Morgunblaðið - 23.06.1998, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Héraðsdómur Reykjavíkur
Heilsugæslulækn-
ir sýknaður af
nauðgunarákæru
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði á fóstudag heilsugæslulækni
af öllum kröfum ákæruvaldsins í
nauðgunarmáli og vísaði frá skaða-
bótakröfu. Kona sem var sjúklingur
læknisins kærði hann fyi’ir nauðgun í
janúar sl. og kvað hann hafa haft við
sig mök eftir að hafa gefíð sér róandi
lyf. Læknirinn játaði að hafa átt mök
við konuna en neitaði að um nauðgun
hefði verið að ræða. Heilbrigðisráð-
herra svipti lækninn læknaleyfí í
mars sl., að tillögu landlæknis, vegna
alvai’legs brots á læknalögum.
Dómurinn er til skoðunar í heil-
brigðisráðuneytinu, að sögn Sólveig-
ar Guðmundsdóttur, lögfræðings
ráðuneytisins. Aðspurð um hvort
hún teldi að læknirinn fengi lækna-
leyfið aftur sagði hún það ekki vera
augljóst. Sér sýndist í fljótu bragði
að héraðsdómur hefði fyrst og
fremst fjallað um hegningarlög en
læknirinn hefði verið sviptur leyfinu
á grundvelli læknalaga.
Læknirinn viðurkenndi fyrir dómi
að hafa haft samfarir við konuna er
hann kom á heimili hennar eftir há-
degi 13. janúar sl., eftir að hafa farið
þrívegis í vitjun til hennar nóttina
áður, þegar hann var vakthafandi
læknir á bæjarvakt.
Héraðsdómi þykir ekki, í ljósi
minnisleysis konunnar um atburði,
þess að hún á vanda til langvarandi
minnisleysis í kjölfar áfengis- og
lyfjaneyslu og óvissu um ástand
hennar er ákærði hafði kynmök við
hana, frarn komin lögfull sönnun þess
að ákærði hafí framið það brot sem
hann er ákærður fyrir. Það er mat
dómsins að framburður ákærða hafi í
heild sinni verið fremur trúverðugur,
þrátt fyrir að hann hafi í fyrstu neit-
að samræðinu og verið reikull í fram-
bui’ði sínum um lyfjagjafir.
I dómsorði segir að ákærði skuli
vera sýkn af öllum kröfum ákæru-
valdsins í málinu og að allur sakar-
kostnaður greiðist úr ríkissjóði, þar
með talin réttargæslu- og málsvarn-
arlaun Andra Arnasonai’ hæstarétt-
arlögmanns, skipaðs verjanda
mannsins, 150.000 kr. Dóminn kváðu
upp Ingibjörg Benediktsdóttir hér-
aðsdómari, Asgeir Karlsson geð-
læknir og Sigurður T. Magnússon
héraðsdómari. Kolbrún Linda Is-
leifsdóttir héraðsdómslögmaður sótti
málið fyrir ’nönd ákæruvaldsins.
Morgunblaðið/Amaldur
FRAKKASTÍGUR 10, eista húsið við Frakkastíg, byggt árið 1894.
Þjóðardagur Islands á heimssýningunni í Lissabon
Umfangsmesta listdag-
skrá á erlendri grundu
ÍSLAND verður í sviðsljósinu á heimssýn-
ingunni í Lissabon í Portúgal næstkomandi
laugardag á þjóðardegi íslands. Fjöldi lista-
manna, alls um 80 manns, mun koma fram
um kvöldið á alls sjö sviðum vítt og breytt
um sýningarsvæðið. Opinber sendinefnd með
menntamálaráðherra, Björn Bjamason, og
eiginkonu hans, Rut Ingólfsdóttur, í broddi
fylkingar, mun einnig heimsækja sýninguna
og íslenska skálann.
Fyrirhugað var að forseti íslands og eig-
inkona hans myndu heimsækja sýninguna
en af því verður ekki.
Þjóðardagurinn er talinn hápunktur
hverrar þjóðar á sýningunni og er hvatt til
þess að þær bjóði upp á viðburði sem eftir
er tekið meðal sýningargesta.
Jón Asbergsson, framkvæmdastjóri út-
flutningsráðs, segir að menningardagskráin
sé umfangsmesta dagskrá með íslenskum
listamönnum sem farið hefur fram á einu
kvöldi á erlendri grundu. „Dagskráin er fjöl-
breytt og boðið verður upp á tónlist, leiklist
og dans, jafnt þjóðlegan sem nýstárlegan,“
segir Jón í samtali við Morgunblaðið.
