Morgunblaðið - 16.06.1998, Page 63

Morgunblaðið - 16.06.1998, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 63 Fitjakirkja í Skorradal 100 ára Á SUMARSÓLSTÖÐUM, sunnu- daginn 21. júní nk. kl. 14, verður þess minnst með hátíðarmessu í Fitjakirkju að 100 ár eru liðin frá vígslu hennar. Kirkjan er önnur tveggja bændakirkna sem eru í Borgarfjarðarprófastsdæmi en skráðar bændakirkjur á landinu eru 22 en þar af eru 5 í ríkiseign. Fitjakirkja er með síðustu kirkjum landsins sem smíðaðar voru í þess- um gamla turnlausa og fábreytta stíl og má telja hana ágætt minnis- merki um 19. aldar kirkjur í sveit á Islandi, segir í fréttatilkynningu. Minnstu munaði að hún yrði rifín fyrir 10 árum en hún lifði af sitt dauðastríð og hefur á undanförnum árum hlotið gagngerar endurbætur sem Stefán Örn Stefánsson arki- tekt hefur haft yfirumsjón með. I kirkjugarðinum hefur verið komið fyrir upplýsingaskilti um kirkju- staðinn og þar er skrá yfir 52 þekkta grafreiti í garðinum. í tilefni af vígsluafmæli kirkjunn- ar var leitað til listakonunnar Æju um gerð altaristöflu og verður hún vígð í athöfninni á sunnudaginn. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup mun predika og sr. Geir Waage þjónar fyrir altari í forföllum sr. Sigríðar Guðmundsdóttur sóknar- prests. Að lokinni guðsþjónustu verður boðið upp á kirkjukaffi að gömlum íslenskum sið. Vonast er til að sem flest núverandi og fyrrverandi sóknarböm, sveitungar, sem og all- ir velunnarar kirkjunnar sjái sér I fært að koma. Þeir sem ekki korn- ast fyrir í kirkjunni geta fylgst með athöfninni í „skemmunni" þar sem komið verður fyrir sjónvarpsskjá. ------4»-------- Niðjamót Þ<5r- hildar á Hrísum AFKOMENDUR Þórhildar Hans- ' dóttur Biering ætla að hittast á I Húsabakka í Svarfaðardal helgina 26.-28. júní í sumar. Þórhildur var fædd 16.12. 1854. Hún lést 23.01. 1942. Hún var hús- freyja á Hrísum og síðar Upsum á Dalvík. Þórhildur átti elstan sona Helga Ólafsson en faðm hans var Ólafur Ólafsson frá Syðra-Dals- gerði í Saurbæjarhreppi. Seinni ( maður Þórhildar var Björn Arn- | þórsson, bóndi á Hrísum og Ups- um. Börn þeirra sem upp komust I voi-u: Arnór, Matthildur, Sigríður, Þórhildur, Júlíana og Mekkinó. Nánari upplýsingar veita þær Hlín Daníelsdóttir og Svanfríður Jónasdóttir. BRYNDIS Svavarsdóttir frá Lionsklúbbnum Kaldá afhendir fulltrúum Vitans, þeim Helga P. Einarssyni, Sveini Þórarinssyni og Guðna Sig- urðssyni myndbandsupptökuvélina. Lionsklúbburinn Kaldá gefur Vitanum myndbandsupptökuvél LIONSKLÚBBURINN Kaldá gaf unglingum sem stunda félagsmið- stöðina Vitann myndbandsupp- tökuvél af tilefni 10 ára afmæli Vitans. Frá opnun Vitans hefur Lions- klúbburinn Kaldá stutt starfsemi Vitans á ýmsa vegu t.d. þrifu Kaldárkonur félagsmiðstöðina fyrir opnun hennar fyrir 10 ár- um. Unglingar í félagsmiðstöð- inni buðu nýverið Lionsklúbbnum í morgunkaffi þar sem Lionskon- ur afhentu fúlltrúum ungling- anna glæsilega S-VHS mynd- bandsupptökuvél. Slík vél mun nýtast vel í öllu starfi félagsmið- stöðvarinnar og auka það mynd- bandastarf sem unglingarnir hafa verið að vinna við. í þakkarávarpi Geirs Bjarna- sonar forstöðumanns Vitans kom fram að starf félagsmiðstöðva snerist aðallega í kringum hópa- starf og allt sem efldi það starf s.s. myndbandsupptökuvélar, hefði mikið og gott forvarnar- gildi fyrir unglinga. Geir benti á að tveir þættir hefðu mikil fyrir- byggjandi áhrif á vímuefna- neyslu ungs fólks og það væru samvistir við ijölskyldu og skipu- lagt íþrótta- og æskulýðsstarf og taldi hann að þessa þætti þyrfti að auka. Framlag Lionsklúbbsins væri gott og þarft innlegg til að gera starfið í félagsmiðstöðinni enn áhugaverðara. bI'í’YQÍ fjölgar frístundum • Verð frá 14.900 kr. • Afl 0,8 Hl 2,5 hestoff Eigum hörkutæki fyrír erfidustu aðstæðurnar Hamraborg I -3 (norðanmegin) Kópavogur • Sími S64 1864 kmm ‘ '1, I II mi i i i < < : ( I Jóns- messuhá- tíð í Hafn- arfirði ÞAÐ eru til óskasteinar sem glúrnir menn geta krækt sér í á Jónsmessu, segir í fréttatil- kynningu. Gefinn er kostur á að finna slíka náttúrusteina í Hellisgerði hinn 23. júní í sér- stökum Jónsmessuleik fyrir alla fjölskylduna. Þá koma íþróttaálfurinn og Solla stirða í heimsókn, Sí- glaðir söngvarar sjá um fjöldasöng og Kuran Swing leikur. Álfar og aðrar vættir verða á sveimi sem Erla Stef- ánsdóttir segir nánari deili á. Það eru menningarmála- og ferðamálanefndir ásamt Æskulýðsráði Hafnarfjarðar sem standa að hátíðarhöldun- um. JARÐVATNSBARKAR Með og án filters Stærðir 50—100 mm Lengd rúllu 50—200 m / í; Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, ' auðveld í meðhöndlun. Si/ V* VATNSVIRKINN ehf Ármúla 21, sími 533 2020 Z3CZ3GZZXZZZXZ t * * DUGMIKIL FJÖLSKYLDA, TÆKNILEGA SINNUÐ Minolta fjölskyldan er stór fjölskylda og annálaðir dugnaðarforkar MINOLTA smmD'Smmsw SIÐUMUL112 108 REYKJAVIK SIMI 510 5500 FAX 510 5509 MINOLTA FAXTÆKI 3 tegundir faxtækja, öll tölvutengjanleg. Allt í senn; prentari, skanni, fax og Ijósritunarvél. MINOLTA LASERPRENTARAR 4 tegundir laserprentara, bæði fyrir svart/hvítt og lit. MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR. Hraði frá 15 upp í 80 eintök pr. mín. Bæði fyrir svart/hvítt og lit. Littu við í nýrri verslun og heilsaðu upp á einstæða fjölskyldu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.