Morgunblaðið - 12.06.1998, Side 45

Morgunblaðið - 12.06.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 45 ] I ; i ! i i i i i i i i Ráðstefna eðlis- og efnafræðinga NORRÆN ráðstefna eðlis- og efna- fræðinga frá ýmsum háskólastofnun- um á norðulöndunum og í Bandaríkj- unum verður að Nesbúð á Nesjavöll- um dagana 12.-16. júní. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Eðlis- og efna- fræði atóma og sameinda“. Á ráðstefnunni koma saman ýmsir sérfræðingar, háskólakennarar, rannsakendur og nemendur og skiptast á rannsóknarniðurstöðum og skoðunum varðandi ýmsa eigin- leika frumeininga efnisins, atóma og sameinda, að því er segh- í fréttatil- kynningu. Ráðstefnan er styrkt af norræna vísindasjóðnum NÓRDPLUS, sem leggur áherslu á eflingu norrænnar samvinnu og nemendaskipta á ýms- um sviðum vísinda. í forsvari fyrir ráðstefnuhaldið hérlendis er Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefnafræði við Háskóla ísland og Raunvísinda- stofnun Háskólans. Auk faglegra skoðanaskipta munu ráðstefnugestir kynnast Nesjavalla- virkjun og gefa sér tíma til skoðana- ferða um næsta nágrenni. Frá ráð- stefnunni er nánar greint á vefsíð- unni http://www.raunvis.hi.is/~Iag- ust/Nordpl.html Flugkoma Flugmenntar FLUGKOMA Flugmenntar fer fram laugardaginn 13. júní nk. á Reykja- víkurflugvelli, fyrir aftan Hótel Loft- leiðir. Hefst dagskráin klukkan 13 ef veður leyfir og stendur til klukkan Í7. Á tímabilinu gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér ým- islegt er viðkemur flugi og flugnámi. Á svæðinu verða meðal annars flug- vélar í einkaeign, heimasmíðaðar vélar, flugkennsluvélar, þyrlur, flug- vél frá landgræðslunni, landhelgis- gæslunni, listflugsvélar, flugmódel og fleira. Ýmsar uppákomur verða, s.s. listflugskynning og áhugasömum Barnadagur í ÁRBÆJARSAFN helgar sunnu- daginn 14. júní börnum og leikj- um þeirra. Farið verður í gamal- dags leiki við Kornhúsið allan daginn. Kl. 14 verður kassabíl- arallý og pokahiaup. Það verður sippað, farið í teygjutvist og snú snú, gengið verður á stultum og blásnar sápukúlur og þeytt þeyti- spjöldum. Leystar verða gátur og FLUGUMFERÐARSTJÓRAR á Fornebu-flugvelli í Ósló hafa boðað til verkfalls frá og með miðnætti 11. júní og um óákveðinn tíma. Samn- ingaviðræður standa nú yfir en litlar líkur eru taldar á því að samningar náist fyrir helgi. I fréttatilkynningu frá Flugleiðum segir að ljóst sé að verkfallið muni hafa í for með sér venilega röskun á öllu flugi um suðurhluta Noregs og muni allt flug um Fornebu-flugvöll leggjast niður. Flugleiðir muni því freista þess að draga sem verða má úr þein-i röskun sem verkfall mun / Arbæjarsafni fá vinningshafar send verðlaun. Teymt verður undir bönium við Árbæinn. Kindur og lömb bíta gras út í haga og kl. 17 verður hún Búkolla mjólkuð heima og allfr fá að smakka. Einnig verða pönnu- kökur og kleinur í Dillonshúsi. Safnið er opið á sunnudag kl. 10-18. Amma, afi og öll börn fá frítt inn eins og venjulega. hafa í fór með sér með þvi að fljúga til Gautaborgar og bjóða fólki upp á rútuferðir milli Fornebu-flugvallar og flugvallarins í Gautaborg. Hinni hefðbundnu Óslóaráætlun Flugleiða verður því breytt þannig frá og með fóstudeginum 12. júní og þar til ann- að verður tilkynnt: Kl. 7.35 brottför flugs FI-320 frá Keflavík. Kl. 12.25 iending í Gauta- borg. Kl. 14.40 brottför flugs FI 321 fi-á Gautaborg. Ki. 15.40 lending í Keflavík. Rútuferðir verða þannig: Fyrir farþega sem ferðast með FI-321 til gefst kostur á að fara í kynnisflug yf- ir Reykjavík. Einnig gæti verið að sæist til flugvéla í stæn-i kantinum yfir vellinum. Flugskólinn Flugmennt hefur opið hús þar sem boðið verður upp á fyr- irlestra um flug, flugnám og öðru því tengt. Seldar verða pylsur og gos. Flugdagurinn er hugsaður sem góð skemmtun fyrfr unga sem aldna og er aðgangur inn á svæðið ókeypis, segir í fréttatilkynningu. Fj ölskylduhátíð Þroskahjálpar HIN árlega fjölskylduhátíð Lands- samtakanna Þroskahjálpar verður haldin á Steinsstöðum í Skagafirði dagana 26.