Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 28

Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fyrsta eintak Longættar afhent FYRSTA eintak Longættar, niðjatals Richards Long (1783- 1837) var afhent á hátíðarfundi Longfélagsins sem haldinn var á Hótel Sögu síðastliðinn laugar- dag. Það er bókaútgáfan Þjóð- saga ehf. sem gefur ritið út, sem er í þremur bindum, en höfundur og ritstjóri er Gunnlaugur Ilar- aldsson þjóðháttafræðingur. A hátíðarfundinum var Málfríður Jónsdóttir, elsti núlifandi niðji Richards Long, fædd 1896, heiðruð með því að henni var af- hent fyrsta eintak bókarinnar. Það var dóttir hennar, María Halldórsdóttir sem tók við bók- inni fyrir hönd móður sinnar úr hendi Eyþórs Þórðarsonar, for- manns Longfélagsins, sem er á milli þeirra mæðgna á myndinni. Innanbúðarkímni Eg hef litið svo á að aðalatriði við mannlýsingar Birgis er form lýs- inganna, sem hann hefur fengið að láni úr íslenskri frásagnarhefð, til að beina athyglinni að ákveðnum hugsunarhætti og hvernig Islend- ingar lesa úr umhverfi sínu, þar með talið öðru fólki. Sú hefð sem hefur skapast í mannlýsingum endurspeglar hverju við veitum at- hygli og þykir í frásögur færandi. Eg hef þó grun um að lýsingarn- ar á sýningu Birgis í Tuttugu fer- metrum séu eins og gátur sem sýningargestum er boðið að ráða í. Lýsingin hér að ofan hljómar glettilega lík honum sjálfum. Hin- ar þrjár gætu verið af vinum og kunningjum. En það er einungis fólk í innsta hring sem getur hugs- anlega getið sér til um við hverja er átt. Birgir Andrésson er einn af þeim listamönnum sem mikils er vænst af. Hann hefur verið fulltrúi íslands á Feneyjatvíæringnum og sýnt víða í Evrópu. Þetta er langt frá því að vera meiriháttar sýning af hans hálfu og kímnin höfðar að- eins til innanbúðarfólks. Myndlist- arlega þá er þetta veikasta sýning sem ég hef séð frá Birgi Andrés- syni lengi. Gunnar J. Árnason MYMPLIST 20 fermetrar, Vesturgötu 10A BIRGIR ANDRÉSSON Opið miðvikudaga til sunnudaga frá 15:00 til 18:00. Aðgangur ókeypis. Til 28. júní. BIRGIR Andrésson heldur áfram að draga fram ýmsar hliðar á íslenskri arfleifð og setja hana í spaugilegt samhengi í sýningu sem hann kallar „íslendingaspjall". Á fjórum smáum hillum í sýningar- salnum standa dúkkulísur í þjóð- búningum, tvær og tvær saman á hverri hillu, í hrókasamræðum. Önnur lýsir fjálglega einhverri ónefndri manneskju og hin kemur með einhverja stutta athugasemd. Textamir birtast í talblöðru, eins og í teiknimyndum, fyrir ofan gamlar ljósmyndir af konum í ís- lenskum þjóðbúningi. Allt er þetta gert í gráglettnum anda. Mannlýsingarnar eru fjórar. Ein þeirra byrjar svona: „Hann er hrikalegur ásýndum. Þykkur og herðabreiður, á við tvær manns- sálir á hæðina. Andlitið stórskorið. Ennið hátt og mikið. Augabrúnim- ar þær loðnustu og vaxa þétt sam- an yfir arnarnefsrótunum. Augun blá og stingandi. Munnurinn lítill, en illa hirtir kjálkamir enda í breiðum kinnbeinum. Hárið úfið og sjaldan strokið..." Og endar með þessum orðum: „Og þó er þetta meinleysisgrey og bestur þá er hann sefur.“ Allar lýsingamar bregða upp mynd af útliti, líkams- burðum og háttalagi einhverrar manneskju, en sleppa því sem varðar lundemi, starfi eða öðmm upplýsingum sem gætu staðsett hana nánar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Birgir notar mannlýsingar í verk- um sínum, og hann hefur sótt fyr- irmyndirnar að slíkum lýsingum í rammíslenskar bókmenntir, enda er stíllinn frekar forneskjulegur. www.mbl.is Bjartmar sýnir í Oðinsvéum Óðinsvéum. Morgunblaðið. BJARTMAR Guð- laugsson opnaði myndlistarsýningu í Filosofgangen í Oð- insvéum 17. júní sl. „Það er yndislegt að vera kominn aftur til Oðinsvéa," sagði lista- maðurinn góðkunni sem eftir nokkurra ára dvöl á Islandi kemur til baka með afrakstur síðustu ára. Á sýningunni, sem hófst á þjóðhátíðar- daginn, 17. júní, eru 19 myndir sem Bjart- mar hefur málað allt frá 1995 og þar til nú og stendur hún til 28. júní. Bjartmar stundaði nám í Óðinsvéum frá Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson BJARTMARI var vel fagnað í Óðinsvéum af gömlu félögunum. 1992 til 1995 og hélt nokkrar sýningar þar og annars staðar í Danmörku en flutti síðan til Is- lands. Það er skammt stórra högga á milli hjá Bjartmari en fljótlega eftir að hann kemur heim til Is- lands aftur í byijun júh' kemur út safndiskur með 20 af vinsælustu lögunum hans. Þangað til er ætl- unin að endurnýja kynnin af Óð- insvéum og njóta þess að vera í fru með fjölskylduna næstu 3 vikurnar. ÞAÐ er yndislegt að vera í Óðinsvéum, sagði Bjartmar, sem er hér ásamt konu sinni, Maríu, og dótturinni, Berglindi. rö-ogg-ö~öigiíT^ 8 yó8 ítfó’rf’l 8 RiRi'iM I Ný Dell OptiPlex™ GX1 lntel®Pentium® II 266 MHz örgjörvi • 32 MB minni 3,2 GB diskur • 15" VL skjár • AGP 4MB skjákort Hljóðkort • Uppfæranleg í Intel® Pentium®ll 400 MHz örgjörva Verð kr. 130.000,-,,, *Verð fyrir aðila að rammasamningi Ríkiskaupa RK-302 Tiik1 ... pentiunrrj OptiPlex™ með Intel® Pentium®ll örgjörvum Dell, Dell merkið og OptiPlex™ eru skrásett vörumerki Dell Computer Corporation. InteK® inside merkið og Intel® Pentium® eru skrásett vörumerki og MMX er vörumerki Irrtel® Corporation.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.