Morgunblaðið - 12.06.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 2 7
Söngferð Arnesingakórsins
til Lettlands
ÁRNESINGAKÓRINN í Reykja-
vík hélt hinn 10. júní utan ásamt
nokkruni félögum úr kór
Kvennaskólans í Reykjavík til að
halda tónleika í Lettlandi.
I kvöld 12. júní mun hópurinn
ásamt kór Lettnesku akademíun-
ar taka þátt í tónleikum Lett-
nesku fílharmoníuhljómsveitar-
innar undir stjórn Guðmundar
Emilssonar. Sigurður Bragason
mun syngja einsöng með hljóm-
sveitinni.
Á efnisskránni eru aðallega
verk eftir Mozart, m.a. Gloria úr
Krýningarmessunni og Ave ver-
um corpus. Meðal gesta á tón-
leikunum verða forsetar Lett-
lands og Islands.
Hinn 14. júní mun Árnesinga-
kórinn ásamt félögum úr kór
Kvennaskólans halda tónleika á
þekktum tónleikastað í Riga.
Undirleikari á þeim tónleikum er
Bjarni Þór Jónatansson og ein-
söngvari Árni Sighvatsson,
sljórnandi beggja kóranna er
Sigurður Bragason.
Efnisskrá tónleikanna er
byggð á íslenskum söng- og ætt-
jarðarlögum. í þessari ferð munu
Árnesingakórinn og Lettneska
fflharmoníuhljómsveitin, undir
stjórn Guðmundar Emilssonar,
vinna upptökur á íslenskum og
erlendum lögum. „Við munum
meðal annars hljóðrita íslenska
þjóðsönginn með lettnesku ffl-
harmoníunni,“ segir Þorsteinn
Þorsteinsson sem syngur bassa-
rödd með Árnesingakórnum.
Kórinn hélt upp á 30 ára afmæli
sitt í fyrra og var síðast erlendis
á Ítalíu á tónleikaferðalagi fyrir
tveim árum.
HLUTI Árnesingakórsins í Reykjavík.
Sigrún Lára
sýnir hand-
málaðar
silkislæður
SIGRÚN Lára Shanko opnar sína
fyrstu einkasýningu á handmáluð-
um silkislæðum í galleríi Handverks
& hönnunar laug-
ardaginn 13. júní.
Sigrún Lára
lærði silkimálun
er hún bjó í
Englandi. Síðan
þá hefur hún
þróað sinn eigin
stíl og notar
ýmsa tækni við
litun á silkinu, en
mest handmálun.
„Sigrún Lára
flytur sjálf inn silkið og litina. Hún
notar aðeins liti sem þarf að gufu-
festa, þvi þeir gefa bestan skarp-
leika í litum.
Sigi'ún Lára hefur tekið að sér
sérverkefni og leggur áherslu á að
uppfylla óskir hvers og eins varð-
andi hugmyndir og litaval,“ segir í
kynningu.
Gallerí Handverks & hönnunar er
við Amtmannsstíg og er sýningin
opin þriðjudaga-föstudaga kl. 11-17
og laugardaga kl. 12-16. Sýningunni
lýkur 27. júní.
Nýjar bækur
• HÁSKÓLA ÚTGÁFAN þefur
nýlega sent frá sér bókina í ti'ma og
ótíma til heiðurs Sigurði A. Magn-
ússyni rithöfundi
í tilefni af sjö-
tugsafmæli hans
hinn 31. mars sl.
Ritið er umfangs-
mikið og hefur að
geyma ræður og
ritgerðir Sigurð-
ar frá seinni ár-
um, en sem
kunnugt er hefur
hann verið af-
kastamikill á
þeim vettvangi og látið til sín taka
jafnt í umræðu um þjóðfélagsmál,
trúmál, menningu og Iistir. Afmæl-
isritið endurspeglar þessi áhugasvið
hans. Ástráður Eysteinsson ritar
inngang að verkinu.
Ritið er 460 bls. að lengd og því
fylgir ítarleg rítaskrá er spannar
allan höfundarferíl Sigurðar til
dagsins í dag. Búðaverð bókarinnar
er 3.500 kr.
Sigurður A.
Magnússon
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
ódýr náttfarnaður
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
Domus Medica 551 8519
Kringlunni 568 9212
Verð: 2.995,-
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Mikið úrval
af sumarskóm ó börn
Tegund: ADI
Leður í stærðum 28-35
www.
■nmfilm
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844