Morgunblaðið - 14.07.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 14.07.1998, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 föstudag 17. júll kl. 20 • laugardag 18. júlí kl. 20 • föstudag 24. júlí kl. 20 • laugardag 25. júlí kl. 20 Miðasala sími 551 1475. Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar. ÞJONN í súpunni ‘<mnr i WFBreyi'ii ffarBm' rtatmns-'— fim 16/7 Frumsýning UPPSELT lau 18/7 UPPSELT sun 19/7 UPPSELT fim 23/7 UPPSELT fös 24/7 UPPSELT lau 25/7 UPPSELT sun 26/7 örfá sæti laus Sýningamar hefjast kl. 20.00 Miðasabopinkl. 12-18 Ósóttar pantanir seldar daglega Miöasölusími: 5 30 30 30 fim. 16/7 kl. 21 lau. 18/7 kl. 23 Miðaverð kr. 1100 fyrir karla kr. 1300 fýrir konur Vörðufélagar Lf f« 30% afslátt Sýnt f Islensku Óperunni Miðasölusimi 551 1475 Gamanleikrit f leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar www.mbl.is SUMARTÓNLEIKARÖÐ KAFFILEIKHÚSSINS „Sígild popplög" Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur perlur úr poppinu fim. 16/7 kl. 21.00, laus sæti. „Megasukk í Kaffileikhúsinu" Hinn eini sanni Megas á tónleikum með Súkkat fös. 17/7 kl. 22 til 2, laus sæti. ^ Matseðill sumartónleika N Indverskur grænmetisréttur að hætti Lindu, borinn fram með ristuðum furu- hnetum og fersku grænmeti og I eftirrétt: ^ „Óvænt endalok". y Miðas. opin alla virka daga kl. 15—18. Miðap. allan sólarhringinn í s.551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is ftW&yv Brúðhjón Allur borðbilnaður - Glæsileg gjdfdVdra - Briiöhjónalistar verslunin Lnugavegi 52, s. 562 4244. FÓLK í FRÉTTUM Ofurhugar í nautahlaupi í Pamplona „ÞETTA er það mest spennandi sem hægt er að upplifa," segir welski verslunarmaðurinn Noel Chandler sem hefur tekið þátt í nautahlaupinu í Pamplona í rúm- lega 40 ár. Hann hefur ósjaidan verið troðinn undir fótum naut- anna, en þau vega hálft tonn, og einu sinni fengið skrámu eftir að horn hafði strokist við hann. Þessi 63 ára spennufíkill tekur enn þátt í hlaupinu. Hann er einn af þúsundum áhugamanna um nautaat sem fara til þessarar norðlægu svefnborgar á Spáni sem vaknar af værum blundi í júlí þegar mannýgum nautum er sleppt á götur bæjarins og hlaupa 825 metra á eftir skelf- ingu lostnum þátttakendum. Há- tíðin er talin síðan árið 1591 þeg- ar þessari aðferð var beitt til þess að koma nautunum úr gripahúsunum á leikvanginn. Það var ekki fyrr en á 17. öld að fyrstu ofurhugarnir öttu kappi við nautin. Ungur Breti slasaðist illa á föstudag þegar þegar hann var stangaður af einu nautanna. Líð- an hans var þokkaleg á gjör- gæsludeild á spítala í Pamplona þegar síðast fréttist. Hagger var einn af hundruðum manna sem hljóp á undan hjörð nauta á sjötta degi San Fermin-hátíðar- haldanna í Pamplona. Rúm- lega 50 manns hlutu minni- háttar meiðsli í hlaupinu sem stóð í um þrjár mínút- ur, aðallega eftir að hafa dottið eða rekist á aðra hlaupara. Enginn var stangaður í hlaupinu sjálfu. Eftir að komið var á leikvanginn var nokkrum ungnautum sleppt inn í manníjöld- ann og varð Hagger fyrir einu þeirra. Það stakk hornunum í síðu hans og kastaði honum upp í loftið. Síðan stakk það hann öðru sinni þar sem hann lá á jörðinni og kastaði honum