Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Allir í röð Það er alls ekki augljóst hvaða þœttir skuli hafa áhrifá forgangsröðun og kannski er hara hægt að nota einhvers konar útilokunaraðferð ýtur sá, sem greiðir úr eigin vasa fyrir heil- brigðisþjónustu er hann fær, ósann- gjarnra forréttinda vegna efna- hags síns, eða er hann aðeins að neyta sjálfsagðs réttar síns og að auki að létta undir með hinu opinbera kerfi? Ági'einingurinn snýst fljótt á litið um það hvort gera skuli fólki kleift að leita sér sjúkra- þjónustu utan hinnar opinberu heilsugæslu. Annars vegar má halda því fram, að slíkt bjóði heim misrétti, en hins vegar má færa að því VIÐHORF rök að svo Eftir Kristján G. Þurfi ekki að Arngrímsson vera og aukm- heldur létti þeir sem leiti sér þjónustu annars staðar und- ir með hinu opinbera kerfi með því að krefjast ekki þjónustu þess. Ef nánar er að gáð kemur í ljós að ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um skOning á „forgangsröðinni" og spurning- una um það hvort hægt sé að fara „út fyrir“ hana, eða hvort „út fyrir“ hljóti að jafngilda „fram fyrir“. Þetta má skilja sem svo, að það séu allir í röð- inni og að ekki sé hægt að fara út fyrir hana, hvorki með því að kaupa sér þjónustu annars staðar né með öðrum hætti. Þar af leiðandi mætti halda því fram, að sá sem kaupir sér þjónustu í stað þess að þiggja þjónustu hins opinbera sé í rauninni að kaupa sig fram fyr- ir þá sem voru á undan honum í röðinni. Það er að segja, hann hefur ekki farið út úr röðinni, heldur einfaldlega fremst í hana. En nú má hafna ofanrituðu og halda því fram að það sé ein- falt mál að fara út fyrir röðina. Þá væri litið svo á, að ef maður keypti sér heilbrigðisþjónustu, til dæmis einhverja aðgerð, þá hafi maður einfaldlega farið burtu úr röðinni og þar sé því einum færra og biðin styttist fyrir þá sem voru fyrir aftan mann. Það er því ekki litið svo á, að maður hafi „keypt sig fremst" í röðina. En rökin fyrir því að ekki sé hægt að tala um að fara „út fyr- ir“ röðina virðast einkum vera tvenn. I fyrsta lagi er heilbrigði eitthvað sem varðar alla. Þess vegna eru ekki bara sumir í röðinni, heldur allir. Enda hvert væri maður kominn ef maður færi „út fyrir“? Svo lengi sem maður er manneskja þarf maður nauðsynlega á heilsu- gæslu að halda og er þar af leiðandi aOtaf í umræddri röð. í öðru iagi er heilbrigði meira um vert en flest annað. Það er gildi sem er æðra en flest önnur gildi. Segja má að þetta sé ekki spurning um skoðun (það er að segja, hvað manni finnst), heldur virðist sem hægt væri að færa fyrir því sterk rök að heilbrigði (og þar af leiðandi heilsugæsla) sé í sjálfu sér mikilvægara en flest annað. Ennfremur skiptir máli hvað ákvarðar hvar maður er (eða var) í röðinni. Það má halda því fram að þættir á borð við efna- hag eigi ekki að ráða neinu um það hvar maður skipast í röð- ina. Það blasir hins vegar alls ekki við hvaða þættir skuli hafa áhrif þar á, og kannski er ein- ungis hægt að nota einhvers konar útilokunaraðferð, það er að segja, tína til þá þætti sem ekki skuli ráða neinu og rök fyrir því hvers vegna þeir skuli útilokaðir. Því er oft haldið fram að það væi'i ósanngjarnt að efnahagur fengi að ráða því hvar maður skipaðist á biðlistann. Forsend- an fyrir því að þetta sé nefnt