Morgunblaðið - 14.07.1998, Side 24

Morgunblaðið - 14.07.1998, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuters FRANCESCO Schiavone, höfuðpaur Napdlímafiunnar, var handtekinn af ítölsku lögreglunni eftir 13 stunda umsátur. Myndin sýnir tvo lögreglumenn leiða Schiavone á brott í handjárnum. 13 stunda umsátur ftölsku lögreglunnar Guðfaðir mafíunnar í Napólí handtekinn Róm.The Daily Telegraph. Stuðningsmenn Abiolas enn reiðir Annan harðlega gagn- rýndur Lagos. Reuters. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er nú orðinn að helzta skotspæni gagnrýni stuðn- ingsmanna Mos- hoods Abiolas, fyrrverandi leið- toga stjómarand- stöðunnar í Níger- íu, sem lézt í síð- ustu viku. Beinist gagnrýnin að þætti Annans í samn- ingaviðræðum um lausn Abiolas úr fangelsi. Annan ávann sér gremju stuðn- ingsmanna Abiolas með ummælum sem hann lét falla rétt áður en hann fór frá Nígeríu eftir að hafa átt við- ræður við Abiola í fangelsinu. Sagði Annan að Abiola hefði tjáð sér að hann „væri ekki svo einfaldur að hann héldi að hann gæti gengið út úr fangelsinu og sezt beint í forsetastól- inn“. Viku síðar andaðist Abiola úr hjartaáfalli meðan hann var að semja um skilmála lausnar sinnar við fulltrúa herforingjastjórnarinnar, að viðstaddri opinberri sendinefnd Bandaríkjanna. „Ég er vonsvikinn í garð Annans þar sem þau ummæli sem hann þótt- ist hafa eftir Abiola eiga sér enga stoð í raunveruleikanum," sagði Femi Falana, lögmaður mannrétt- indasamtaka í Nígeríu, við útfór Abiolas á laugardag. Síðan útfórin fór fram hafa leið- arahöfundar nígerískra dagblaða, sem flest eru gefín út í suðvestur- hluta landsins, sem er fjölmennastur og er heimahérað Abiolas, ráðist harkalega gegn Annan, en hann er ríkisborgari Ghana, nágrannaríkis Nígeríu í vestri. Vildi ekki falla frá tilkalli í stuttu handskrifuðu bréfí, sem Abiola stílaði á nánustu samstarfs- menn sína og gekk síðan á milli stuðningsmanna hans, er að finna mótsögn við þau orð sem Annan hafði eftir honum. Bréfið var birt í dagblöðunum, en í því hafnar Abiola því að hann væri tilbúinn til að falla frá tilkalli tfl forsetaembættisins í skiptum fyrir frelsi. „Lausn á þessum forsendum væri versta form uppgjafar," segir í bréf- inu. Allt að 60 manns létu lífið í óeirð- um, sem fylgdu í kjölfar fréttarinnar af andláti Abiolas, en stuðningsmenn héldu því fram að hann hefði verið myrtur. Óeirðimar fjöruðu út eftir að erlendir sérfræðingar, sem krufu lík Abiolas, komust að þeirri niður- stöðu að hann hefði hlotið náttúru- legan dauðdaga. EVRÓPUSAMBANDIÐ ákvað í gær að Alexander Lúkasjenkó, for- seta Hvíta-Rússlands, og ríkisstjórn hans yrði neitað um vegabréfsáritun til aðildarlanda ESB. Þessi aðgerð, sem utanríkisráðherrar sambands- ins samþykktu á fundi sínum í Brus- sel í gær, er svar við ótilhlýðilegri framkomu hvít-rússneskra stjórn- valda í garð sendiherra ESB-ríkj- anna þar í landi. ísland á aðild að yfirlýsingu Evr- ópusambandsins ásamt Noregi og nokkrum Austur-Evrópuríkjum, sem sótt hafa um aðild að sambandinu. ÍTALSKA lögreglan handtók Francesco Schiavone, gudfoður Camorra-mafíunnar í Napólí, á laugardag að loknu 13 klukku- stunda umsátri á landareign hans. Schiavone, sem er grunaður um að hafa fyrirskipað tugi morða undan- farinn áratug, hefur verið