Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 40

Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 40
>40 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ __________________KÆRLEIKSÞJÓNUSTA KIRKJUNNAR_______________ Séra Hreinn Hákonarson um bjónustu við fanga og aðstandendur Sýnilegir veggir og ósýnilegir Kirkjan veitir ýmsa þjónustu í fangelsum og á sjúkrahúsum. Henni sinna sérhæfðir starfsmenn, prestar og aðrir. I þessum síð- asta hluta umfjöllunar um líknarþjónustu kirkjunnar eru verkefni hennar á þessum vettvangi skoðuð. Morgunblaðið/Golli SÉRA Hreinn Hákonarson er fangaprestur Þjóökirkjunnar. HVERGI er þann afkima veraldar að finna sem kirkjan telur sig ekki þurfa að sinna. Hún er send til að bregða birtu inn í líf manns og ver- aldar - birtu sem hún hefur þegið. Send til að eiga við manninn orð sem skiptir sköpum. Hún ávarpar manninn á lífsgöngu hans hvar sem hann kann að vera staddur, hún býður honum fylgd og til við- ræðu um kjarna lífsins: maðurinn er ekki einn í heiminum, hann hef- ur verið sóttur heim af þeim er kallaði lífið fram; sóttur heim af þeim er slær vef lífsins hverja stund og biður alla þá er eyru hafa að leggja við hlustir. Öll mannleg vist hvílir á sam- bandi. Menn hafa margvísleg sam- skipti. Sjálft lífið er í eðli sínu ein- hvers konar samfella boða og hræringa. Ætíð er verið að koma einhverju til skila eða taka á móti hvort heldur í minnstu frumu eða stærstu tölvu. Já, hvort heldur er um að ræða þröngan troðning upp til sveita eða fagursveigða hrað- braut stórborgarinnar. Lífið er ein allsherjar samskipti. Þegar sam- skipti dofna, verða slitrótt eða rofna, hleðst upp lón boða sem komast ekki um hríð á leiðarenda. Lónið verður sífellt meira um sig og hvflir með ofurþunga á veggj- um sem láta undan ef ekkert verð- ur að gert. í margvíslegum aðstæðum get- ur tilfinningalíf fólks orðið sem hvert annað uppistöðulón. Ein- hverjar innri eða ytri ástæður geta hindrað eða teppt með öllu eðlilegt samband manna í milli; skotið loku fyrir samskipti - ger- breytt öllu sambandi. Samskipti fólks eru rofin með ákveðnum hætti þegar einhver því nákominn fer í fangelsi. Veggir fangelsis eru sýnileg hindrun allra venjulegra samskipta. Fangelsi er í eðli sínu nýr og grýttur farvegur sem lífi fólks og tilfinningum er ætlað að hríslast um. Sjáift fangelsið er veröld út af fyrir sig, lokuð veröld með hvers kyns fyrirmælum og reglum, sem mönnum gengur stundum misvel að hlíta. Fangels- ið er á vissan hátt eins og steypt stífla utan um samskipti fólks, þungur rammi sem mönnum ber lögum samkvæmt að fella líf sitt að um ákveðinn tíma. Oft er sagt sem svo að aðstand- endur fanga séu ekki í minna fang- elsi en fangamir sjálfir. Þetta má til sanns vegar færa í ljósi þess að fangelsið skorðar af öll samskipti fólks. Þegar svo er komið reynir mikið á aðlögunarhæfni manna. Fangelsisvist er hörð staðreynd og reynir mjög á tilfmningalíf allra hvort heldur það er fanginn eða fjölskylda hans. Angrið sker menn hið innra enda þótt menn kunni að bera sig vel. Enginn vill vera í fangelsi og enginn vill að sínir nán- ustu séu frelsissviptir. Kirkjan kemur til manna þar sem þeir sitja inni í fangelsi. Hún kemur til þeirra til að deila með þeim áhyggjum og hverju því angri er sker hugann og vill deyfa sorgar- sting. Hún kemur til að létta fólki róðurinn í því andstreymi sem til- finngarlíf þess býr við um lengri tíma eða skemmri. Að koma á sambandi við fólk Starf kirkjunnar innan fangelsa byggir á því að koma upp sam- bandi við fólk, vera í samskiptum við manneskjur, vera hjá fólki hvort heldur þegar andlegar hremmingar eru sem þyngstar eða til að rabba saman á líðandi stund um hvaðeina er skýtur upp í mannlegum huga. Þetta er gert í trausti þess að fagnaðarerindið sem sent er til manna brjótist fram í návist og samtali