Morgunblaðið - 14.07.1998, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
RAGNAROK
HifÍfSs
tivaða óskarsverðlaunamynd
lék Ben Affleck?
HELLUR OG STEINAR
/Á HAGJ5TÆÐU VERél'
fákon Bjaína^n
arðyrkjuttieKtan^i
fáglega rá^gjöf újr
Laíldsfejlgðarþi
nusta
GNHÖFÐA 17/1 í 2 REYKJA'
ÍML&$7 2222/íftX 587 222
HELLUSTEYPA
CASA MIA
Fallegt, vandað og ítalskt.
Casa Mia matardiskur kr. 540,-
Casa Mia súpudiskur kr. 510,-
Casa Mia kaffibolli m/undirskál kr. 790,-
Casa Mia kökudiskur kr. 490,-
Casa Mia undirdiskur kr. 1.260,-
Casa Mia salatskál kr. 1.370,-
Casa Mia skál kr. 460,-
Casa Mia rjómakanna kr. 660,-
Casa Mia sykurskál kr. 1.490,-
Casa Mia teketill kr. 2.190,-
Casa Mia krúsir kr. 440,-
Casa Mia fat kr. 2.330,-
Casa Mia er matarstell úr sérhertu
postulíni sem endist vel og þolir bæði
uppþvottavél og örbylgjuofti.
Opið mánudaga
til fimmtudaga 9-18
Föstudaga 9-19
Laugardaga 10-16
Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 510 8020
Bíldshöfða
í DAG
VELVAK4NDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fóstudags
Hvað áttu bréf
leigj endasamtak-
anna að þýða?
EG er leigjandi hjá Fé-
lagsbústöðum og hef mikið
og lengi hugsað um það
hvers vegna formaður
Leigjendasamtakanna,
Jón frá Pálmholti, sendi
öllum leigjendum Félags-
bústaða ítrekað bréf þess
efnis að húsaleigu ætti að
hækka um helming í sum-
ar og mörgum yrði jafnvel
vísað út. Þetta hefur ekki
reynst rétt. Margir fundir
voru boðaðir en ég fór
aldrei á neinn, og sé ekki
eftir því.
Mér brá auðvitað við
fyrsta bréfið en sá svo að
þetta gæti ekki staðist.
Mér er vel kunnugt um
það að margur var mjög
kvíðinn vegna þessara
bréfa en það er margt
aldrað og lasburða fólk í
þessum íbúðum og er ekki
gott að hafa mikinn kvíða
ofan í veikindi og háan ald-
ur.
Mér kemur spánskt fyr-
ir sjónir að þetta gerist á
þeim tíma þegar kosningar
eru í nánd. Ef ég skil
stefnu Húmanista rétt þá
hefúr hún manninn í önd-
vegi, en þetta virðist mér
ekki vera í þeim anda.
080242-4419. Leigjandi
við Yrsufell 1.
Sóðaleg
strætisvagnaskýli
LESANDI vill koma á
framfæri óánægju sinni
vegna sóðasakapar í stræt-
isvagnaskýlunum. Hann
vill benda á að skapa mætti
ungu fólki atvinnu við að
halda skýlunum hreinum.
Borgari.
Góð aðhlynning
á slysadeild
Akureyrarspítala
MIG langar til að koma á
framfæri innilegu þakklæti
til starfsfólks slysadeildar
Akureyrarspítala fyrir frá-
bæra þjónustu í síðustu
viku. En þá varð ég fyrir
því óhappi að handleggs-
brotna illa. Eg var á ferða-
lagi þegar þetta gerðist og
átti eftir vikudvöl í Eyja-
firðinum. Sú frábæra að-
hlynning og leiðbeiningar
sem ég fékk urðu til þess
að ég gat lokið sumarfríinu
fyrir norðan. Sérstakar
þakkir vil ég færa læknun-
um Olafi Ingimarssyni og
Jóni Ingvari Ragnarssyni
og Línu Gunnarsdóttur.
Megi guð blessa þau í lífi
og starfi.
Áróra Helgadóttir.
Ábending til
Húsdýragarðsins
UTAN á öllum búrum í
Húsdýragarðinum eru all-
ar upplýsingar á íslensku.
