Morgunblaðið - 23.06.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 53 -
<
I
<
<
I
<
<
I
<
i
I
<
:
:
i
<
í
i
:
i
I
I
FRÉTTIR
FRÁ einum kynningarfundi Nýsköpunarsjóðs.
Starfsemi Nýsköp
unarsjóðs kynnt
LOKIÐ er hringferð á vegum Ný-
sköpunarsjóðs atvinnulífsins þar
sem kynnt var starfsemi sjóðsins.
Haldnir voru kynningarfundir á
níu stöðum umhverfls landið á tírmi-
bilinu 25. mars til 27. maí 1998. Á
fundinum var gerð grein fyrir upp-
byggingu sjóðsins, starfsemi hans og
farið yfir með hvaða hætti standa
ætti að umsóknum til sjóðsins. Þá
voru fyrirtæki og einstaklingar sem
lagt hafa inn umsóknir heimsótt og
ýmsar forsendur af hálfu sjóðsins, til
þátttöku í viðkomandi verkefnum,
kannaðar nánar.
Kynningar voru haldnai- á eftir-
töldum stöðum: Borgamesi, ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöðum,
Homafirði, Selfossi, Vestmannaeyj-
um og Keflavík. Alls mættu á fimmta
hundrað manns á þessar kynningar.
Virtust þær vekja mikinn áhuga
meðal heimamanna og hafa þegar
borist nokkrar umsóknir í kjölfar
kynninganna. „Nýsköpunarsjóður
stefnir að því að fara aðra sambæri-
lega kynningarhringferð síðar á ár-
inu og halda þá fundi á níu stöðum til
viðbótar og nota jafnframt tækifærið
til að heimsækja fyrirtæki og ein-
staklinga sem búa yfir áhugaverðum
hugmyndum eða verkefnum sem
sjóðurinn telur höfða til sín og einnig
þá aðila sem lagt hafa inn umsóknir
sem eru til umfjöllunar.
Er það mat stjórnar Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins, að kynningar-
fundir og heimsóknir sem þessar séu
veigamikill þáttur í að skapa hvatn-
ingu og áhuga á landsbyggðinni til
að nýta sér þá þjónustu sem Ný-
sköpunarsjóður býður upp á og
tryggja þannig, að sjóðurinn verði
virkur þátttakandi í að efla nýsköp-
un um allt land,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Nýsköpunarsjóði.
GUÐRÚN Gestsdóttir og Guð-
mundur Brynjólfsson.
Ættarmót
og útilega
ÆTTARMÓT afkomenda Guðrúnar
Gestsdóttur og Guðmundar Brynj-
ólfssonar frá Sólheimum, Hruna-
mannahreppi, verður haldin á Gisti-
heimilinu Geysi, Haukadal, Bisk-
upstungum, helgina 26.-28. júní nk.
„Búið er að taka gistiheimilið með
öllu tilheyrandi á leigu og getur fólk
komið á föstudag og dvalið fram á
sunnudag. Vonandi sjá flestir sér
fært að mæta og styrkja ættar-
böndin. Hljóðfæri og góðir leikir
eða annað skemmtiefni er vel þegið.
Gott leiksvæði er fyrir bömin og
stutt í sundlaug fyrir þá sem vilja.
Eitthvað er eftir af herbergjum,"
segir í fréttatilkynningu.
Nýbreytni í
helgihaldi á
Jónsmessunótt
í TENGSLUM við prestastefnu
býður biskup til guðsþjónustu á
Jónsmessunótt, þriðjudaginn 23.
júní. Athöfnin verður haldin í Hall-
grímskirkju og hefst kl. 23. Allir eru
boðnir velkomnh- til þessarar hátíðar
og fólk er hvatt til þátttöku. Karl
Sigurbjörnsson biskup flytur hug-
leiðingu og Vilborg Dagbjartsdóttir,
skáld, og Asdís Jenna Astráðsdóttir
flytja ljóð sín. Helgihald verður í um-
sjá presta Hallgrímskirkju, sr. Sig-
urðar Pálssonar og sr. Jóns Dalbú
Hróbartssonar. Um tónlistasrflutn-
ing sjá söngvarinn og lagahöfundur-
inn KK (Kristján Krisjánssson) og
Mótettukór Hallgrimskirkju, undir
stjóm Harðar Áskelssonar.