á sem eðlilegastan hátt þegar hugur spyr: Til hvers er þetta allt sam- an? Hver er höfundur lífsins? Til hvers lifi ég? Er líf mitt ekki einskis virði? Hef ég ekki brotið allar brýr að baki mér? Get ég lit- ið framan í nokkurn mann fram- ar? Margar fleiri spurningar mætti tína til sem vakna í samtölum, vakna í kjölfar samskipta, verða til þegar samband er komið á bak við vegginn. Spurningar sem ki-efjast þess svo sannarlegra að við þær sé glímt; spurningar sem kalla á um- ræðu og viðbrögð. Krefjast skiln- ings og elsku. Einnig rísa upp minningar um bernsku, glötuð tækifæri, skelfilegt uppeldi og áþján illra örlaga. Viðskotaillt við- mót undarlegra stofnana og manna; fráhvarf frá vonskusolli veraldar og gildru vímunnar. Og ekki síður spyr hugur áleit- inna spurninga um það hvers vegna allt hafi farið úrskeiðis þeg- ar uppeldi allt og ytri aðstæður voru sem bestar geta orðið. Allar dýpstu spurningar og vangaveltur, já kyrrar hugsanir í daglegri önn og þá kvöldið kemur og höfuð leggst á kodda, eiga sér djúpan samhljóm í þessum orðum sálma- skáldsins eina: Sjá þú mig særðan nú á sálu minni? Þessi orð tala ekki aðeins til þeirra sem í fangelsi sitja heldur líka til hinna er bíða fyrir utan, fjölskyldunnar, makans, vanda- manna og vina. Öll samskipti hafa breyst sem fyrr segir og fólk rek- ur sig á ýmsa sýnilega veggi og ósýnilega. Hvað má og hvað má ekki? Hvað skal segja öðrum af sínum nánasta sem brýtur lög og hlýtur fangelsisdóm? Hvað skal segja barni? Hvert fer mamma? Pabbi? Já, jafnvel afi og amma? Hversu opinskátt skal horfst í augu við kaldar staðreyndir og hversu hátt skal halda þeim á lofti? Margar spurningar banka upp á og knýja á um svör, elskufylltan skilning og umræðu. Þess vegna hefur verið lögð á það áhersla að þjónusta fangaprests þjóðkirkj- unnar snúi ekki aðeins að föngun- um sjálfum heldur einnig aðstand- endum þeirra. Þeir eiga gi-eiða leið að þessari þjónustu kirkjunnar og eru hvattir til að notfæra sér hana sem mest. Fangelsi eru því hús al- vörunnar. Þetta eru þau hús og það umhverfi sem samfélagið legg- ur þeim til er gengið hafa gegn lögum þess og af þeim sökum verið vikið út af vettvangi dagsins inn á annan vettvang þar sem samskipti fólks eru skorðuð á ýmsa lund. Viðurlögin felast í þessu brott- hvarfi af vettvangi daglegs lífs, frá heimili og fjölskyldu, frá atvinnu og skóla; frá veröld götunnar og veröld heimilisins. Brotthvarfi frá lífi hins frjálsa manns. Spornað við nei- kvæðum áhrifum Allir þeh' er að fangelsum koma samsinna því að þau hafi í eðli sínu skaðleg áhrif á þá er þar dvelja. Það er að sönnu afar mótsagna- kennt að samfélag velferðar skuli reka stofnanir sem flestir eru sam- mála um að hafi mjög neikvæð áhrif á þá sem þar dvelja. Þess vegna er brýnt að allt sé gert sem hægt er til að hamla í móti þessum áhrifum og ekki má gleyma því að margt er gert og má t.d. nefna skólahald og atvinnu, sem víðast er boðin, meðferð í lok afplánunar og afplánunarvist á Verndarheimilinu, samfélagsþjónustu, heimsóknir Rauða ki'ossins tfl fanga o.fl. En ætíð má gera betur. Félagsráðgjöf alla þarf t.d. að efla til muna, ráða þaif fleiri til að sinna margvísleg- um þörfum fanga og ekki síst til- fínningalegum og andlegum; gefa þarf meira svigrúm til skólagöngu og leyfa utan fangelsa. Þá þarf að stórbæta hag kvenna sem eni lang- tímafangar og má segja að það sé kannski brýnast um þessar mund- ir. Eins þarf að endumýja það hús- næði sem er orðið lúið og úrelt. En sá sem huggar hrellda sál hefur gengið gegnum veggi fang- elsa og farið um alla afkima læstra tilfinninga. Hann heyrir rödd þess sem stendur við þungan vegg, sýnilegan eða ósýnilegan, og segir: Ó, Jesú, að mér snú ásjónu þinni. Sjá þú mig særðan nú á sálu minni. (Passíusálmur 12.27) I krafti hans og aðeins hans veitir kirkjan föngum og íjölskyld- um