Morgunblaðið - 16.06.1998, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landsvirkjun
hafnar ekki
„orkuláni“
Helgi Hjörvar og Guðrún Ágústsdóttir
takast á um forsæti borgarstjórnar
Stefnt að niður-
stöðu í dag
LANDSVIRKJUN hefur lagt sig
fram um að koma til móts við
Norðurál með sölu á svokallaðri
lánsorku, nú síðast á fundi á fóstu-
dag, að því er segir í athugasemd
frá Halldóri Jónatanssyni, for-
stjóra Landsvirkjunar.
I athugasemdinni segir að það sé
ekki rétt að Landsvirkjun hafi
hafnað lánsorkumöguleikanum
vegna þess að hér sé um að ræða
viðskiptahætti, sem ekki hafi
tíðkast hér á landi áður, eins og
fullyrt hafi verið í viðtali við Kenn-
eth Peterson, eiganda álvers Norð-
uráls á Grundartanga, í Morgun-
blaðinu á sunnudag.
Halldór skrifar að meginástæð-
an fyrir því að ekki hafi náðst sam-
komulag sé að Norðurál hafi „ekki
viljað fallast á það skilyrði af hálfu
Landsvirkjunar að Landsvirkjun
hafi það í hendi sér að ákveða upp
á sitt einsdæmi hvenær til skila
Norðuráls á lánsorkunni þurfi að
koma við vissar aðstæður í vatns-
búskapnum.“ Slíkt skilyrði sé
nauðsynlegt til að lánsorkusamn-
ingurinn komi ekki í veg fyrir að
Landsvirkjun geti sinnt samnings-
bundnum skyldum sínum gagnvart
öðrum viðskiptavinum í vatns-
skorti.
Beðið eftir svari Norðuráls
f athugasemdinni segir að drög
að lánsorkusamningi, sem látinn
hafi verið Norðuráli í té 29. maí,
hafi verið rædd á fóstudag án þess
að samkomulag næðist. Fundinum
hafi lokið með því að Peterson hafi
heitið að kanna betur það, sem á
milli bæri, og væri nú beðið eftir
svari hans.
■ Athugasemd frá/14
Morgunblaðið/Golli
Einn úr
Elliðaánum
EINN lax kom á land er EUiðaárn-
ar voru opnaðar í gærmorgun.
Borgarstjórinn, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, renndi fyrst allra í
Sjávarfossinn, en þó þar undir
leyndust laxar, vildu þeir ekki
taka agn. Helga Jónsdóttir, borg-
arritari, veiddi hins vegar eina
laxinn, 4,5 punda hrygnu á maðk, í
Holunni. Lax sást víða í ánni.
■ Þokkaleg byijun/14
ALÞÝÐUBANDALAGSMENN
hafa ekki náð niðurstöðu um það inn-
an Reykjavíkurlistans hvort Helgi
Hjörvar eða Guðrún Ágústsdóttir
eigi að gegna embætti forseta borg-
arstjórnar eða hvort þau skipti emb-
ættinu með sér á kjörtímabilinu.
Fyrirhugað var að taka af skarið
um þetta á fundi í gær en fundinum
var frestað án þess að niðurstaða
fengist.
Guðrún Ágústsdóttir vildi í gær-
kvöldi lítið um málið segja annað en
að það hefði verið látið í ákveðinn
farveg þannig að niðurstaða sem all-
ir myndu sætta sig við ætti að nást í
dag.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur að öðru leyti náðst
niðurstaða um hverjir veiti nefndum
og stofnunum borgarinnar forstöðu á
kjörtímabilinu.
Sigrún Magnúsdóttir mun stýra
fundum borgarmálaráðs og verða
formaður íræðsluráðs. Alfreð Þor-
steinsson verður formaður Inn-
kaupastofnunar og veitustofnana
borgarinnar. Óskar Bergsson verður
formaður bygginganefndar. Helgi
Pétursson verður formaður atvinnu-
og ferðamálanefndar og stjórnar
SVR. Hrannar B. Arnarsson verður
formaður umhverfis- og heilbrigðis-
nefndar og samstarfsnefndar
Reykjavíkur og Kjalamess en Pétur
Jónsson gegnir hvoru tveggja starf-
inu uns niðurstaða fæst í skattamál
Hrannars. Steinunn V. Óskarsdóttir
mun verða formaður íþrótta- og
tómstundaráðs og Kristín Blöndal
stýra stjórn Dagvistar bama.
Fyrirliggjandi tillögur gera ráð
fyrir að Arni Þór Sigurðsson verði
formaður hafnarstjórnar og Helgi
Hjörvar fái formennsku í félags-
málaráði en Guðrún Ágústsdóttir í
skipulagsnefnd. Sú niðurstaða gæti
þó breyst og veltur það á því hver
niðurstaða verður um embætti for-
seta borgarstjórnar.
