Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 56

Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF “j Safnaðarstarf Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, ritningalestur, alt- arisganga, fyrirbænir. Léttur máls- verður í safnaðarheimilinu á eftir. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Seltjarnarneskirkja. Foreldra- morgunn kl. 10-12 Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Kópavogskirkja. Guðsþjónusta á vegum Ellimálaráðs Reykjavíkur- prófastsdæma verður á morgun kl. 14. Hugleiðingu flytur sr. Ægir Sig- urgeirsson. Kór félagsstarfs aldr- aðra í Reykjavík syngur undir stjórn Sigurbjargar P. Hólmgríms- dóttur. Kaffiveitingar. Mínar innilegustu þakkir sendi ég börnum mínum, tengdabörnum og skylduliði ásamt vinum og vandamönnum sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeyt- um á 90 ára afmœli mínu 14. júní sl. og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Eg bið góðan Guð að launa þeim ríkulega og vera með þeim allar stundir. Kœrar kveðjur, Kristín Davíðsdóttir, Höfðagötu 4, Stykkishólmi. Þrjú frábær fyrirtæki 1. Gistiheimilið Árból hf. Húsavík ertil sölu. Þetta er hið landsþekkta gamla sýslumannshöfuðból þarsem mannvitið og kærleikurinn hafa frá upphafi ráðið ríkjum. Allt gegnumtekið og með því glæsilegasta sem um getur í gistiheimilum á lands- byggðinni. Staðsett þar sem flestir ferðamenn koma (heilu hvalatorfurnar) og margir langt að. Heitasti ferðamannastaður landsins. Gistirúm fyriri 15 manns en engum er úthýst. Mikið um pantanir og frábær viðskiptasambönd. Auk þess er 3ja herbergja ibúð fyrir eigandann. Heimili og glæsilegt hagstætt atvinnutækifæri á sama stað í skemmtilegu bæjarfélagi. 2. Til sölu og afhendingar er garðyrkjustöð ásamt glæsilegu einbýlishúsi með tveggja hæða bílskúr á höfuðborgarsvæð- inu. Mikil framlelðsla á sumarblómum, trjám og runnum og góð sumarsala. Einnig framleiðslufyrirtæki sem framleiðir mikið af tengdum vörum og selur um allt land. Heimili og vinna á sama stað. Hefurtil umráða um einn hektara. Einstakt fyrirtæki fyrir samstæða fjölskyldu og duglegtfólk. Er núna ífullum gangi. Einbýlishúsið er að mestu allt gegnumtekið, klætt að utan, ný eldhúsinnrétting o.fl. Smá sundlaug. 3. Ein elsta og þekktasta fataverslun borgarinnar til sölu. Er með mjög góð erlend sambönd og mikið af föstum viðskipta- vinum. Góðar innréttingar og einstaklega vel staðsett. Getur verið laus strax af sérstökum ástæðum. Hafið samband. Ath. höfum góða kaupendur að heildverslunum og framleiðslufyrirtækjum. VELVAKAJVPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Smekklausar klámmyndir I tilefni dagsins, 17. júní, keypti ég mér blaðið „Séð og heyrt“. Ég hef haft gaman af að lesa blaðið og skoða myndir af fallegu landslagi og fólki. En mér brá því í blaðinu var smekklaus klámmynd. Og það í sama blaði og mynd af forsetanum, borgar- stjóra og fegurðardrottn- ingu Islands. Þetta er í síð- asta skipti sem ég kaupi þetta blað. Ein af eldri kynslóðinni. Svikin loforð ÞANN 11. júlí næstkom- andi verður hjólreiðar- fólki ekki hleypt í gegnum Hvalfjarðargöngin að því er haft er eftir Stefáni Reyni Kristjánssyni í Morgunblaðinu 16. júní. En það er annað en hann