ósanngirni hlýtur að vera sú að jafn réttur allra sé talinn vera grundvallaratriði í heilsugæslu, og frá því atriði megi ekki víkja. En við þessu má bregðast og segja það ekki raska jöfnuði að maður kaupi sér þjónustuna sjálfur, því maður hafi einfald- lega gengið úr því mengi sem um ræðir (röð þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda) og eiginlega afsalað sér sjálf- viljugur réttinum til jöfnuðar við hina í menginu. Þetta geri maður af fúsum og frjálsum vilja og hljóti að mega gera, og að það teljist skerðing á frelsi manns að vera meinað um það. Ef litið er svo á, að þetta sé raunhæf lýsing á skipan mála, er ekkert ósanngjarnt við það að maður kaupi sig út úr röð- inni. Það er þvert á móti sann- gjarnt að maður fái að gera það ef manni sýnist svo. Jafnræðis yrði gætt með því að allir hefðu þennan rétt. Þeir sem nýttu sér réttinn til að kaupa sig úr röðinni myndu þar að auki létta undir með þeim sem ekki færu úr röðinni og þeir sem færu hefðu því ekki aðeins nýtt sér fjármuni sína sjálfum sér einum til hagsbóta. Sé þessu sjónai-miði undið áfram má bæta við, að þeir sem kaupa sér þjónustu annars staðar hafa samkvæmt þessu ekki látið sterka efnahagsstöðu sína hafa áhrif á það hvar þeir skipast í röðina, heldur hefur efnahagur þeirra vikið þeim úr röðinni. En aOt er þetta háð þvf frum- skilyrði að það sé yfirleitt mögulegt að ganga úr röðinni, og þvi hlýtur umræðan að ber- ast aftur að þeirri spurningu hvort hægt sé að gera grein fyrir því að svo megi vera. Vandinn við það er bara sá, að þegar kemur að heilbrigðis- málum erum við einhvern veg- inn öll á sama báti og enginn veit hver kemur til með að þurfa kúlu í mjöðm eða upp- skurð á heila. Kjarni málsins er sá, að ekkert sem við gerum sjálf ræður úrslitum þarna um. Og það er fyrst og fremst á þessari forsendu sem því er haldið fram að það séu allir í röðinni alltaf. Atvinnu- og umhverfis- mál í sátt og samlyndi ÉG Á því láni að fagna að vera að vinna á Þingvöllum í sumar og mun eflaust búa að því um langa hríð. Náttúr- an er einstaklega fögur og þar sem ég vinn á nóttunni þá fæ ég notið alls þessa í ró og næði. Sólarlagið og sólarupp- rásin og hin fagi-a ís- lenska sumamótt sem bindur þetta saman. Það er oft stillt og kyrrt hér og því fæst tækifæri til að greina hin smávægilegustu hljóð náttúmnnar. Hvort sem það er ár- niður Öxarár, söngur smáfuglanna eða lágt skvaldrið í gæsunum þar sem þær fylgjast með ungum sín- um. Það er á stundum sem slíkum sem ég velti fyrir mér hvernig þetta mun horfa við kynslóðum fl-amtíð- arinnar, munu þær hafa sama tæki- færi og ég til að upplifa þessi und- ur? Hvar í forgangsröðinni verða umhverfismál sett? Umhverfismál í brennidepli Samband ungra framsóknar- manna gerir sér grein fyrir þeiri'i staðreynd að umhverfísmál verða mál málanna í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Þess vegna er mikilvægt að taka þau með í reikninginn við framtíðarstefnumótun á öllum svið- um þjóðfélagsins. Borið hefur á því að umhverfisvernd og atvinnuupp- byggingu sé stillt upp sem and- stæðum pólum og sjálfskipað um- hverfisverndarfólk eða atvinnuupp- byggingarsinnar farið í hvora skot- gi'öf fyrir sig og barist fyi'ir sínum hagsmunum. TO þess að falla ekki í þessa gryfju sem getur hamlað gegn framfönim