Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ungmenni ailra ianda:
FÓLK í FRÉTTUM
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
2 svæði kr. 21.500
3 svæði kr. 24.800
Öll svæði kr. 28.100
askrifstofa
tstúdenta
ffmi: 561 5656
WWWis.is/stadtravel ...og ferðin er
120 hvfk
CIDOPHILUS
PLÚS
rH»l.}v-T!,>hv!kt fviit
■ meltiritjrtrfarin
Góður ferðafélagi.
Fyrir meltingarfærin.
fg,L
I___Iheilsuhúsið
Skólavöröustfg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
Rerðist!
.. „ ^ _ Morgunblaðið/Júlíus
SYLVÍA Ölafsdóttir, formaður Píló, var 10 ára þegar hún kynntist kaþólskri trú og er að fara í sína þriðju pílagrímsferð til Evrópu.
Interrail kortið
er fyrir þá sem vilja ferðast
frjálsir og óháðir um Evrópu.
v_j*—■—>
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaöur.
Bíll Paxton Mark Wahlberg Julianna Marguiies
1
't'íii!-:: -
'A weil told taie of love,
trust and deception/
5541817
Kópavogur
SNÆLAND
552 8333
Laugavegur
565 4460 566 8043
Hafnaríjörður par sem nýjustu myndirnar fást Moslellsbær
„ Skemmtiklúbbur
með trúarlegu ívafi“
Sylvía Ólafsdóttir er formaður kaþólska
unglingafélagsins Píló, sem á dögunum
hélt í pílagrímsferð til átta Evrópulanda.
Rakel Þorbergsdóttir hitti Sylvíu, sem var
að fara í sína þriðju ferð á vegum félagsins.
KIRKJUSÓKN og trúmál eru
ekki algengt umræðuefni
flestra unglinga ef undan-
skilin er fermingin og veisluhöld
tengd henni. Unglingahreyfingar
innan kirkjunnar eru þó starfandi
og er kaþólska unglingafélagið Píló
eitt þeiiTa. Að sögn Sylvíu Ólafs-
dóttur, formanns Píló, er félags-
skapurinn nokkurs konar skemmti-
klúbbur með trúarlegu ívafi og eru
flestir meðlimir klúbbsins kaþólskir
en þó ekki allir.
Sylvía verður 18 ára á árinu og er
nemandi í Kvennaskólanum í
Reykjavík. Hún segist fara til
kirkju fyrir hádegi á hverjum
sunnudegi og ráðlagði áhugasömum
blaðamanni að fara einnig á þeim
tíma því sú athöfn væri athyglis-
verðust, með tilheyrandi reykelsum
og latínu. Hún er að fara í sína
þriðju ferð til Evrópu á vegum Píló
en helmingur ferðarinnar er fjár-
magnaður með söfnun.
„Við vorum með bás niðri í bæ á
17. júní og seldum meðal annars
gasblöðrur. Við söfnum líka dósum,
höldum bingó og gerum ýmislegt
fleira til að safna fyrir ferðinni.
Þannig náum við að greiða niður
helminginn fyrir alla sem fara en
þetta er þriggja vikna ferð og
yngstu pílagrímsfaramir að þessu
sinni eru 14 ára. Við fljúgum til Lúx-
emborgar þaðan sem við keyrum til
Parísar og höldum meðal annars
www.mbl.is
messu í Rue du Bac. Allir staðimir
sem við fórum til hafa einhverja trú-
arlega merkingu en ferðin er ekki
síður menningarleg því margir
sögufrægir staðir eru heimsóttir."
Fór í fyrstu ferðina 11 ára
-Ertu fædd til kaþólskrar trú-
ar?
„Nei, þegar ég var 10 ára flutti
ég í nágrenni við Landakotskirkju
og þá kviknaði áhugi minn á kaþ-
ólskri trú. Ég fermdist til kaþ-
ólskrar trúar og foreldrar mínir
gengu í kaþólska söfnuðinn einu ári
á eftir mér.“
-Hafðir þú einhver áhiif á
ákvörðun þeirra?
„Ég veit það ekki. Áhugi okkar
kviknaði á svipuðum tíma og ég fór
fyrst bara til að kveikja á kerti en
svo þróaðist þetta.“
-Hvenær fórstu í fyrstu Píló-
ferðina til útlanda?
„Ég var 11 ára og þá flugum við
til Lúxemborgar og keyrðum það-
an til Rómar. Þetta er fyrsta ferð
flestra til útlanda án foreldra og
það er mjög spennandi. Það fara að
sjálfsögðu fullorðnir umsjónar-
menn með sem bera ábyrgð á
hópnum. Ég fór svo í aðra ferð
þegar ég var 14 ára en venjulega er
farið annað hvert ár í pílagrímsferð
af þessu tagi.“
- Voru ferðirnar sams konar?
„Nei, þær voru mjög ólíkar. í
fyiTÍ ferðinni voram við sautján og
ferðuðumst víða en í seinni ferðinni
vorum við 27 sem flugum til
Barcelona og gengum pílagríms-
göngu sem var 200 kílómetra löng.
Það var mjög gaman.“
-Hvað er skemmtilegast við
pílagrímsferðirnar?
„Það er fyrst og fremst
skemmtilegt að geta ferðast með
öðrum unglingum og að geta skoð-
að staði sem kenndir eru við fræga
dýrlinga. Við höldum kvöldvökur,
förum í skoðunarferðir og það er
jafnvel kíkt í búðir ef tími gefst til.“
- Haldið þið mikið hópinn?
„Já, við hittumst alltaf einu sinni
í viku yfir veturinn en félagsstai-fið
dettur að mestu niður á sumrin."
- Hvert er þitt starf sem formað-
ur Píló?
„Ég sá til dæmis um að undirbúa
ferðina sem við erum að fara í núna í
samvinnu við séra Jakob Rolland
sem er ábyrðarmaður. Skipuleggja
hvaða staðir eru heimsóttir og setja
upp dagskrá. Það eru frekar fáir
kaþólskrar ti-úar á íslandi og ung-
lingastarfíð þjappar hópnum saman
og okkur er meðal annars kennt að
biðja."
- Hefurðu fundið fyrir spé-
hræðslu skólafélaganna gagnvart
trúnni?
„Ég fann fyrir því þegar ég var
yngri en núna ber fólk meiri virð-
ingu fyrir því. Ég var svo sem ekk-
ert að flagga því að ég væri kaþ-
ólsk og geri það ekki núna en ég
skammast mín ekki fyrir trúna.“
- Heldurðu að fólk setji saman-
semmerki á milli kaþólska safnað-
arins og séi-trúarsöfnuða?
„Nei, það held ég ekki. Fólk veit
ótrúlega mikið um kaþólska trú því
hún er svo útbreidd erlendis."
-Eru einhver boð og bönn í
Píló?
„Við erum ekki að banna fólki að
reykja eða drekka en við gerum
ýmis konar verkefni í fræðsluskyni
sem til dæmis tengjast alkóhólisma
og annari vímuefnanotkun. En við
erum ekki að stjóma fólki.“
- Þú ert þá heldur ekki í trúboði
eða hvað?
„Nei, alls ekki. Ég er enginn trú-
boði,“ segir Sylvía hlæjandi og
hraðaði sér í burtu enda langt og
strangt ferðalag framundan með
tilheyrandi rútuferðum og tjald-
gistingu víðs vegar um Evrópu.
MAMMA
Allt sem þig vantar
ÞUMALÍNAs. 55i 2136