Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Erfitt að fiima salcmi
siað í miðbænimi I
fG-MU f\J 0> . -■***■
ÞÚ VERÐUR nú að rukka píparann minn um þetta, Ijúfurinn.
Eg hef ekkert með frárennslislagnir að gera, góði.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
INGIBJORG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra tók á móti hópnum á
heimili sínu ásamt Haraldi Sturlaugssyni eiginmanni sínum.
Stigar frá Starlight og
áltröppur frá Beldray
fást í öllum stærðum
í byggingavöruverslunum
um allt land
Bekfaay
Sími: 533-1999, Fax: 533-1995
Frönsku
hjólreiðamennirnir
Hádegis-
verður
hjá heil-
brigðis-
ráðherra
Akranesi. Morgunblaðið.
HÓPUR franskra krabbameins-
sjúklinga sem að undanförnu
hefur verið í hjólreiðaferð kring-
um Island kom til Akraness um
hádegi á laugardag og þáði há-
degisverð í boði Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra
á heimili hennar. Síðasti áfangi
ferðarinnar var síðan frá Akra-
nesi til Reykjavíkur síðari hluta
iaugardagsins.
Það eru samtökin „Au dei’a du
cancer“ eða „Handan krabba-
meins“ sem skipuleggja þessa
ferð og er tilgangur hennar m.a.
að sýna fram á að unnt sé að lifa
eðlilegu lífi þótt fólk hafi fengið
krabbamein. Ástæða þess að Is-
land varð fyrir valinu er sú að
þau telja að mikið sé lagt upp úr
forvarnarstarfi hér á landi og því
hafi þau viljað kynnast. Alls tók
hringferðin kringum landið
þrettán daga og voru ferðalang-
arnir ánægðir enda hafði allt
gengið að óskum og þeir heillað-
ir af stórbrotinni náttúru lands-
ins.
Við komuna til Akraness tók
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra á móti hópnum á
heimili sínu ásamt Haraldi Stur-
laugssyni eiginmanni sínum. Þar
var einnig franski sendiherrann
á íslandi til að heilsa upp á landa
sína.
www.mbl.is
Vinnuviðhorf Islendinga
Hefur alltaf
þótt fínt að
vinna mikið
Félagsstofnun
stúdenta veitti fyrir
skömmu tvo verk-
efnastyrki. María J.
Ammendrup hlaut annan
þeirra fyrir MA-verkefni
sitt í félagsfræði, „Vinnu-
viðhorf Islendinga", sem
unnið var undir leiðsögn
Stefáns Olafssonar pró-
fessors.
„Ritgerðin er bæði
fræðileg og byggð á gögn-
um úr spurningakönnun-
um Félagsvísindastofnun-
ar Háskólans. Hún fjallar
um mikilvægi vinnunnar,
vinnuhollustu, starfsá-
nægju, fyrirtækjaholl-
ustu, helstu vinnuhvata
og hugtakið vinnusiðferði
og mótun þess.
Rætt er um mikilvægi
vinnu útfrá reynslu þeirra
sem eru atvinnulausir og
m.a. fjallað um kenningar
Webers og Guðmundar Finn-
bogasonar fyrrverandi háskóla-
rekstors um mótun vinnuvið-
horfa. Ég reyni að nálgast við-
horf og aðstæður vinnandi Is-
lendinga fyrr á tímum, einkum á
18. og 19. öld, þegar skipan at-
vinnulífs var önnur en í dag.
Meginefni ritgerðarinnar er þó
um vinnuviðhorf samtíma Is-
iendinga."
- Hvað einkennir vinnuviðhorf
Islendinga?
„Islendingar hafa almennt
mjög jákvæð viðhorf til vinnu.
Við teljum vinnuna mikilvæga og
vinnusemi af hinu góða og við
myndum flest kjósa að vinna
áfram þó við þyrftum þess ekki
og erum töluvert ánægð í störf-
um okkar.“
María segir að Islendingar
leggi metnað í vinnuna og segist
vinna eins vel og þeir geti óháð
launum og teldu það slæma
breytingu ef mikilvægi vinnunn-
ar færi minnkandi. „Við erum þó
heldur óánægð með launin okk-
ar.“
- Hvað metur fólk mest í
starfí sínu?
