Morgunblaðið - 14.07.1998, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 14.07.1998, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 43 Hrafnista Reykjavík Hjúkrunarfræðingar — sjúkraliðar Hjúkrunarfræðinga bráðvantar á næturvaktir í júlí og ágúst. Greidd er grunnröðun sam- kvæmt Ifl. 213 fyrir næturvaktir. Hjúkrunarfræð- inga vantar einnig á helgar- og kvöldvaktir. Stöður sjúkraliða eru lausar í sumar og einnig fastar stöður í haust. Starfsfólkvantartil aðhlynningar ýmist í hlutastörf tímabundið og í fulla vinnu. Upplýsingar veitir Þórunn A. Sveinbjarnar í síma 568 9500 eða 553 5262. Störf hjá sjónvarpinu Starf dagskrárklippara á tæknideild Sjón- varpsins er laust til umsóknar. Menntun eða starfsreynsla í sjónvarpstækni eða rafeindavirkjun er nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. og ber að skila umsóknumtil Sjónvarpsins, Laugavegi 176, eða Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, á eyðu- blöðum sem fást á báðum stöðum. Landslagsarkitekt óskar eftir hlutastarfi eða einstökum verkefn- um. Áhugasamir leggi nafn og símanúmer á afgreiðslu Mbl. merkt: „S — 5321" fyrir 17. júlí nk. Fullum trúnaði heitið. Verslunarstarf Vantar ábyggilegan starfskraft í sérverslun í 40—50% starf. Sendið umsókn til afgreiðslu Mbl. fyrir 18. júlí merkta: „Sérverslun — 17273". RAÐAUGLVSIIMGAR KENNSLA TILKYNNINGAR Auglýsing um námskeið og próf vegna löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefurfalið prófnefnd löggiltra fasteignasala að efna til námskeiðsfyrir þá sem vilja öðlast löggildinu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasalar sam- kvæmt lögum nr. 54/1997 og reglugerð nr. 519 24. nóvember 1987, sbr. reglugerð nr. 88/1997. Hefur prófnefnd ákveðið að gefa þeim sem vilja gangast undir slíkt próf kost á undirbún- ingsnámskeiði sem áætlað er að hefjist í októ- ber nk. Samkvæmt reglugerðinni skal prófið og undirbúningsnámskeið skiptast í þrjá hluta og tekur hver hluti námskeiðsins eitt misseri. Námskeiðið verður því aðeins haldið að næg þátttaka fáist. Kostnaður vegna námskeiða og prófa greiðist með kennslu- og prófgjöld- um. Fjárhæð gjalda hefur ekki verið ákveðin en hún ræðst af fjölda þátttakenda á námskeið- inu. Þeir sem hyggjast taka þátt í námskeiðinu og/eða gangast undir próf, skulu fyrir 1. sept- ember nk., bréflega tilkynna þátttöku sína til fulltrúa prófnefndar Eyvindar Gunnarssonar, Logalandi 21,108 Reykjavík. Innritunargjald, kr. 15.000,- skal senda með tilkynningunni, en gjaldið er endurkræft, ef ekki verður af nám- skeiðshaldi eða ef tilkynnandi fellurfrá þátt- töku, áðuren I. hluti námskeiðsins hefst. Nán- ari upplýsingarumtilhögun námskeiðsins veit- ir Eyvindur Gunnarsson, lögfræðingur, í síma 560 4924. Reykjavík 10. júlí 1998. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. TIL SÖLU Til sölu bókhaldsstofa og fasteignasala á Norður- landi í fullum rekstri ásamt góðu einbýlishúsi. Skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu gætu komið til greina. Upplýsingar í síma 451 2600 á skrifstofutíma. | Sumarbústaðalóðir Sumarbústaðalóðir í Fremri-Grafningi á skipu- lögðu afmörkuðu svæði. Vegur og vatn við lóðarmörk. Upplýsingar í s. 553 5626, 588 6897,486 8886 og 551 1514. ! Innréttingar og húsgögn I til sölu Vegna breytinga á rekstri eru til sölu skemmti- legar innréttingar. Hringlagað afgreiðsluborð með vaski, innbyggður kæliskápur með gler- hillum og sýningarglerskápur, 4 stök af- greiðsluborð og 3 sérsmíðuð skrifborð með skemmtilegum skilrúmum, 20 skrifborðsstólar, armlausir, og 8 með örmum og ýmislegtfleira. Xnet,1 Nóatúni 17, 1 sími 562 6000. HAFNARFJARÐARBÆR Framkvæmda- og tæknisvið Lausar kennslustofur Hafnarfjarðarbær auglýsir til sölu og flutnings þrjár lausar kennslustofur, sem staðsettar eru við Flatahraun í Hafnarfirði. Stærðir: Tvær stofur 52,4 m2. Ein stofa 88,4 m2. Tilboðum skal skila á skrifstofu framkvæmda- og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, Hafnarfirði, sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar. Afgreiðslutími