Morgunblaðið - 12.06.1998, Page 42
M2 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Landsmót hestamanna
-Alþjóðleg mark-
aðsráðstefna
ÚTFLUTNINGS- og markaðs-
nefnd íslenska hestsins stendur
fyrir alþjóðlegri markaðsráðstefnu
í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði 13. júlí
nk., daginn eftir að Landsmóti
hestamanna á Melgerðismelum
lýkur. Tilgangurinn er að koma á
nánari tengslum ræktenda, tamn-
*'*mgamanna og útflytjenda við
kaupendur á helstu mörkuðum fyr-
ir íslenska hesta.
Brynjólfur Sandholt, fyrrverandi
yfirdýralæknir, verður ráðstefnu-
||pitney Bowes
frimerkjavelar
Eðalmerki í póststimplun
og póstpökkun
Otto B. Arnar ehf.
Ármúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, fax 588 4696
stjóri. Hann segir að ráðstefna sem
þessi ætti að vera gullið tækifæri
fyrir ræktendur og seljendur og
alla þá, sem áhuga hafa og koma að
einhverju leyti að útflutningi
hrossa, að heyra á einu bretti beint
frá fulltrúum kaupenda í helstu
markaðslöndunum hvemig hross
þeir vilja, hvernig þau era notuð,
hvemig þau eigi að vera tamin og
hvaða vandamál fylgja því að flytja
út hross, svo eitthvað sé nefnt.
Ráðstefnan hefst á ávarpi land-
búnaðarráðherra og að því loknu
flytur Haraldur Bessason erindið
„Hestur í lífi þjóðar". Síðan flytja
framsöguerindi þau Ann Elwell frá
Bandaríkjunum, Clive Phillips frá
Bretlandi, Jens Otto Veje frá Dan-
mörku, Jenny Mandal frá Svíþjóð
og Bruno Podlech frá Þýskalandi.
Einnig verður fjallað um þróun og
stöðu hrossaútflutnings frá Islandi
og heilbrigði og sjúkdóma í hross-
um. Að síðustu fara fram umræður
og fýrirspurnir.
Brynjólfur sagðist vona að sem
flestir kæmu á ráðstefnuna því þar
gæfist tækifæri til að ræða ýmis
mikilvæg mál sem tengjast útflutn-
ingi á íslenskum hestum. Jafn-
framt sagðist hann vona að í fram-
tíðinni yrðu ráðstefnur sem þessar
fastur íiður í kringum landsmót og
þar yrðu tekin fyrir brýn málefni
sem tengjast íslenska hestinum.
Ráðstefnan er öllum opin og
verður fullkomin túlkaþjónusta á
staðnum. Hægt er að skrá sig hjá
innanlandsdeild Úrvals/Útsýnar.
Lítið breytt stóðhesta-
hald þrátt fyrir hitasótt
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
I bæklingnum
-------------7-----
Stóðhestar á Islandi
1998. Þar eru upplýs-
ingar um hvar helstu
stóðhestar landsins
verða notaðir í vor
og í sumar. Asdís
Haraldsddttir leitaði
frétta hjá nokkrum
formönnum hrossa-
ræktarsamtaka.
BJARNI Marinósson formaður
Hrossaræktarsambands Vestm--
lands sagði að komist hefði verið að
samkomulagi við Hrossaræktarsam-
tök Eyfirðinga og Þingeyinga um að
skipta á hestum. Gustur frá Hóli II
átti að koma á Vesturland, en þar
sem hann hefur enn ekki veikst var
ákveðið að halda honum fyrir norð-
an, enda sóttin ekki yfirstaðin á
Vesturlandi enn og því hætta á að
hann smitist komi hann þangað.
Hætt var við að senda Hrynjanda
frá Hrepphólum norður og verður
hann notaður í stað Gusts á Vestur-
landi. Hrannar frá Höskuldsstöðum
er einnig ennþá ósýktur og átti
einnig að koma á Vesturland.
Akveðið var að hætta við að fá hann
og nota Dag frá Kjarnholtum, sem
átti að fara í Austur-Húnavatns-
sýslu, í staðinn. Hann verður því í
allt sumar á Vesturlandi. Að öðru
leyti verður stóðhestahaldið á Vest-
urlandi óbreytt frá því sem áður var
ákveðið.
Skagfirðingar áttu að fá Kraflar
frá Miðsitju til notkunar á húsi, en
hætt var við það. Að sögn Bjama
Maronssonar formanns Hrossarækt-
arsambands Skagfirðinga var ákveð-
ið að raska sem minnst fyrri ákvörð-
unum að öðru leyti. Rejmdar er Hugi
ft-á Hafsteinsstöðum kominn inn á
landsmót og verður ekki notaður á
vegum sambandsins þetta árið, held-
ur aðeins á vegum meðeigandans,
Skafta Steinbjömssonar á Hafsteins-
stöðum.
Sunnlendingar reyna einnig að
halda sem mestu óbreyttu varðandi
ákvarðanir um notkun á stóðhestum
í sumar. Gustur frá Hóli átti að
koma í sæðingar á Stóðhestastöðinni
en kom ekki. Þrátt fýrir að einhverj-
ir hestar eigi eftir að koma að norð-
an eftir landsmót, segist Kristinn
Guðnason formaður Hrossaræktar-
samtaka Suðurlands vona að þeir
sleppi við veikindi. Hitasóttin er það
löngu yfirstaðin á Suðurlandi að lítil
hætta ætti að vera á því.
Toppur frá Eyjólfsstöðum átti að
vera í Þingeyjarsýslu fyrra gang-
mál, en að sögn Guðmundar Birkis
Þorkelssonar formanns Hrossa-
ræktarsamtaka Eyfirðinga og Þing-
eyinga var samið um að fá hann á
næsta ári í staðinn. Guðmundur
Birkir segir að komið hafi til greina
að hætta við að fá Núma frá Þór-
oddsstöðum norður, en fallið var frá
því og kemur hann norður eftir
landsmót. Að öðra feyti verða breyt-
ingarnar þær að Gustur frá Hóli
verður fyrir norðan eins og áður
segir og Gyllir frá Sauðárkróki kem-
ur í staðinn fyrir Topp. Norður-
Þingeyingar ætluðu að fá Smið frá
Miðsitju, en hættu við og er enn
ófrágengið hvaða hestur kemur i
hans stað.
&
Guðni Einarsson ræðir við Veigu í Syðri-Neslöndum í Mývatnssveit.
í blaðinu á sunnudaginn.