„Þægilegt samstarfsfólk og
síðan góð laun. í þriðja sæti er
að sjá árangur af starfi sínu. Is-
lendingar leggja svo minnst upp-
úr miklum fríum."
María segir það áhugavert
ekki síst í ljósi þess að Islending-
ar vinni mjög langan vinnudag
miðað við aðrar þjóðir.
- Við erum semsagt vinnuglöð
þjóð?
„Já og ein skýring er sú að
mjög sterk vinnuhefð er á ís-
landi og það var bein-
línis nauðsynlegt fyrr
á tímum að allir ynnu
mikið. Það hefur alltaf
þótt fínt að vinna mik-
ið og vinnusemi verið talin til
dyggða.“
María bendir á að við séum
mikil neysluþjóð og þurfum að
hafa meira fyrir þvi en aðrar
þjóðir að eignast það sem við
óskum okkur. „Það verður seint
sagt að við séum nægjusöm þjóð
og það er alltaf eitthvað sem
okkur vantar.“
- Er munur á vinnuviðhorfum
eftir aldri?
„Það er töluverður og stöðug-
ur munur á vinnuviðhorfum
eldra og yngra fólks. Roskið fólk
metur vinnuna meira og telur
hana mikilvægari. Það leggur
María J. Ammendrup
►María J. Ammendrup er fædd
í Reykjavík árið 1962. Hún lauk
BA-prófi í sálarfræði árið 1993
og MA-prófi í félagsfræði árið
1998. María hefúr unnið á Fé-
lagsvisindastofnun Háskólans
frá árinu 1989.
Eiginmaður hennar er Ólafur
Hermannsson tæknifræðingur
hjá VSÓ ráðgjöf og eiga þau
tvo syni.
Þægilegt sam-
starfsfólk og
góð laun
áherslu á að vinna vel óháð laun-
um. Það er ánægðara í starfi,
hefur meiri hollustu gagnvart
vinnuveitanda og er almennt já-
kvæðara gagnvart vinnunni en
yngra fólkið.“
María segir að skýringarnar
kunni að vera margar og hún
segir að ekki sé hægt að fullyrða
að það að eldast hafi þau áhrif að
fólk meti vinnu meira. „Eldri
kynslóðin hefur á mótunarárum
sínum orðið fyrir tilteknum
áhrifum og hugsunarhætti. Þá er
líklegt að á langri starfsævi hafi
fólk fundið vinnuveitanda og
starf sem það kann að meta. Auk
þessa hefur orðið síun á vinnu-
markaði þannig að þeir óánægð-
ustu eru hættir störfum. Til við-
bótar þessu gera fjárhagsskuld-
bindingar yngra fólks það að
verkum að það skiptir oftar um
vinnu vegna launa.“
- Er munur á viðhorfum karla
ogkvenna til vinnu?
„Vinnan er álíka mikilvæg í
augum kvenna og karla og konur
virðast jafn ánægðar með vinnu
sína og karlar. Það er þó líklegt
að hún sé ekki eins miðlæg hjá
konum þar sem þær vinna
styttri vinnutíma en karlar, enda
kveður ríkjandi hefð á
um að konur hafi sér-
stökum skyldum að
gegna við fjölskyldu
og heimilið."
-Eru viðhorf til vinnu mis-
munandi eftir starfsstéttum eða
menntun?
„Já það er þónokkur munur
þar á. Til dæmis eru sérfræðing-
ar og atvinnurekendur ánægð-
astir með störf sín og verka- og
afgreiðslufólk óánægðast. Sjó-
menn og bændur hafa almennt
mjögjákvæð vinnuviðhorf.
Þeir sem lokið hafa námi á
framhalds- eða háskólastigi líta
vinnuna ekki endilega jákvæðari
augum og það er athyglisvert að
þeir sem lokið hafa bóklegu
framhaldnámi eru í mörgum til-
fellum ósáttasti hópurinn."