Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 2

Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sala hófst á „2 fyrir 1“ tilboði Flugleiða til Bandaríkjanna 4.000 farseðlar seldir á fyrsta degi SAMTALS stóðu um eitt hundrað manns í biðröð fyrir utan þrjár sölu- skrifstofur Flugleiða í Reykjavík í gærmorgun. Ástæðan fyrir því hve árrisulir viðskiptavinir Flugleiða voru í gær var sú að fyrsti söludagur svokallaðra „tveir fyrir einn“ tilboða á flugfarseðlum til Bandaríkjanna var að hefjast. Eftirspum eftir mið- unum lét ekki á sér standa, en að sögn Jóhanns Gísla Jóhannssonar sölustjóra Flugleiða á íslandi höfðu um fjögur þúsund farmiðar selst af tilboðinu þegar söluskrifstofum var lokað í gær. Jóhann Gísli sagði að þrátt fyrir mikla sölu á fyrsta degi væru farmið- ar á tilboðinu ekki uppseldir, enda væri gífurlegur fjöldi sæta í boði. Flugleiðir væru að fljúga um 120 sinnum á viku til Bandaríkjanna í vetur, þannig að enn væri til nóg af lausum sætum. Tilboðið gildir til Baltimore, Boston, New York og Minneapolis og verða miðarnir seldir frá 4. til 14. ágúst. Jóhann sagði að Flugleiðir hefðu nokkrum sinnum áður boðið upp á samskonar tilboð. Viðbrögðin nú væru töluvert betri en áður, og taldi hann góðærið í þjóðfélaginu lík- lega hafa einhver áhrif þar á. Aðalvertíðinni lokið í auglýsingu um tilboðið, sem birt- ist í Morgunblaðinu sl. laugardag, kemur fram að eitt fargjald giidi fyr- ir tvo í beinu flugi til umræddra áfangastaða á ákveðnu tímabili. Upphæð fargjaldsins kemur svo fram þar fyrir neðan, og kostar til dæmis 29.940 kr. til Baltimore. Með upphæðinni er átt við fargjald á mann, en ekki ætlast til að því sé deilt niður á tvo. Aðspurður hvort Flugleiðum hefðu borist athuga- semdir um að auglýstar upphæðir á fargjöldum væru villandi sagði Jó- hann að einstaka menn hefðu spurt um upphæðina, en ekkert hefði verið kvartað vegna þeirra. Hann sagði að þeir sem þegar hefðu kynnt sér verð á flugmiðum til Bandaríkjanna sæju strax hvers eðlis tilboðið væri. .Ástæðan fyrir þessu tilboði er fyrst og fremst sú að við erum að mæta þörfum íslenska markaðarins. Við erum íslenskt flugfélag og erum að bjóða gífurlegt magn af sætum til Bandaríkjanna. Núna er okkar aðal- vertíð að verða búin þar sem útlend- ingar hafa verið bróðurparturinn af farþegunum. Þá sjáum við að sæti eru að losna og vOjum gefa Islend- ingum tækifæri á að ferðast mjög ódýrt,“ sagði Jóhann. Snæugla heimsækir Reyk- holtsdal í REYKHOLTSDALNUM sást til ferða snæuglu í gær. Að sögn Þórarins Skúlasonar bónda á Steindórsstöðum í Reykholtsdal var hann látinn vita af ferðum uglunnar í gærmorgun. Fuglinn flaug upp þegar reynt var að nálgast hann en flaug ekki lengra en í um 100 metra fjar- lægð. Hann sat svo hinn rólegasti á sama stað frá hádegi og til fjögur í gær þar sem hægt var að virða hann fyrir sér. Snæuglur eru sjaldgæf sjón á þessum slóðum, en á árum áður fundust hreiður hennar í Ódáða- hrauni nokkur ár í senn. Snæugl- an er með stærstu uglutegund- um, hún getur orðið allt að 65 sm að lengd en vænghaf hennar er 150-160 sm. Hún er norrænn fugl og verpir á heimskautssvæð- um, m.a. á Grænlandi. Þórarinn sagði að uglan hefði yfirgefið svæðið þegar búið var að mynda hana, hún hefði flogið norður og hann ekki séð til hennar síðan. Rfkisspítalar Allir lyfja- tæknar segja upp ALLIR lyfjatæknar á Ríkisspítölum, en þeii- eru fjórtán, hafa sagt upp störfum frá og með 31. júlí og taka uppsagnir þeirra gildi 31. október næstkomandi. Að sögn Jens Andréssonar, for- manns Starfsmannafélags ríkisstofn- ana, var gengið frá aðlögunarnefnd- arsamningi starfsstétta innan sjúkrahúsanna 28. júlí sl. og gildir hann frá 1. apríl sl. Samningunnn tekur til 650 starfsmanna innan Starfsmannafélags ríkisstofnana,þar