nokkra metra. Lá hann blóðugur og meðvitund- arlaus á miðjum leikvanginum. Mannfjöldinn tvístraðist en sjúkraliðar sóttu hann og fóru með hann í skurðaðgerð á OFURHUGAR hlaupa á eftir mannýgum nautum í „encierro" eða nautahlaupi í San Fermin-hátíðarhöldunum í Pamplona. TVEIR menn hlaupa með sex nautum eftir Estefeta-götunni í Pamp- lona. Nautin eru drepin á nautaati um kvöldið. SPÆNSKI nautabaninn Miguel Rodriguez framkvæmir „larga cambiada" í upphafi nauta- ats. Hann gerir það á hnjánum sem er talið rnjög hættulegt þar sem það er fyrsta atlaga nautaban- ans að nautinu. Nautið er frá Edu- ardo Miura-búgarðinum og vegur 570 kíló. sjúkrastofu leikvangsins. Síðan var hann fluttur á spítala með alvarleg meiðsi á baki og hrygg, en ekki fengust nákvæmar upplýsingar um líðan hans. Þúsundir útlendinga taka árlega þátt í hátíðarhöldun- um sem standa í níu daga og urðu heimsfræg eftir að Er- nest Hemingway gerði þeim skil í skáldsögunni „The Sun Also Rises“. Maður frá Wales fékk alvarleg höfuðmeiðsli þegar hann varð undir nauti og maður frá Suður-Afríku kjálkabrotnaði í nautahlaupi fyrr í vikunni. Mannsskaði varð síðast í hlaup- inu þegar 22 ára Bandaríkjamað- ur var stunginn til bana árið 1995. Fengu hand- ritsverðlaun HANDRITSHÖFUNDARNIR og leikararnir ungu Matt Damon og Ben Affleck fengu í síðustu viku Humanitas-verðlaunin í flokki kvikmynda fyrir handritið að „Good Will Hunting." Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Sheraton Universal hótelinu í Los Angeles. Damon og Affleck fengu sem kunnugt er Óskarsverðlaunin á þessu ári fyrir sama handrit. Humanitas-verðlaunin eru veitt þeim handritshöfundum sem þykja fremstir í því að miðla mannlegum gildum og virðingu. Engar fregnir hafa borist af áframhaldandi samstarfí félag- anna en þeir eru orðnir einhverj- ir eftirsóttustu leikarar Hollywwod. Ben Affleck leikur til dæmis eitt af aðalhlutverkum myndarinnar „Armageddon.“ MÁLVERKI af Roy Rogers var stillt upp við jarðarförina sem þótti afar sorgleg og endurspeglaði hversu dáður hann var. BARNABÖRN Roy Rogers fylgdu líkvagninum og sáu til þess að hann fengi jarðarför eins og sannri kúrekahetju sæmir. Roy Rogers lagður til hinstu hvílu ÞAÐ var lagið „Happy Trails" sem hljómaði í eyðimörk Kali- forníu þegar „konungur kúrek- anna“ Roy Rogers var lagður til hinstu hvflu. Líkvagn flutti jarðneskar leifar hins syngjandi kúreka, sem lést í síðustu viku 86 ára gamall, til Roy Rogers safnsins í Victorville þar sem líkneski af hinum fræga palom- ino-hesti Trigger stendur. Eftir einkaathöfn var Roy Rogers jarðaður samkvæmt eigin ósk við sólarlag eins og sönnum kúreka sæmir. Ekkja hans, Dale Evans, sat í hjólastól og var umkringd nánustu fjöl- skyldumeðlimum sem eru 15 barnabörn og 33 barnabarna- börn. Rúmlega eitt þúsund syrgjendur fylltu kirkjuna en hundruð annarra sátu fyrir ut- an og hlýddu á athöfnina í 38 stiga hita. Ferill Roy Rogers í kvikmyndum og sjón- varpsþáttum var glæsi- Iegur og fáir sem ekki kannast við kúrekann og hest hans Trigger. EKKJA Roy Rogers, Dale Evans, naut stuðnings sonar síns Roy „Dusty“ Rogers yngri við jarðarfórina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.