Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Lífeyrisbaráttan
hefur skilað árangri
ALLAN þennan ára-
tug og reyndar þann
sem á undan gekk
hafa verið umræður,
og oftar en ekki, deil-
ur um lífeyrismál. Því
er ekki að neita að
þetta hefur reynt
verulega á þolrifin.
Um langt skeið héldu
menn sig að verulegu
leyti niðri í skotgröf-
unum og á það ekki
síst við um starfsmenn
ríkis og sveitarfélaga
innan BSRB og ann-
arra samtaka opin-
berra starfsmanna
enda var hart sótt að
lífeyrisréttindum þeirra og það oft
úr ólíklegustu áttum. Hafa margir
séð ofsjónum yfir lífeyrisréttind-
um þessa fólks og hafa raddir í þá
veru jafnvel komið frá samtökum
launamanna. Fræg að endemum
varð grein stéttarfélagsformanns
þar sem grátið var yfir forréttind-
um félagsmanna BSRB og talað
um kamapavínssjóði í því sam-
bandi. Ekki hafa félagsmenn aðild-
arfélaga BSRB sem komnir eru á
lífeyri almennt þá fjármuni aflögu
að dugi fyrir miklu kamapavíni,
alla vega ekki að staðaldri. En hitt
er rétt að Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins býður upp á rétt-
indi sem eru með því besta sem
launafólk hefur náð fram hér á
landi og ætti að vera öllu launa-
fólki keppikefli að stefna að því
sama í stað þess að grafa undan
réttindabaráttu þeirra sem hér
eiga í hlut.
Kjarabætur til
frambúðar
Pegar líða tók á þennan áratug
var sú ákvörðun tekin innan
BSRB að stigið skyldi upp úr
skotgröfunum og gerð gangskör
að því gera breytingar
á lífeyriskerfinu til
frambúðar. Þetta
kostaði mikla vinnu og
talsverð átök. En þeg-
ar upp var staðið náð-
ist samkomulag við
fj ármálaráðuneytið
um breytingar á Líf-
eyrissjóði starfs-
manna ríkisins sem að
dómi okkar sem kom-
um að þessum málum
fyrir hönd stéttarfé-
laganna var fyllilega
viðunandi. Með því
Ögmundur samkomulagi tókst að
Jónasson verja kjör lífeyrisþeg-
anna auk þess sem
gerðar voru ýmsra breytingar
sem munu skila sér sem kjara-
bættur til lífeyrisþega þegar fram
líða stundir.
Enn var þó ósamið við sveitar-
félögin og hafur staðið í stappi við
Reynslan af baráttunni
fyrir lífeyrisréttindum
FS
sýnir okkur, segir Og-
mundur Jónasson, að
með staðfestu og þolin-
mæði hefst árangur.
þau um nokkurt skeið. í apríl á
síðasta ári var síðan undirritað
samkomulag á milli BSRB og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
þar sem kveðið var á um að starfs-
mönnum sveitarfélaganna skyldu
tryggð sambærileg réttindi og
þegar hafði verið samið um við
ríkið í Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins. Þetta samkomulag festu
aðildarfélög BSRB síðan inn í
kjarasamninga sína í þeim samn-
TkTunið
brúðargjafalistann
Hönnun
E. Sottsass
Mörkinni 3, sími 588 0640
casa@treknet.is
Fegurðin
kemur
innan frá
Ælinö
light
0
Yogastöðin Heilsubót,
Síðumúla 15, sími 588 5/11
Sumarnámskeið í HATHA-YOGA
Við leggjum áherslu á fimm þætti til að
viðhalda góðri heilsu:
• RÉTT SLÖKUN losar um spennu í vöðvum, róar og kyrrir
hugann.
• LÍKAMLEG ÁREYNSLA í ÆFINGUM. Þá styrkjum við vöðva,
liðbönd, liðamót, mýkjum hrygginn og örvum blóðrás
® RÉTT ÖNDUN þýðir að anda djúpt og vel.'
• RÉTT FÆÐI, sem stjórnast af hófsemi og fjölbreytni
• JÁKVÆTT HUGARFAR. Að beina huganum jákvætt að
verkefnum dagsins strax að morgni
Byrjendatímar og tímar fyrir vana yogaiðkendur.
Vetrarstarfsemin byrjar 1. september. Óbreyttir tímar.
ingum sem fóru í hönd þá um vor-
ið. í kjölfarið hófst síðan vinna þar
sem þetta samkomnulag var út-
fært og lauk henni síðan með und-
irskrift um stofnun nýs lífeyris-
sjóðs sveitarfélaga fyrir fáeinum
dögum.
Sveitarfélagasjóðurinn
markar tímamót
Hér er um að ræða lífeyrissjóð
sem tryggir starfsmönnum sveitar-
félaga sem aðild eiga að samtökum
okkar nákvæmlega sömu réttindi
og boðið er upp á í LSR. Auk þess
er boðið upp á valdeildir en Sam-
band íslenskra sveitarfélaga lagði
ríka áherslu á að upp á slíkt yrði
boðið. Hér er um merkan áfanga að
ræða og Ijóst að grunnur hefur ver-
ið lagður að því styrkja enn lífeyris-
réttindi þeirra félagsmanna BSRB
sem starfa hjá sveitarfélögum eða
stofnunum sem þeim tengjast.
