Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 41
'3
1
4
J
4
4
1
4
I
ú
Í
4
t
4
Í
ú
4
4
mikil framsóknarkona. Hún amma
er í mínum huga mikill kvenskör-
ungur sem fylgdist vel með tækni
og framfórum. Fyrir fáeinum árum
var sýnd í sjónvarpinu heimildar-
mynd um fyrstu bílana á Islandi.
Nema hvað í miðjum þætti kemur
hún amma skörungur keyrandi nið-
ur Bankastrætið í Reykjavík.
Henni fannst kominn tími til að
nýta sér vélaraflið. Áður hafði hún
farið flestar ferðir sínar fótgang-
andi eða á reiðhjóli í öllum veðrum,
allan ársins hring og hvenær sem
var sólarhringsins. Amma var ljós-
móðir af lífi og sál og þegar kallið
barst var hún rokin af stað. Það
voru líka ófáar sögurnar sem hún
sagði mér af ævintýrum sem hún
lenti í á löngum starfsferlinum. Það
virtist allt sem hún hafði gert og
upplifað hafa farið inn í hvílíkt ofur-
minni hjá henni, að engu fær við
líkt. Hún mundi ártöl tugi ára aftur
í tímann tengd ákveðnum atburð-
um og oftast þá barnsfæðingum.
Amma Þórdís var ávallt mjög
rausnarleg en kaus að hafa sitt eig-
ið umhverfi sem einfaldast. Sælla
sé að gefa en þiggja var eitt af
hennar lífsmottóum.
Elsku amma, ég er þakklátur
íyrir þær stundir sem við áttum
saman og þann stuðning sem þú
hefur ávallt veitt mér. Eg veit að
þér líður vel núna. Guð geymi þig.
Friðrik Bragason.
Söknuður á ef til vill ekki rétt á
sér þegar níutíu ára kona kveður
þetta líf. Samt mun ég sakna
ánægjulegra og uppbyggjandi sam-
tala við Þórdísi Olafsdóttur ijós-
móður. Hún fylgdist vel með þjóð-
málum, var víðlesin í ritum og
skáldsögum eftir nýja höfunda og
hélt hún reisn sinni til æviloka. Þór-
dís sýndi mikinn kjark og dugnað
þegar hún réðst í að læra ljósmóð-
urfræði 28 ára gömul, nýlega orðin
ekkja með son á fjórða ári. Eftir
ljósmæðrapróf frá Ljósmæðraskóla
Islands 1936 var hún fyrst umdæm-
isljósmóðir í Norðurárdalsumdæmi
í Mýrasýslu. Tvö ár, 1942-44 vann
hún við hjúkrunarstörf á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund, en
lengst var hún embættisljósmóðir í
Reykjavík eða frá 1944-69. Tók
hún þá á móti bömum í heimahús-
um við misjafnar aðstæður, tilbúin
að svara útkalli nætur og daga,
hvemig sem á stóð á hennar heim-
ili. Framan af var fararskjótinn
reiðhjól, var oft um langan, torfær-
an veg að fara og jafnvel í sumar-
bústaðalönd Reykvflringa. Þegar
Fæðingarheimili Reykjavíkur tók
til starfa 1960 fækkaði mjög heima-
fæðingum. Þá fór Þórdís að vinna
(1961-68) í afleysingum á mæðra-
deild og við heimahjúkrun Heilsu-
vemdarstöðvar Reykjavíkur. Frá
og með árinu 1968 varð hún fast-
ráðin við mæðradeild Heilsuvemd-
arstöðvar Reykjavíkur til ársins
1978 og þar af deildarljósmóðir á
áranum 1973-78. Árið 1978 hætti
hún svo störfum, sjötug að aldri,
vegna reglna um hámarksaldur í
starfi hjá Reykjavíkurborg.
Þórdís gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Ljósmæðrafélag ís-
lands, svo sem gjaldkerastöðu fé-
lagsins í ein 25 ár, frá 1944-69. Hún
var einnig fulltrúi þess á þingi
BSRB 1962-68 og einnig í kven-
réttindanefnd. Árið 1979 var hún
gerð að heiðursfélaga Ljósmæðra-
félags íslands. Öll sín störf vann
hún af einstakri trúmennsku og
alúð.
Hún var ákveðin í skoðunum og
fylgdi því eftir sem hún taldi rétt
vera og stóð vel með þeim sem
minna máttu sín. Farsæl var hún í
Ijósmóðurstörfunum, róleg og ör-
ugg-
Eg kveð Þórdísi með þökk og
virðingu. Blessuð sé minning
hennar.
Braga syni hennar og fjölskyldu
votta ég samúð.
Helga Daníelsdóttir, ljósmóðir
og hjúkrunarfræðingur.