á meðal lyfjatækna, matartækna, matarfræðinga, læknaritara og vél- fræðinga en þessar stéttir höfðu hót- að að segja upp ef ekki byðust betri kjör. „Samningurinn er kominn á en síðan eru einstakiingar innan hóps- ins sem hafa sagt upp,“ sagði Jens. Guðlaug Björnsdóttir, starfs- mannastjóri Ríkisspítala, segir að allir lyfjatæknar hafi sagt upp störf- um en þeir eru fjórtán og taka upp- sagnirnar gildi 31. október nk. Aðrir starfshópar innan spítalanna hafa ekki sagt upp. Tveir létust í umferðarslysum TVÖ banaslys urðu í umferðinni um helgina, annað í Dalasýslu og hitt í Rangárvallasýslu. Femt var flutt til að- hlynningar á sjúkrahús en einn slapp lítið sem ekkert meiddur. Banaslys varð á Skarðsströnd í Dölum síðastliðinn mánudag þegar jeppi fór út af veginum og valt. Karl- maður sem ók jeppan- um missti hann út fyrir veginn í beygju. Kerra var aftan í jeppanum og telur lögregla að hún hafi sveiflað bílnum til Jóhann Þór Jóhannsson þegar ökumaður reyndi að ná hon- um aftur inn á veginn. Ökumaðurinn lést en farþegi í bifreiðinni gekk að nærliggjandi bæ og lét vita af slys- inu. Hann var síðan fluttur á sjúkra- húsið á Akranesi og er h'ðan hans sögð þokkaleg. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Annað banaslys varð í Landsveit í Rangárvallasýslu um eittleytið á mánudag. Þrír voru fluttir slasað- ir með þyrlu á Sjúkra- hús Reykjavíkur. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli liggja ekki fyrir nákvæmar upp- lýsingar um tildrög slyssins, sem varð á milli bæjanna Skarðs og Leirubakka, en fimm manns voru í bíln- um, sem var að koma af bindindismótinu í Galtalæk. Talið er að ökumaður hafi misst stjórn á bif- reiðinni með þeim af- leiðingum að hún lenti fyrst í kantin- um hægra megin en fór síðan út af vinstra megin og valt. Einn farþeg- anna slapp lítið sem ekkert meiddur, en hann var sá eini sem var í bílbelti. Sá sem lét lífið var farþegi í aftur- sæti. Hann hét Jóhann Þór Jó- hannsson og var fæddur 15. nóvem- ber 1982, til heimilis að Háengi 8 á Selfossi. T aílendingunum þremur vikið úr landi BROTTVISUNARURSKURÐUR yfir þremur Taílendingum var kveð- inn upp í gær af Þóri Oddssyni vara- ríkislögreglustjóra. Taílendingamir skipulögðu ferð sautján landa sinna til Islands og lofuðu þeim vinnu. Þeir fóru úr landi síðasta fimmtudag en þremenningunum, tveimur konum og einum karlmanni var haldið eftir til yfirheyrslu. Jóhann Jóhannsson hjá útlend- ingaeftirlitinu segir hafa legið ijóst fyrir að gripið yrði til brottvísunar að loknum yfirheyrslum, en þre- menningamir hafi viðurkennt að hafa skipulagt ferðina og ætlað að útvega a.m.k. flestum vinnu. Taílendingamir fara að öllum lík- indum úr landi í dag og segir Jóhann að brottvísuninni fylgi varanlegt endurkomubann í tilviki kvennanna, hér á landi og á Norðurlöndum, en karlmaðurinn hafí hlotið fimm ára endurkomubann enda hafi yfir- heyrslur leitt í ljós að hann hafi átt minni þátt í skipulagningu en þær. Jóhann segir ekki hafa komið fram neinar ákveðnar tengingar þeirra við fólk búsett á íslandi eða annars stað- ar, þeir segist hafa staðið einir í þessu. Hann segir málin verða í skoðun áfram þrátt fyrir að ekki sé um formlega rannsókn að ræða. Sérblöð í dag S4SÍMIR:8StoUII 4SÍDUR FASTEIGMR i • ►Tíml endurbóta og viðhalds og • skylda til greiðslu sameiginlegs ! kostnaðar í fjöieignarhúsum eru J m.a til umQöllunar í Fasteigna- • blaðinu í dag. I fúnVERINU k ►KVÓTAÞING, makrflveiðar, rækjuveiðar á Flæmingjagrunni, árlegar ýsurannsóknir, eftirlits- reglur á NEAFC-svæðinu og um- búðamál eru m.a. til umfjöllunar í Verinu í dag. Örn Arnarson setti sex ís- landsmet á EM unglinga Eiður Guð- johnsen geng- ur tii liðs við Bolton 4 SÍDUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.