Þegar hafa mörg sveitarfélög
ákveðið að gerast aðilar að hinum
nýja lífeyrissjóði. Önnur kunna
að taka ákvörðun um að halda
óbreyttri aðild að Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins en mörg
sveitarfélög hafa átt þar aðild um
lengri eða skemmri tíma og verð-
ur þeim eftir sem áður frjálst að
halda þeirri aðild óbreyttri.
Skuldbindingar sveitarfélaganna
gagnvart BSRB á sínum tíma lúta
fyrst og fremst að því að tryggja
verðmæti réttindanna en síðan
hefur atvinnurekandinn, í sam-
ráði við stéttarfélögin, um fleirí
en einn kost að velja til að full-
nægja þeirri skuldbindingu sem
þannig gæti verið innan LSR eða
hins nýstofnaða sveitarfélaga-
sjóðs.
Þótt allt miði þetta í rétta átt er
björninn ekki alls staðar unninn.
Þannig hefur hvorki Landssíminn
né Islandspóstur enn sem komið
er fullnægt þeim loforðum sem
gefin voru á Álþingi á sínum tíma
um að tryggja starfsmönnum sín-
um sömu réttindi eftir hlutafé-
lagavæðingu og þeir höfðu áður
búið við eða ættu kost á sem opin-
berir starfsmenn. Staðreyndin er
sú að ekkert stendur í vegi fyrir
því að þeir starfsmenn sem eru
félagar í BSRB fái aðild að nýrri
deild LSR þar sem greidd eru
15,5% iðgjöld af öllum launum en
ávinnsla lífeyrisréttinda í þeirri
deild er með því besta sem gerist
í landinu. Þrákelkni stjórnenda
þessara stofnana og sá ósiður rík-
isstjórnarinnar að standa ekki við
gefin fyrirheit er það eina sem
kemur í veg fyrir þetta.
Starfsmenn íslandspósts og
Landssíma á dagskrá
Næstu mál á dagskrá á sviði líf-
eyrismála er að fylgja því eftir að
öll sveitarfélögin fullnægi samn-
ingum um lífeyrisréttindi, annað-
hvort í hinum nýstofnaða Kfeyris-
sjóði sveitarfélaga eða LSR. Jafn-
framt verður gerð að því gangskör
með haustinu að knýja á um bætt
lífeyrisréttindi starfsmanna Is-
landspósts hf. og Landssímans hf.
í samræmi við gefin fyrirheit á Al-
þingi.
Reynslan af baráttunni fyrir líf-
eyrisréttindum sýnir okkur að með
staðfestu og þolinmæði hefst ár-
angur. Það hefur sannast í samn-
ingum við fjármálaráðuneytið og
nú við sveitarfélögin varðandi þá
félaga okkar sem þar starfa. Óg
hið sama mun gerast gagnvart
starfsmönnum Islandspósts og
Landssímans einnig áður en upp
er staðið. Með þrautseigjunni
hefst það.
Höfundur er alþingismaður og
formaður BSRB.
ISLEIVSKT MAL
Jón G. Friðjónsson kennir okkur
nú æ meir um áhrif Biblíunnar á
íslenskt mál. Áður hefur verið
getið hér hins mikla verks hans,
Rætur málsins.
Fyrir skömmu kom út rit Stofn-
unar Sigurðar Nordals með mörg-
um góðum greinum, og þeirra á
meðal er grein eftir Jón G. Frið-
jónsson um biblíumálið og áhiif
þess á tungu okkar. Umsjónar-
maður leyfii’ sér að birta hér svo-
lítinn kafla, og nýtur hann sín von-
andi, þótt slitinn sé úr samhengi:
„Eins og áður sagði era það
orðfræðileg einkenni ýmiss konar
sem greina biblíumálfar skarpast
frá öðra málfari og mörg þeirra
má telja til séreinkenna íslensks
biblíumáls. I yfirlitinu hér að
framan var orðfræðilegum ein-
kennum skipt í tvennt, þ.e. ann-
ars vegar þau atriði er varða ein-
stakar orðmyndir og hins vegar
þau er varða orðaforðann. Um
fyrra atriðið skal aðeins nefnt að
þess era fjölmörg dæmi að notað-
ar séu fremur sjaldgæfar orð-
myndir í biblíumáli, t.d. gjöra í
stað gera, kveld í stað kvöld, eta í
stað éta og eg í stað ég. Af svipuð-
um toga er notkun persónufor-
nafnanna vér og þér í stað við og
þið og eignarfornafnanna vor og
yðar í stað okkar og ykkar. Um
sérstakan orðaforða íslensks bibl-
íumáls er það að segja að þar era
einkennin trúlega sterkust og eru
þau af þrennum toga, þau varða
einstök orð, orðatiltæki og máls-
hætti. Til yfirlits skulu nefnd
nokkur dæmi:
a. Einstök orð: syndaselur;
syndaregistur; samviskubit;
bernskuglöp; manngreinarálit;
ásteytingarsteinn; hornsteinn;
dauðasynd; hyrningarsteinn;
hrösunarhella; hjálparhella;
Salómonsdómur og lífsbók.
b. Orðatiltæki: blása e-m e-u í
brjóst; senda e-n út af örkinni;
skjálfa á beinunum; koma eins og
þjófur á nóttu; leggja stein í götu
e-s og iifa í vellystingum praktug-
lega.
c. Málshættir: Afl fylgir aldrí
manns; Verkið lofar meistarann;
Af litlum neista verður oft mikið
bál; Dauðinn dvelur eigi; AIIL er
með ráði gjörandi og Maðurinn
lifir ekki af einu saman brauði.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
964. þáttur
í þessum kafla hefur verið
drepið á ýmis atriði sem til þess
era fallin að greina biblíumálfar
frá öðra málsniði. Þau atriði sem
minnst hefur verið á era mismik-
ilvæg en skýrast eru biblíumáls-
einkennin á sviði orðfræði. Þegar
öll einkennin koma saman má
telja að það málsnið sem einkenn-
ir trúarlega texta skeri sig skýrt
úr annars konar málsniði.“
★
Frá Pétri og Páli:
1) I staðinn fyrir „umboðsaðil-
ar“ leggjum við til að komi um-
bjóðendur. Finnið þið ekki hvað
neytendur er miklu betra en
„neysluaðilar"?
2) I fréttum Stöðvar tvö mátti
heyra að haldinn hefði verið „fjöl-
mennur fyrirlestur" og telst það
að vísu til tíðinda.
3) Ríkissjónvarpið fær hins
vegar stig hjá okkur fyrir styðj-
endur í stað „stuðningsaðilar".
Og væri þá ekki upplagt að nota
orðið kostendur, þegar það á
við?
4) Þá senda þeir félagar:
Ríkis- var Jóna á -jötunni,
en í janúar sneri hún við plötunni:
fór að vinna alveg sjálf-
stætt og eignaðist Álf,
og nú eru þau bæði á götunni.
★
Klara var bóngóð við bossana,
en barði með priki alla tossana;
hún var konan hans Frímanns,
og í fyllingu tímans
mun forsetinn vafalaust kross’ ‘ana.
og öll hjarta míns dulin og deyjandi fræ
urðu dýrðleg, sem ljómandi vor.
En mín sál var þó kyr, því að kraptanna
flug
eins og kyrrasta jafhvægi stóð,
og mjer söng einhver fylling í svellandi
hug,
eins og samhljóma gullhörpu ljóð.
Eins og heilög Guðs Ritning lá hauður
og sær,
allt var himnesku gull-letri skráð,
meðan dagstjaman kvaddi svo dásemdar-
skær
eins og deyjanda Guðssonar náð.
★
Bjarni Sigtryggsson í Kaup-
mannahöfn sendir okkur eftirfar-
andi lesmál og hefur sýnilega
ekki verið ánægður með málfarið
á fréttinni sem hann las á Morg-
unnetinu:
„Nefnd á vegum samgönguráð-
herra telur hagkvæmt að byggja
ráðstefnumiðstöð í Reykjavík í
tengslum við byggingu tónlistar-
húss. Æskilegast sé að þessi mið-
stöð verði staðsett í eða við mið-
bæ Reykjavíkur, við byggt eða
óbyggt hótel.“
Bjami kvað:
Hér sit ég, hinn ókomni gestur með
ókunnu hyski
á óbyggðu hóteli og bíð eftir óveiddum
físki.
Við fáum víst hraðrétt
enda harla vel staðsett
hjá óbyggðu borði með óhreinu glasi
og diski.
Meira frá Bjarna innan
skamms.
Engan mun undra að unun sé
að lesa Þjóðólf frá þeim árum,
þegar sr. Matthías Jochumsson
var eigandi hans og ritstjóri.
Matthías var ekki sínkur á ljóð
sín, jafnvel sum þau allra bestu,
sem sett voru í blaðið af full-
komnu yfirlætisleysi, rétt eins og
eyðufyllingar. Ég ætla að taka
stafrétta endurprentun á síðara
helmingi snilldarverksins sem nú
gengur undir nafninu Leiðsla, en
þá hét Hugsjón (ort á þjóðhátíð-
inni 1874):
Jeg andaði himinsins helgasta blæ,
og minn hugur svalg voðalegt þor,
Pumpið er æði, pumpið (body
pumping) er nýjasta æðið, sagði
kona sem ekki vill flíka nafni sínu.
Umsjónarmanni líst pi’ýðilega á
þetta, þó hann fari ekki sjálfur í
pump.
Hannes Pétursson skáld hefur
tjáð mér að vísan um Nikódemus,
sjá 961. þátt, sé eftir sr. Hallgrím
Thorlacius í Glaumbæ, „ort til
gamans við skál og spil“.
Ragnar Amason hefur vísuna
eilítið öðravísi en ég, en það gerir
ekkert til.