Morgunblaðið - 05.08.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 37
LÖG og réttur er einn
af hyrningarsteinum
hvers lýðræðisþjóðfé-
lags, en ótrúlega mikil
hneigð virðist vera hjá
stórum hópi einstak-
linga til að yfirtroða
þau lög, sem þjóðfélag-
ið setur þegnum sínum,
þeim til verndar og
réttar, en með brotum
á þjóðfélagsreglum eru
oft og tíðum skert mik-
ilsverð réttindi ann-
arra. Því er það vörn og
viðbrögð þjóðfélagsins
til að verjast réttar-
brotum, að refsa söku-
naut, en tilgangur refs-
inga í hvaða formi sem er á að vera
gerandi til varnaðar svo og öðrum
til viðvörunar, auk þess fullnægir
það réttlætiskennd almennings,
sem ekki sættir sig við lögbrotin.
Með refsingu ætlast og löggjafinn
til, að hún sé á þann hátt fram-
kvæmd, að eigi verði hinn seki
beiskari út í þjóðfélagið en efni
standa til og að hún megi fremur
vera þroskandi þannig að sökunaut-
ur skilji í hvaða tilgangi refsingin er
framkvæmd. Það hefur og sýnt sig,
að engar refsingar eru svo harðar,
að þær hafi komið í veg fyrir afbrot
af ótta við þær. Þess vegna hafa lög-
gjafar og aðrir valdamenn talið sig
hafa komist að þeirri niðurstöðu, að
aftökur og líkamsmeiðingar, ættu
ekki heima í refsilöggjöf og því hafa
þær nú verið afnumdar í æ fleiri
löndum, hér 1928. Sumstaðar hafa
þær þó verið teknar upp að nýju.
Framkæmd refsinga
Þó að aftökur og líkamsmeiðingar
hér á landi hafi verið af lagðar hafa
menn ekki verið á eitt sáttir um
hvernig árangursríkast sé að fram-
kvæma refsinguna. Af nýlegum
skrifum um þessi mál er enn deilt
um þau. Með því að mig skortir ekki
tíma datt mér í hug, sem fyrverandi
fangelsisstjóri, að leggja örfá orð í
belg, hér um, þó ég geri mér grein
fyrir að hér verður ekki um nein
vísindi að ræða, enn kannski hvorki
villulausara eða gáfulegra enn önn-
ur skrif um þessi mál. Á þeim tíma,
eða fyrir rúmum 35 árum sem ég
vann við þessi mál, fór
ég til Danmerkur og
Noregs til að kynna
mér hvernig nágrann-
ar okkar og frændur
rækju sín fangelsis og
refsimál. Heim kominn
úr þessari ferð var ég
hundóánægður yfir að
sjá hinn mikla mismun
á allri aðstöðu þar og
hér heima og sagði upp
starfi mínu nokkru síð-
ar, þar sem ekki hillti
undir neinar eða litlar
úrbætur. Ég hygg að
þessir nágrannar okk-
ar, miðað við ýmsar
þjóðir, standi framar-
lega í framkvæmd varðandi refsing-
ar. Það var mikil greining á föngum
eftir aldri og afbrotum, ýmist opnar
eða hálfopnar og síðan lokaðar
stofnanir sem skiptust í deildir eftir
því hve erfiðir fangar voru. Segja
má að fangavistin hjá þeim yngri
Refsingin ein og sér,
segir Guðmundur Jó-
hannsson, verður
sjaldnast lækning á af-
brotahneigðinni.
sem villst höfðu af hinum þrönga
vegi dyggðarinnar væri nánast end-
urhæfing á uppeldi. Þama var
vinnuskylda. Flestir höfðu flosnað
upp frá námi og því var lögð mikil
rækt við það, enda var fjöldinn allur
sem lauk einhverju iðnnámi á refsi-
tímanum. Þannig var það á þeim
tíma í huga þessara þjóða ekki efi
að nauðsyn bæri til að aðgreina
yngri afbrotamenn frá hinum eldri
og forhertari og í huga manns virð-
ist það vera raunhæf hugsun að svo
sé. En með því að ég hef mjög tak-
markað fylgst með þessum málum
æðilengi er mér ekld kunnugt um
hvort einhver vísindaleg ransókn
hafi farið fram á því sviði.
