Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 14

Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Björn Gíslason MÓTSHALDARAR telja að allt að 15 þúsund gestir hafí sótt hátiðina Halló Akureyri í ár, en mikið Ijölmenni safnaðist saman í miðbænum. Aætlað að 15 þúsund hafi sótt Halló Akureyri ÞAU voru viðbúin síðdegisskúr á sunnudegi. Erill hjá lögreglu ÞAÐ var margt við að vera I Kjarnaskógi. stæðinu við Þórunnarstræti þótt formlega væri það lokað. Arni Steinar vissi einnig til þess að fólk hefði tjaldað í Vaglaskógi og víðar en sótt þá dagskrá sem boðið var upp á í bænum. Fólk dreift um allan bæ Öll gistiheimili og hótel voru full og samkvæmt skoðanakönn- un sem gerð var á nokkrum vinnustöðum var áætlað að um 2.000 manns hefðu gist í heima- húsum í bænum. Þá eru ótaldar orlofsíbúðir þar sem víða var þétt skipað. „Eg tel ekki óvarlegt að áætla að allt að 15 þúsund gestir hafi verið í bænum en mikill fjöldi heimamanna og fbúa héraðsins tóku einnig þátt í dagskránni. Það létti mjög á álaginu á mið- bænum hve möguleikar til af- þreyingar voru dreifðir um allan bæ,“ sagði Árni Steinar og nefndi að engar skemmdir hefðu verið unnar í miðbæ. Hann sagði menn sífellt læra meira og í kjölfar þessarar há- tíðar yrði því í auknum mæli beint til íþróttafélaga að taka þátt, t.d. hestamanna að bjóða upp á reiðtúra og siglingaklúbbs að bjóða siglingar. „Þróunin er sú að hátíðin tekur æ meira mið af þörfum allrar fjölskyldunnar og við munum halda þeirri stefnu áfram,“ sagði Árni Stein- ar. Mikill erill var hjá lögreglu alla helgina en engin stórmál komu þó upp. Ölvun var mikil um kvöld og fram á nætur, tölu- vert var um minniháttar óhöpp og ryskingar og komur á slysa- deild FSA voru mun fleiri en um venjulega helgi. Olafur Ásgeirsson, aðstoðar- yfírlögregluþjónn á Akureyri, sagði að í heild hefði hátiðin gengið vel, en vissulega hefði mikið verið um unglingadrykkju eins og virtist tíðkast um þessa helgi og væri það nú sem áður ljótur blettur. Alls voru 37 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur um helg- ina, þar af varð ungur ökumað- ur að sjá eftir skírteini sínu eftir að lögregla mældi bíl hans á 150 kílómetra hraða við framúrakst- ur í Öxnadal. Þá voru 18 teknir vegna gruns um ölvun við akst- ur og 27 gistu fangageymslu lögreglu um helgina. Fíkniefna- mál komu upp um helgina, alls 15 talsins, en allir sem hlut áttu að máli voru með smávægilegt magn í fórum sinum, ætlað til eigin nota. Smáræði af landa var gert upptækt en miklu magni áfengis í höndum ungs fólks hellt niður eða gert upptækt. Þeir Árni Steinar og Ólafur voru sammála um að lítið hefði verið um eftirlitslausa unglinga undir 16 ára aldri á ferðinni og virtist áróður í þá átt vera að skila sér. Morgunblaðið/K. Haraldur Gunnlaugsson Skíðadeild Leifturs í Ólafsfírði Unglingar æfðu í Burstabrekkudal HÓPUR á vegum Skíðadeildar Leifturs í Ólafsfirði var við æfingar innst í Burstabrekkudal í svonefndu Drangaskarði síðastliðinn sunnudag, 2. ágúst. Burstabrekkudalur er einn af af- dölum Ólafsfjarðar, sá næst ysti í austanverðum firðinum og liggur þar raflína um Drangaskarð til Dalvíkur. Um dalinn liggur slóð fynr sérút- búna jeppa alveg fram að skarðinu oger þarna vinsæl gönguleið. í Drangaskarði er snjór allt árið og mjög góðar aðstæður til skíðaiðk- unar. Nú í ár er óvenju mikill snjór þarna vegna veðurfarsins sem ríkt hefur í sumar. Það voru elstu ung- lingarnir, sem æfa alpagreinar, sem fóru í æfingaferðina, en voru reynd- ar heldui' færri en búist var við vegna ferðalaga um verslunar- mannahelgina. Með í hópnum voru einnig Björgvin Hjörieifsson, nýráð- inn þjálfari, Jón Halldórsson í Sportvík og K. Haraldur Gunnlaugs- son formaður alpagreinanefndar skíðadeildai- Leifturs, en unglingarn- ir sem fóru voru þeir Bragi Sigurður Óskarsson, Gunnlaugur Ingi Har- aldsson og Kristján Uni Óskarsson. Farið fljótlega aftur Búið var að koma snjósleða fram- eftir nokkrum dögum fyrir æfing- arnar og var hann notaður til að draga skíðamennina upp brekkuna. Lögð var braut og var æfingin í litlu frábrugðin venjulegri vetraræfingu. Björgunarsveitin Tindur ferjaði þátttakendur fram í botn, en þeir gengu í bæinn að aflokinni æfíngu. Er þetta eflaust í fyrsta sinn í sög- unni sem alpagreinaæfing er haldin í Ólafsfirði í ágúst og er áætlað að fara fljótlega með stærri hóp, hugs- anlega strax um næstu helgi. Kerta- fleyting við Minja- safnið RÚM hálf öld er liðin frá því að atómsprengjunni var varp- að á Hírósíma. Sprengjan skildi eftir sig dauða, örkuml og sviðna jörð. Reglulega er fólk minnt á að heimurinn býr ríkulega af kjamorkuvopnum og er þess skemmst að minn- ast er Frakkland var með til- raunasprengingar og nýverið sýndu Indland og Pakistan mátt sinn á sviði kjamavopna. Nauðsynlegt er að halda merki friðar á lofti og minna börnin á að hann er ekki sjálf- gefinn segir í frétt frá aðstand- endum kertafleytingar sem verður á tjörninni fyrir framan Minjasafnið á Akureyri í kvöld, 5. ágúst kl. 23, en þar verður hörmunganna við Hírósmíma minnst. Kerti verða seld á staðnum. Gallerí SÓL Grímsey. Morgunblaðið. GALLERI var opnað í Grímsey nú fyrir skömmu og hlaut það nafnið Gallerí SÓL. Það er í húsnæði sem verbúðafólk bjó í áður. Nokkrar húsmæður í Grímsey stóðu fyrir því að gall- eríið var opnað og buðu þær gestum og gangandi upp á kaffi og meðlæti þegar þær opnuðu. Aksjón Miðvikudagur 5. ágúst 21.00^Sumarlandið Þátt- ur fyrir ferðafólk á Akureyri og Ákureyringa í ferðahug. ÁÆTLAÐ er að allt að 15 þús- und gestir hafí sótt hátíðina Halló Akureyri um verslunar- mannahelgina að sögn Árna Steinars Jóhannssonar, um- hverfísstjóra Akureyrarbæjar, en með mikilli þátttöku heima- manna og héraðsbúa megi gera ráð fýrir að allt að 25 þúsund hafí með einum eða öðrum hætti tekið þátt í hátíðinni. Fjöldi fólks var á tjaldstæðum sem boðið var upp á, en milli 2.500 til 3.000 manns voru á tjaldstæði sem Skátafélagið Klakkur var með í Kjarnaskógi og svipaður fjöldi unglinga var á tjaldsvæði KA á félagssvæði þess. Þá er gert ráð fyrir að 800 til 1.000 manns hafí verið í tjöld- um á félagssvæði Þórs og um 600 á tjaldstæðinu Húsabrekku handan Akureyrar. Nokkur hundruð manns voru í tjöldum á Hrafnagili og einnig gisti tölu- verður fjöldi fólks á aðalljald- Skemmtileg verslun F'il/ . TOTO Hafnarstræti 98, Akureyri sími 461 4022 I t í t t l » f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.