Listamennirnir sem koma fram um kvöldið
eru þeir Öm Ámason leikari, Skari Skrípó,
Blásarakvintett Reykjavíkur, Tjamai’kvar-
tettinn, Benedikt Erlingsson og Halldóra
Geh’harðsdóttir, sem flytja leikritið Orms-
tungu, Kammersveit Reykjavíkur, Islenski
dansflokkurinn, Þjóðdansafélagið Fiðrildið og
Leikhús frú Emelíu sem flytur ópemna
Rhodymenia Palmata eftir tónskáldið Hjálm-
ar H. Ragnarsson.
Að sögn Jóns er dagskráin á vegum mennta-
málaráðuneytisins og stendur það straum af
kostnaði við hana. Auglýst vai’ eftir listamönn-
um til þátttöku í ágúst á síðasta ári og íyrr-
greindir aðilar síðan valdir úr umsækjendum.
Gus Gus hætti við þátttöku
Einn hóp listamanna vantar þó í upptaln-
inguna en að sögn Jóns Ásbergssonar dró
fjöllistahópurinn Gus Gus sig út úr þátttöku
fyrir um mánuði síðan vegna ágreinings við
skipuleggjendur heimssýningarinnar. „Það
er skarð fyrir skildi þar sem nú er enginn
fulltrúi popptónlistarinnar meðal þátttak-
enda,“ sagði Jón.
Hann segir að ætlunin með vali listamann-
anna hafi verið að ná ákveðinni breidd.
„Markmiðið var að sýna bæði léttleikann og
alvöruna í íslenskri menningu."
Um daginn verður opinber dagskrá. Mót-
taka fer fram á sérstökum viðhafnarstað þar
sem fánar verða hylltir og Blásarakvintett
Reykjavíkur leikur tónlist. Löndin, Island og
Portúgal, skiptast síðan á gjöfum og síðan
verður farið inn í portúgölsku sýningarhöll-
ina. Portúgölsk stjórnvöld bjóða þessu næst
til hádegisverðar og fai’a því næst ásamt ís-
lensku gestunum í heimsókn í íslenska skál-
ann. Um kvöldið verður síðan móttaka íýrir
portúgalska viðskiptavini íslenskra fyrir-
tækja.
Telst vera full dagskrá
„Þetta telst vera full dagskrá eins og
Portúgalar skilgreina þetta. Við leggjum því
upp með alvöru dagskrá. Við erum líka það
heppin að vera á laugadagskvöldi og reiknum
því með góðri aðsókn, enda hefur sýningin
alltaf verið vel sótt um helgar."
Meðal þeirra sem von er á á svæðið á laug-
ardaginn eru viðskiptavinir íslenski’a fyrir-
tækja og íslenskir sóldýrkendur frá Algarve
sem er í um 3 tíma ökuferð í burtu frá sýn-
ingarstaðnum. „Ferðaskrifstofurnar hafa
skipulagt ferðir á sýninguna," sagði Jón sem
býst við góðum degi fyrir Island.
Jónsmessuhátíð
á Frakkastíg
JÓNSMESSUHÁTÍÐ verður haldin á
Frakkastíg, milli kl. 16 og 18 á morgun
miðvikudaginn 24. júní. Á hátiðinni verð-
ur Jóns Dalmannssonar gullsmiðs minnst,
en 100 ár verða liðin frá fæðingu hans
þennan dag.
Ymislegt verður til gamans gert á há-
tiðinni, börn frá Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur koma í heimsókn auk félaga úr
karlakórnum Fóstbræðrum, en Jón var í
þeim kór í yfír 30 ár. Kjöri's verður á
staðnum og Króna frá Sparisjóði Reykja-
víkur.
Gullkistan, fyrirtæki Jóns Dalmanns-
sonar, hefur sl. 22 ár verið til húsa í
Frakkastíg 10, sem jafnframt er elsta
húsið við götuna. Verið er að gera upp
húsið um þessar rnundir, en Jón Dal-
mannsson var þekktur gullsmiður í
Reykjavík frá 1922 til dauðadags 1970.
Húsið sem nú er Frakkastígur 10 var
upphaflega byggt á horni Laugavegs og
Frakkastígs árið 1894 af Þórhalla Þór-
hallasyni, skömmu eftir að bæjarstjórn
Reykjavíkur hafði ákveðið að leggja
Laugaveg frá Kvosinni að Þvottalaugun-
um í Laugardal. Á þeim tíma var lítið far-
ið að versla við Laugaveg, en skömmu
síðar eignaðist Guðmundur Egilsson tré-
smiður húsið og flutti það upp á Frakka-
stíg árið 1908. Húsinu hefur lítið sem
ekkert verið breytt frá 1908.
Hátíðinni er einnig ætlað að vekja at-
hygli á þeim gömlu rótgrónu hverfum
Reykjavíkur, þar sem mikið er af gömlum
húsum sem fólk er að lagfæra og fegra.
