Morgunblaðið - 14.07.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.07.1998, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Davíð Oddsson forsætisráð- NEI, NEI, bara nota litla skóflu, hr. Davíð, mundu eftir þenslunni í þjóðfélaginu. Athugun á öryggisbeltum í kjölfar bflveltu Snúningur hugsanleg ástæða þess að barn losnaði SJÓVÁ-Almennar hafa látið Iðn- tæknistofnun rannsaka öryggisbelti í jeppa sem valt í maí síðastliðnum en þá kastaðist bam úr honum þótt það sæti í viðurkenndum barnabíl- stól. Bíllinn var tryggður hjá fyrir- tækinu og kom fram í fréttum af slysinu að bíllinn hefði oltið áður og því kynnu bílbeltin að hafa verið ónýt. Af þessum sökum fengu Sjóvá- Almennar Iðntæknistofnun til að annast fyrrgreinda rannsókn. Voru rannsökuð tvö belti úr bílnum og þau borin saman við nýtt belti úr sams konar bíl, þ.e. bílstjórabeltið og beltið sem bamið var fest með. Var þetta gert til að sjá hversu mik- ið tvær bílveltur hafa á eiginleika beltanna og hvort ónýtt belti væri hugsanleg orsök óhappsins er bam- ið kastaðist úr stólnum. Iðntækni- stofnun kannaði hvort beltin rúlluð- ust eðlilega inn, hvort þau læstust eðlilega og togþolsprófaði þau. Nauðsynlegt að fólk kynni sér rétta notkun ör- yggisbúnaðar í frétt frá Sjóvá-Almennum segir að ekkert óeðlilegt hafí verið við beltin og ekki sjáanlegar á þeim skemmdir né áverkar. Þau hafi hins vegar verið nokkuð óhrein, sérstak- lega bílstjórabeltið þar sem yfir það vantaði hlíf. Gerðu óhreinindin það að verkum að beltin drógust ekki eins vel til baka og að meiri kraft hafi þurft til að læsa bílstjórabeltinu. Enginn munur hafi hins vegar verið á nýju belti og belti sem bamið var í. Beltið gekk ekki til baka Þá segir að við athugun hjá Sjó- vá-Almennum hafi komið í ljós að beltið sem festi bamð í stólinn hafi verið snúið og það ekki gengið til baka þegar það hafði verið leitt gegnum sylgju á stólnum. Því hafi lítið þurft til að barnið væri laust í stólnum og bamið gæti sjálft hafa togað í beltið og myndað meiri slaka þar sem beltið gekk ekki til baka. í framhaldi af þessu vekja Sjóvá- Almennar athygli á því að mikil- vægt er fyrir foreldra að kynna sér rétta notkun öryggisbúnaðar, hvemig böm séu rétt fest í bílstóla og að sjá verði til þess að beltin séu ekki snúin. „Ef bílbeltin em ekki rétt notuð eða nógu vel strekkt að bömum eða fullorðnum nýtast þau ekki eins og skyldi. Því hvetja Sjó- vá-Almennar til þess að fólk skoði vel beltin og lagi snúning á þeim. Ef þau dragast illa til baka er ekki óeðlilegt að þau séu orðin óhrein og að það þurfi að hreinsa þau,“ segir í niðurlagi fréttarinnar. Fyrir leikskóla og oarnaherbergi Litríkt úrval gluggatjaldaefna og stanga fyrir leikskóla og barnaherbergi. Leikskólarnir Hlíðarendi í Hafnarfirði og Arnarsmári og Dalur í Kópavogi hafa notfært sér gluggatjaldaþjón- ustu sérfræðings okkar við efnaval og uppsetningu. ÖgUe -búðirnar Halló Norðurlönd Upplýsingar fyrir alla Þrátt fyrir sameigin- legan vinnumarkað og vegabréfafrelsi er ekki alltaf auðvelt að flytj- ast búferlum á milli Norð- urlandanna. Lög og reglur em ólíkar og valda aðflutt- um oft verulegum vanda. Nú hefur vandinn verið leystur með símaþjónust- unni „Halló Norðurlönd". SigurKn Sveinbjarnar- dóttir, framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Islandi, tekur fram að allar skrifstof- ur Norrænu félaganna hafi upplýsingastarf með hönd- um. Að auki séu reknar 8 norrænar upplýsingaskrif- stofur og sé ein á Akureyri. Með Halló Norðurlönd sé ætlunin að gera upplýsinga- þjónustuna markvissari. „Fyrsta hugmyndin var að allar skrifstofur norrænu félaganna sæju um þjónustuna. Fallið var frá því og ákveðið að gera tilraun með að láta Norræna félagið í Svíþjóð sjá um þjónustuna með einu síma- númeri og póstfangi. Símanúmerið er 00 ef hringt er frá íslandi og svo er framhaldið 800 1111 8888 og er símtalið ókeypis. Hver og einn getur spurt á eigin tungumáli og fengið svar á sama tungumáli. Ef hringt er utan almenns skrifstofu- tíma tekur símsvari við erindinu og á að vera tryggt að erindinu sé svarað innan tveggja sólarhringja. Þótt þjónustunni hafi þegar