Tæpur mánuður þar til Hvalfjarðargöng verða opnuð fyrir almennri umferð
^ Morgunblaðið/Golli
ÓÐUM styttist í að Hvalfjarðargöngin verði opnuð og er nú unnið að lokafrágangi utan sem innan ganga.
Bannað
verður að
hjóla um
göngin
HJÓLREIÐAMÖNNUM verður
ekki heimilað að hjóla gegnum
Hvalfjarðargöngin sem verða opn-
uð 11. júlí næstkomandi. Stefán
Reynir Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Spalar, segir það af öryggis-
ástæðum, bæði vegna hugsanlegr-
ar mengunar og vegna þess að
erfitt sé fyrir hjólreiðamenn að
vílqa nógu vel vegna kantsteins á
veginum um göngin.
Framkvæmdastjóri Spalar segir
göngin 6 km löng og gera megi ráð
fyrir að hjólreiðamaður væri hátt í
20 mínútur að fara þann spöl.
Hann segir að vegna hættu á
mengun sé ekki hollt að dvelja svo
lengi í göngunum og vegna kant-
steins við veginn um göngin sé ekki
gerlegt að víkja vel útaf eins og á
öðrum þjóðvegum landsins. Af
þeim sökum hafi verið tekin
ákvörðun um að heimila ekki hjól-
reiðar um göngin. Vélhjólum verð-
ur það hins vegar heimilt.
Hjólagrindur
á áætlunarbíla?
Hann segir talsmenn hjólreiða-
klúbba hafa sýnt þessu skilning og
sumir jafnvel lýst ánægju sinni,
enda muni hjólreiðamenn hafa
meiri frið á veginum um Hvalfjörð
vegna minni umferðar.
Stefán segir að hugmynd hafi
verið uppi um að einhver tæki að
sér þá þjónustu við hjólreiðamenn
að flytja þá um göngin eða að sér-
leyfishafar setji hjólagrindur á bíla
sína og bjóði flutning á hjólum.
Þetta sé þó allt óráðið.
Gert er ráð fyrir að göngin verði
opnuð laugardaginn 11. júlí og að
aka megi endurgjaldslaust um þau
þá helgi og jafnvel fram í vikuna á
eftir. Stefán segir framundan að
setja upp tölvubúnað og annað
vegna gjaldtökunnar og að allt sé á
áætlun varðandi opnunardaginn.
Þá má nefna vegna afsláttar-
kjara að þau eru veitt viðskipta-
manni en ekki skráð á bíl. Þannig
fái sérleyfishafi umsaminn afslátt
fyrir flotann burtséð frá því hvaða
bíll er á ferð og fjölskylda sem eigi
fleiri en einn bíl njóti alltaf afslátt-
arins burtséð frá því hvaða heimil-
isbíll fari um göngin.
120 urðu
stranda-
glópar í
Noregi
120 MANNA hópur starfsmanna
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkis-
spítala komst ekki frá Stavanger í
Noregi á sunnudag vegna verkfalls
norskra flugumferðarstjóra. Hópur-
inn var á íþróttamóti norrænna
sjúkrahúsa, sem haldið er annað
hvert ár. Reynt var að fá undan-
þágu fyrir hópinn, þar sem um væri
að ræða stórt hlutfall starfsmanna
heilbrigðisþjónustunnar í Reykja-
vík, en á það var ekki fallist.
Hópurinn flaug með leiguflugi frá
íslandsflugi beint til Stavanger á
fimmtudag og átti að koma heim á
sunnudag. Af því gat ekki orðið
vegna verkfallsins og var brugðið á
það ráð að fara akandi til Kristian-
sand, með ferju til Hirtshals í Dan-
mörku og þaðan með rútu til Ála-
borgar þangað sem flugvél Islands-
flugs sótti hópinn. Þegar hópurinn
lenti á Keflavíkurflugvelli hafði
ferðin tekið 17 klukkustundir en
lagt var af stað frá Stavanger kl. 4 í
gærmorgun.
Fólkið átti allt að vera í vinnu í
gær, m.a. áttu læknar í hópnum
bókaðar skurðaðgerðir, svo eitthvað
sé nefnt. Jóhannes Gunnarsson,
lækningaforstjóri Sjúkrahúss
Reykjavíkur, sagði að um 80 starfs-
menn sjúkrahússins væru í hópnum
en engu að síður hefði starfsemin í
gær gengið vandræðalaust. „Þetta
er bara eins og ótímabært sumarfrí
og ekkert á móti því sem bíður,
sagði hann.
assiÐUft
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Vala bætir íslands- og Norð-
urlandametið um 5 cm / B1
Englendingar og Rúmenar hó
HM með sigurleikjum / B16
HIVI '98
á Netinu
www.mbl.is