Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Uthafsrækjuveiðar á Flæmingjagrunni Kvótinn hálfnaður ISLENSK skip, sem stundað hafa rækjuveiðar á Flæmingjagrunni þetta árið, hafa samkvæmt upplýs- ingum frá Fiskistofu landað samtals rúmlega þrjú þúsund tonnum og hafa veiðarnar nú gengið betur en í fyrra þegar á heildina er litið. Fimm íslensk skip eru enn við veiðar á Flæmingjagrunni. Það eru Blikd EA, Pétur Jónsson RE, Svalbarði SI, Eyborg EA og Húsvíkingur ÞH. Alls fengu 30 skip úthlutað kvóta á Flæmingjagrunni þetta árið, en heildarkvóti Islendinga á svæðinu nemur nú 6.800 tonnum, sem er sama magn og í fyrra. ■ Búið að veiða/B2 Morgunblaðið/Jim Smart KRANABÓMAN féll niður á húsið og braut það og skekkti. Litlu munaði að manntjón yrði í Njarðvík í gær Kranabóman féll í ffegnum húsið LITLU munaði að manntjón yrði í Njarðvík í gær þegar kranabóma féll á þak húss sem var í byggingu. Þrír menn voru á þakinu og náðu þeir að forða sér undan bómunni á hlaupum. Húsið er talið ónýtt, en kraninn braut það niður að hluta og skekkti þann hluta sem stendur uppi. „Við vorum uppi á þakinu að taka á móti jáminu. Mér fannst það koma nokkuð hratt niður og áttaði mig fijótlega á að eitthvað var að. Ég kallaði til félaga minna og forðaði mér á hlaupum,“ sagði Rúnar Agn- arsson smiður sem var uppi á þakinu þegar kraninn sporðreistist og féll á þakið. Þrír smiðir voru uppi á þakinu og tveir niðri á jörðinni. Ekki voru allir með augun á krananum þegar hann tók að hallast, en allir náðu samt að forða sér. Einn smiður féll við þegar hann hljóp undan bómunni. Það mátti því ekki miklu muna að slys yrðu á fólki. Vindhviða átti hugsanlega þátt í óhappinu Óhappið átti sér stað um kl. 14.30. Verið var að hífa búnt af bárujámi upp á þak hússins. Nokkuð hvasst var í veðri og telur Sigurður Axels- son kranamaður að það hafi átt þátt í óhappinu. Hann segir að járnið hafi ennfremur verið nokkuð þungt og greinilega of þungt fyrir kranann. Orsökina megi því rekja til vanmats á aðstæðum. Byggingin, sem stendur við Bola- fót í Njarðvík, er byggð úr límtrés- sperrum. Búið var að klæða þakið með timbri og ætluðu smiðir að byrja á að negla bámjárnið á það þegar óhappið varð. Kraninn féll of- an á fremsta hluta hússins og stöðv- aðist ekki fyrr en bóman snerti grunn byggingarinnar. Kraninn braut tvær límtrésspemur, en auk þess skekkti hann allt húsið. Veggur, sem nýlega hafði verið steyptur og er á milli nýbyggingarinnar og húss sem stendur við hana, brotnaði og skekktist. Rúnar sagðist ekki sjá fram á ann- að en að rífa þyrfti húsið til granna og byrja upp á nýtt. Húsið væri mjög skakkt og ekki væri hægt að laga það öðruvísi en að rífa það. Það þyrfti einnig að brjóta niður steypta vegginn sem skekktist við fall bómunnar. Rúnar sagðist ekki hafa skýringu á því hvers vegna kraninn sporðreistist. Bárujárnsbúntið hefði VERIÐ var að lyfta bárujárns- búnti þegar óhappið varð. tæplega verið meira en tvö tonn og kraninn hefði átt að ráða við það. Smári Helgason, einn eigenda hússins, sagði að þetta væri veralegt tjón, en tryggingafélag kranans myndi bæta það. Fyrirhugað hefði verið að hefja starfsemi í húsinu í september, en bið yrði á því. Aform- að var að í húsinu yrði bílaryðvörn, bónstöð og bílasala. Seðlum „rigndi“ á Holta- vörðuheiði FJÖLSKYLDA á leið suður Holtavörðuheiði sl. mánu- dag varð fyrir óvenjulegri reynslu þegar peningaseðl- um tók að „rigna“ yfír bíl hennar. A Holtavörðuheið- inni tók fram úr þeim hvít- ur bíll af langbaksgerð og í sama mund kom skæða- drífa af seðlum yfír bfl íjöl- skyldunnar. Varð ökumað- urinn að beita rúðuþurrk- unum til að sjá út um fram- rúðuna. Fjölskyldan stöðv- aði bflinn og sá þá að „rignt“ hafði yfir bflinn 5 þúsund kr. seðlum, 1.000 kr. seðlum, 500 kr. seðlum, sterlingspundum og ávísun- um. Alls voru þarna á milli 300 og 400 þúsund kr. í peningum og ávísunum. Lagði seðlaveskið á bflþakið Skýringin á þessari óvanalegu ofankomu var sú að eigandi hvíta langbaks- ins hafði keypt bensín á Brú í Hrútafirði en lagt seðlaveski sitt ofan á þak bflsins þar sem það síðan gleymdist. Það var svo ekki fyrr en á Holtavörðuheið- inni