á flótta undan réttvísinni í 5 ár. Fjörutíu manna sérsveit ítölsku lögreglunnar notaði loftbor til þess að brjóta sér leið inn í fylgsni guð- fóðurins, þar sem hann leyndist ásamt eiginkonu og tveimur ungum bömum. En Schiavone gafst upp og lauk upp byrginu áður en lögregl- unni tókst að brjóta niður vegginn. Mflanó. Reuters. SILVIO Berlusconi, ítalski millj- arðamæringurinn og fyrrverandi forsætisráðherra, var dæmdur í gær í tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir ólögleg fjárframlög tfl stjórnmálaflokks. Hefur hann þá verið dæmdur alls þrisvar til fang- elsisvistar vegna spillingar og fleiri dómar væntanlegir en þrátt fyrir það er ólíklegt, að hann fari í fang- elsi. Halldór Ásgrímsson utanrfldsráð- herra sagði í samtali við Morgunblað- ið að þar sem ísland ætti aðild að yf- irlýsingunni gerði hann ráð fyrir að framkvæmdin hér yrði sú sama og í ríkjum ESB og Lúkasjenkó gæti ekki fengið vegabréfsáritun til íslands. I síðasta mánuði kölluðu fimm ESB-ríki, Bandaríkin og Japan sendiherra sína í Hvíta-Rússlandi heim eftir að skrúfað var fyrir vatn og síma í sendiherrabústöðunum og aðgangi að þeim lokað, en þeir eru í Drozdy-hverfinu svokallaða í höfuð- borginni Minsk, þar sem forsetinn Lögreglunni hafði tekist að festa miðunartæki undir bifreið eigin- konu Schiavones og fylgst með ferð- um hennar í gegnum gervitungl í einn mánuð áður en látið var til skarar skríða um helgina. Eftir nokkra leit á landareign mafíósans kom lögreglan auga á viðbyggingu og þar reyndist fjölskyldan vera í felum. Veggir brotnir Ekki tókst að svæla fólkið út með táragasi og var gripið til þess ráðs að berja niður veggi byggingarinn- ar. Þegar börnin bærðu á sér gat lögreglan svo staðsett fjölskylduna Samt er ólíklegt að hann fari í fangelsi Berlusconi var ekki viðstaddur þegar dómurinn var kveðinn upp en hann var dæmdur fyrir að hafa átt þátt í að færa um 864 mflljónir ísl. kr. inn á reikninga Bettinos Craxis, hefur líka eitt af aðsetrum sínum. Réttlættu hvít-rússnesk yfirvöld að- gerðirnar með því að gera þyrfti við pípulagnir í húsum sendiherranna. Sendiherra Búlgaríu í Minsk, Marko Ganchev, tjáði Reuters- fréttastofunni í liðinni viku að ætlun Lúkasjenkós væri að úthluta dygg- um aðstoðarmönnum sínum bústöð- um sendiherranna. Utanríkisráðuneyti Hvíta-Rúss- lands brást við ákvörðun ESB-ráð- herranna með því að gefa út yfirlýs- ingu, þar sem Jafnvel enn harðari aðgerðum" er hótað. nákvæmlega og leið þá ekki á löngu áður en Schiavone gafst upp. Að sögn lögreglunnar var byrgi guðföðurins stórt, á þremur kjall- arahæðum og vel tækjum búið, t.d. með nuddpotti í baðherberginu. Schiavone er sagður hafa grætt tugi milljarða íslenskra króna á vafasömum viðskiptum, m.a. vegna verkefna sem tengjast hraðbraut- inni milli Napólí og Rómar og end- umýjun fráveituskurða í nágrenni Napólíborgar. Því verkefni var aldrei sinnt og er það talið hafa valdið miklum aurskriðum sem urðu hundruðum manna að fjörtjóni fyrr á þessu ári. fyrrverandi forsætisráðherra, og sósíalistaflokks hans snemma á þess- um áratug. Berlusconi var dæmdur í nærri þriggja ára fangelsi í síðustu viku fyrir að múta skatteftirlitsmönnum og í desember sl. fékk hann 16 mán- aða dóm fyrir falsað bókhald. Þrátt fyrir það er ekki sennflegt, að hann þurfi