og þróun í þjóðfé- laginu er nauðsynlegt að taka um- hveifíssjónai-mið í reikninginn strax í stefnumótunarferlinu í stað þess að rekast á veggi við fram- kvæmd mála. Það ber að hafa í huga að hugtakið sjálfbær þróun vísar ekki til umhverf- isverndar án þróunar, heldur þess að hag- rænir, umhverfislegir og félagslegir þættir séu teknir með í reikn- inginn við ákvarðana- töku og stefnumótun. Umhverfismál og hag- þróun þurfa alls ekki að vera andstæðir pól- ar, mun frekar ber að líta á málið sem sam- spil þátta sem verður að skoða tO hlítar. I takt við þessa afstöðu var ákveðið fyrir Sam- bandsþing SUF að sameina ályktanagerð um atvinnumál og umhveifísmál og reyna þannig eins og fyi'r sagði að sætta sjónarmiðin. Ályktun um um- hveifís- og atvinnumál var síðan samþykkt samhljóða á þinginu. Notkun hagrænna stjórntækja Meðal þess sem kom fram í ályktuninni var að stefna að nýt- ingu nýrra orkugjafa, stöðva gróð- ureyðingu á hálendinu, flokka sorp og endurvinna, vinna gegn losun geislavii’ki'a efna í hafið og að leita leiða til notkunar hagrænna stjórn- tækja til minnkunar mengunar. Lýst var yfir stuðningi við fiskveiði- stjórnunarkerfið með tOliti til um- hverfissjónarmiða, hvatt til líf- rænnar eða vistvænnar framleiðslu í landbúnaði, lagt til að tekið verði gjald af ferðamönnum fyrir aðgang að viðkvæmum stöðum tO fjár- mögnunar verndaraðgerða. Það var bent á að móta þuifí skýra stefnu um hvaða staðir eigi að vera áfram ósnortnir af virkjunarframkvæmd- um og ávallt fari fram umhverfis- mat áður en framkvæmdir hefjast. Það má einnig geta þess að um- hverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um meginreglur umhverfisréttar og munu þær treysta enn frekar stoðir umhverf- issjónarmiða í stefnumótun. Samband ungra fram- sóknarmanna gerir sér grein fyrir þeirri staðreynd, segir Einar Skúlason, að um- hverfismál verða mál málanna í fyrirsjáan- legri framtíð. Samþykkt að halda umhverfis- ráðstefnu í haust Þingið samþykkti einnig að beina þeim tilmælum til nýkjörinnar stjórnar að halda umhverfisráð- stefnu í haust og kryfja þennan mikilvæga málaflokk til mergjar. Ráðstefnan verður auglýst nánar síðar, en þeir sem vilja taka þátt í undirbúningi hennar er bent á að gefa sig fram við skrifstofu Fram- sóknarflokksins í síma: 562-4480 eða senda tölvupóst til sufÉis- landia.is. Það er einnig hægt að fá nánari upplýsingar á heimasíðu SUF um ályktanir þingsins: http://www.is- landia.is/framsokn/suf. Að taka þátt Mig langar að nota tækifærið og hvetja ungt fólk til að taka þátt í því unghðastarfi sem fer fram hjá stjórnmálaflokkunum. Þetta er skemmtilegt starf sem gefur nánari innsýn og þekkingu á þjóðfélaginu. Umhverfismál nútímans snúast að miklu leyti um pólitíska ákvarðana- töku og ólíka hagsmuni. Umhverfið er dýrmætt fyrir framtíð ungs fólks og þátttaka í stjórnmálum getur verið mikOvægt skref fyrir ungt fólk að taka þátt í þessari stefnu- mótun og tryggja þannig að sjónar- mið þeirra heyrist. Höfiindur er varaformnður Sam- bands ungra framsóknarnianna. Einar Skúlason Tjaldið er fallið BÚIÐ er að gefa út dánarvottorð fyrir Al- þýðubandalagið sem stjórnmálaflokk, ein- ungis er eftir að ákveða hvenær eigi að kasta rekunum. Þessi ákvörðun var tekin á aukalandsfundi flokks- ins nú í byrjun júlí. Talsmenn