Lög, framkæmdir og atkvæði
15. mars 1961 voru samþykkt lög
frá Alþingi um byggingu nýs ríkis-
fangelsis, ég held ég megi segja að
það hafi ekki séð dagsins ljós enn
þann dag í dag. Ef ég man rétt mun
hafa verið komin teikning að því og
einhver jarðvinnsla byrjuð þegar
hætt var við allt saman, enn byggt
var við Vinnuhælið á Litla-Hrauni
og það endurbætt, sem að sjálf-
sögðu hefur verið til bóta, en kemur
engan veginn í stað alvöru deilda-
skipts fangelsis. Þegar ég vann að
þessum málum lét yfirmaður minn,
þáverandi dómsmálaráðherra sem
var mikilhæfur stjórnmálamaður,
þau orð falla að þessi málaflokkur
væri þess eðlis, að hann væri lítið
vinsæll til atkvæðafylgis og því
fengi hann ekki sína eigin flokks-
menn til að styðja sig til að veita fé í
þessi mál. Kannski er þetta sjónar-
mið enn ríkandi hjá stjórmálamönn-
um, að atkvæðin ráði afstöðu þeirra
og gjörðum, en ekki er efi að þessi
málaflokkur hefur setið eftir miðað
við aðra uppbyggingu þjóðarinnar í
gegnum árin. Það er af sem áður
var þegar fangelsi þjóðarinnar var
ein virðulegasta bygging í höfuð-
staðnum og hýsir nú sjálft sjórnar-
ráðið. Segja má að það sé dálítið
táknrænt.
Orsök afbrota
og lækning
Margar kannanir hafa farið fram
á orsökum afbrota. Kannski hefur
enginn komist að öryggri niður-
stöðu, hverjar þær eru, en ég minn-
ist þess frá mínum starfsárum við
fangelsismál að stofnun í New York,
í samráði við dómstóla og yfirmenn
fangelsa, komst að þeirri niðurstöðu
að afbrotahneigðin stafaði af utan-
aðkomandi sálrænni persónurösk-
un, fremur en líkamlegum sjúk-
dómi, og að einhverju leyti spila hér
inn í erfðir. Auk sálrænna meðferða
taldi umrædd stofnun vinnuna eina
bestu lækningameðferðina og þar
er ég sannarlega sammála. Hér sem
víða annarstaðar er ekki hægt að al-
hæfa neitt, því afbrotahneigðin er
og verður einstaklingsbundin. Það
er með hana eins og aðra sjúkdóma
að mismunandi er að lækna hvern
og einn og sumir reynast illlækn-
andi og jafnvel ólæknandi. Hitt er
jafn mikil staðreynd að refsingin ein
og sér verður sjaldnast lækning á
afbrothneigðinni, hún er ill nauðsyn
sem ekki er hægt að komast hjá.
Höfuadur er eftirlaunaþegi og
fyrrv. fangelsissljóri.
Fangelsismál
Guðmundur
Jóhannsson
Mazda 323
Starfsnám fyrir
leiðsögumenn
Innritun í leiðsögunám fer fram 5.-12. ágúst nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
skólans þessa daga kl. 10.00-14.00.
* Umsækjendur skulu hafa stúdentspróf eða sambærilega
menntun og vera orðnir 21 árs þegar námið hefst.
* Umsækjendur þurfa auk íslensku að hafa gott vald á
a.m.k. einu erlendu tungumáli.
* Umsækjendur þurfa að panta viðtalstíma og skrá sig í
inntökupróf. Viðtalið fer fram á íslensku en inntöku-
prófið á því tungumáli sem umsækjandinn velur.
* Heimilt er að takmarka fjölda nemenda ef umsóknir
verða fleiri en skólinn annar.
* Námið er bæði bóklegt og verklegt.
Skrifstofa Leiðsöguskólans er opin
virka daga kl. 10.00-14.00.
Gengið er inn frá Hávegi.
Leiðsöguskóli Islands
MENNTASKÓLANUM í KÓPAVOGI
Digranesvegi 51, Kópavogi.
sími 544 5520.
www.mbl.is
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir