Morgunblaðið - 14.07.1998, Síða 60

Morgunblaðið - 14.07.1998, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK -4 Fjárfestingarbanki atvinnulífsins Tekur 8,5 milljarða fjöl- þjóðlegt lán FJÁRFESTINGARBANKI at- vinnulífsins hf. hefur gengið frá samningum við erlendar bankastofn- anir um fjölþjóðlegt bankalán til fimm ára að fjárhæð 120 milljónir dollara eða 8,5 milljarða íslenskra króna. Er þetta fyrsta erlenda lang- tímalántaka FBA frá því hann tók til starfa um síðustu áramót. Átján erlendir bankar frá níu lönd- um taka þátt í lántökunni en Deutsche Bank, Den Danske Bank og Sumitomo Bank í Japan hafa umsjón með henni. Bjarni Ármannsson, fram- kvæmdastjóri FBA, segir að hinir erlendu bankar hafi engin skilyrði sett um ríkisábyrgð fyrir láninu eða að íslenska ríkið ætti meirihluta í FBA enda væri það yfirlýst mark- mið stjórnvalda að selja hlut sinn í bankanum. ■ Góðar/17 -------------- Sýknaður vegna kvittunar HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær ökmann af ákæru um hraðakstur þar sem hann gat fram- vísað kvittun, sem sýndi að hann hafði verið að kaupa bensín á bensín- stöð á þeim tíma sem lögreglan sagð- ist hafa staðið hann að hraðakstri. I dóminum kemur einnig fram að lögreglumenn hafi í fyrstu skýrslu ski’áð að bíll mannsins væri grár en að í raun hafi hann verið ljósbrúnn. ■ Bensínkvittun/4 Seðlabankinn harmar mismun á svari til ráðherra og niðurstöðum Rflrisendurskoðunar Ekki ætlunin að skjóta und- an kostnaði við veiðiferðir SEÐLABANKINN hefur sent frá sér athugasemd þar sem hann harmar mismun á svari bankans til viðskiptaráðherra hinn 16. desem- ber 1997 og niðurstöðum Ríkisend- urskoðunar um kostnað af veiðiferð- um bankans á árunum 1993-1997 sem birtar voru í gær. Gefur bankinn þær skýringar meðal annars að hann hafi einungis haft eina viku til að undirbúa svar sitt og því hafi orðið útundan reikn- ingar sem Ríkisendurskoðun telji eftir ítarlega átta vikna rannsókn á bókhaldi bankans rétt að fella undir veiðikostnað. Oft sé álitamál á hvaða liði eigi að færa einstaka reikninga í bókhaldi og það hafi á engan hátt verið ætlun Seðlabankans að skjóta undan kostnaði við veiðiferðir bankastjórnar. I greinargerðum sem unnar voru að beiðni bankastjórna Seðlabank- ans og Búnaðarbankans og bfrtar voru í gær finnur Ríkisendurskoðun að nokkrum atriðum varðandi kostnað bankanna af laxveiðiferðum en lætur þess einnig getið að full- nægjandi skýringar hafi fengist á öllum risnukostnaði bankanna á því tímabili sem til skoðunar var. Fram kemur að kostnaður Seðla- bankans vegna veiðiferða árin 1993 til 1997 var meiri en sá kostnaður sem tilgreindur var í svari bankans til viðskiptaráðherra hinn 16. des- ember 1997, sem gefið var í tilefni af fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns. Samkvæmt greinar- gerðinni skýrist sá munur meðal annars af því að ekki var getið um kaup bankans á veiðileyfum við Svarthöfða og í Flókadalsá. Ríkis- endurskoðun fékk þá skýringu frá bankastjórninni, að sá skilningur hefði ríkt innan bankans að ferðfr þar sem starfsmenn bankans, sem sinna erlendum viðskiptum fyrir hans hönd, fengu heimild til að bjóða mikilvægum erlendum við- skiptavinum í veiðiferðir féllu ekki undir orðalagið „laxveiðiferðir stjórnenda“ í fyrirspurn þingmanns- ins. í athugasemd Seðlabankans sem fyrr er getið er nánar rökstutt hvers vegna þessi skilningur hafi verið nærtækur. Ríkisendurskoðun óskaði eftir að bankastjórn Seðlabankans léti stofnuninni í té lista yfir