lofaði í Þjóðarsálinni á sínum tíma þegar hann var að biðla til þjóðarinn- ar um þessa framkvæmd, þá lofaði hann þvi að hjól- reiðamenn mættu hjóla í gegn. Haraldur Tryggvason. BT-tölvur BESTU þakkir til Adolfs verslunarstjóra fyrir að leysa ákveðið vandamál á skynsaman hátt án nokk- urrar þvingunar. Viðskiptavinur. Tapað/fundið Gullnæla týndist HANDSMÍÐUÐ gullnæla (brjóstnál ca. 5-6 cm) með ametyst-steini tapaðist í Reykjavík á vormánuðum. Til greina kemur í eða við Þjóðleikhúsið, Borgarleik- húsið, í leigubíl eða í mið- borginni. Upplýsingar í síma 557-4536. Fundar- laun. Kvengullúr týndist KVENGULLÚR týndist 11. júní líklega í Vestur- bæjarlaug, Vesturbæjar- apótekið eða á leiðinni á Sólvallagötu. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 552 4475. Fundarlaun. Giftingahringur í óskilum GIFTINGAHRINGUR fannst á KLambratúni í síðustu viku. Uppl. í síma 551 7475. Svört taska týndist SVÖRT taska, með lakká- ferð, hömruð, týndist í Þjóðleikhúskj allaranum 16. júní. í henni var pen- ingaveski, snyrtibudda og lyklar. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 7790. Svunta af vagni týndist DÖKKBLÁ leðursvunta af vagni týndist fyrir 2 vikum. Skilvís finnandi hafi samband í síma 557 8428. Dýrahald Kettlingar óska eftir heimili GULLFALLEGUM kett- lingum og stálpuðum kis- um vantar gott heimili og góða fjölskyldur strax. Ahugasamir hringi í Öhnu í síma 565 5257. EINSTAKLEGA skemmtilegur og þrifinn 11 vikna kettlingur fæst gefins. Svartur og hvítur. Upplýsingar í síma 557 6315. TVEIR blíðir og góðir kisustrákar fást gefins. Upplýsingar í síma 567 5404. FIMM fjögugar kisur óska eftir aðstoð við að skoða heiminn. Upplýsingar í síma 561 8865 og 896 6933. TVEIR 11 vikna kettling- ar vantar góð heimili. Upp- lýsingar í síma 554 0902 eftir kl. 15. Með morgunkaffinu COSPER OG ÞÁ teljum við niður strákar og samtaka nú. JÚ takk, ég vil gjaman dansa, en maðurinn minn HVAÐ memarðu með því ad er hræðilega afbrýðisamur. I>akka ™ér ^rir skemmtiat- nðið? Eg er bara að reyna að vekja konuna mfnameð því að slá bana utan undir. Upplýsingar á skrifstofunni. SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Domus Medica - Kringlunni BRUNO MAGLI Nýkomin sending af þessum þægilegu sumarskóm Ýmsir litir, verð kr. 11.800,- Víkverji skrifar... YÍKVERJA hefur borizt eftir- farandi bréf frá Óskari Magn- ússyni vegna umfjöllunar í þessum dálkum sl. þriðjudag: „Ágæti Víkverji. Mér er ljúft og skylt að útskýra þá hugsun sem býr að baki skiptingu verslana Hag- kaups í Nýkaup og Hagkaup. Hagkaupsverslun hefur í hugum fólks ekki verið ákveðin tegund af verslun heldur hafa innan þess nafns rúmast margs konar verslan- ir. Ég skal nú leitast við að útskýra þetta með dæmi. Berum saman verslunina á Eiðistorgi við stór- markaðinn í Skeifunni eða nýja stórmarkaðinn á Smáratorgi. Á Eiðistorgi er matvöruverslun með mjög takmarkað úrval af sér- vöru. Búðin er dæmigerð hverfis- verslun. Hún er ekki staðsett í um- ferðai’leið heldur er henni ætlað að þjóna sínu næsta umhverfi. í búð- inni fást um 7 þúsund vöruliðir, að- allega matvara. Búðin er um 900 fermetrar að stærð. í Skeifunni eða á Smáratorgi er stórmarkaður. Vöruúrvalið er a.m.k. til helminga