-28. júní nk. Þetta verður í fjórða skipti sem hátíðin er haldin á Steinsstöðum en þar er öll aðstaða fyi-fr hendi, gott aðgengi, gott leik- svæði og sundlaug. Fjölskylduhátíðin er vettvangur fyrir foreldra og systkini fatlaðra svo og fatlaða sjálfa að kynnast og skemmta sér, segir í fréttatilkynn- ingu. Svæðið verður opnað kl. 18 fóstu- daginn 26. júní. A laugardeginum Keflavíkur er brottför frá Fornebu kl. 10, mæting eigi síðar en kl. 9. Fyrir farþega sem koma með flugi FI-320 til Gautaborgai- verður brott- fórkl. 14.30 til Ósló. Þeir farþegar sem eiga bókað flug í framhaldi af flugi til Ósló eða þeir sem vilja breyta ferðadögum sínum vegna verkfallsins skulu hafa samband við söluskrifstofur Flug- leiða. Starfsfólk þar mun eftir mætti leitast við að greiða úr vanda fólks til að röskun vegna verkfalls- ins verði sem minnst, segir í frétta- tilkynningu. * Verkfall flugumferðarstjóra á Fornebu-flugvelli í Osló Áhrif á millilandaflug Flugleiða um völlinn — AÐALRÆÐISMAÐUR íslands í Mexíkóborg, Eduardo Rihan, Jón Baldvin Ilannibalsson sendiherra og ræðismaður Islands í Campeche, Mexíkó, Rafael Ruiz Moreno. MAGNÚS Bjarnason, viðskiptafulltrúi í New York, Jón Guðmunds- son, ræðismaður íslands í Kentucky, og Dan Slott, ræktar íslenska hesta í New Ýork-fylki. verður m.a. farið í leiki, frítt verður á hestbak, grillveisla verður haldin, sungið og dansað við harmonikuund- irleik Kristjáns Stefánssonar frá Gil- haga. Varðeldur verður tendraður um miðnætti. Aðgangseyrir er 2.000 . kr. fyrir fullorðna en 500 kr. fyrir börn og er innifalið í verði gisting í svefnpokaplássi eða tjaldstæði, grill- veisla og afnot af hestum. Rútuferð verður farin frá Reykjavík á föstu- dag og heim aftur á sunnudag. Ski-áning þátttöku er hjá Þroska- hjálp fyrir 22. júní. Námskeið í Break-dönsum í Danssmiðjunni NÁMSKEIÐ í breiki hefst þriðju- daginn 16. júní hjá Danssmiðjunni, Skipholti 25. Á námskeiðinu verður boðið upp á tíma fyrir byi-jendur og lengra komna. Skipt er í hópa eftir aldri, 14 ára og yngri annars vegar og 15 ára og eldri hins vegar. í vetur var haldin Islandsmeist- arakeppni í breiki á Broadway. Dansflokkurinn Shakers frá Dans- smiðjunni samanstendur af bestu breikurum landsins og hefur hann komið fram við ýmis tækifæri und- anfarið. Meðlimir Shakers kenna á námskeiðinu með Reynar (One Self) fremstan í flokki. Námskeiðið kostar 3.500 kr. og skráning er hafin, segir í fréttatilkynningu. Opið hús hjá Dressmann VERSLUNIN Dressmann í Reykja- vik hefm’ nú verið starfandi í tvö ár og verður haldið upp á það með borgarbúum. Verslunin verður opin til miðnættis á fóstudag og verða góð tilboð á báðum hæðum verslunarinn- ar ásamt listviðburðum ýmiskonar. Listmálarinn Haukur Dór sýnir myndir sínar í sýningarglugga og inni í versluninni. Höggmyndir Hallsteins Sigm-ðssonar myndhöggvara munu standa við Laugaveginn og ungt fólk frá Götuleikhúsinu fremur leiklist í og við verslunina kl. 17-18 og kl. 22-23, segir í fréttatilkynningu. Lúðrasveit Hafnarfjarðar í Hellisgerði LÚÐRASVEIT Hafnai’fjai’ðar leik- ur í Hellisgerði í Hafnarfirði laugar- daginn 13. júni kl. 14. Sveitin mun þar leika undfr stjóm Stefáns Ómars Jakobssonar létt lög úr öllum áttum. Einnig munu koma fram