Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 19

Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hagnaður Finn- airs tvöfaldast Helsinki. Yahoo! býst við tapi á árinu Santa Clara, Kalifomíu. Reuters. YAHOO!, sem býður vin- sælasta búnaðinn til að skoða veraldarvefinn, þýst við tapi á öðrum ársfjórðungi og á árinu í heild vegna eingreiðslu í tengslum við kaup á Viaweb Ine. Yahoo! keypti Viaweb fýrir 45 milljónir dollara. Viaweb framleiðir hugbúnað til að koma á fót verzlunum á net- inu og reka þær. Verð hlutabréfa í Yahoo! hafði farið hækkandi eins og annarra bréfa í tengslum við netið frá því fjölmiðlarisinn Walt Disney Co. keypti hlut í vefþjónustunni Infoseek Corp. Hlutabréf í Yahoo! höfðu hækkað í 135,50 dollara, en tilkynning um iyrirsjánlegt tap olli lækkun í 127,75 doll- ara. HAGNAÐUR Finnair tvöfaldaðist í fýrra vegna aukinnar eftirspumar eftir farmiðum og þar sem hleypt var af stokkunum þriggja ára áætl- un til að draga úr kostnaði. Farþegum fjölgaði um 12,5% og flugfragt jókst um 15%. Hagnaður fyrir skatta jókst í 626,7 milljónir finnskra marka, eða 114,3 milljónir dollara, á tólf mánuðum til marzloka úr 310,4 milljónum marka 1996/1997. Sölutekjur jukust úr 7,4 milljarða marka í 8,06 milljarða og hagnaður af sölu flugvéla nam 79,8 miHjónum marka. Flugumferðargjöld minnk- uðu um 16,5%. Antti Potila aðalframkvæmda- stjóri sagði að bætta afkomu mætti einnig þakka áætlun um endur- skipulagningu, sem hófst í fyrra og miðar að því að auka hagnað um 500 milljónir finnskra marka fýrir árið 2000. Séfræðingar telja að áætlun- in geti leitt til þess að Finnair verði einkavætt. Finnska ríkið á 58% í fé- laginu og Paavo Lipponen forsætis- ráðherra hefur gefið í skyn að ríkið muni eiga minnihluta í félaginu í framtíðinni. Potila varaði hins vegar við því að dregið gæti úr hagnaði í ár vegna aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Hann sagði að eftirspum hefði haldið áfram að aukast á yfirstand- andi reikningsári, en ekki eins ört. Samkeppni um farþega muni halda áfram að aukast og það muni koma niður á hagnaði. Auk þess er búizt við að þegar sölu á tollfrjálsum varningi verður hætt innan ESB í júlí 1989 muni það skerða hagnað Finnair um 80 miljjónir finnskra marka. Á móti mun koma minni rekstrar- kostnaður og auknir farþegaflutn- ingar vegna samninga Finnairs við 14 flugfélög um framhaldsflug og bandalags félagsins og British Airways. Goldman Sachs hefur áhuga á Cliveden-hótelinu London. Reuters. TILBOÐSSTRÍÐ virðist hafið milli eigenda brezks hótelsins og sveita- klúbbsins Cliveden, þar sem eitt mesta hneyksli brezkra stjórnmála átti sér stað. Goldman Sachs fjárfestingabank- inn segir að ein deild hans og annað fyrirtæki eigi í viðræðum, sem geti leitt til tilboðs í Cliveden Plc. Fyrir- tækið hefur þegar samþykkt tilboð upp á 42,8 milljónir punda frá sam- tökum, sem Microsoft forstjórinn Bill Gates stendur að ásamt fleiri fjárfestum. Fyrir 35 árum var Cliveden við ána Thames vettvangur Profumo- málsins, þar sem hermálaráðherra íhaldsflokksins, símavændiskona og sovézkur sendiráðsmaður komu við sögu. Hlutabréf í Cliveden hækkuðu um tæp 12% eða 11 pens í 104 pens, þegar Goldman