„Prestastefnan 1998 beinir m.a.
sjónum að náttúranni og ábyrgð
mannsins gagnvart sköpun Guðs.
Þess vegna er stefnt að því að halda
hluta messunnar utandyra, á Hall-
grímstorgi, framan við kirkjuna,"
segir í fréttatilkynningu frá biskups-
stofu.
Jónsmessunótt
í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum
Á JÓNSMESSUNÓTT verður opið í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá
kl. 23 að kvöldi þriðjudagsins 23. júní
til kl. 1 eftir miðnætti og er
aðgangur ókeypis.
Varðeldur verður tendraður kl. 23
og hljómsveitin Geirfuglarnii- spila
og syngja frá kl. 23.30. Kaffihús
garðsins verður með sölu á
kúmenkaffi og ástarpungum.
Endurvinnsla í
nútíð og framtíð
UMHVERFISDAGAR Sorpu bs.
verða haldnir dagana 26.-28. júní
nk. Þeir hefjast með ráðstefnu und-
ir yfirskriftinni „Endurvinnsla í nú-
tíð og framtíð" og hefst hún kl.
13.30 í fundarsal Áburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi hinn 26. Geir
H. Haarde fjármálaráðhema setur
ráðstefnuna og ávarpar ráðstefnu-
gesti.
„Stofnfundur fagráðs um endur-
vinnslu verður haldinn í lok ráð-
stefnunnar. Hlutverk fagráðs er að
miðla upplýsingum um hvað efst er
á baugi í greininni og vera aðgengi-
legt stjórnvöldum til ráðuneytis um
endurvinnslu og sorphirðu.
Fyrirlesarar verða: Jeff Cooper
frá Bretlandi, hans erindi nefnist
„Waste Minimization and Recyel-
ing“; Christian Fischer frá Evrópu-
sambandinu fjallai' um mikilvægi
tölfræði og samræmingu skilgrein-
inga í þessu fagi; Niels .Jorn Hahn
frá Danmörku fjallar um reynslu
Dana af framkvæmd sinna mark-
miða og hvaða lög og reglur þeir
nota í því sambandi. Ráðstefnu-
stjóri verður Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu-
neyti,“ segir í fréttatilkynningu frá
Sorpu.
„Kl. 17.30 sama dag opnar borg-
arstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, sýningu á at-
hafnasvæði Sorpu bs., þar sem aðal-
áhersla verður lögð á vinnslu verð-
mæta úr sorpi, þar á meðal elds-
neytisvinnslu úr urðunarstaðnum á
Álfsnesi. í því sambandi verður
kynntur Volvo V70-fólksbíll, sem
gengur fyrir bæði jarðgasi og bens-
íni, en er að öllu öðru leyti venjuleg-
ur nútímabíll og er markaðssettur
sem slíkur, einkum í Svíþjóð og
Bandaríkjunum. Bíllinn verður til-
raunakeyrður hér til þess að sýna
fram á hagnýtt gildi gasvinnslu úr
Álfsnesi. Orkan er nú þegar nægi-
leg til þess að knýja 1.000 venjulega
fólksbíla og þegar framleiðsla nær
hámarki innan fárra ára nægir gas-
ið til að knýja 3.500-4.000 bíla.“
Áætlað er að fjárfesting í sorp-
hirðu og endurvinnslu nemi nú um
2,5 milljörðum króna og ársvelta sé
um 2 milljarðar. Á fjórða hundrað
manna hefur atvinnu sína af þessari
starfsemi.
Á sýningunni Umhverfisdögum
1998 kynna um 40 fyrirtæki starf-
semi sína. Að auki verða 12 sýning-
ardeildir frá Sorpu þar sem m.a.
verður sýnd moltugerð.