með sveitinni tveir ungir söngvarar sem munu syngja lög úr söngleiknum Porgy and Bess eftir George Gers- hwin og feta í fótspor Franks Sinatra í laginu My Way. Þess ber að geta að ef veður verður slæmt verða tónleikarnir færðir í Hafnar- borg. Aðgangur ókeypis. Fundur ræðis- s manna Islands í N orður-Ameríku Washington. Morgnnblaðið. FYRIR skömmu var haldinn á vegum íslenska sendiráðsins í Washington fundur ræðismanna íslands í Norður-Ameríku. Til- efnið var m.a. að kynna fyrir ræðismönnunum hvað framund- an er fyrir árið 2000 í Bandaríkj- unum og Kanada. Magnús Bjarnason, viðskiptafulltrúi Is- lands í New York, hélt ræðu þar sem hann talaði um að ástæða væri til að nota þann meðbyr sem kynning á íslenskri menningu hefði til þess að selja íslenskar afurðir í Bandaríkjunum. Hann sagði m.a. að íslendingar hefðu til þessa einungis verið að selja mat í Bandari'kjunum en nú stæði til að hefja kynningu á íslenskri matarmenningu og gera tilraun til þess að selja íslenskar afurðir undir öðrum merkjum en gert hefur verið hingað til. Þannig stefndu nokkur íslensk fyrirtæki á að vera með veitingastaða- kynningar út um öll Bandaríkin frá miðju árinu 1999 og út árið 2000. Einnig töluðu á fundinum Ellen McCulloch-Lovell, framkvæmda- stjóri aldamótaátaksins á vegum Hvíta hússins, og Einar Bene- diktsson, sendiherra og fram- kvæmdastjóri Landafundanefnd- ar. Þau eru í Leifs Eiríkssonar vinnuhópnum, sem er sameigin- BRYNDÍS Schram sendiherra- frú og Einar Benediktsson, fyrrverandi sendiherra í Was- hington og framkvæmdastjóri Landafundanefndar. legur vettvangur nefndar Hvíta hússins um aldamótaátakið og ís- lensku Landafundanefndarinnar. Þar kom fram að það er sameig- inlegt áhugamál Bandari'kjanna og íslands að halda sýningu sem kölluð verður „Vestur-Víkinga sýningin" í Smithsonian-safninu árið 2000. Þessi sýning verður sameiginlegt verkefni Norður- landanna, Bandaríkjanna og Kanada. Emnig er ætlunin að halda í júní árið 2000 mikið þing í bókasafni Bandaríkjaþings um Is- lendingasögurnar og bókmennta- gildi þeirra. Þar munu leiðandi fræðimenn á sviði Islendinga- sagna koma saman. Þá yrði í safn- inu einnig kynning á íslenskum nútímabókmenntum. Einar sagði í saintali við Morgunblaðið að það væri mjög ánægjulegt fyrir Is- lendinga að fá tækifæri til þess að starfa með aldamótanefnd Hvíta hússins, en ísland er eina landið sem Hvíta húsið hefur sett á stofn slíka nefnd með. í lok dagskrárinnar buðu sendiherrahjónin í Washington, Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram til móttöku í sendiherrabústaðnum, þar sem m.a. var boðið upp á fslenskan fisk, skyr og pönnukökur. Heilsubótardag- ar til Sólheima HEILSUBÓTARDAGAR sem hafa verið lengi starfandi á Reykhólum í Barðastrandarsýslu eru nú fluttir að Sólheimum í Grímsnesi. í fréttatilkynningu segir að gestir Heilsubótardaganna geti notið þessa einstaka staðar á Sólheimum um leið og þeir fræðast um sál og líkama. Sigrún Olsen og Þórir Barðdal hafa rekið Heilsubótardaga í áratug yfir sumai’tímann. Markmið Heilsubótar- daga er að hjálpa fólki að hægja á sér, segir einnig í tilkynningunni. Einungis er boðið upp á grænmet- isfæði og að þessu sinni er ekki langt að sækja lífrænt ræktað grænmetið því það er ræktað á Sólheimum. Einnig verður boðið upp á léttar lík- amsæfingar og sjálfsnudd á hverjum degi. Fólk lærir djúpa slökun og hugleiðslur. Einnig getur fólk farið í sund og nudd á meðan á dvölinni stendur. I sumar standa námskeiðin yfir í 3, 4 og 5 daga og hefst fyrsta námskeiðið 25. júní og dreifast þau svo fram til 4. október.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.