Þangað kemur fjöldi út-
lendinga og er það baga-
legt að hafa ekld upplýs-
ingar á fleiri tungumálum.
Einnig er mögulegt að
hafa í miðasölunni ljósrit
af upplýsingum á nokkrum
tungumálum, þá þurftu
þeir ekki að merkja utaná
húsin. Einnig voru þrjú
ker með fiskum algjörlega
ómerkt og ætti að kippa
því í lag hið snarasta.
Heiðrún Sveinsdóttir.
Tapað/fundið
Úr tapaðist
í miðbænum
GULLÚR með svartri
leðuról, Gucci, tapaðist í
fyrradag í miðbænum.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 557 3286.
Gleraugu í óskOum
í Álafossi
KVENGLERAUGU eru í
óskilum í Álafossi, verk-
smiðjusölu í Mosfellsbæ.
Upplýsingar í síma
566 6303.
Dýrahald
Kisa týnd
BLÍÐLYND, falleg eins
árs kisa - svört og hvít -
týndist frá Hagamel í
Reykjavík sl. föstudag.
Hálsband kisu kann að
hafa týnst. Ef einhver hef-
ur. orðið var við kisu er sá
hinn sami vinsamlegast
beðinn að hringja í síma
552 5977.
SKAK
IJmsjón Margeir
Pétnrsson
Staðan kom upp á Politiken
Cup mótinu sem nú stendur
y&- í Kaupmannahöfn.
Hannes Hlffar Stefánsson
(2.535) hafði hvítt og átti
leik gegn Dananum Nikolaj
Borge (2.400). Borge hafði
staðið vel að vígi fyrr í skák-
inni og hugðist nú tryggja
sér sigur með drottningar-
fóm, lék síðast 23. - Rd5-f4
með 24. Dxb3?? - Rh5 mát í
huga. En málið var ekki svo
einfalt: 24. Be7+! (Tryggir
kóngnum útgönguleið á h4)
24. - Kxe7 25. Dxb3 -
Rh5+ 26. Kh4 - Bd8 27.
Hdl og Borge gafst upp. Að
loknum átta umferðum á
mótinu var Daninn Lars
Schandorff efstur með sjö
vinninga, en Hannes Hlífar,
Peter-Heine Nielsen, Dan-
mörku og Luke McShane,
Englandi voru næstir með
sex og hálfan vinning. Staða
annarra íslendinga: Þröstur
Þórhallsson og Kristján
Eðvarðsson 5 v., Davíð
Kjartansson, Þorvarður F.
Olafsson og Guðjón H. Val-
garðsson 4(4 v., Sigurður
Páll Steindórs-
son 4 v., Stefán
Kristjánsson,
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir,
Hjalti Rúnar
Ómarsson,
Sveinn Þ. Wil-
helmsson og
Ómar Þ.
Ómarsson 3(4
v., Andri Krist-
insson 3 v.,
Ólafur Kjart-
ansson og
Guðni Stefán
Pétursson 2(4 HVÍTTJR leikur og vinnur
v. og Guð-
mundur Kjartansson 1(4 v.
Víkveiji skrifar...
TIL allrar hamingju er fótbolta-
keppninni í Frakklandi loksins
lokið og sjónvarpsáhorfendum verð-
ur væntanlega ekki íþyngt með
öðru eins á næstunni. Það eru úrelt
og gamaldags vinnubrögð hjá RÚV
að senda þessa fótboltaleiki út á að-
alrás sinni. Sjónvarpið á auðvitað að
senda þetta efni út á annarri rás og
þá hafa báðir aðilar frið hvor fyrir
öðrum, þeir sem vilja sitja klukku-
tímum saman fyrir framan sjón-
varpið til þess að horfa á fótbolta og
hinir, sem hafa engan áhuga á því.
Þeir eru um 75% landsmanna eins
og komið hefur fram í skoðanakönn-
unum.
xxx
Iathugasemd, sem Ingólfur Hann-
esson hjá íþróttadeild RÚV sendi
Víkverja og birtist hér sl. miðviku-
dag, er vöm hans sú, að 26% lands-
manna séu töluverður fjöldi en það
er sá hópur, sem horfði á þessa
leiki. Það er rétt, að þetta er tölu-
verður hópur en hinir eru margfalt
fleiri, sem vilja ekki sjá þetta efni.
