Morgunblaðið - 12.06.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 4^*
MINNINGAR
GÍSLISKARPHÉÐINN
SIGURÐSSON
+ Gísli Skarphéðinn Sigurðs-
son fæddist á Höfn 10. febr-
úar 1970. Hann lést af slysförum
27. maí síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Hafnarkirkju 5.
júm'.
Um hádegisbil miðvikudaginn
27. maí síðastliðinn barst mér
frétt um að Gísli væri dáinn. Gat
þetta verið satt? Eg vonaði svo
sannarlega að svo væri ekki og
beið lengi eftir símtali um að þetta
hefði verið misskilningur. Svo var
víst ekki og því verð ég og allir
aðrir sem voru svo heppnir að
kynnast Gísla að takast á við raun-
veruleikann, sama hversu ósann-
gjarn hann er.
Ég var svo heppin að fá að prófa
að fara í sveit á Stapa 6 ára gömul.
Eftir það varð ekki aftur snúið og
næstu sex árin vildi ég helst hvergi
annars staðar. vera. I dag er ég
ekki búin að koma á Homafjörð
nema að ég hafi kíkt í sveitina
mína. Nú mun ég ekki framar hitta
Gísla þar glaðan og hressan að
vanda í faðmi yndislegrar fjöl-
skyldu.
Gísli var fjómm ámm eldri en
ég og í sveitinni leit maður alltaf
upp til hans. Hann var stóri strák-
urinn sem gat allt og var endalaust
duglegur. Hann var mjög hjálp-
samur og mér fannst hann heyja
fyrir alla Nesjamenn. Annað af
tvennu sem ég held að Gísli hafi
ekki getað gert var að segja nei.
Hitt var að kenna mér að bakka
dráttarvél með kerru sem er nú
ekki auðvelt verk. Mig dreymdi
mikið um að vera jafn dugleg og
hann, reyndi jafnvel að ata bux-
umar mína út í olíu svo þær yrðu
eins og hans. Þótt Gísli hafi verið
nokkuð eldri og fíflast mikið í okk-
ur stelpunum nennti hann að gera
ýmsa hluti fyrir okkur. Mér er sér-
stakiega minnistætt þegar hann
lagaði þak á gömlum litlum torfbæ
austur á hól og setti torfu yfir og
bjó til hið fínasta gullabú handa
mér og Völu.
Síðustu ár höfum við ekki hist
nógu oft og mikið átti eftir að
ræða. Þú varst svo ánægður með
lífið þegar þú kynntir mig fyrir
Sædísi og seinna þegar ég sá Hauk
Smára fyrst. Þú áttir svo margt
ógert og sérstaklega finnst mdf'*'
sorglegt að Haukur Smári fái ekki
að njóta fleiri stunda með þér. Ég
þakka fyrir allar þær skemmtilegu
stundir sem ég átti með þér og
mun sakna þín sárt, kæri vinur.
Elsku Haukur Smári, Sædís,
Vala, Siggi, Hulda, Lauga, Halli,
Día, Bibba og aðrir vandamenn, ég
sendi ykkur alla mína samúð.
Guð hjálpi okkur öllum í sorg-
inni.
Hólmfríður.
AÐAUGLVSIM
G A
ATVIIMIMU-
AUGLÝSINGAR
Ræðslumiðstöð
Reykjavíkur
Laus störf við
Borgaskóla
Borgaskóli er nýr grunnskóli í Grafarvogi. Skól-
inn mun hefja starfsemi í haust í lausum
kennslustofum. Á næsta ári hefjast fram-
kvæmdirvið byggingu skólahúss. Framundan
er krefjandi og skemmtilegt mótunarstarf.
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:
Aðstoðarskólastjóri
Kröfur gerðar til umsækjenda:
• Kennaramenntun. Framhaldsmenntun æski-
leg t.d. á sviði stjórnunar eða í uppeldis- og
kennslufræðum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Stjórnunarhæfileikar og reynsla.