verið hleypt af stokkunum er kynningin rétt að hefjast. Nú eru skrifstofurnar á hinum Norður- löndunum lokaðar og kröftugt kynningarátak hefst eftir 20. júlí nk. Prentaðir hafa verið bækling- ar, 25.000 á hverju tungumáli, og verður upplaginu dreift síðar í sumar. Bæklingamar eru afar handhægir eða á stærð við krítar- kort og komast auðveldlega fyrir í venjulegum seðlaveskjum." - Starfar Islendingar við síma- þjónustuna? „Enginn íslendingur starfar við símaþjónustuna heldur er sjálfur verkefnisstjórinn Maj Britt Imnander altalandi á ís- lensku. Maj Britt var forstjóri Norræna hússins á íslandi og lét sig ekki muna um að læra ís- lensku á þeim tíma. ------------ Annars get ég sagt frá því að við lögðum mikla áherslu á að íslending- um yrði svarað á ís- lensku enda eru hin Norðurlandatungumál- “““ in auðvitað erlend tungumál fyrir okkur Islendinga." - Nú er símaþjónustan tekin til starfa. Hvernig hefur hún reynst? „Símaþjónustan hefur reynst ágætlega og gaman að segja frá því að flest símtölin hafa verið frá Islendingum og Finnum. Eg get nefnt þér dæmi um hvemig hægt hefur verið að leysa vanda Norð- urlandabúa með þjónustunni. Norskir tónlistarmenn voru krafð- ir um tryggingu og tolla fyrir hljóðfærin á sænsku landamærun- um. Upphæðin var óheyrilega há enda hljóðfærin verðmæt. Nú voru góð ráð dýr og höfðu tónlistar- mennimir samband við upplýs- ingaþjónustuna. Skemmst er svo frá því að segja að innan sólar- hrings var búið að fella niður öll gjöldin og tónlistamiennirnir gátu óhindrað farið um landamærin." - Er fólk að kljást við mjög flókin vandamál við búferlaflutn- inga til annarra Norðurlanda? „Nei, ekki svo, enda hafa nor- rænu félögin unnið mikið starf til að auðvelda Norðurlandabúum að flytjast á milli landa. Ekki má Sigurlín Sveinbjarnardóttir ► Sigurlín Sveinbjarnardóttir framkvæmdastjóri Norræna félagsins er fædd á Höfða í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu 3. júlí árið 1947. Sigurlín lauk BA-gráðu frá HÍ í dönsku, sál- arfræði og uppeldisfræði árið 1980. Að því loknu stundaði hún nám í Danmörku og lauk kandídatsnámi í sömu grein- um árið 1984. Sigurlín var námsstjóri í menntamálaráðu- neytinu frá 1984 til 1991 og verkefnissljóri í Norræna hús- inu frá 1991 þar til hún stofn- aði Norræna skólasetrið á Hvalíjarðarströnd árið 1994. Sigurlfn var forstöðumaður þess til 1996. Sigurlín á þrjú börn. Sambýlismaður hennar er Gylfi Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi. Flest símtölin hafa verið frá íslendingum og Finnum heldur gleyma því að Norðuriönd- in era sama atvinnusvæðið. Mun auðveldara er því að flytjast til Norðurlandanna heldur en til annarra landa. Spurningarnar geta líka verið talsvert sérhæfðar og snúist t.d. um sérskóla af ákveðinni tegund.“ - Hvað hefur verið algengast að spurt sé um? „Eg veit ekki hvað algengast er að spurt sé um í Halló Norður- lönd. Aðeins að algengast er að hjá okkur sé leitað upplýsinga í tengslum við atvinnu, nám og þjónustu. Oft- ast tengjast spurning- arnar búferlaflutning- um til annarra Norður- landa. Annars hefur “ Norræna félagið fjöl- önnur verkefni á sinni t.d. sMptaverkefni fyrir Vinsældir Nordjobb morg könnu, ungt fólk. era alltaf jafn miklar og sækja mun fleiri ungmenni frá hinum Norðurlöndunum um að koma hingað en hægt er að taka á móti. Fleiri íslensk ungmenni fara til hinna Norðurlandanna. Nú ætlum við að nýta reynsluna frá norræna samstarfinu til að koma á ungmennasMptum á milli Vestur-íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum og Islendinga. Undirbúningurinn stendur yfir og er stefnt að því að kynningarbæk- lingur verði tilbúinn fyrir Islend- ingadaginn í byrjun ágúst. Vefsíða verður gerð til að kynna verkefnið og stefnt að því að hægt verði að taka á móti fyrstu ungmennunum hingað til lands næsta sumar. Með tímanum gæti þróunin svo orðið sú að íslensk ungmenni faii út. Annars er gaman að segja frá því hvað Norræna félagið hérna á Islandi er sterkt. Um 1% þjóðar- innar er í félaginu og 27 deildir eru um landið allt þar sem víða er öflugt vinabæjarsamband."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.