alla þátt- takendur í veiðiferðum á vegum bankans árin 1993 til 1997. Er ekki gerð athugasemd við þann lista því ráða megi af honum að allir boðsgestir Seðlabankans hafi verið erlendir samstarfs- og við- skiptavinir. Fundið er að því í greinargerð Ríkisendurskoðunar að Seðlabank- inn skuli hafa keypt nokkur veiði- leyfi í Hvítá í Borgarfirði af óform- legum félagsskap leigutaka, þar sem eru meðal annars þrír fyrrverandi starfsmenn bankans. Segir Ríkis- endurskoðun að enda þótt þessi við- skipti hafi ekki verið umtalsverð hafí þau verið óæskileg í ljósi hags- munatengsla. Ekki allar í viðskipta- legum tilgangi Meðal þess sem fundið er að í skýrslunni um Búnaðarbankann er að ekki skuli allar veiðiferðir vera í viðskiptalegum tilgangi. Þátttakend- ur í veiðiferðum í Laxá í Dölum 1993-1994 og í Ytri-Rangá árin 1995- 1996 hafi eingöngu verið aðilar innan bankans. Er minnt á að óheimilt sé að stofna til annars kostnaðar vegna gestamóttöku og risnu, en sem beint þjóni hagsmunum bankans. Þá er staðfest það sem áður hefur komið fram að kostnaður vegna veiðiferða Búnaðarbankans á árun- um 1993 til 1997 er hærri en sagt var í svari til viðskiptaráðherra hinn 19. janúar síðastliðinn. Segir Ríkisend- urskoðun að þar muni mest um að ekki var getið um veiðar í Ytri- Rangá sem bókfærðar höfðu verið hjá útibúi bankans á Hellu. ■ Greinargerðir/10/36/37/45 Utanríkisráðherra um atburði á Svalbarðasvæðinu Norðmenn mismuna fiskveiði- ríkjum HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að norsk stjómvöld beiti reglum um fiskvernd á Sval- barðasvæðinu með mismunandi hætti, eftir því frá hvaða ríki þau fiskiskip komi, sem veiða á svæðinu í trássi við norskar reglur. Norðmenn slepptu í gær rúss- neskum togara, sem tekinn hafði verið við veiðar á lokuðu svæði vest- ur af Bjamarey, gegn því að rúss- nesk stjórnvöld beittu sér fyrir því að rúmlega 30 aðrir rússneskir tog- arar, sem voru að veiðum á svæð- inu, hættu veiðum og sigldu út af fiskverndarsvæðinu við Svalbarða. Fyrir fjórum árum voru tveir ís- lenzkir togarar teknir á fiskvernd- arsvæðinu, færðir til hafnar og ákært í málum þeirra. Vom útgerð- frnar dæmdar til greiðslu hárra sekta og til að sæta upptöku afla og veiðarfæra. Blaðinu snúið við „Það er enginn vafi á að hér er um mismunandi meðferð á ríkjum að ræða,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. Hann segir jafn- framt að íslenzk stjórnvöld muni fylgjast vel með framvindu þessa máls á næstunni. Halldór segir að norsk stjórnvöld hafi, þegar íslenzk skip hafa verið tekin á svæðum þar sem Norðmenn gera tilkall til yfirráða, sagt íslenzk- um yfirvöldum að yfirvöld hafi ekki afskipti af töku skipanna; varðskip- in séu að framfylgja reglum og séu óháð fyrirskipunum úr landi. „í þessu tilviki er enginn vafi á að þar er blaðinu snúið við,“ segir Halldór. ■ Utanríkisráðherra/30 I Hið ljósa man á sigurbraut Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson HIN FÓTAFIMA og litfagra Kringla frá Kringlu- mýri og Sigurður Sigurðarson endurheimtu foryst- una í B-flokki í úrslitum á sunnudag eftir að hafa staðið efst eftir forkeppni og síðan orðið að gefa eftir í milliriðli. Kringla þykir vel að sigrinum kom- in, enda heillaði hún mótsgesti á Melgerðismelum í Eyjafirði, sem voru á áttunda þúsund síðasta dag mótsins. Talið er að aldrei hafi jafnmargir erlendir gestir sótt landsmót og nú og þótti yfirbragð móts- ins mjög alþjóðlegt. ■ Landsmótið/22-23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.