Umsjónarmaður með
lengdri viðveru
Starfið erfólgið í skipulagningu og umsjón
með lengdri viðveru 6-9 ára barna.
Kröfur gerðar til umsækjenda:
• Uppeldismenntun.
• Stjórnunarhæfileikar og reynsla.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Upplýsingar veita:
Hilmar Hilmarsson, skólastjóri, sími 551 -2603
eftir kl.: 17:00,12. júní -16. júní. Ingunn Gísla-
dóttir, sími 535 5000, 18. júní - 10. júlí.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 1998.
MÚLAKAFFI
Matreiðslunemi
óskast
Múiakaffi/Veisluréttir óska eftir að ráða mat-
reiðslunema.
Upplýsingar gefur yfirmatreiðslumaður á
staðnum.
Verkstæðismaður
Vantar vanan verkstaaðismann. Mikil vinna.
Upplýsingar í símum 565 3143 og 852 8151.
Klæðning ehf.
íþróttakennarar
Varmahlíðarskóli í Skagafirði auglýsir hér eftir
íþróttakennara til starfa frá og með næsta
hausti. Mjög góð kennsluaðstaða er við skól-
ann, nýr íþróttasalur og stór útisundlaug ásamt
fl. Rúmgott íbúðarhúsnæði í einbýlishúsi í
Varmahlíð stendurtil boða. Umsóknarfrestur
er til 30. júní. Umsóknir skulu berast til skóla-
stjóra Varmahlíðarskóla, Páls Dagbjartssonar,
sem veitir allar nánari upplýsingar; í skólanum
í síma 453 8225 og heima í síma 453 8115.
Skólastjóri Varmahlíðarskóla.
Vandvirkur smiður
óskast
Leitað er eftir smiði á aldrinum 30— 50 ára með
mikla reynslu af mótauppslætti og almennri
smíðavinnu. Um er að ræða fjölbreytta úti-
og innivinnu í a.m.k. 1 ár við nýbyggingu at-
vinnuhúsnæðis miðsvæðis í Reykjavík.
Viðkomandi þarf að geta unnið algjörlega sjálf-
stætt, auk þess að geta stjórnað verkamönnum.
Ef um er að ræða aðila utan af landi er hugsan-
legt að byggingafyrirtækið geti útvegað íbúð
fyrir viðkomandi.
Upplýsingar í síma 893 4284.
TILBOÐ/UTBOO
B essasta ð a h reppu r
Leikskóli — stækkun
Bessastaðahreppur óskar eftir tilboðum í jarð-
vinnu, gerð undirstaðna og botnplötu og lagnir
í grunni fyrir stækkun leikskólans Krakkakots
í Bessastaðahreppi.
Helstu magntölur eru:
Uppgröftur 1.800 m3
Fylling 1.250 m3
Steypumót 200 m2
Grunnlagnir 240 m
Botnplata 327 m2
Verklok eru 31. júlí 1998.
Útboðsgögn verða afhent frá föstudeginum
12. júní hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Bessastaða-
hrepps, Bjarnastöðum, föstudaginn 19. júní
kl. 11.00.
Sveitarstjóri.
VEIOI
Stangveiði
(Veidiréttur)
Tilboð óskast í veiðirétt í Seltjörn við Grinda-
víkurveg næstu 5 árin frá 1. júlí '98. Seltjörn
(ca 5 km frá Bláa lóninu) er í dag eitt vinsælasta
stangveiðisvæði landsins. Árleg veiði 6-8 þús.
silungar og laxar. Veiðirétti fylgir góð aðstaða
til sölu veiðileyfa og veitinga, allur stangveiði-
búnaður, kisturtil flutnings á lifandi fiski, bátur
o.fl.
Upplýsingar veitir Jónas í síma 421 2996 (sím-
svari) 893 9096 og 853 9096.
