Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 31
AÐSENDAR GREINAR
Meðaltöl
misvísandi!
Það er ljóst að mjög margir hafa úr litlu að spila
á elliárum, segir Páll Gíslason, enda bregður
flestum við, þegar þeir líta á tryggingabætur og
bera þær saman við fyrri launatekjur.
EFTIR að skýrsla
forsætisráðherra til Al-
þingis um hagi aldr-
aðra, sem unnin var af
Þjóðhagsstofnun, kom
fram í vor, varð of lítil
umræða þar um hana.
Þetta var mjög athygl-
isverð skýrsla en kafn-
aði alveg í rifrildi á
þingi af ýmsu tagi í
spreng fyrir þinglok.
Skýrsla þessi er
mjög vel unnin, þar
kemur margt vel fram
um hagi aldraðs fólks í
ýmsum löndum. Páll Gíslason
Á skýrslunni eru
samt tveir aðalgallar.
1. Borin eru saman kjör fólks í
mjög ólíkum löndum, svo að að-
stæður eru ekki sambærilegar.
2. Mest er stuðst við meðaltöl,
sem geta verið mjög misvísandi
þegar dreifíng upphæða er mikil.
Einn ellilífeyrisþegi hefur t.d. 1
miljón króna á mánuði, en aðrir 60
þúsund krónur. Þetta gefur mjög
rangar upplýsingar, sem blekkja
menn.
Skipting bóta á íslandi
Á íslandi eru nú 27.480 manns
yfir 67 ára aldri, þar af hljóta
23.162 manns einhvem grunnlíf-
eyri, en 22.825 einhverja tekju-
tryggingu og 9.818 manns fá
óskerta tekjutryggingu. Þetta fólk
hefur frá almanna tryggingum
(ellilífeyrir + tekjutryggingu) um
62.758 kr. á mánuði til að lifa af og
sé um hjón að ræða þá lækkar upp-
hæð á mann.
Sem betur fer voru „aðilar“
vinnumarkaðarins svo skynsamir
upp úr 1970 að koma á skylduellilíf-
eyristryggingu, sem tryggðu lág-
marks greiðslur. Þeir sem hafa
greitt í lífeyrissjóði fá nú nokkurt
fé, en þá kemur bakslagið, því að þá
lækkar tekjutrygging, svo að marg-
ir lenda í svokallaðri „fátækra-
gildru": Meira úr lífeyrissjóði -
minna frá almannatryggingum
vegna lækkunar tekjutryggingar.
Skipting tekna
Það er því ljóst að mjög margir
hafa úr litlu að spila á elliárum,
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtír, k jólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
enda bregður flestum
við, þegar þeir líta á
tryggingabætur og
bera þær saman við
fyrri launatekjur.
En þessu fé, sem
kemur frá lífeyrissjóð-
um og almannatrygg-
ingum er misskipt af
ýmsum ástæðum og
aðstæðum fólks. Jafnt
hjá öldruðum og öðr-
um. Og þó að mis-
skipting sé talnalega
séð minni hér en ann-
ars staðar blasir þetta
betur við augum
vegna smæðar þjóðfé-
lagsins. Þetta kemur víða fram í
þjóðfélagsumræðu, þar sem margir
fá sama eða meira á mánuði, en
aðrir á ári.
En lítið gerist í því, þó að tveir
fyrrverandi bankastjórar, sem í
áratugi voru þingmenn og ráðherr-
ar, tali um þetta, en gerðu ekkert í
því þegar þeir höfðu völd og að-
stöðu til þess að miðla málum.
Meðaltölin!
Eins og kemur fram í grein
Orra Haukssonar sem byggir á
Samsetning tekna ellilífeyrisþega 1996
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
3.000
2.500
-2.000
1.500
1.000
- 500
skýrslunni margumtöluðu þá
byggir hann sínar skoðanir á
meðatölum sem eru oftast mis-
vísandi.
Á einu línuriti í grein hans 22.
júlí um skiptingu heildartekna tel-
ur hann að hagur hinna lægst laun-
uðu hafi batnað í hlutfalli við aðra.
í greininni er skipurit sem m.a.
segir að sé hópnum skipt í 10 jafn-
mannmarga hópa fái þeir lægstu
5,6% af heildartekjum aldraðra og
hafa hækkað um 0,2%, en þeir
hæstu, tíundi hluti hópsins, 24,0%
og hafi hækkað um 0,6% milli ár-
anna 1991 og ‘96.
Þetta segir okkur að þeir hæstu
hafa um 5 sinnum hærri tekjur en
þeir lægstu. Þetta leiðir í ljós mis-
mun, sem erfitt er að gagnrýna
ekki. Séu teknir 2 neðstu flokk-
arnir (20%) og borið saman við 2
þá efstu er mismunurinn þrefald-
ur. Nú er alltaf best að miða við
krónur en ekki prósentur. Orri
Hauksson telur að hinir tekju-
lægstu hafi aukið sinn hlut, en
0,2% aukning gerir ekki margar
krónur. Prósentureikningur er
hagkvæmastur þeim sem hæst
hafa launin.
Hvað er til ráða?
Það er öllum Ijóst að hagur fólks
almennt hefur batnað á síðustu ár-
um, en mismikið eins og alltaf
verður.
Kjör þeirra lægst launuðu eru of
kröpp og velferð verður fólgin í að
bæta þau, eins og efnahagur þjóð-
félagsins leyfir.
Nú segja menn að hagkerfið þoli
ekki of hraðar launabætur, þá komi
verðbólgan aftur og engir þola
hana verr en láglaunafólk. En er
það virkilega þetta fólk, sem kaup-
ir alla bílana eða fer í utanlands-
ferðir o.s.frv.
Það sem á að gera fýrir þetta
fólk:
1. Hækka ellilífeyrir til sam-
ræmis, sem áður var.
2. Greiðslur frá almannatrygg-
ingum fylgi launaþróun í landinu
og verði miðuð við launavísitölu
Hagstofunnar, þetta er mjög brýnt
nú.
3. Greiðslur frá lífeyrissjóðum
stéttarfélaga verði skattlagðar
þannig að % hlutar falli undir 10%
fjármagnsskatt, enda orðnar til við
ávöxtun framlagsins á greiðsluár-
unum.
Margt fleira mætti nefna, en ég
vil ekki ljúka svo þessari grein án
þess að minna á hinn geigvænlega
skort á hjúkrunarheimilium fyrir
aldraða, mest í Reykjavík og ná-
grenni, þar er þörfin fyrir hjálp og
umönnun mest.
Höfundur er formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík.
Síðustu dagar útsölunnar
50% afsláttur
af öllum vörum
fierra
GARÐURINN
KRINGLUNNI