þeirra þjónustu sína. Sjö sjúkrahúsprestar við störf í Reykjavík Sinnum þjónustu við sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk „STARF okkar byggist einkum á * þremur þáttum, þjónustu við sjúk- linga, aðstandendur og þá sem annast sjúklingana en þessi síðast- nefndi hópur heilbrigðisstarfs- manna gleymist stundum," segir séra Jón Bjarman, sjúkrahús- prestur á Landspítala. Hann hefur gegnt því embætti í 12 ár en þjón- usta kirkjunnar á sjúkrahúsum hófst fyrir nærri þremur áratug- um. í dag eru sjö sjúkrahúsprestar starfandi í Reykjavík og einn djákni. Þá segir Jón hafa verið v rætt um að stofnað verði til stöðu sjúkrahúsprests við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Sóknar- prestar sinna þjónustu við stofnan- ir í sóknum sínum og vitja einnig sóknai'barna sinna á stóru sjúkra- húsin. Séra Jón Bjarman segir sjúkrahúsin vera samfélag út af fyrir sig:,A-uk sjúklinganna er vit- ^anlega mikið starfslið á sjúkrahús- um og á síðustu árum hafa ætt- ingjar í auknum mæli fengið að vera meira inni á deildum til að fylgjast með og styðja ástvin sinn. Þá hefur heilbrigðisstéttum fjölg- að, nú eru ekki bara læknar og hjúkrunarkonur, eins og þær hétu áður, heldur eru komnar til sög- unnar stéttir félagsráðgjafa, meinatækna, iðjuþjálfa og sjúkra- þjálfara, svo nokkrar séu nefndar, og saman mynda þær teymi sem annast sjúklinginn á allan hátt.“ Mikið álag á heil- brigðisstéttum Séra Jón segir að þjónusta sjúkrahúsprestanna sé annars vegar sálgæsla og hins vegar reglulegt helgihald: „Við erum oft í viðtölum við sjúklinga, aðstand- endur og starfsfólkið og má segja að það sé bæði í tengslum við veik- indin og síðan aðra hluti eða önnur vandamál sem upp koma. Þetta á kannski ekki síst við um starfsfólk- ið. Heilbrigðisstéttir vinna álags- starf, deildir era undirmannaðar og oft eru uppi ýmsar kjaradeilur og önnur vandamál sem snerta starfið. Þá er orðið algengt að kallað sé á okkur vegna dauðsfalla, stundum þegar séð verður að hverju stefnir en oftar kannski þegar sjúklingur hefur andast og við erum beðin að sinna aðstandendum," segir Jón og er það bæði að starfsfólk býður þeim að kallað sé á sjúkrahúsprest eða að fólk óskar eftir því sjálft enda margir sem vita orðið af starfi þeirra. Hin hliðin á starfinu er reglulegt helgihald og eru til dæmis guðsþjónustur á Landspít- ala á hverjum sunnudegi og ýmis- legt helgihald þar fyrir utan eftir því sem tilefni gefst. Samstarfsmenn séra Jóns á Landspítala eru þau séra Bragi Skúlason og séra Ingileif Malm- Morgunblaðið/Arnaldur SÉRA Jón Bjarman sjúkrahús- prestur á Landspítala er hér í kapellunni á kvennadeild spít- alans. berg og Rósa Kristjánsdóttir djákni. A Sjúkrahúsi Reykjavíkur starfa og þrír prestar, þeir séra Sigfinnur Þorleifsson, séra Kjart- an Örn Sigurbjörnsson og séra Gunnar Matthíasson. Þá starfar séra Ólöf Ólafsdóttir á Skjóli. Séra Jón Bjarman hefur gegnt starfi sjúkrahúsprests síðustu tólf árin og lætur senn af starfi. Hann segir ýmislegt hafa breyst gegnum árin en sama staða sé uppi á Land- spítala nú og áður að barist sé um hvern fermetra og í dag hefur hann aðstöðu í gluggalausu her- bergi á Kvennadeild við hlið kapellunnar sem komið var upp íýrir nokkrum árum. Aður var Jón fangaprestur í 16 ár og æskulýðs- fulltrúi kirkjunnar í fjögur ár. Hef- ur hann því víðtæka reynslu af þessari sérþjónustu kirkjunnar og er spurður nánar um undirbúning og viðbótarmenntun presta: „Allir sjúkrahúsprestarnir í dag hafa þá sérmenntun til að gegna starfinu sem krafist er erlendis, þ.e. þeir hafa stundað framhaldsnám í þess- um fræðum. Spítalarnir óska eftir því að þeir sem gegna þessum stöðum hafi slíka viðbótarmenntun og má segja að hún sé nauðsynleg- ur grundvöllur í þessu starfi," seg- ir séra Jón Bjarman að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.