TILKYNIMINGAR
GERÐAHREPPUR
Gerðahreppur 90 ára
Fjölskylduskemmtun í íþróttamiðstöðinni á
morgun, laugardag, kl. 15.00.
Dansleikur kl. 23.00. Hljómsveit Geirmundar *r
Valtýssonar.
Fjölbreyttar sýningar í gangi.
Sveitarstjóri.
TIL SÖLU
Lagersala
Laugardaginn 13. júní 1998 verður lagersala í
Vatnagörðum 26,104 Reykjavík, frá kl.
13.00-16.00.
Seldar verða ýmsar vörur, svo sem leikföng,
litabækur, púsluspil, veiðarfæri, sjóstangir, gervi^
beita, fluguhnýtingaönglar, ódýrar vöðlur nr.
41, camo:vöðlur, veiðigallar, veiðijakkar, regn-
kápur, myndbanda- og geisladiskakassar og
-töskur, ódýrir verkfærakassar. Línu- og hjóla-
skautarfyrir unga menn og dömur. Disney-lest
á góðu verði. Garðljós, sýnishorn af raftækjum,
pool- og borðtennisborð fýrir ungt fólk. Gas-
suðutæki til að tina og lóða. Hleðslurafhlöður,
hnífar, 2 eldtraustar hurðir á mjög góðu verði.
Ryksuga, vatnssuga og teppahreinsivél í einu
tæki á mjög góðu verði. Flugulínur, takmarkað
magn. Örbylgjuofnar 700W, takmarkað magn
á aðeins kr. 11.900,-. Tungumálatölva, hagstætt
verð.
Komið og gerið góð kaup. VISA og EURO.
ÝMISLEGT
Handverksmarkaður
verður á Garðatorgi laugardaginn 13. júní frá
kl. 10.00-18.00.
Milli 40 og 50 aðilar sýna og selja muni sína.
Kvenfélagskonur sjá um kaffisölu.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SÍMI 568-2533
Að lesa landið
Þórsmörk, fræðsluferð
12.-14. júní. Landgræðsla ríkis-
ins, Skógrækt ríkisins og Ferða-
félag íslands standa að stór-
skemmtilegri og einstakri
fræðsluferð. Dagskrá: Skógardag-
ur á laugardeginum. Jarðfræði-
ganga á sunnudagsmorgninum.
Kostakjör. Tilvalin ferð fyrir unga
sem aldna. Ókeypis grillveisla á
laugardagskvöldinu. Pantið fyrir
hádegi. Gist i Skagfjörðsskála.
Gestir á tjaldsvæðum Ferða-
félagsins í Langadal og End-
um eru velkomnir að taka
þátt ■ dagskrá helgarinnar, en
látið samt vita fyrirfram.
Vinnuferð f Landmannalaug-
ar 12.—14. júní. Brottför.^.
kvöld, föstudag, kl. 20.00. Það
vantar fleiri sjálfboðaliða, fri ferð
og fæði. Bókið ykkur strax.
Gerist félagar og eignist nýju
árbókina: Fjallajarðir og
Framafréttur Biskupstungna.
Laugardagur 13. júnf Id. 20:
Kvöldganga á Kerhólakamb
Esju. Verð 1.000 kr.
Sunnudagur 14. júnf kl. 10.30:
Leggjabrjótur. Gamla þjóðleiðin
frá Þingvöllum í Hvalfjörð. Verð
1.500 kr. Brottför i ferðirnar frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
Kynnið ykkur Þórsmerkurferð-
ir, helgarferðir, dagsferðir og
sumardvöl m.a. fjölskvlduhelqv
26.-28. júní. Fimmvörðuhál? "
ferðir ern fiestar helgar f sum-
ar, m.a. geysivinsæl nætur-
ganga 19.—21. júní.
TAI CHI f Kramhúsinu
Meistari Khinthitsa.
Kröftugt 5 daga námskeið,
19.-24. júní.
Upplýsingar í síma 551 5103,
Kramhúsið, og 551 9792, Guðný.
www.mbl.is.