tilkynnti að Whitehall Street Real Estate Ltd Partemship IX, sem bankinn á hlut ■ GEBERIT Blöndunartækí Rafeindastýrt, sneitifntl blöndunartæki. Hentar sériega vel fyrir matvælaiðnað, læknastofúr, veitingastaði o.fl. Einnig fyrir heimili. Fæst í bvggjngauöruverslunum um landallt. Heildsöludneifing: Smiðjuvegi II.Kópavogi Tgngjjg"- Sími 564 1088. fax 584 1089 í, og Westmont Development Inc. ættu í viðræðum við Cliveden. Áður hafði Cliveden skýrt frá því að stjórn fyrirtækisins hefði sam- þykkt tilboð upp á 95 pens á hluta- bréf frá Destination Europe Ltd, deild í bandaríska fasteignafýrir- tækinu Lowe Enterprises, og frá fleiri fjárfestum, þar á meðal Gates. Sami arkitekt og reisti brezku þing- húsbygginguna smíðaði Cliveden húsið vestan Lundúna um miðja síð- ustu öld fýrir hertogann af Suther- land. Það var heimili Astor-fjöl- skyldunnar og bækistöð klíku frið- kaupasinna á árunum fyrir seinni heimsstyrjöldina. í Cliveden kynntist John Profumo hennálaráðherra síma- vændiskonunni Christine Keeler, sem var einnig í tygjum við sovézk- an hermálafulltrúa. Profumo sagði af sér þegar hann varð uppvís að því að segja brezka þinginu ósatt. Gates er viðriðinn tilboðið í Clvi- eden vegna þess að fjárfestingar- sjóður hans, Cascade, á 10% í Dest- ination Europe. Til sölu eða leigu Framtíðar verslunar-, þjónustu- og/eða veitingaaðstaða við Arnarsmára í Kópavogi. Húsið er um 230 fermetrar að stærð ásamt 1.150 m2 lóð við Arnarsmára 32 (Nónhæð) í Kópavogi. Lóðin er með 25 fullfrágengnum bílastæðum og með 400 fermetra hellulögðu torgi sem má samnýta með húsinu. íbúafjöldi í næsta nágrenni er um 2500-3000 og fer vax- andi. Á staðnum er rekin ÓB-ódýrt bensín, sjálfvirk bensín- stöð. Hraðbanki verður í húsinu. Húsið er tilvalið fyrir rekstur eins og t.d. verslun, lyfjaversl- un (einnig blandaða verslun), ýmsa þjónustustarfsemi (t.d. hárgreiðslu- eða snyrtistofu), veitingastað, sjoppu og myndbandaleigu og líkamsræktarstöð. Húsið er til afhendingar strax, tilbúið fyrir innréttinga. Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni Fróni/Finnbogi Kristjánsson í síma 533 1313. FASTEIGNASALAN FINNBOGI KUSTJÁNSSON LÖGG. FASTSIGNASAU ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 19 liÉI^ Heimilispakkinn Nú gefst þér kostur á að eignast allt sem þú þarft fyrir tölvuvinnsluna á heimilinu á hlægilegu verði: kraftmikla tölvu með mótaldi fyrir Internetið, vandaðan lita- prentara og mynd- skanna sem eykur margfalt mögu- leikana á alls kyns skemmtilegri vinnslu í tölvunni. Heimilispakkinn er óviðjafnanleg afþreying fyrir alla fjölskylduna og nauð- synlegur búnaður fyrir skólafólk. • Klipptu saman myndir • Prentaðu á boli • Gefðu út fjöl- skyldufréttabréf • Lífgaðu upp á fjöl- skyldumyndirnar • Sendu þínar eigin myndir á Internetið • Búðu til þín eigin boðskort fyrir afmælin eða ættarmótin Hyundai tölva tum 233mhz örgjörvi 32mb sdram vinnsluminni 3.2GB harður diskur 4mb skjákort 24x geisladrif Soundblaster 16 hljóðkort 80w hátalarar 33.6 baud modem Epson prentari Stylus Color 400 Litableksprautuprentari Borðskanni 30 bita Plustec OpricPro 4830p ATlt! 4 adeins stgr. Tæknival www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.