Sýningin er opin öllum almenn-
ingi dagana 27. og 28. júní og stend-
ur frá kl. 10-18 báða dagana. Að-
gangur er ókeypis.
------------------
LEIÐRÉTT
An-124 ekki stærsta
flutningaflugvélin
SAGT var frá því í frétt í Morgun-
blaðinu um helgina, að Antonov-
flugvélin sem flutti sjókví Keikos til
landsins væri stærsta flutningaflug-
vél heims, en hún var af gerðinni
An-124. Engin burðarmeiri flugvél
er í almennri notkun í dag en 1988
framleiddu Sovétmenn þó mun
stærri flugvél, Antonov An-225,
„kossakkann", sem m.a. var sýnd á
flugsýningum víða um heim en verið
hefur að mestu ónotuð eftir hrun
Sovétríkjanna. Nú er verið að hefj-
ast handa að nýju við fjöldafram-
leiðslu hennar. Er An-225 15 metr-
um lengri, með 15 metrum breiðara
vænghaf, þremur metrum hærri,
með 6 hreyfla í stað fjögurra og ber
100 tonnum meiri arðfarm, eða 250
tonn miðað við 150 burðargetu An-
124.
Viðskiptaháskólinn rangnefndur
V erslunarháskólinn.
í frétt sem birtist í Morgunblað-
inu á laugardaginn er Viðskiptahá-
skólinn í Reykjavík rangnefndur
Verslunarháskólinn. Fyrsta
kennsluár Viðskiptaháskólans hefst
í haust. Skólinn verður aðskilinn
Verzlunarskóla Islands og hefur
eigið háskólaráð. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Mistúlkun í frétt um
orkusölu Landsvirkjunar
í Morgunblaðinu laugardaginn
20. þ.m. er rætt við Kenneth Peter-
son um viðræður Landsvirkjunar
og Norðuráls um lánsorku til að
auka álframleiðslu álvers Norðuráls
á Grundartanga á þessu ári. í
Morgunblaðinu er kveðið svo á að
samkvæmt því sem Halldór
Jónatansson, forstjóri Landsvirkj-
unar, segir í athugasemd í blaðinu
þriðjudaginn 16. þ.m. hafi Norðurál
ekki getað tekið við orku frá Lands-
virkjun fyrr en viku eftir að áætlað
hafi verið og þessar tafir hafi vakið
áhuga fyrirtækisins á að kaupa
aukaorku í haust. Hér er ekki rétt
með farið því í athugasemdinni 16.
þ.m. kom fram hjá Halldóri að
Norðurál mundi fyrirsjáanlega ekki
verða farið að taka straum að fullu á
fyrri áfanga álversins fyrr en í lok
júlímánaðar í stað 1. júní eins og
Norðurál átti rétt á. Hér er því um
allt að tveggja mánaða seinkun að
ræða en ekki viku seinkun eins og
kom fram í viðtalinu, þann 20. þ.m..
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Lokum fyrir sorp..
...opnum fyrir
Móttöku- og flokkunarstöð SORPU
Gufunesi verður lokuð næstkomandi
fimmtudag og föstudag vegna
sýningarinnar Umhverfisdagar 1998.
Umhverfisdagar 1998
er ein frumlegasta fjölskyldusýning ársins þar
sem fólki gefst kostur á að sjá endurvinnslu
og náttúruvernd í nýju Ijósi.
Kjörið tækifæri fyrir börnin að sýna þeim
fullorðnu óvenjulegustu og nýjustu aðferðir við
endurvinnslu og skoða 40 fyrirtæki sem starfa á
sviði endurvinnslu og náttúruverndar.
Nánari upplýsingar um dagskrá sýningarinnar
verða auglýstar síðar og er að finna á heimasíðu
SORPU www.sorpa.is.
Endurvinnslustöðvar verða opnar
á venjulegum tímum.
ávinningur allra
SGRPA
SORPEYÐING HÖFUBBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi '60x 12100 '132 Reykjavík • Sími 520 2200 • Bréfasími 520 2209 • www.sorpa.is