Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FRÁ vinstri er Fífa Lísa Óskarsdóttir miðasölustjóri Iðnó, Benedikt Erlingsson og Halldóra Geirharðsdóttir aðalleikarar Ormstungu, Tristan Gribbin leikkona (Gudridur hin enska), Ingibjörg Þórisdóttir sýningarstjóri í Skemmtihúsinu, Ragnhildur Rúriksdóttir leikkona (Guðríður hin islenska). Fyrir framan þau silja Sæmundur Norðfjörð framkvæmdastjóri Leikfélags Islands og Brynja Benediktsdóttir framkvæmdastjóri Skemmtihússins. Leikhúsin við Tjörnina Þverflautuspil á Seyðisfírði TÓNLEIKAR verða í kvöld í tónleikaröðinni Bláa kirkjan á Seyðisfirði og koma þar fram Kristrún Bjömsdóttir og Bjöm Davíð Kristjánsson. Þau leika á þverflautur tónlist eftir Telem- ann, Mozart, Kuhlau, W.F. Bach, Cimarosa og Sullivan í kirkjunni á Seyðisfirði í kvöld miðvikudagskvöld 5. ágúst kl. 20.30. Kristrún var m.a. tónlistar- skólastjóri á Seyðisfirði í sjö ár, en kennir nú við Skólahljóm- sveit Kópavogs. Bjöm Davíð kennir við Tón- iistarskóla Garðabæjar, Tónlist- arskólann í Keflavík og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Aðgangseyrir er 500 kr. Ókeypis fyrir 6 ára og yngri. „Frjálsi hljóðneminn“ (Open Mike) hefst kl. 20.30 og hver sem er getur þá flutt tónverk, ljóð eða stutta sögu, með því að skrá sig í miðasölunni áður en tónleikarnir hefjast eða með því að hringja fyrir kl. 19. Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari verður síðan á næstu tónleikum sem verða haldnir 12. ágúst. Tímarit LEIKFÉLAG íslands ehf. í Iðnó og Vinnustofur leikara f Skemmtihúsinu við Laufásveg 22 hafa undirritað samkomulag um víðtækt samstarf þessara húsa undir yfirskriftinni: Leikhúsin við Tjörnina. Samkomulagið stuðlar að hag- ræðingu í rekstri, auk þess munu húsin eiga víðtækt listrænt sam- starf. Iðnó tekur að sér miðasölu á sýningar í Skemmtihúsinu og upp- lýsingar um sýningar beggja hús- anna verður að fínna í auglýsing- um Iðnó f Morgunblaðinu og víðar. Miðasala Iðnó annast sölu á að- göngumiðum á „The Saga of Gud- rídur“. Ormstunga sem gekk fyrir fullu húsi 1 Skemmtihúsinu verður sýnd í Iðnó 10. ágúst nk. og er það upphafið á frekari samnýt- ingu húsanna á Iistrænum við- burðum. Ljóðið tjáir best mann- lega reisn TÉKKNESKA skáldið Miroslav Holub lést 14. júlí sl. í Prag, 74 ára að aldri. Holub, sem jafnframt var ónæmisfræðingur og kunnur vís- indamaður, vakti athygli fyi-ir bein- skeytt ljóð sín sem einkenndust af því hve einfóld þau voru og oft opin- ská, einkum þegar hann orti um samtíma sinn. Við lát hans hefur ver- ið vitnað í það sem hann lét hafa eftir sér um óræðan skáldskap: „Vegna þess hve raunveruleikinn er flókinn tel ég að skýrleiki í ljóðrænni tján- ingu sé grundvallaratriði.“ I samtali blaðamanns Morgun- blaðsins við Holub á bókastefiiunni í Frankfúrt í október 1992 sagði hann að ljóðið tjáði best mannlega reisn. Hann hefði oft verið í vanda og liðið illa undir stjóm kommúnista í Tékkóslóvakíu, en eftir frelsunina 1989 hefði margt snúist til betri veg- ar. Áður hefði hann oft verið fjarri landi sínu, ferðast mikið, en nú væri hann búsettur í Prag og hefði hugsað sér að vera þar til æviloka. Meðal þeirra sem þýtt hafa ljóð eftir Holub á íslensku eru Matthías Johannessen og Þorgeir Þorgeir- son. Holub sagðist vita af þessum þýðingum og þær hefðu glatt sig. Hann hefði á sínum tíma þýtt ís- lenskt ljóð úr ensku og hefði það birst í tímariti, en nú væri hann bú- inn að gleyma nafni skáldsins. Hann kvaðst stoltur af þýðingunni því að hún hefði tekist vel að margra dómi. Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins hitti Holub í Frankfurt var hann í forsvari fyrir dómnefnd bókmennta- verðlauna Evrópuráðsins, en hann var í senn eitt af virtustu skáldum álfunnar, rómaður vísindamaður og tók virkan þátt í evrópsku og alþjóð- legu samstarfi. • ÁRSRIT Söguíélags ísfírð- inga., 38. árgangur. I ritinu að þessu sinni eru fjórar megingreinar: „Ágrip af sögu Tón- listarskóla ísafjarðar“ eftir Björn Teitsson, skólameistara, „Togara- félagið hf. Valur“ eftir Éinar H. Eiríksson, „Altarishríkin úr Ögur- kirkju“eftir Guðfínnu M. Hreið- arsdóttur, sagnfræðing, og „Vest- fírzkir slysadagar“ eftir Eyjólf Jónsson, en það eru viðaukar við rit hans með sama nafni sem kom út 1997. Á forsíðu Ársritsins er mynd af Ragnari H. Ragnar, skólastjóra Tónlistarskóla ísa- fjarðar, eftir Baltasar Samper list- málara. I kynningu segir: „Grein Bjöms Teitssonar er meginefni þessa ár- gangs. Hún fjallar um merkan þátt í sögu tónlistarlífs á íslandi, Tónlistarfélag Isafjarðar og Tón- listarskólann þar sem stofnaður var 1948, og ekki síst um þátt Ragnars H. Ragnar í uppbygg- ingu hans. I grein Einars H. Ei- ríkssonar eru dregnar fram ýms- ar nýjar upplýsingar um sögu hlutafélagsins Vals, sem stofnað var árið 1938 og gerði út togarann Skutul sem áður hét Hávarður Is- firðingur. I grein Guðfinnu M. Hreiðarsdóttur er svo nýju ljósi varpað á uppruna merkrar altar- isbríkur úr Ógurkirkju, sem nú er í Þjóðminjasafni." Ritstjórar Ársríts Sögufélags ís- fírðinga eru Jón P. Þór sagnfræð- ingur og Veturliði Óskarsson mál- fræðingur. Ritið má panta hjá Eyjólfí Jónssyni, Isafírði. Tölvuskóli Reykjavíkur býður ítarlegt nám í skrifstofutækni fyrir alla þá sem hafa hug á að ná góðum tökum á fjölbreyttri starfsemi á nútíma skrifstofu. Ásamt markvissu tölvunámi er einnig lögð rík áhersla á alhliða kennslu í skrifstofugreinum eins og bókhaldi og verslunarreikningi. Að námi loknu eru nemendur færir um flest skrifstofustörf. Námið er 345 stundir að lengd og eru þar með taldar 45 stundir í þremur valgreinum. Auk þess fylgir tveggja vikna starfsþjálfun í fyrirtæki. Námiö og starfsþjálfunin tekur um 16 vikur. Mikil áhersla er lögð á að hafa vönduð íslensk námsgögn í öllum greinum. 165 stundir 100 stundir 35 stundir íslenska og verslunarbréf Almenn tölvufræði Verslunarreikningur Tjáning, hópvinna, framsögn, útlit, þjónusta viðskiptavina, vinnustellingar, útlit, framkoma, símsvörunatvinnuumsóknir. Ritvinnsla Word Almenn bókhaldsverkefni, víxlar og skuldabréf Töflureiknir Excel Launabókhald Lög og reglugerðir Tölvufjarskipti Internetið Virðisaukaskattur Tölvubókhald 15 stundir Glærugerð PowerPoint Raunhæf verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar Vélritun 15 stundir Viðskiptaenska isstundir Tollskýrslugerð isstundir Internet vefsíðugerð 15 stundir Gagnagrunnur isstundir Tölvubókhald Bókhald sem stjórntæki ■41 Viðskiptagreinar Tölvugreinar Annað F.NTEf Valgreinar '.i® Tölvuskóli nsám Reyl<javíl<ur Borgartúni 28, sími 561 6699 www.tolvuskoli.is tolvuskoli @ tolvuskoli.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.