sérvara, meðal annars jakkaföt, kjólar og hvað annað. Stór- markaðurinn er í alfaraleið en þjónar ekki beinlínis sérstöku hverfi. í stór- markaði eins og Skeifunni og Smára- torgi fást um 40 þúsund vöruliðir. Hagkaup í Skeifunni er um 3.600 fer- metrar að stærð og Hagkaup á Smáratorgi um 5.000 fermetrar. Af þessu sést að á bakvið hvora tegund verslana er mismunandi við- skiptahugmynd. Vel má vera að munurinn sé ekki alltaf jafn skýr og lýst er hér að framan, en þessar eru meginlínurnar. í hópi Nýkaups- verslana verður uppáhaldsbúð Vík- verja í Kringlunni drottningin. Með breyttu nafni og auknu sjálfstæði er þessum tveimur hugmyndum ætlað að þróast hvorri með sínum hætti. Nýkaupsbúðirnar munu ganga enn lengra en gert hefur verið til þessa í þeirri viðleitni að bjóða enn betra vöruval í ferskvöru, enn betri þjónustu og aukin gæði. Mér er Ijóst að þetta gat ekki gerst á einni nóttu en mun gerast jafnt og þétt á næstunni. Það sem unnt var að gera strax var t.d. að auka þjónustuna með því að lengja afgreiðslutímann þannig að nú er opið til kl. 21 alla daga. Nýkaupsverslanir kynntu til sögunnar foi’pakkað rifið salat sem fæst í betri matvöruverslunum er- lendis og hefur strax slegið í gegn hér. Búast má við breiðara úrvali af ávöxtum og grænmeti í verslunum Nýkaups, meira úrvali af fiski og kjöti og ýmsum réttum sem ekki hafa almennt verið hér á boðstólum. í Nýkaupi er bæði hægt að kaupa fisk og kjöt sérskorið úr kjötborði en líka pakkað fyrir þá sem það kjósa. Þar er iíka bakarí með fulla þjónustu. Verðið í Nýkaupi er það sama og var í öllum Hagkaupsversl- unum íyrir breytinguna. Það hefur ekki hækkað. Stórmarkaðir Hagkaups, eins og þeir eru hugsaðir tii framtíðar, bjóða fyrst og fremst mjög mikið vöruúrval en ekki bara matvöru. Þar fæst flest sem fjölskylduna kann að vanhaga um. Þjónustan er minni en í Nýkaupi. í stórmarkaði Hagkaups er ekki afgreiðsla úr kjötborði. Þar er bakarí en með sjálfsafgreiðslu. Afgreiðslutíminn er mun styttri. Verðið er lægra en var í Hagkaupsverslunum. Mér er ijóst að allar breytingar eru til þess fallnar að valda ruglingi á meðan þær ganga yfir. Ætlunin er að láta þær gerast hratt og að við- skiptavinir Hagkaups og Nýkaups hafi úr tveimur góðum kostum að velja þegar upp er staðið.“ Kveðja, Óskar Magnússon, forstjóri." XXX VÍKVERJI þakkar Óskari Magnússyni fyrir þessar upp- lýsingar. Þær skýra þær hugmynd- ir, sem að baki búa að hluta til. Eft- ir stendur þó hitt, að viðskiptavin- um Hagkaups er að verulegu leyti boðið upp á að kaupa sömu vöru íyrir hærra verð í Nýkaupi í Kringl- unni en í Hagkaupi í Kópavogi. Er líklegt að fólk láti bjóða sér það? Það á eftir að koma í ljós. Fyrsta verðkönnunin, sem fram fer eftir þessar breytingar, verður mjög foi’vitnileg. Hún sýnir væntan- lega hvar Hagkaupsverzlanirnar verða staðsettar í verðlagningu mið- að við Bónus annars vegar og Ný- kaup hins vegar. Þá verður einnig fróðlegt að fylgjast með því á hvern veg keppi- nautar Hagkaups-Nýkaups notfæra sér þá óvissu, sem skapazt hefur í huga viðskiptavina Hagkaups vegna þessara breytinga. Sumir segja að 10-11 hafi þegar notfært sér þessa nýju stöðu með góðum árangri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.