sem innihald veskisins þyrlaðist úr því. Fjölskyldan týndi seðl- ana saman og hafði sam- band við lögreglu. Lög- reglu tókst að hafa uppi á eigandanum í þann mund sem hann ætlaði að fara að huga að veskinu þar sem hann áði í söluturninum Hyrnunni í Borgarfirði. Maðurinn er með fyrirtæki í rekstri og seðlarnir góðu voru uppgjörið. Kári Stefánsson átelur ónefnda gagnrýnendur frumvarps um gagnagrunna Segir viðskiptahagsniuni í raun hafa ráðið ferðinni Þrjár konur taka vígslu ÞRJÁR konur verða vígðar til prests í Dómkirkjunni næstkomandi sunnu- dag. Nýlega voru átta prestsembætti auglýst laus til umsóknar og hefur verið veitt í sjö embætti og eru kon- ur í fjórum þeirra. Þær sem taka vígslu á sunnudag eru Bára Friðriksdóttir, sem vígist til Vestmannaeyja, Guðbjörg Jó- hannesdóttir, sem vígist til Sauðái'- króks og Lára Oddsdóttir, sem vígist til Valþjófsstaðar. Að sögn hr. Karls Sigurbjörnssonar biskups er fátítt að þrjár konur taki vígslu við sömu at- höfn. --------------- Dekk sprakk í lendingu DEKK á einni af þotum Atlanta- flugfélagsins sprakk í lendingu á Berlínarflugvelli sl. sunnudag. Engin hætta skapaðist við óhappið, en tals- verðar tafir urðu á flugi vélarinnar. Þotan, sem var á leið frá Múnchen til Islands með millilendingu í Berlín, átti að fara frá Berlín aðfaranótt sunnudags, en komst ekki af stað fyrr en á hádegi daginn eftir. KÁRI Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, er þeirrar skoðunar að mun meiri samstaða sé um endurskoðað frumvarp um gagnagranna á heilbrigðissviði, sem heilbrigðisráðherra kynnti í lok síð- ustu viku, en upphaflega frumvarpið sem lagt var fram á Alþingi á síðast- liðnu vori. Hann telur að það muni eiga tiltölulega greiða leið gegnum þingið í haust. Kári telur ennfremur að við end- urskoðunina hafi verið komið til móts við flest af því sem telja megi málefnalega gagnrýni. Hann leggur á það áherslu að einkaréttur sé al- ger forsenda þess að hægt verði að markaðssetja gagnagrunninn er- lendis. Kári telur að hin mikla umræða sem verið hefur um framvarpið allt frá því að það var kynnt fyrr á þessu ári hafi verið mjög holl en hann gagnrýnir að meðal þeirra sem leiddu andófið gegn því hafi verið einstaklingar sem hafi verið að vernda sína eigin viðskiptahags- muni. „Það er í sjálfu sér ekkert nema gott um það að segja, því menn eiga að vernda sína hagsmuni. En þegar menn þykjast vera að gera eitthvað annað, eins og til dæmis að vinna að háleitum mark- miðum svo sem að vernda persónu- upplýsingar og svo framvegis, um leið og þeir eru raunverulega að vernda sína viðskiptahagsmuni, eru þeir að gera hluti sem gjarnan leiða til þess að þeir tapa trausti. Það truflar líka umræðuna og gerir erf- iðara að átta sig á hvaðan hún kem- ur,“ segir Kári. Segir frumvarpið Iítið breytt Guðmundur Björnsson, formaður Læknafélags Islands, segir það sína skoðun að framvarpið sé í stórum dráttum lítið breytt frá því það var lagt fram á Alþingi í vor. Þó megi finna ýmis ný atriði sem séu jákvæð en Guðmundur hefur miklar efa- semdir um ákvæði um einkarétt til að annast gerð og starfrækslu grunnsins og telur ekki ljóst hvort persónuleynd sé nægilega tryggð. Tómas Zoéga, yfirlæknir geð- deildar Landspítalans og formaður siðfræðiráðs Læknafélags Islands, kvaðst hafa ýmislegt við framvarps- drögin að athuga. Hann gagnrýnir m.a. ákvæði framvarpsins um einka- rétt á starfrækslu gagnagrunnsins og segir það leiða til einokunar og vera vísasta veginn til stöðnunar. Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur jafnaðarmanna, sagði að hið nýja framvarp væri til bóta og þessi end- urskoðun frumvarpsins sýndi hvað það væri mikilvægt að keyra ekki svona stór mál eins og þetta í gegn- um þingið á stuttum tíma, eins og til hefði staðið í vor, heldur gefa sér góðan tíma til að fara yfir þau. Lára Margrét Ragnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að þótt margt í vinnu nefndar- innar við frumvarpið horfði til betri vegar væri langur vegur frá því að niðurstaðan væri fullnægjandi og mörgum spurningum væri enn ósvarað í þessum efnum. ■ Mun eiga/12-13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.