• Fleiri minningargreinar um Þór-
dísi Ólafsdóttur bíða birtingar og
munu birtast (blaðinu næstu daga.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
TÓMAS JÓNSSON,
Skarðshlíð,
Austur-Eyjafjöllum,
andaðist laugardaginn 1. ágúst.
Jarðsett verður frá Eyvindarhólakirkju laugar-
daginn 8. ágúst kl. 14.00.
Kristín Jónsdóttir,
Guðrún Anna Tómasdóttir, Þorgils Gunnarsson,
Auðbjörg Tómasdóttir, Hermann Hansson,
Guðbjörg Jóna Tómasdóttir, Sveinn Borgar Jóhannesson,
Hjördís Tómasdóttir, Þórir Ingvarsson,
Guðmar Jón Tómasson, Helena Kjartansdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HELGA NIKULÁSDÓTTIR,
Brávallagötu 46,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 31. júlí síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 7. ágúst næstkomandi kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Guðmundur Einarsson,
Einar Guðmundsson, Stefanía Sörheller,
Esther H. Guðmundsdóttir, John Wanros,
Marfa Guðmundsdóttir, Páll Ragnarsson,
Sigurður Guðmundsson, Kristín Ósk Óskars,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
bróðir og afi,
LEÓ EGGERTSSON
fyrrv. aðalféhirðir,
Neshaga 15,
sem lést fimmtudaginn 30. júlí síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 7. ágúst kl. 13.30.
Fríða Björg Loftsdóttir,
Stefanía Magnúsdóttir, Jón Sigurjónsson,
Jónína Leósdóttir, Ámi Leósson,
Ásta Stefánsdóttir, Fjóla Eggertsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SIGURSTEINN ÁRNASON,
Hringbraut 61,
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn
7. ágúst kl. 13.30.
Sigríður Ólafsdóttir,
Áslaug Sigursteinsdóttir,
Margrét Sigursteinsdóttir, Kristján Egilsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns mins,
föður okkar, tengdaföður, sonar, bróður og
afa,
MAGNÚSARJÓNSSONAR,
Borgarholtsbraut 52,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11G,
geisladeild Landspítalans og Heimahlynningar
K.l. fyrir góða umönnun og veittan stuðning.
Helga Gísladóttir,
Elfa María Magnúsdóttir,
Jón Magnússon, Kristfn A.T. Jónsdóttir,
Ingvar Oddgeir Magnússon, Jóhanna Björnsdóttir,
Guðrún Marfasdóttir,
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir,
Matthildur Sif Jónsdóttir,
Freydís Jónsdóttir
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNA SIGRÍÐUR JÖRGENSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
áðurVitastíg 17,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn
2. ágúst.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Halldór Reynir Ársælsson, Guðfinna Sigurjónsdóttir,
Guðmundur Ingi Sigurðsson, Guðný S. Baldursdóttir,
Kristín Ósk Sigurðardóttir, Viðar Björnsson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhannes Ragnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RÓSBJÖRG KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR,
Hverfisgötu 2,
Siglufirði,
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar fimmtudaginn 30. júlí sl.
Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 6. ágúst
kl. 14.00.
Fyrir hönd barna minna, tengdabarna og barnabarna,
Jónas Stefánsson.
+
Elskuleg tengdamóðir, fósturmóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR ÞÓRMUNDSDÓTTIR
frá Meltúni,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju fimmtu-
daginn 6. ágúst kl. 13.30
Svavar Sigurjónsson,
Sigmar Pétursson, Þrúður J. Kristjánsdóttir,
Áslaug S. Svavarsdóttir, Geir Magnússon,
Margrét Svavarsdóttir, Ingólfur Gissurarson,
Eiríkur Svavarsson, Guðrún V. Eyjólfsdóttir,
Guðný Hallgrimsdóttir, Bjöm Haraldsson,
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ANGANTÝS HJÖRVARS
HJÁLMARSSONAR,
Vallartröð 5,
Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir tii starfsfólks Heima-
hlynningar.
Sigfríður L. Angantýsdóttir, Pétur Brynjólfsson,
Ingibjörg Angantýsdóttir, Haukur Karlsson,
Elfnborg Angantýsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við fráfall og útför okkar elskulegu eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
HELGU GUÐRÚNAR EIRÍKSDÓTTUR,
Bóli í Biskupstungum.
Hinrik Ó. Guðmundsson
og fjölskylda.
j
f
+
Innilegar þakkir við andlát og útför systur okkar og móður,
jónInu sigrúnar þorleifsdóttur.
Kolbeinn Þorleifsson,
Hanna Signý Georgsdóttir.
'
í'
í-
t
i'
f