Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 6

Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GUÐBJARTUR Sindri Vilhjálmsson boðinn velkominn af Nikolinu. Á LEIÐ í nýju íbúðina undir forystu Guðbjarts Guðmundssonar. Morgunblaðið/Ásdís Tekið á móti 23 flóttamönnum frá Serbíu á Blönduósi Hugsuðum okkur ekki um tvisvar ÞAÐ er ekki laust við eftirvæntingu þegar formlegri móttökuathöfn í fé- lagsheimilinu á Blönduósi er lokið og lyklar að íbúðunum hafa verið af- hentir. Nú er komið að því að stuðn- ingsfjölskyldur taki við hlutverki sínu og fylgi „sinni“ fjölskyldu til nýs heimilis. Við sláumst í för með Popovic-fjölskyldunni og fulltrúum þeirra fjölskyldna sem hafa tekið að sér að vera stuðningsfjölskyldur hennar. Það er haldið af stað og för heitið á Mýrarbraut 16. Fremstur í flokki fer Guðbjartur Guðmundsson nokk- urskonar ættfaðir stuðningsfjöl- skyldnanna sem allar eru tengdar innbyrðis. Eftir nokkurra mínútna gönguferð er komið á áfangastað. Zeljiko, fjölskyldufaðirinn, opnar dyrnar og krakkarnir, Bosko og Nikolina hlaupa inn. Það er sérstök stund runnin upp. Popovic-fjölskyldan er stigin inn á sitt nýja heimili eftir langt og strangt ferðalag og íslendingarnir sem hafa lagt nótt við dag til að gera þetta heimili úr garði fylgjast með viðbrögðunum. Og þau láta ekki á sér standa, ánægjan sldn úr andlitum allra viðstaddra. En það er ekki setið auðum hönd- um. Krakkamir hrópa upp yfir sig af ánægju þegar þau sjá leikföngin sem bíða þeirra og þau eru fljót að fá krakka úr stuðningsfjölskyldun- um með að leika. Fleiri hafa bæst í hópinn og eru boðnir velkomnir með kossi og allir kynntir fyrir hver öðrum með hjálp orðalistans sem Rauði krossinn hefur látið útbúa. Áhugavert tækifæri fyrir stuðn- ingsfjölskyldurnar „Ég ákvað strax að verða stuðn- ingsamma þegar ég frétti að von væri á flóttafólki til Blönduóss," segir Margrét Ásmundsdóttir, eig- inkona Guðbjarts. „Eitt leiddi af öðru og dætumar, Ragney, Þór- halla og Jónína, eru hér.“ „Við verðum nýja fjölskyldan þeirra og mér fannst þetta mjög áhugavert og gott tækifæri til að kynnast annarri menningu. Ég myndi líka vilja ef ég yrði rekin úr mínu landi að einhver tæki svona á móti mér,“ segir Ragney. „En svo eram við líka svona fjölskyldur sem höfum gaman af félagsmálum,“ en auk þeirra mæðgnanna, eiginmanna og barna er vinkona Ragneyjar, Kristín Gunnarsdóttir, og maður hennar, Lúðvík Vilhelmsson, og börn þeirra í hópi stuðningsfjöl- skyldna Popovic-fjölskyldunnar. Þessi hópur sem ásamt Popovic- fjölskyldunni telur alls nítján manns er strax farinn að mynda ágætis tengsl. Nú er ekki lengur túlkur með í för þannig að nú reynir ✓ A sunnudag kom hópur flóttamanna frá Serbíu til Blönduóss. I hópi þeirra var fjögurra manna serbnesk fjölskylda. Sigriður B. Tómasdóttir og Asdís ----7----——--------------------------- Asgeirsdóttir fylgdust með fyrsta kvöldinu á nýjum stað. „SJÁÐU nýju hálsfestina mína,“ gæti Nikolina Popovic verið að segja við Elsu Kristínu Lúðvíksdóttur sem fylgist spennt með. Það er ekki ofsagt að þau hjónin séu ánægð með nýtt heimili „Þetta er stórkostlegt, betra en frábært," segja þau. „Ég var búin að segja að bara ef ég fengi þvottavél yrði ég ánægð,“ segir Radmila. „Ég hef þvegið í höndunum undanfarin þrjú ár.“ Undanfarin ár hefur fjölskyld- an búið í bænum Sabac í Serbíu en þangað hröktust þau er Serbar vora reknir út úr Krajina-héraði í Króa- tíu í ágúst 1995. „Við bjuggum í lánshúsnæði fyrst en þurftum svo að borga leigu, við höfðum rafmagn og hita sem er meira en margir. Astandið er mjög slæmt í Serbíu núna og við sáum ekki fram á neina framtíð þar.“ Geta ekki snúið til baka Þau Zeljiko og Radmila snera sér því til flóttamannastofnunar Sa- meinuðu þjóðanna síðastliðið haust og báðu um flutning í þriðja land; ekki kom til greina fyrir þau að snúa til baka til Donji Lapae, bæj- arins sem þau bjuggu í fýrir stríð. Hann tilheyrir Króatíu núna og Zeljiko á yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisdóm þar fyrir þátttöku í stríðinu. „Öllum karlmönnum á aldrinum 18-65 ára var gert að taka þátt í stríðinu. Mín herdeild var tek- in höndum 10. september 1993 og ég lenti í fangabúðum í þrjá mán- uði.