Morgunblaðið - 12.06.1998, Qupperneq 47
VERNDUM VINNU - VELJUM (SLENSKT!
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 47-
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ofsóknir gegn kristnum konum
Frá Rúnari Kristjánssyni:
í PAKISTAN hafa á síðustu árum
átt sér stað grimmilegar ofsóknir
gegn kristnum konum, í því skyni að
knýja þær til að taka múhameðstrú.
Vaxandi fjöldi kvenna er numinn
brott, nauðganir eiga sér stað, og of-
beldi gegn þeim er daglegt brauð.
Lög landsins eru þannig úr garði
gerð, að kona sem kærir nauðgun
má eiga það næstum víst að hún
verði sjálf ákærð fyrir hórdóm. í
Pakistan eru lagaleg réttindi krist-
innar konu aðeins 1/8 af lagalegum
réttindum múhameðstrúarmanns.
Fyrir rétti verður kona sem kær-
ir nauðgun að hafa fjögur sjónar-
vitni að glæpnum, sem staðfesta
kæru hennar og öll verða vitnin að
vera fullorðnir karlmenn. Geti kon-
an ekki með þessum hætti sannað
fyrir réttinum að nauðgun hafi átt
sér stað, fær hún á sig kæru fyrir
hórdóm.
í júlí 1993 varð blind stúika, Safia
Bibi, fyrir nauðgun af hálfu vinnu-
veitanda síns. Þegar henni tókst
ekki að sanna glæpinn á hann, var
hún sek fundin um hórdóm og
dæmd í 3 ára fangelsi. Þar að auki
varð hún að þola fímm svipuhögg.
Samkvæmt upplýsingum Mannrétt-
indanefndar fyrir Pakistan lenda
um 80% af þeim konum sem kæra
nauðgun í því að fá á sig ákæru um
hórdóm þegar þær fara með málið
fyrir rétt. Flestar konur sem eru í
fangelsum í Pakistan ei-u þar af
þessum ástæðum. Og það eru Iíka
önnur lagaatriði sem eru notuð mis-
kunnarlaust gegn kristnum konum í
landinu, konum sem er rænt og
nauðgað. Samkvæmt lögunum er
það svo, að gangi manneskja yfir til
Islamstrúar, þá er hjónaband
viðkomandi persónu þar með sjálf-
krafa uppleyst. Kristnum konum er
því þröngvað til að taka
múhameðstrú, þeim er nauðgað,
þær eru neyddar til að lesa upp
stutta yfírlýsingu um trúskipti, sem
er nóg til að þær séu skilgreindar
múslimar. Svo er þeim ógnað til að
giftast nauðgaranum, svo að hann
verði leystur undan allri sök. Þar
eftir fyigir svo tafarlaust í kjölfarið
skilnaður eftir islömskum iögum.
Nauðgunin, trúarskiptin, giftingin
og skilnaðurinn, allt þetta getur átt
sér stað á einu kvöldi.
Tengiliður Christian Solidarity
Worldwide í Pakistan segir: „Glæp-
ir gegn kristnum konum eru
stöðugt að aukast. Tilfelli nauðgana
og ofbeldis af öllu tagi eru í frétum
daglega. Kristnar konur sem verða
fyrir nauðgun eru neyddar til að
giftast nauðgurunum og síðan iðu-
lega seldai’ í vændislifnað. Þær eiga
sér engan málsvara."
Orsakir þessa ranglætis í Pakist-
an eru lög stjórnskipunar sem Zia
forseti innleiddi árið 1985. Hann
skipti öllu pakistanska þjóðríkinu
upp í fimm trúarhólf, múslima,
kristna, hindu, ahmadi og parsi.
Undir þessu kerfi trúarlegrar
aðskilnaðarstefnu (apartheid) getur
hver hjópur aðeins kosið innan
sinna marka. Kristnir hafa engin
pólitísk áhrif á múslimska meiri-
hlutann og geta því ekki á neinn
hátt átt þátt í framtíðarmótun
þjóðfélagsins.
