Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 54

Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand Smáfólk ''PAIð^ ANP 6ATSB PANCEP..I REMEMBER 6RACEFUL CONSERVATI\ FOXTROT" Kalli Bjarna! Ég hef verið að Hvar hefurðu dansa Óla Skans verið? við Kötu og Möggu ... Hlustaðu ... það Nú get ég boðið Ég held að „Daisy og Gatsby dönsuðu ... er verið að spila litlu rauðhærðu einhver sé á ég minnist hins þokkafulla foxtrott ... stelpunni upp í undan þér ... foxtrotts sem hann dansaði. dans ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hrært upp í lífínu með AUS Frá Sigurði Harðarsyni: SÁ DAGUR kemur í lífi flestra að viðkomandi finnst að tími sé kom- inn til að hrista upp í eigin tilveru og gera eitthvað nýtt og róttækt. Sumt fólk lætur tilhugsunina nægja en aðrir stökkva af stað með tannburst- ann í brjóstvasan- um og vegabréfið í innanklæðavesk- inu. Tilbúnir í hvað sem er án Sigurður þess að vera með Harðarsson mótaðar hug- myndir um fram- tíðina heldur láta hana ráðast. Petta gerði ég þegar ég fór til Þýskalands og dvaldi í eitt ár á veg- um samtakanna Alþjóðleg ung- mennaskipti. I upphafi ársins fann ég sjálfan mig í fjölþjóðlegum hópi ungs fólks sem talaði saman á blöndu af tungumálum auk handa og fóta. Par fengum við tveggja vikna aðlögunar- og þýskunámskeið og bundumst traustum vináttu- böndum þar sem við vorum öll á sama báti: Stödd í ókunnu landi með pínulítinn hnút í maganum en hörð á því að halda áfram. Eftir þessar tvær vikur dreifðumst við um landið, ég flutti inn í 300 ára gamalt hús í Göttingen þar sem fyr- ir bjuggu tveir strákar, ein stúlka og svartur köttur að nafni Pushkin, allt Þjóðverjar nema kötturinn. Þama bjó ég allt árið og við skipt- umst á um matarinnkaup, þrif og annað heimilishald. Fyrir tilviljun fékk ég hlutverk sem aukaleikari í leikriti sem verið var að setja upp, þar kynntist ég fjölda fólks og lærði ji/N-Am Bláa línan frá Jun-Air er ódýrari en þú átt að venjast. Jun-Air - þessar htjóðlátu! SKÚIAS0H BJÚHSS0M SKÚTUVOGI 12H • SÍMI 568-6544 Hagkvæm, hljóðlát loft- pressa fyrir þá sem vilja vinna í kyrrlátu umhverfi að skilja þýsku á æfingunum. Eftir þijá mánuði af æftngum og sýning- um fór leikhópurinn í sýningarferð til vinabæjar Göttingen í Póllandi áður en þessum leikferli mínum lauk. Eftir nokkurra daga atvinnu- leysi, stutt starf við húsbyggingar, ráðstefnu í Strasbourg í Frakklandi um stöðu ungs fólks í Evrópu fram- tíðarinnar, ráðstefnu í Hannover um mögulegar ástæður fyrir fátækt í heiminum og enn aðra ráðstefnu í Berlín, þar sem ég og Einar vinur minn m.a. fluttum óformlegan fyrir- lestur um Island, hóf ég störf á dag- heimili. Það stóð inni í skógi þar sem bömin, sem voru saman heil- brigð og með downs-heilkenni, gátu leikið sér útivið. Þegar ég hætti þar um sumarið varð ég bæði hissa og hrærður þegar sum bamanna grétu brottför mína. Heima á Islandi var allt eins nema ég þegar ég kom heim eftir sex vikna ferðalög í lok þessa skipti- árs míns. Eg hugsaði með mér að úr því bömin vora ánægð með störf mín gæti ég reynt aðhlynningar- störf á hjúkranarheimili. Það gekk einnig vel og nú er svo komið að ég er hálfnaður með háskólanám í hjúkranarfræðum (eini strákurinn í mínum árgangi). Þannig breytti þetta eina ár lífi mínu, vísaði mér leið að framtíðarstarfi og færði mér aukinn tilgang, þökk sé óeigin- gjömu starfi meðlima AUS. Eg tel það nauðsyn fyrir allt ungt fólk að halda út í heim til að reyna sig og þroskast, átta sig á hvar það er statt í lífinu og stækka sjóndeildarhringinn. Ég veit líka að það era enn laus nokkur pláss fyrir áhugasamt fólk sem er frekar til í að setja peningana sína í eitthvað nýtt og spennandi sem gefur því eitthvað til baka frekar en tveggja til þriggja vikna ragl á sólar- ströndu sem iðulega skilur ekkert eftir sig. SIGURÐUR HARÐARSON, Nýja Garði v/Hringbraut, Reykjavík. fetra TRILLUR HJÓLABORÐ 0G VAGNAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.