“ Zeljiko var svo lánsamur að lenda strax á lista hjá Rauða kross- inum og í fangaskiptum eftir þrjá mánuði. Það er hins vegar fjöldi manns sem lenti í fangabúðum og ekkert hefur spurst til síðan. Popovic-fjölskyldan var kölluð í viðtal í apríl og kom það þeim skemmtilega á óvart þegar þau fréttu af því að svo gæti farið að þau enduðu á íslandi. „Við vissum ekki að íslendingar tækju flóttamenn en hugsuðum okkur ekki um tvisvar þegar okkur bauðst að koma hing- að.“ Zeljiko bætir við að hann sé mjög ánægður með að hefja búsetu hér á landi í litlum bæ. „Við bjugg- um í litlum bæ fyrir stríð. Þar voru allir eins og ein stór fjölskylda. Þeg- ar einhver þurfti á hjálp að halda kom einhver til hjálpar.“ Af móttök- um að dæma er Popovic-fjölskyldan komin á réttan stað á Blönduós. Við byggjum á reynslunni FJÖLDI manns bauð hóp 23 flóttamanna frá Júgóslavíu vel- kominn á Blönduós á sunnu- dagskvöld. Hópurinn átti þá að baki langt ferðalag sem hófst eldsnemma á Iaugardagsmorg- un. Eftir einnar nætur dvöl í Reykjavík var haldið norður, um leið og leik Júgóslava og Þjóð- verja í heimsmeistarakeppninni í fótbolta var lokið. I félagsheimilinu var boðið upp á kvöldmat og hittu flótta- mennirnir m.a. stuðningsfjöl- skyldur sínar í fyrsta skipti. Páll Pétursson félagsmálaráðherra bauð hópinn velkominn „sem heimamaður og bóndi í sveit- inni“ og Skúli Þórðarson bæjar- stjóri bauð hópinn velkominn fyrir hönd Blönduósbæjar. Að loknu borðhaldi afhenti bæjar- stjóri fjölskyldunum lykla að nýju heimili. Ákvörðun um komu hópsins til Blönduóss var tekin í apríl og að sögn Hólmfríðar Gísladóttur hjá Rauða krossinum hefur und- irbúningur gengið mjög vel. „Samstarf allra aðila sem standa að þessu hefur verið mjög mikið og gengið framar vonum. Við byggjum vitaskuld á reynslunni þannig að við gerum sífellt bet- ur en áður.“ I hópnum eru sex fjölskyldur, þar af fimm börn á aldrinum sex til fjórtán ára. Flóttamennimir em flestir Serbar en nokkuð er um blönduð hjónabönd Serba og Króata. A.m.k. þijár stuðnings- fjölskyldur era um hverja fjöl- skyldu og gekk mjög vel að fá fjölskyldur að sögn fulltrúa Rauða krossins á Blönduósi. All- ar ljölskyldumar fá fullbúna íbúð og stóð Rauði krossinn fyr- ir söfnun húsgagna í þær. Einnig var safnað fötum og fóra fjölskyldumar í gær og völdu sér föt í fylgd stuðningsfjöl- skyldna, sem einnig fóra með þær í matvöraverslun og banka. Nú í vikunni hefst íslensku- kennsla en fyrst um sinn verður lögð aðaláhersla á að hópurinn nái tökum á tungumálinu. á skilninginn, og hann er svo sann- arlega fyrir hendi. Ef áðumefndur orðalisti dugar ekki til er gripið til blaðs og penna eða einfaldlega skipst á orðum á eigin tungum. Margrét Ásmundsdóttir, stuðn- ingsamma, fylgir Radmilu Popovic, húsfreyju á Mýrargötu 16, um eld- húsið og sýnir henni hvar hlutina er að finna. Kaffikannan er strax tekin í notkun og fljótlega berst kaffiilm- ur um allt hús. Tungumálakennslan hafin í bamaherbergjum er verið að skoða nýja dótið og tungumála- kennslan er hafin. Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson er greinilega ákveðinn að láta ekki sitt eftir liggja í þeim málum: „Þetta er nef, þetta era tennur, þetta er tunga,“ segir hann við Basko og rekur út úr sér tunguna og bendir á. „Hér er mót- orhjól og mótorhjólagæi," bætir hann við og bendir á dúkku á mót- orhjóli sem stendur á borðinu. Kaffið er tilbúið og allir era boð- aðir inn í stofu. Þar sitja þeir Zeljiko, Vilhjálmur Stefánsson, eig- inmaður Þórhöllu, og Lúðvík og ráða ráðum sínum. „Við eram að skipuleggja grillveislu næsta fóstu- RADMILA hellir í bolla fyrir Vilhjálm a meðan Margrét sýnir þeim Ragneyju og Hildi B. Vilhjálmsdóttur orðalistann. dag,“ segir Lúðvík. „Við ætlum að elda,“ Matseðillinn er einnig rædd- ur með hjálp orðalistans og sæst á nautakjöt. I framhaldi af þessu er farið að ræða íþróttir og möguleika á golfferð fljótlega. Síminn hringir og Irena Kojic til- kynnir komu sína innan tíðar. Irena er starfsmaður Rauða krossins og mun búa á Blönduósi næstu níu mánuði og aðstoða flóttafólkið við að koma sér fyrir eins og hún gerði á ísafirði og á Höfn. Þegar hún birt- ist gefst færi á að spjalla við þau Zeljiko og Radmilu með hennar að- stoð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.