Hvers eiga þeir að gjalda? Vafa-
laust hefur áskrifendum Stöðvar 2
fjölgað umtalsvert á meðan á þess-
um ósköpum stóð.
Þá vísar Ingólfur Hannesson til
þess, að í könnun, sem RÚV hafi
gert 1990, hafi 55% aðspurðra sagt
að það væri í lagi að fresta öðrum
þáttum t.d. fréttum vegna íþrótta-
móta og 1992 hafi talan í sambæri-
legri könnun verið 77%. I fyrra
skiptið hafí 30% verið andvíg en í
seinna skiptið 20%.
Gerir Ingólfur Hannesson sér
grein fyrir því, að í fyrra skiptið
lýstu um 75 þúsund manns sig and-
víga þessu háttalagi RÚV og í
seinna skiptið um 50 þúsund
manns? Telur RÚV sjálfsagt að
hundsa eindregna afstöðu þessa
mikla fjölda?
xxx
ANNARS ætti RÚV kannski að
hafa áhyggjur af því að fólki sé
alveg sama, þótt það missi af frétt-
um RÚV. Nýjar kannanir í Banda-
ríkjunum benda til þess, að þeim
fækki stöðugt sem vilja binda sig
fyrir framan sjónvarp á ákveðnum
tímum dagsins og vilji heldur leita
frétta annars staðar á þeim tíma,
þegar þeim hentar en það er mögu-
leiki, sem t.d. fréttavefur Morgun-
blaðsins býður upp á.
Hins vegar skal það viðurkennt, að
sjónvarpsáhorfendur nutu að einu
leyti góðs af fótboltakeppninni miklu
í Frakklandi en það var þegar tenór-
amir þrír komu fram og sungu með
þeim glæsibrag, sem þeim einum er
gefinn. Sem fyrr er Pavarotti þeirra
fremstur. Á því leikur enginn vafi.
Það verður erfitt fyrir aðra þrjá ten-
óra að feta í fótspor þessara manna.
xxx
NÚ ER þar komið í athyglisverð-
um umræðum Víkverja og Kri-
stjáns G. Amgrímssonar, blaða-
manns á Morgunblaðinu, um heil-
brigðiskerfið, að hinn síðamefndi tal-
ar ekki lengur um misrétti, ef einka-
rekinn valkostur væri til staðar held-
ur segir hann í pistli sínum hér í blað-
inu sl. laugardag: „Viðhorf Víkveija
Morgunblaðsins virðist fela í sér að
hagkvæmni skuli teljast lykilatriði,
þegar metið er hvað er gott heil-
brigðiskerfi. Þetta vekur hins vegar
þá spumingu, hvort hagkvæmnin ýti
þá ekki sanngirni til hliðar.“
Og í lok pistilsins segir höfundur:
„Þess vegna væri ráðlegra að auka
skilvirkni heilsugæzlunnar með
fjármunum úr sameiginlegum sjóð-
um, sem við getum öil sótt í. Það er
sanngjamara heldur en að þeir,
sem em svo heppnir að eiga pen-
inga eða efnaða ættingja létti á
kostnaði hins opinbera gegn því að
fá að fara fremst í röðina."
xxx
AF ÞESSU tilefni má spyrja:
Hvaða sanngirni er í því fólgin
að meina fólki að leita sér lækninga,
þar sem þess er kostur? Segjum
sem svo, að heilbrigðiskerfið á Is-
landi væri með eindæmum illa rek-
ið. Hvaða sanngirni væri fólgin í því
að banna fólki að leita sér aðstoðar
annars staðar? Væri það ekki bein-
línis ósanngjarnt?
Svo má einnig spyrja: er það
sanngjarnt af blaðamanninum að
gefa í skyn í lokaorðum sínum, að
Víkverji hafi mælt með því að fólk
gæti keypt sig fremst í röðina? Þeg-
ar það er þvert á móti staðreynd, að
Víkverji hefur mælt með því að fólk
geti yfirgefið röðina og leitað ann-
arra ráða. Hvaða sanngirni er í
svona útúrsnúningum í annars mál-
efnalegum skoðanaskiptum?