kl. 9.30—15.30 virka daga. Upplýsingar í síma 555 3444 kl. 8.00—16.00. Veitinga- og gistiheimili Til sölu er veitingareksturog gistiheimili á Snæfellsnesi. Um er að ræða vel staðsett og snyrtilegt ca 1.140 fm húsnæði. Gistirými skipt- ist í 23tveggja manna herbergi, 2 fjögurra manna herbergi og 3ja herbergja íbúð. Veit- inga- og fundaraðstaða er fyrir allt að 150 manns og má skipta henni upp með ýmsu móti. Eldhús er vel tækjum búið, með góðri vinnuaðstöðu og önnur veitingaaðstaða er til fyrirmyndar. Allt lausafé til rekstrarins er fyrir hendi. Veitinga- og gistiheimilið hefur verið rekið allt árið. Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörn Þorbergs- son hdl., Ingólfsstræti 3, Reykjavík, s. 552 7500, fax 552 7501. TILBOÐ/UTBOÐ »> Útboð 11135 — Geislahermir fyrir Landspítala Ríkiskaup fyrir hönd Landspítala óska eftir tilboðum í geislahermi. Útboðsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 1.500,- hjá Ríkiskaup- um, Borgartúni 7,105 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað 26. ágúst 1998 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. RÍKISKAUP Úfboð s k i I a á r a n g r i I BORGARTUNI 7, 105 REYKJAVÍK SlMI 552-6844, B r é f a s í m i 562-6739-Netfang: rikiskoup@rikiskaup.is HÚSNÆOI ÓSKAST íbúð óskast AFA JCDeuaux ísland ehf. óskar eftir stórri og góðri íbúð með að minnsta kosti tveimur svefnherbergjum, til langtímaleigu fyrirfram- kvæmdastjóra sinn sem fyrst. Æskileg staðsetning er miðsvæðis í Reykjavík eða á Seltjarnarnesi. Upplýsingar í síma 562 4243 á skrifstofutíma. Tillaga að breytingu á Svæðisskipulagi Þingvalla- Grímsnes- og Grafnings- hreppa 1995-2015 Hreppsnefnd Þingvallahrepps auglýsir skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á Svæðisskipu- lagi Þingvalla-, Grímsnes- og Grafningshreppa 1995—2015. Gerð ertillaga um breytta legu Þingvallavegar nr. 36 frá Steingrímsstöð að þjóðgarðsmörkum, sbr. frummat á umhverfis- áhrifum og úrskurð skipulagsstjóra ríkisins frá 22. apríl 1998. Sveitarstjórn tekur að sér að bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna. Tillagan hefur verið kynnt sveitarstjórn Grímsnes-Grafnings- hrepps. Tillagan hefur einnig verið send Skipu- lagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráð- herra um lokaafgreiðslu. Hreppsnefnd Þingvallahrepps. Stofnfundur Íslandssíldar hf. verður haldinn að Hvammi, Grand Hóteli í Reykjavík þann 21. júlí nk. kl. 14:00. Stofnsamn- ingur, áskriftarskrá, samþykktir og sérfræði- skýrsla, þ.m.t. efnahags- og rekstrarreikningar síldarútvegsnefndar síðastliðin tvö reikningsár, mat sérskipaðrar matsnefndar á eignum og skuldum síldarútvegsnefndar og drög að upp- hafsefnahagsreikningi Íslandssíldar hf., verða til kynningar í sjávarútvegsráðuneytinu, Skú- lagötu 4, 6. hæð, Reykjavík, frá 14. til 20.júlí 1998. Sjávarútvegsráðuneytið. SMÁAUGLÝSIMGAR FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Miðvikudagur 15. júlí. Kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð eða til lengri dvalar. Kl. 20.00 Búrfellsgjá. Létt kvöldganga. Helgarferðir: 1. 17.-19. júlí. Þórsmörk- Langidalur. 2. 17.-19. júlí. Leitin að strandavíðinum. 3. 17.-19. júlí. Landmanna- laugar - Skælingar - Eldgjó. 4. 18.-19. júlí. Fimmvörðu- háls - Þórsmörk. Uppl. og farm. á skrifst. að Mörkinni 6. Dagsferð laugardag 18/7. Kl. 8.00 Þórisdalur - Presta- hnúkur. Sunnudagur 19/7: Dagsferðir kl. 8.00 í Land- mannalaugar og Þórsmörk. Gönguferð kl. 10.30 Akrafjall (ekið um Hvalf jarðargöng). STVRKVB UflíGA FÓI.KSINS Styrkur unga fólksins „Lækningar og kraftaverk" fyrir kynslóðina í dag í Loftkastal- anum, Seljavegi 2, Rvk. Þri. 14. júlí kl. 20. Billy Joe og Sharon Daugherty. Mið. 15. júlí kl. 20. Billy Joe og Sharon Daugherty. Fim. 16. júli kl. 20. Peter Youngren. Fös. 17. júlí kl. 20. Peter Youngren. Lau. 18. júlí kl. 20. Richard Perinchief. Sun. 19. júlí kl. 20. Richard Perinchief. Einnig föstudag og laugardag kl. 24—04 trúboð frá Kaffi Gen-x í Grófinni 1. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.