Morgunblaðið - 14.07.1998, Side 7

Morgunblaðið - 14.07.1998, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 7 FRÉTTIR Fjölskylda bjargaðist úr eldsvoða í Reyrengi aðfaranótt laugardags Eldsupptök sennilega frá kertisloga Morgunblaðið/Jim Smart HAFNI og Helena ásamt dætrum sínum sex fyrir utan Reyrengi. HAFNI M. Rafnsson, sem bjarg- aðist ásamt eiginkonu sinni, Hel- enu S. Brynjólfsdóttur, og tveimur bömum úr eldsvoða á heimili þeirra í Reyrengi í Grafarvogi að- faranótt laugardags, heldur að eld- urinn hafi kviknað út frá kerti sem var brunnið niður, farið í skreyt- ingu á kertastjakanum og loks í sófa. Hafni segist ekki muna skýrt eftir atburðum næturinnar. Hjónin lágu sofandi og voru orðin vönkuð af reyknum þegar nágrannar þeirra komu inn í íbúðina til að bjarga þeim. „Þetta era bara myndir eða augnablik sem rifjast upp eftir á. Það sem ég man fyrst eftir er hönd sem kom inn í her- bergið og kveikti ljós. Frá því kom aðeins dauf birta í gegnum reyk- inn. Einhver hrópaði „það er kviknað í, það er kviknað í“ en ég velti mér bara á hina hliðina og hélt áfram að dreyma." Baldur Heiðar Magnússon, ná- granni þeirra, hafði orðið brunans var, klifrað upp á svalir og komist inn í íbúðina. Hann opnaði fyrir Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur, ná- grannakonu þeirra, sem kom inn og sótti böm hjónanna, 10 mánaða og tveggja ára, og fór með þau fram. Eins og gamlársbrenna í stofunni Að lokum rönkuðu Hafni og kona hans við sér, og þau komust með naumindum fram úr herberg- inu. „Inni í stofunni var eldur eins og í gamlársbrenna og brakandi hávaði en annars var allt sótsvart. Þegar við komum fram á gang mættum við nágrannakonu okkar. Hún sýndi okkur að hún væri með börnin, en ég tók bara eftir öðru þeirra. Þegar ég kom út áttaði ég mig á því, eða einfaldlega missti stjórn á mér. Eg vissi ekki hvaða dagur var, hvort hin börn- in okkar væru komin heim úr sveitinni, það var allt á ringul- reið í huganum.“ Hafni hljóp aftur upp að íbúðinni, en hurðin hafði þá skellst í lás. Hann reyndi þá að sparka hana upp með aðstoð lögregluþjóns sem kominn var á vettvang, en gekk illa. Baldur Magnússon hljóp þá aftur út og klifraði í annað sinn upp á svalimar, fór inn í íbúðina og opn- aði hurðina. Hann var þá orðinn ör- magna og varð að bera hann út. Hafni segist að lokum hafa verið orðinn svo stjórnlaus af áhyggjum og ringlaður af reyknum að hann ætlaði að hlaupa inn í íbúðina og lögreglan varð að lokum að leiða hann á brott í járnum. Hafni og Baldur voru báðir sett- ir tvisvar í háþrýstiklefa hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur og voru þar í um tvo tíma í senn. „Sá tími bætti mikið úr ástandinu því ég átti orðið erfitt með anda, hóstaði mik- ið og sót kom upp úr mér.“ I íbúðinni er nánast allt ónýtt, flest eða öll húsgögn, allt tau, allar bækur og myndbandsspólur, allt plast á rafmagnstækjum er bráðið. Tölva sem geymd var inni í skáp slapp óskemmd og einnig hluti af fjölskyldumyndunum sem geymd- ar voru í þykkum albúmum. Kötturinn horfinn Fjölskyldan var með fjóra hamstra og kött á heimilinu. TVeir hamstranna, sem voru í búrum frekar ofarlega drápust, en tveir sem voru nær gólfinu sluppu. Ekki er ljóst hvort kötturinn slapp lif- andi, en hann hefur ekki sést síðan um kvöldið. Hann er 8-9 mánaða gamall, ómerktur, svartur að ht en hvítur á bringu og loppum. Hafni biður þá sem kynnu að verða hans varir að láta Kattholt vita. Hafni, Helena og sex börn þeirra búa nú hjá ættingjum. Hafni segir að eigandi sumarbúðanna við As- tjörn, þar sem fjögur barnanna voru fram á laugardag, hafi boðið þeim að koma aftur. Systir Hafna hefur tekið að sér að passa tvö yngstu börnin meðan verið er að koma íbúðinni í lag. Það starf er þegar hafið. Þau Hafni og Helena eru sem von er Jjakklát björgunarmönnum sínum. I fyrradag færðu þau Baldri rósir á spítalann þar sem hann lá og í gær komu þau með blóm handa Helgu og manni hennar, Ólafi ísleifssyni.jöO Afkoma ríkissjóðs mun betri á fyrstu 5 mánuðum ársins Hallinn aðeins 653 milljónir AFKOMA ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum ársins er mun betri í ár en í fyrra. Hallinn á fyrstu fimm mánuðum þessa árs er 653 milljón- ir, en í fyrra var hann 5.737 millj- ónir. Einnig hefur dregið verulega úr lánsfjárþörf ríkissjóðs. Auknar tekjur ríkissjóðs skýra að stærst- um hluta betri stöðu. Tekjur ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum þessa árs námu 62 millj- örðum, en á sama tíma í fyrra námu tekjurnar 53 milljörðum. Út- gjöld ríkissjóðs á fyrstu mánuðum ársins námu 62,7 milljörðum, en 58,7 milljörðum í fyrra. A fyrstu fimm mánuðum ársins hefur innheimta virðisaukaskatts skilað tæplega 900 milljónum meira í ríkissjóðs en á sama tíma- bih í fyrra. Aukningin milli ára er 5,2%. Tryggingagjald skilar rúm- um 600 milljónum meira í ríkissjóð en í fyrra. Tekjur af innflutningi bifreiða, bifreiðaskattar og bensín- gjald skila einnig umtalsvert meiri tekjum en í fyrra. Tekjur af vöru- gjaldi minnka hins vegar milh ára vegna breytinga sem gerðar voru á álagningu vörugjalda. Aukning til heilbrigðis- og menntamála Útgjöld til heilbrigðismála og menntamála aukast mest milh ára og fara nokkuð fram úr áætlun fjárlaga. Staðan í ár mun þó ekki vera verri en oft áður. í heilbrigð- ismálum eru nokkur ófrágengin mál, sem koma til með að ráða tals- verðu um hversu mikið heilbrigðis- útgjöldin fara fram úr áætlun. Vaxtagjöld ríkissjóðs lækka milli ára og skýrist það að hluta til af því að spariskírteini hafa ekki verið innleyst í ár eins og gert var í fyrra og hittiðfyrra. Fjárlög í ár voru afgreidd með 100 milljóna króna afgangi. Um næstu mánaðamót mun fjármála- ráðuneytið birta spá um afkomu ríkissjóðs í ár. Ivomdu í mlo með lottó í Þrefaldur í. vtnningur Fáðu þér og þú getur tekið þátt í sumarleik lottósins. í vinning er glæsileg TOYOTA Avensis bifreið. íþágu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.