Morgunblaðið - 23.06.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJ UDAGUR 23. JÚNÍ 1998 59 ~
FOLK I FRETTUM
■ I H. I II 11 I ■ 111I I1111 M
EIRÍKUR Orri Ólafsson blés í lúður til merkis um að
samkvæmið væri að heijast.
ÓLÖF Þórarinsdóttir, Örn Óskarsson, Ómar Þór
Edwardsson og Bára Einarsdóttir.
SIGRÍÐUR Friðjónsdóttir, Sigurður A. Magnússon,
Bergljót Arnalds og Ævar Gunnarsson.
Tjarnar-
bakkanum
LÝÐVELDISBALL var haldið í
Iðnó síðastliðið þriðjudagskvöld.
Er þar verið að endurvekja
Tjarnardansleikina gömlu sem
efnt var til í Iðnó langt fram eftir
öldinni. „Þá var þetta hápunktur
í skemmtanalífi Reykvíkinga og
því gerðum við allt til að gera
þetta sem best úr garði,“ segir
Magnús Geir Þórðarson, listrænn
stjórnandi í Iðnó.
Kvöldið hófst með notalegri
stemmningu í koníaksstofu í
risinu þar sem boðið var upp á
fordrykki. Svo var hringt inn til
matar og gestum fylgt til sætis
við langborð. Veislustjórinn
Sjón bauð gesti velkomna og á
meðal þess sem var á boðstólum
var laxaþrenna ásamt ferskum
kavíar, lambainnlæri og loks
pönnukökukaka með glóaldin-
fyllingu.
Undir borðhaldi lék Marion
Herrera, hörpuleikari frá París,
þægilega tónlist og hátíðarræðu
hélt Jakob Frímann Magnússon.
Strengjakvartett tók svo við kefl-
inu og leiddi inn f dansleikinn
þar sem Skárren ekkert átti síð-
asta sprettinn. Náði stemmningin
hámarki um þijúleytið þegar
gestirnir og hljómsveitin döns-
uðu út á Tjarnarbakkann þar
sem ballið hélt áfram fram eftir
nóttu.
FIÐLUKVARTETT framan af dansleiknum.
Það var há-
punktur í
skemmtanalífi
Reykvíkinga
fram eftir
öldinni
RÓBERT Róbei-tsson, Árni Kr. Einarsson, Súsanna Svavarsdóttir,
Edda Sverrisdóttir og Taylor.
PÖR á róm-
antískri
kvöldgöngu
fengu óvænt-
an glaðning
þegar þau
gengu inn í
Tjarnardans-
leik og gátu
spreytt sig á
verðndinni
við Iðnó, m.a.
í grískum
dansi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞAÐ VORU fjölmargir sem spreyttu sig á dansgólfinu um kvöldið.
Blásið er í lúð-
ur til lýðveld-
isballs og
Tjarnardans-
leikur hefst
að nýju.
„ÞAÐ ER að hefjast dansæfing!"
SJÓN, Eyþór Arnalds, Móeiður Júníusdóttir og
Bergljót Arnalds.
MONIQUE Jenny, Lilja Einarsdóttir og Kristján
Karlsson. SVEITIN Skárren ekkert lék fyrir dansi.
Lýðveldisball í Iðnó
Dansað á