærsta er síðan stofnun verðbréfafyrir-
tækisins sem hóf starfsemi sína í Luxemborg í
gær.
Vonandi aðeins byijunin.
í tilefni af formlegri opnun fyrirtækisins em
staddir í Luxemborg sparisjóðsstjórar flestra ís-
lensku sparisjóðanna og fulltrúar fleiri fyrirtækja
úr „sparisjóðafjölskyldunni" en Kaupþing er hluti
af þeirri fjölskyldu sem kunnugt er. Skoðuðu
gestimir skrifstofur Kaupthing Luxemborg við
Rue Guillaume Schneider, í hjarta Luxemborgar
og samfögnuðu starfsmönnum nýja fyrirtækisins
og stjórnendum Kaupþings hf. í síðdegisboði. Þar
vom á meðal gesta Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra og Goebbles, efhahagsmálaráðherra Lux-
emborgar. Báðir lofiiðu það frumherjastarf Kaup-
þings að stofna verðbréfafyrirtæki í Luxemborg
og ræddu um góð samskipti landanna fyrr og nú.
Geir sagði að þetta væri vonandi aðeins byrjunin
á útrás íslenskra fjármálafyrirtækja.
Fimm menn munu starfa á skrifstofu Kaupt-
hing Luxembourg og hafa fjórir þegar tekið til
starfa. Fyrirtækið mun í upphafi aðallega þjóna
íslendingum bæði heima og í Luxemborg en það
mun jafnframt sinna viðskiptum við aðra norður-
landabúa o.fl.
í dag stendur Kaupþing fyrir ráðstefnu þar
sem starfsemi fyrirtækisins í Luxemborg verður
kynnt nánar og fjallað um myntbandalag Evrópu,
evruna og fjárfestingar á alþjóðlegum mörkuðum.
Meðal fyrirlesara er Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra.
Viðunandi hagnaður
hjá Islenska járn-
blendifélaginu hf.
Arður ekki
greiddur
iít í ár
Á AÐALFUNDI íslenska járn-
blendifélagsins, sem var haldinn í
gær, kom fram að hagnaður fyrir-
tækisins árið 1997 nam 393 milljón-
um króna. Á fúndinum var einnig
samþykkt tillaga stjómar um að
greiða engan arð til hluthafa á þessu
ári. í máli Guðmundar Einarssonar
stjómarformanns kom fram að
ástæður fyrir þeirri ákvörðun væm
margþættar. Meðal annars stæði
60% stækkun fyrirtækisins fyrir
dyrum, en nýr bræðsluofn yrði tek-
inn í notkun á næstunni og bygging
hans yrði mjög dýr. Þá gæfu mark-
aðshorfúr vísbendingu um að var-
kámi væri þörf.
Hagnaður ársins, 393 milljónir
króna, er mun minni en ársins 1996,
þegar hann nam 611 milljónum
króna. Ástæðan er lækkandi verð á
mörkuðum, en að auki jókst rekstr-
arkostnaður um rúmlega 150 millj-
ónir króna. Guðmundur Einarsson
sagði að mjög brýnt væri að lækka
kostnað, en hann hefúr farið vaxandi
síðustu 3 ár.
----------------
Dómur gegn
Brown &
Williamson
Jacksonville, Flórída. Reuters.
KVTÐDÓMUR á Flórída hefur úr-
skurðað að vindlingaframleiðandinn
Brown & Williamson beri lagaá-
byrgð á samsæri vegna dauða reyk-
ingamanns og fleiri atriðum og
dæmdi fjöLskyldu hans að minnsta
kosti 552.000 dollara í skaðabætur.
Þetta er annar úrskurður dóm-
stólsins á tveimur árum, sem er óvii-
hallur tóbaksiðnaðinum í máli reyk-
ingamanns gegn honum.
Kviðdómurinn taldi einnig við
hæfi að dæma fyrirtækið í refsibæt-
ur og mun koma aftur saman til að
ákveða þær innan skamms.