ALLMARGAR laxveiðiár voru
opnaðar um helgina og var yfir-
leitt frekar gott hljóð í mönnum
og tölur og horfur nokkuð góðar
miðað við barlóminn vegna
þurrkanna að undanförnu. Svo
virðist sem víða sé talsvert af laxi
og víða er hann genginn lengra
fram ár en menn þekkja að öllu
jöfnu svo snemma sumars.
Dæmi um góða byrjun var í
Rangánum, sérstaklega Ytri-
Rangá þar sem fjórir laxar veidd-
ust á laugardaginn. Þann dag
komu einnig tveir á land úr
Eystri-Rangá. Á sunnudag bætt-
ust svo við tveir úr Ytri-Rangá og
menn sáu og misstu fleiri. „Mér
líst rosalega vel á þessa byrjun.
Þetta er besta opnunin á svæðinu
frá því ég kom að þessu sumarið
1989,“ sagði Þröstur Elliðason,
leigutaki Ytri-Rangár, í samtali
við Morgunblaðið. Hann sagði at-
hyglisvert að laxinn veiddist upp
um alla á. Þá veiddust á þriðja
tug silunga, mest 2-3 punda sjó-
birtingar fyrir neðan Ægissíðu-
foss. Það er einnig athyglisvert að
í fyrsta skipti veiðist nokkuð af
smálaxi saman við stóra vorlax-
inn.
Li'fleg byrjun í Vatnsdal
og Miðfírði
Átta laxar voru komnir á land
úr Vatnsdalsá á hádegi í gær og
veiddust þeir allir eftir hádegi á
laugardag og á sunnudag. „Að
sögn Ingólfs Ásgeirssonar, leið-
sögumanns á staðnum, voru þetta
allt boltafiskar, 12-17 punda, og
menn hefðu einnig sett í og misst
þó nokkra. „Þetta voru sjö fiskar
úr Hnausastreng og einn úr Hóla-
kvörn. Við höfum víða farið og
leitað fyrir ofan Flóð, en hann
virðist ekki hafa gengið upp fyrir
það ennþá. Áin er vatnslítil og
KRISTJÁN Ríkharðsson og Sveinn Guðmundsson með lax úr Laxá
á Ásum. Þetta var fyrsti laxinn úr ánni og veiddist 14. júní. Um
helgina voru aðeins 14 laxar komnir á land og lítið um að vera.
það vantar rigningu og vatnavexti
til að hann dreifi sér,“ sagði
Ingólfur.
Á bökkum Miðfjarðarár var
Böðvar Sigvaldason glaðhlakka-
legur, enda komu 11 laxar á land
fyrsta veiðidaginn. „Við þorum
ekki lengur að vona eitt eða neitt
og því kemur þetta okkur
skemmtilega á óvart. Þetta eru
svo sem engin ósköp og við vild-
um sjá meira, en þetta er þó við-
unandi," sagði Böðvar. Lítið vatn
er í ánum á svæðinu, en menn sáu
þó lax víða, t.d. neðan Kambsfoss,
í Hlaupunum og Götufljóti í
Austurá, í Túnhyl, Hlíðarfossi og
Kistunum í Vesturá. Laxarnir
voru allir 10 til 14 pund.
Gott í Haffjarðará
Einar Sigfússon, annar eigenda
Haffjarðarár, sagði ána hafa verið
með „gott start“. Ellefu laxar
voru komnir á land á sunnudags-
kvöld, en veiði hófst á fóstudags-
morgun. „Menn missa líka mikið
og vatnið hríðfellur. Áin er 20
sentimetrum undir meðalvatni.
En það er lax um alla á,“ sagði
Einar. Mest er laxinn stór, allt að
15 punda.
Hér og þar
Gríðarlega góð byrjun var í
Ulfarsá á laugardaginn, en þá
veiddust tíu laxar í ánni, flestir 6
til 7 punda. Á sunnudaginn bætt-
ust þrír við. „Menn sjá mikinn lax
og þetta er það líflegasta sem ég
hef séð í opnun í Korpu síðan ég
fór að hafa afskipti af ánni,“ sagði
Jón Aðalasteinn Jónsson, einn
leigutaka árinnar í gærdag.
Þá veiddist einn lax og nokkuð
af bleikju á íyrsta degi í Hítará á
föstudag og á sunnudag var íyrst
rennt í Gljúfurá í Borgarfirði og
komu strax tveir á þurrt.
Veiði hefur glæðst verulega í
Norðurá þar sem holl endaði
veiðiskap á sunnudaginn með 38
laxa, sem telst mok miðað við það
sem á undan var gengið.
Víða líf-
legt um
helgina