að sitja af sér einn einasta dag. Jafnvel þótt áfrýjunarréttur kæmist að sömu niðurstöðu eftir dúk og disk, þá er Berlusconi stjómmálamaður og nýtur þess vegna friðhelgi. Aðrir sakborningar í All-Iberian- málinu, sem var kallað svo eftir fyr- irtækinu, sem notað var til að færa féð á mflli, voru 10, þar á meðal Craxi, sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Hann er nú í felum í Túnis. Var hann að auki dæmdur til að greiða nærri 800 millj. ísl. kr. í sekt og Berlusconi um 400 millj. kr. Sex eða sjö mál bíða Berlusconi hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu í þessum málum en í október hefjast réttarhöld í enn alvarlegra máli gegn honum en það snýst um bókhaldssvik. Þar fyrir ut- an bíða fimm mál um skattsvik og spillingu og hann hefur jafnframt verið ákærður á Spáni fyrir skatt- svik. Berlusconi er nú leiðtogi Frelsis- bandalagsins og hann var forsætis- ráðherra um sjö mánaða skeið 1994. Usbekar ekki var- aðir við flóðum 93 HAFA drukknað og 14 þús- und manns verið flutt á brott vegna flóða í austurhluta Ús- bekistans í héraði sem liggur að landamærum Kýrgystan. Flóðin komu Úsbekum í opna skjöldu en Kýrgysir höfðu ekki varað granna sína við flóðum í Shakhimardan-ánni sem renn- ur yfir landamæri ríkjanna tveggja. Kýrgystan kennir fjárskorti um sambandsleysi á milli veðurfræðinga. * Utbreiðsla léttra vopna rædd FULLTRÚAR 20 ríkja komu til fundar í Osló í gær til að ræða takmörkun á útbreiðslu handbyssna og annarra léttra vopna. Fundinum er ætlað að leggja grunn að samvinnu rík- isstjóma um allan heim í þess- um efnum. Aaslaug Haga, varautanríkisráðherra Noregs, sagði við upphaf fundarins að miklu máli skipti að ríkin fyndu raunhæfar lausnir til að stemma stigu við notkun léttra vopna. Fómarlömb vopna af þessu tagi eru í 90% tilvika óbreyttir borgarar og undan- tekningalítið konur og börn. Flugskeyti til Kýpur RAUF Denktash, leiðtogi Kýpur-Tyrkja, segir fyrirætl- an Kýpur-Grikkja um að koma rússneskum flugskeytum fyrir á eynni kalla á viðbrögð Tyrkja, en Rússar hafa sam- þykkt að útvega ríldsstjórn Kýpur loftvarnarbyssur af gerðinni S-300. Vopnakaup Kýpurstjórnar hafa kallað fram hörð viðbrögð Kýpur- Tyrkja, sem hafa ráðið um þriðjungi Kýpur frá því að Tyrkir réðust inn í eyjuna árið 1974. Fernt ferst í flugslysi TVENN þýsk hjón drakknuðu og einn komst lífs af er sjóflug- vél fórst í lendingu á Geirang- ursfirði í Noregi á laugardags- kvöld. Að sögn sjónarvotta skall vélin tvisvar á vatnsflet- inum í lendingu og hvolfdi svo í sjóinn. Flugmaður vélarinnar slapp út en farþegarnir vom allir látnir þegar þeir náðust úr vélinni 45 mínútum síðar. 12 skóla- börn myrt SKÆRULIÐAR myrtu 12 grannskólabörn í skólastofu í bænum Mabanda í suðurhluta Búrúndí. Félagar í Þjóðvarn- arráði lýðræðisins, sem era sagðir hafa verið að verki, myrtu bömin með byssum, kylfum og hnífum. Ráðgert er að vopnahlé ríkisstjórnarinnar og þriggja skæruliðahópa gangi í gildi 20. júlí nk. Rúm- lega 150 þús. manns hafa týnt lífi í vargöldinni sem ríkt hefur í Búrándí frá 1993 þegar fyrsti lýðræðislega kosni forseti landsins var ráðinn af dögum. Deila ESB við stjórn Hvíta-Rússlands Neitað um áritun Brussel. Reuters. Enn einn dómurinn yfir Berlusconi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.