Tengiliður CSW í Pakistan segir
ennfremur: „Það hefur varla heyrst
ein einasta rödd meðal múslima í
Pakistan sem andmælir hinni
ómannlegu meðferð á kristnu fólki í
landinu. Og það er ríkið sem er
ofsækjandinn. Við verðum að krefj-
ast þess, að þetta aðskilnaðarkerfi
verði afnumið og sameiginlegar
kosningar eigi sér stað svo kristnir
menn og aðrir minnihlutahópar geti
aftur búið við eðlileg mannréttindi í
Pakistan.“
Islendingar mættu hafa það hug-
fast, að það er ekki alls staðar í
heiminum eins auðvelt að vera
kristinn og á Islandi. En það fólk
sem lendir í því að þurfa að fórna
miklu fyir trú sína, gerir sér betur
grein fyrir því hves virði hún er.
Hvers virði er trúin okkur, kristn-
um mönnum, á Islandi? Við 1000
ára afmæli kristnitökunnar er sann-
arlega tímabært að velta þeirri
spurningu fyrir sér í fyllstu alvöru.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, Skagafirði.
cPe/'(ó
oelJtomin J
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst vah
Súpa, salatbar
os heitur matur,
marsartesundir.
kr.790.-
Tílboðsréttir:
Ristaðar GELLUR meö hvítlauksrjóma AÐÐNSKR. 1.590.' , Grilluð KJUKLINGABRINGA með gljáöu graenmeti og paprikusósu. AÐONSKR.1.590.-
Pönnusteiktur SILUNGUR meö raekjum og hnetuspæni AÐEINSKR. 1590." GRÍSAMEDALÍUR meö rauðlauksmarmelaði og Madeirasósu. AÐQNSKR. 1590-
Grillaður SKÖTUSELUR með Pemodsósu AÐHNSKR. 1590- PASTA að hætti kokksins, borið fram með hvítlauksbrauði. AÐÐNSKR.1.490.-
Tilboðöll kvöld
os um helsar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
, ifeii öllum fietixum ijónvuetii réttum
jfi/lijii' sií/mi, bnmálmr, xalittlmr oj ixlmr.
POTTURINN
OG
PflNI
aótjótSu!
BRRUTRRHOLTI 22
SlMI 551-1690
Hvað heitir þú? - hverra manna ertu?
Er ættarmót i
UPPSIGUNGU?
Á stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn
þátttakenda í barm þeirra. í Múlalundi færð þú
barmmerki fyrir þetta eða önnur tilefni. Einnig
fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir
Ijósmyndirnar.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 562 8501 eða 562 8502.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 562 8501 og 562 8502
Tilkynning!
Þann 12., 13. og 14. júní nk. verður Kjeld R. Hansen
frá Wonderland-verksmiðjunum staddur í Epal. Hann
mun aðstoða viðskiptavini okkar um val á rúmdýnum
og veita faglegar upplýsingar.
Opið verður þessa daga í Epal sem hér segir:
Föstudag 12. júní kl. 9-18,
laugardag 13. júní kl. 10-16,
sunnudag 14. júní kl. 13-17.
Verið velkomin!
epcil ■
Skeifunni 6, MMMI
sími 568-7733
Leonardo DiCaprio bolir....990 kr.
Gallasmekkbuxur.............1.990 kr.
Spice Girls bolir.............690 kr.
Flíspeysur..................1.990 kr.
Sendum f
póstkröfu
sfmi:
581 4565
Amico sumarpeysur......990 kr.
Jakkar.................2.990 kr.
Úlpur..................2.990 kr.
Vindjakkar.................790 kr.
Amico sokkar................140 kr.
Ný sending af
frábærum sundfatnaði
SUN°^AG
K-16
V
barnaföt við hliðina á Hagkaup í Skeifunni
y
www.mbl.is
SJOÐUR
FIMM
Kirkjusandi • Sími 560 89 00 •
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is