sameigin- legs framboðs A-flokk- anna leggja áherslu á að hér sé einungis ver- ið að leggja af stað í verkefni þar sem unn- in verði eftir sam- starfsáætlun fyrir næstu fjögur ár. Það liggur hins- vegar ljóst fyrir að þar sem farið er í sameiginlegt framboð en ekki formlegt samstarf, þá verður ekki til baka snúið. Enda þótt því hafi verið haldið fram af ýmsum fund- armönnum að hér sé einungis um einfalda tæknilega breytingu að ræða, sem sé í raun ekki stórvægi- legri en að skipta um kennitölu á fyrirtæki, liggur ljóst fyrir að í huga annarra er á ferðinni meiri og afdrifaríkari ákvörðun en svo. Þáttur forystu fiokksins I máli þeirra sem eru ósáttir við þróun mála kemur glöggt fram að hlutur forystunnar er hér býsna mikill, eins og gefur að skilja. Af- drifarík ákvörðun er tekin án þess að vilji sé til málamiðlana. Það hef- ur verið farið í hringferð um landið af minna tilefni en hér var til umræðu til að kynna fyrir félags- mönnum hvaða hug- myndir væru lægju á borðinu og afstaða þeirra könnuð gagn- vart fyrirhuguðum breytingum. Það var ekki gert í þessu til- felli. Þess í stað voru lögð fyrir nýliðinn aukalandsfund mjög gróf drög að málefna- skrá sem lítil vinna hafði verið lögð í og allir voru sammála um að væru alls ófullnægj- andi. Kaflinn um utanríkismálin, sem í huga margra vegur þungt Flokkurinn er klofinn, segir Gunnlaugur Júlíusson, og margir traustir félagar hafa sagt skilið við hann. varðandi endanlega afstöðu, lá til dæmis ekki íýrir fyrr en á lands- fundinum sjálfum. Skipa þurfti sér- stakan starfshóp á fundinum til að yfirfara textann og vinna hann bet- ur. Atkvæðagreiðsla var síðan m.a. afgreidd með fulltingi töluverðs hóps fólks sem sást ekki á fundinum fyrr en atkvæðagreiðsla fór fram. Það verður að líta svo á að það hafi Gunnlaugur Júlíusson ekki haft neinn áhuga á málefna- legri umræðu sem slíkri, heldur ein- ungis komið til að leggja sitt lóð á þá vogarskál að leggja flokkinn nið- ur. Niðurstaðan er því sú að flokk- urinn er klofinn, margir traustir fé- lagar hafa sagt skilið við hann en stór hluti dokar við með að taka af- stöðu þar til að málin hafa skýrst og málefnagrunnur liggur fyrir. Hvað svo? Formaður Alþýðuflokksins getur ekki leynt ánægju sinni með þá þróun sem átt hefur sér stað þegar Alþýðubandalagið kemur klofið til samningaviðræðna. Hann er þegar farinn að tala um hvernig Alþýðu- flokkurinn eigi að vinna þegar hann verði orðinn stór flokkur og víðsýnn. I húsi mínu eru margar vistarvenu'. Þarna er því ekki verið að tala um að stofna nýjan flokk heldur eiga aðrir að ganga í AI- þýðuflokkinn. Það gætu orðið þung skref fyrir ýmsa. Það liggur þegar fyrir að fjöldi fólks hefur ekki skipt um skoðun þess efnis að það sé ekki einungis sögulegur arfur sem skildi að Al- þýðuflokk og Alþýðubandalag, heldur var og er um að ræða djúp- stæðan pólitískan ágreining á margan hátt. Ein fundarsamþykkt breytir þar engu um. Hluti þess hóps hefur tekið þann kost að segja sig frá þeim samruna flokkanna sem í vændum er. Hvað framtíðin ber í skauti sér kemur í ljós en það eitt er víst að hafi verið vettvangur fyrir skarpa pólitíska umræðu hér áður mun þörf fyrir hana ekki minnka hér eftir. Höfundur er sveitarstjóri á Raufar- höfn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.